Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Blaðsíða 26
Óbeint ofát „Ég er orðinn bjartsýnni en ég var.“ n Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta, lítur bjartari augum á HM eftir góðan sigur á Noregi í heimsbikarnum. -Vísir „Í þessu tilviki ætti kannski betur við að kalla þetta nútíma krossfest- ingu.“ n Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður skrifaði grein þar sem hann kemur Gunnari Þorsteinssyni til varnar í því sem hann kallar krossfestingu nútímans. -Fréttablaðið „Óskir mínar rættust og hann var bæði hlýlegur og almennilegur.“ n Rakel Árnadóttir er með heilalömun en hún elskar Eurovision og hitti eitt uppáhald sitt, Alexander Ryback, eftir jólatónleika Björgvins Halldórssonar. -DV „Ég er sáttur við mína frammistöðu.“ n Sveinbjörn Pétursson fór á kostum í sínum öðrum landsleik þegar Ísland vann Noreg í heimsbikarnum. -Fréttablaðið „Þetta hljómar ótrúlega en ég byrjaði að reykja sex ára gamall.“ n Bubbi hvetur fólk til að gefa sígaretturnar upp á bátinn - Pressan 100 ára fjöregg Um þetta leyti eru þau tímamót sem marka 100 ára samfellda útgáfu-sögu DV, Dagblaðsins-Vísis, sem nær allt aftur til 1910 þegar Ein- ar Gunnarsson, ritstjóri og útgefandi, kom í framkvæmd þeirri hugmynd að gefa út dag- blað. Fyrsta eintakið hét Vísir til dagblaðs í Reykjavík. Þar sannaðist hið fornkveðna að mjór er mikils vísir. Allar götur síðan í heila öld hefur þessi prentmiðill haldið velli þótt á stundum hafi gefið á bátinn. Í 100 ára sögu hafa langflestir aðstand- endur Dagblaðsins og Vísis haldið tryggð við þá stefnu að vinna fyrir almenning og segja fréttir sem eru sannar. Í fyrsta ein- takinu árið 1910 sagði Einar ritstjóri eftir- farandi: „... Dagblaðið ætti aðallega að vera sannort fréttablað ...“ Það voru fín einkunn- arorð. En þótt DV hafi yfirleitt verið fréttablað í anda fyrsta ritstjórans hafa komið tímar þar sem myrkrið náði völdum. Nærtækt er að minna þar á aðdragandann að gjaldþroti útgáfunnar árið 2003. Það fól í sér dauðann þegar ritstjórnin undir spilltu eignarhaldi var neydd til fylgilags við stærsta stjórn- málaflokk landsins. Þeir sem héldu á fjör- eggi fjölmiðilsins ákváðu að breyta honum í valdatæki, hækju valdsins. Svo langt var gengið að útsendara flokksins var komið fyr- ir á ritstjórninni. Blaðamenn voru neyddir til að ganga erinda hans. Og það töpuðu all- ir. Almenningur sneri baki við blaðinu sem leiddi til þess að útgáfan varð gjaldþrota. Sendiboðinn, blaðamennirnir og allt starfs- fólkið missti vinnuna. Eigendurnir sátu eft- ir snauðir og æruskertir. Þeir höfði brugðist þeirri skyldu sinni að viðhalda óháðum fjöl- miðli. Þeir sviku almenning. Ritstjórn DV hefur orðið fótaskortur í gegnum tíðina rétt eins og gerist á öll- um öðrum fjölmiðlum. Það fer þó ekkert á milli mála að í 100 ára sögu standa upp úr fréttamál sem hafa verið samfélaginu til góðs. Og það er markmið núverandi ritstjórnar að falla ekki ofan í pytt hags- munagæslu fyrir sérhagsmunum. DV seg- ir fréttir og fjallar um þau mál sem koma fólkinu í landinu við. Að leiðarljósi eru þeir hagsmunir að fjölmiðillinn standi fjár- hagslega á eigin fótum. Annars er hætta á því að myrkrið leggist aftur yfir. Það má aldrei aftur gerast. 100 ára slagur er að baki og baráttan heldur áfram. ReyniR tRaustason RitstjÓRi skRifaR: Eigendurnir sátu eftir snauðir. leiðari svarthöfði 26 umræða 10. desember 2010 föstudagur Leynipóstar Björns n Meðbyrinn með ævisögu Jón- ínu Ben minnkaði eftir að ávirð- ingar hóps kvenna í garð Gunnars Þorsteinsson- ar, eiginmanns hennar, komu fram. Óljóst er hver framvind- an verður á sölu bókarinnar þar sem ljóstrað er upp mörgun leyndarmál- um og raunar boðaðar fleiri upp- ljóstranir. Meðal þess sem þykir spennandi eru samskipti Jónínu við Björn Bjarnason, fyrrverandi dóms- málaráðherra. Jónina birtir örfáa pósta þeirra í millum en upplýsir að hún eigi fjölmarga aðra í handrað- anum. Þess er beðið að leynipóst- arnir komi fram. UmdeiLd heiðUrsLaUn n