Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Page 40
40 Jólamatur Föstudagur10. desember 2010
Purursteikin
Best er að kaupa svínasíðu sem búið er að snyrta og skera í puruna.
þá er steikin sett í eldfast mót með puruna niður og vatn sett þar sem það nær
upp fyrir puruna.
Sett í ofn í 175 gráður í 20 mínútur.
Þá er steikinni snúið við, vatninu hellt af henni (jafnvel notað í soð), salti nuddað vel
í puruna og steikt áfram í 50 – 60 mínútur. Ofninn settur á 200 gráður og steikt áfram í
ca. 15 mínútur eða þar til puran fer að poppa.
Rauðsprettan
Rauðsprettuflaki er velt upp úr hveiti, eggi og raspi og síðan djúpsteikt.
Sett á gróft rúgbrauð með salati, remúlaði og t.d. spergli og sítrónu.
Dönsk lifrarkæfa
500 gr svínalifur
250 gr svínafita
1 laukur
2 egg
1 msk. smjör
1 msk. hveiti
1 msk. allrahanda
50 ml mjólk
salt og pipar
Hakkið svínalifur og svínafitu ásamt lauknum
Setjið í hrærivélarskál ásamt restinni af hráefninu og blandið
vel saman. Sett í smurt form og bakað í vatnsbaði í 55 mínútur
við 180 gráður.
Eplasalat
2 stk. græn epli
1 dl rjómi
100 gr sýrður rjómi
1 tsk. sítrónusafi
1 msk. sykur
Skrælið eplin og kjarnhreinsið
Skerið eplin í teninga, þeytið rjómann ásamt sykrinum, bætið sýrðum
rjóma og sítrónusafa við og blandið saman við eplin.
n Bjóddu til þín góðum gestum í langan og notalegan hádegisverð
Jólamatur að
dönskum sið
Fyrir alla þá sem langar til að reyna danska matargerð
um jólin eins og hún gerist best er hádegisverðurinn rétti
tíminn. Að njóta jólaandans með áherslu á dönsk nota-
legheit, „hygge“, gerir aðventuna skemmtilega og spenn-
andi. Snorri Birgir Snorrason, kokkur í Brauðbæ á Óðins-
véum, gefur okkur uppskriftir sem auðvelt er að reyna
heima við til að bjóða góðum gestum í langan og nota-
legan hádegisverð. Á matseðlinum er purusteik, innbök-
uð kæfa, drottningarskinka, smurbrauð og kæfa. Þessu er
gott að skola niður með góðu öli. kristjana@dv.is
Snorri í Brauðbæ
Snorri segir þann sið að
snæða af hlaðborði í
desember mega rekja til
Dana, þjóðarinnar sem
stundum er sögð hugsa
með maganum. Skráðar
heimildir um jólahlað-
borð á Íslandi eru ekki
auðfundnar en líklegt
er að Bjarni í Brauðbæ
hafi riðið á vaðið fyrir
hartnær 15 árum.
mynDiR RóBERt REyniSSon
Hamborgarhryggur og sósa Kaldar
sneiðar með frískandi sinnepssósu. Ekki
hafa sneiðarnar of þykkar.
Smurbrauð með rauðsprettu Það er ekki flókið
að reiða fram fallegt smurbrauð – og afar ljúffengt.
Smurbrauð með beikoni Matarmikið smurbrauð
með beikoni og sveppum.
Hátíðarsalat Sætt salat með
skinkunni og purusteikinni er ómissandi.
Góð purusteik er til prýði Það þarf að passa purusteikina
svo hún verði góð. innbökuð kæfa Girnileg kæfa sem er ekki erfitt að útbúa.
25% afsláttur af
öllum jólavörum
föstudag & laugardag
Jólagjöfin fyrir þá sem
þér þykir vænt um
Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is