Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Síða 2
2 | Fréttir 10. janúar 2011 Mánudagur
Björn Leifson, betur þekktur sem
Bjössi í líkamsræktarstöðinni World
Class, hefur ekki látið fjárhagserfið-
leika fyrirtækis síns koma í veg fyr-
ir íburðarmikinn lífsstíl. Hann er að
byggja 150 fermetra sumarbústað í
dýrasta og vinsælasta sumbústaða-
hverfi landsins við Þingvallavatn og
er nýkominn úr lúxúsferð með fjöl-
skyldu sinni til Mexíkó og Bandaríkj-
anna. Á myndum úr ferðinni, sem
blaðamaður DV hefur séð á netinu,
má sjá fjölskylduna synda með höfr-
ungum og flatmaga á strönd í Mex-
íkó og vera í limmósínu í New York
í Bandaríkjunum.
Á síðasta ári opnuðu Björn, sem
er framkvæmdastjóri World Class,
og Hafdís Jónsdóttir, eiginkona hans
og stærsti hluthafi World Class, tvær
nýjar líkamsræktarstöðvar. Önnur
er í Kringunni en hin í Ögurhvarfi í
Kópavogi. Samtals eru líkamsrækt-
arstöðvarnar um 2.600 fermetrar að
stærð.
Samkvæmt heimildum DV borgar
Björn mörgum af starfsmönnunum
sínum mjög góð laun sem ekki hafa
þekkst í bransanum áður. Hann yf-
irbauð nýlega líkamsræktarþjálfara
hjá samkeppnisaðila um150 prósent.
Eigandi líkamsræktarstöðvar sem
DV talaði við sagðist borga sínum
best launuðu kennurum um 4.000
krónur á tímann á meðan Björn væri
farinn að borga 10.000 krónur á tím-
ann.
43 milljóna lúxusbústaður
Eins og DV hefur áður greint frá
keypti Björn sumarbústað á 6.000
fermetra lóð á besta stað við Þing-
vallavatn árið 2008. Björn lét rífa
bústaðinn sem stóð þar fyrir og
byggir nú rúmlega150 fermetra bú-
stað á steyptum grunni og miðar
framkvæmdum vel að sögn iðnað-
armanns sem DV talaði við. Hann
sagði bústaðinn „vera bara ósköp
venjulegan bústað fyrir mann með
þessar tekjur,“ og er vonast til að
hann verði tilbúinn fyrir næsta sum-
ar. Sumarbústaðurinn þykir frekar
líkjast íburðarmiklu einbýlishúsi en
hinum hefðbundna timburbústað
sem Íslendingar eiga að venjast. Það
var Ari Már Lúðvíksson arkítekt sem
teiknaði bústaðinn en aðspurður um
kostnað við hönnun hans sagði Ari
„að það kæmi engum við.“
Í næsta nágrenni við bústað
Björns eiga margir af efnameiri
mönnum samfélagsins bústað og
má þar nefna Kjartan Gunnars-
son, fyrirverandi framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokksins, og Ágúst Guð-
mundsson, kenndan við Bakkavör.
Bústaður Björns er skráður á eign-
arhaldsfélagið Laugar ehf., en Björn
færði rekstur World Class á það fé-
lag stuttu fyrir greiðsluþrot Þreks eft-
ir misheppnaða útrás í Danmörku í
samstarfi við Straum Burðarás. Sam-
kvæmt ársreikningi Lauga ehf. 2009
er fasteignamat bústaðarins skráð
tæpar sjö milljónir og lóðin sem er
um 6.000 fermetrar á tæpar tvær
milljónir króna. Bókfært verð sumar-
hússins er hins vegar skráð sem tæp-
lega 43 milljónir og ætti það að gefa
einhverja hugmynd um þá fjármuni
sem eigendur félagsins hafa lagt í
byggingu hússins.
Samkvæmt ársreikningi Lauga
ehf. fyrir árið 2009 skuldar félagið um
ellefu hundruð milljónir og er eigið
fé neikvætt um 350 milljónir.
Þyrla flutti byggingarefni
DV hefur heimildir fyrir því að keypt
hafi verið lítil skurðgrafa sérstak-
lega fyrir byggingu sumarhússins en
einnig hefur verið notast við þyrlu.
Þyrlan var notuð í lok nóvember á
síðasta ári til að ferja gler og timbur
og til að reisa veggi og loka húsinu.
Samkvæmt heimildum DV kostar
ekki undir 200.000 krónum að leigja
þyrlu til Þingvalla og til baka en það
fer eftir þunga, umfangi og magni
þess efnis sem þarf að flytja hversu
hár kostnaðurinn fyrir flutninginn er.
Riftunarmál verður höfðað
Björn sagðist í viðtali við DV í okt-
óber 2009 óttast persónulegt gjald-
þrot og að sú tilhugsun væri ekki
góð. Hann viðurkenndi að þau hjón-
in hefðu þurft að breyta lífsstíl sínum
vegna fjárhagsstöðu og efnahags-
ástands. „Að sjálfsögðu höfum við
dregið saman í einkaneyslunni hjá
okkur því við þurfum að haga seglum
eftir vindi. Við erum ekki að ferðast
eins mikið erlendis til dæmis og ég
hef ekkert farið að veiða síðustu tvö
ár og skíðaferðir erlendis hafa ekki
verið neinar,“ sagði Björn þá.
Það vakti athygli að á sínum tíma
að sama dag og Þrek ehf. fór í þrot,
keyptu Björn og Hafdís, í gegnum
Laugar ehf., rekstur World Class út
úr þrotabúinu og greiddu einungis
25 milljónir fyrir eignir sem metnar
voru á 500–700 milljónir. Skiptastjóri
þrotabús Þreks ehf., Sigurbjörn Þor-
bergsson, sagði í fjölmiðlum í nóv-
ember í fyrra að kaupsamningurinn
væri hreinn gjafagerningur og höfð-
að yrði mál til riftunar á kaupunum.
Kröfur í þrotabú Þreks ehf. nema um
2,2 milljörðum króna.
Sigurbjörn segir aðspurður í sam-
tali við DV að enn standi til að höfða
LÚXUSLÍF Í SKUGGA
MILLJARÐASKULDA
n Byggja 150 fermetra sumarbústað við Þingvallavatn n Byggingarefni
flutt með þyrlu n Fjölskyldan nýkomin úr lúxúsferð til Mexíkó og New York
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
„Þyrlan var notuð
í lok nóvember á
síðasta ári til að ferja gler
og timbur og til að reisa
veggi og loka húsinu.
Áramót Björn og Hafdís eiginkona
hans fagna nýju ári. MYNd / skjÁskot aF FaceBook
erlendis um áramótin Björn
Leifsson og fjölskylda voru í
Mexíkó og New York yfir jól og
áramót. MYNd / skjÁskot aF FaceBook