Listinn með þeim 28 einstakling- um sem þiggja heiðurslaun frá Al- þingi er kominn fram og kenn- ir þar ýmissa grasa. Hver og einn fær að gjöf frá almenn- ingi rúmlega 1,5 milljónir króna á ári. Þarna er að finna ágæt nöfn sem örugglega verðskulda heiður- inn, svo sem skáldkonuna dáðu Vig- dísi Grímsdóttur. Með slæðast svo einhverjir sem meiri vafi leikur á um. Hátt ber þar Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóra Moggans, sem af einhverjum lítt útskýrðum ástæð- um var settur á bitling á sínum tíma. hannes viLL spjaLLþátt n Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor er á meðal fyndnustu fræðimanna landsins. Þegar hann er ekki í vinn- unni í Háskóla Íslands eða að vinna að árleg- um stórvirkjum á sviði bókmennt- anna leggur hann lærisveini sínum á amx. is lið. Fullyrt er að Hannes skrifi á vefinn en sjálfur segist hann aðeins vera til aðstoðar. Á dögunum var lagt til á vefnum að Hannes fengi spjallþátt: „Það vantar nýjan spjallþáttakóng á Íslandi. Ég mæli með Hannesi Hólmsteini Giss- urarsyni. Honum yrði vel treyst- andi...,“ segir amx.is. Menn velkjast ekki í vafa um að þarna sé Hannes sjálfur á ferð. jón axeL í stUði n Jón Axel Ólafsson athafnamaður hefur farið mikinn með Eddu, útgáfu Andrésar Andar. Jón Axel mun hafa keypt útgáfuna af Björgólfi Guð- mundssyni, fyrrverandi bankaeig- anda, fyrir verulega upphæð. Um- svif útgáfunnar undanfarin misseri benda ekki til fjárskorts þótt því sé fleygt að þungt sé undir fæti. Það léttir þó nokkuð á að Jón Axel virðist hafa hitt naglann á höfuðið með út- gáfu Stóru Disney matreiðslubókar- innar sem hefur rokselst, minni spá- mönnum að óvörum. sandkorn tryggvagötu 11, 101 reykjavík Útgáfufélag: Dv ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir ritStjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is fréttaStjóri: Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is umSjón helgarblaðS: Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is umSjón innblaðS: Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is dv á netinu: Dv.IS aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 512 7004. umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: Árvakur. Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Ætli venjulegu skrifstofufólki þætti ekki dásamlegt að fara heim að lokn- um vinnudegi með skrifstofutöskuna fulla af bókum. Já, og sérstaklega ef taskan væri hengd á bakið og inni- héldi allt að tvöfaldri þyngd venjulegs skrifstofumanns. Ha ... eitthvað í ná- munda við tvö hundruð kíló. Jú, þing- menn allra landa ættu að sameinast um það að búa svo um hnúta að öllu fólki verði gert skylt að vinna heima- vinnu. Að loknum átta stunda vinnu- degi verða allir menn sem lífsanda draga að vinna heimavinnuna sína. Þetta er svona regla sem ætti eigin- lega að fara í stjórnarskrá. Við látum börnin okkar vera átta klukkustund- ir á dag í skóla, fimm daga vikunnar, fyrst og fremst til þess að okkur auðn- ist að þræla allavega lögboðnar átta stundir. Og svo er það heimavinnan. Já, blessuð horn- grýtis heima- vinnan. Þessi heimavinna sem ráðamenn unnu aldrei og vinna ekki. Heimavinn- an sem hruninu olli – vegna þess að hún var aldrei unnin. En bless- uð börnin, þau verða að vinna heima. Víst er eitthvað bogið við það að kúga ungviðið til setu á skólabekk í átta klukkustundir á dag og gera svo þá kröfu, að aukreitis lesi þau skrifi og reikni í formi heimavinnu. En hitt er þó heimska að krefjast þess af þokka- lega gefnu, sæmilega menntuðu og vel þroskuðu fólki að það sinni starfi í 8 stundir og í ýmsum tilvikum er krafan sú að fólk eyði 10 stundum við vinnu fimm daga vikunnar. Þetta er náttúrlega fásinna. Ekki síst ef tek- ið er tillit til rannsókna sem sýnt hafa að homo sapiens er ekki gerður fyr- ir nema í mesta lagi 6 klukkustunda vinnu með góðum afköstum. Ég hef meira að segja lesið það einhvers staðar, að fjögurra klukkustunda vinnudagur tryggi hámarks afköst og veiti auk þess svigrúm til ánægju og eðlilegrar hugsunar. Það er rétt að spyrja: Hvers vegna í ósköpunum er fólk látið vera á vinnustað í átta stundir hvern dag vinnuvikunnar ef afkastageta er hin sama eftir 4–6 stundir? Getur verið að fjármagnseigendur séu að reyna að kreista síðasta svitadropann úr hverj- um og einum starfskrafti – sama hvað það kostar – til þess eins að fullnægja kjánalegum kröfum græðginnar? Ef fólk væri ekki svona endalaust upptekið af gróðahyggju sem miðast við það eitt að skila af sér sem flestum vinnustundum á degi hverjum, væri kannski hægt að ætlast til þess að fólk gæfi sér tíma til að hugsa – að þá færu Íslendingar loks að vinna heimavinn- una sína. Í vinnu hefur maður mátt í margar stundir híma en synd er hvað við sýslum fátt á svona löngum tíma. Horngrýtis heimavinnan skáldið skrifar kRistján hReinsson skáld skrifar En blessuð börn-in, þau verða að vinna heima. bókstaflega Í slendingar eru orðnir fjórða feit-asta þjóð í Evrópu. Fimmti hver Íslendingur glímir við offitu. Þetta er ekkert grín. Offita er ein algengasta dánarorsökin í hinum vestræna heimi í dag. f yrir tveimur áratugum var loksins byrjað að berjast gegn óbeinum reykingum af krafti. Ein auglýsingaher- ferðin snerist um að reykingar væru eins og að pissa í sundlaug og ætl- ast til að vökvinn ógeðfelldi héldist aðeins á einum stað. Nýleg könnun Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar leiddi í ljós að 600 þúsund manns deyja í heiminum á hverju ári vegna óbeinna reykinga, þar af tvö hundr- uð þúsund börn. E kki hefur verið farið í við-líka herferðir gegn offitu eins og reykingum. Í dag er við lýði það skammsýna viðhorf að óbein offita sé ekki mögu- leg. En sannleikurinn er sá að fólk getur orðið fyrir skaðlegum áhrifum af offitu annarra. Það er vísindalega sannað að fólk sem umgengst þá sem borða óhollan mat borðar frekar óhollan mat sjálft. Börn of feitra eru miklu líklegri til þess að verða of feit en börn þeirra sem ekki eru of feitir. f ólk verður fyrir áhrifum af ofáti og hreyfingaleysi ann-arra. Þetta gildir ekki bara um börn. Ruslfæðismenn- ing eykur líkur á að óhollur matur verði fólki of mikil freisting og það verði of feitt. Þegar einhver borðar óhollan mat fyrir framan einhvern, er sá hinn sami að auka líkurnar á því að maður borði óhollan mat. Áhrifin eru ekki efnislegur flutn- ingur eins og óbeinar reykingar. Í tilfelli óbeinnar offitu er um að ræða félagssálfræðileg áhrif. En niðurstað- an er sú sama. Fólk sem verður fyrir óbeinu ofáti deyr frekar úr offitu, alveg eins og fólk sem verður fyrir óbeinum reykingum getur dáið af þeirra völdum. Þ essi hætta sem steðjar að börnum sem fullorðnum er af sama stærðarflokki og óbeinar reykingar og því ættu viðbrögð yfirvalda að vera sam- bærileg. Fyrst ætti að banna að borða ruslfæði í opinberum byggingum, ekki síst til að hreinsa út heilsufars- lega skaðlega matarmenningu. Svo ætti að stöðva neyslu ruslfæðis á veit- ingastöðum. Þeir sem fara á veitinga- stað verða oft fyrir þeim áhrifum af umhverfinu að þeir leiðast út í neyslu á fitandi óhollustu. Það er pissað í andlega laug þessa fólks. Vissulega mætti segja að fólk ætti bara að fara á veitingastað sem býður upp á holl- an mat. Þetta sé frjálst val. En þessi sömu rök gætu líka gilt um reykingar á veitingastöðum. Þ að er bannað með lögum að tala vel um tóbak í fjölmiðl-um. Sama ætti að gilda um óhollan mat. Enginn ætti að mega hrósa óhollum mat. Þetta er ekki svo langsótt. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, þingkona Samfylk- ingarinnar, lagði fram þingsálykt- unartillögu árið 2007 um að banna auglýsingar á ruslfæði nálægt barna- tíma í sjónvarpi. Katrín Jakobsdótt- ir menntamálaráðherra hefur lagt fram ný fjölmiðlalög, sem fela í sér að banna sýningu á sjónvarpsefni sem „haft getur skaðvænleg áhrif á lík- amlegan, andlegan eða siðferðilegan þroska barna“. V ið erum á barmi þess að fatta að óbeint ofát er jafnhættulegt og óbeinar reykingar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.