Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Blaðsíða 17
Erlent | 17Mánudagur 10. janúar 2011
Vísindamenn segja að of seint sé að snúa þróuninni við:
Grænlandsjökull bráðnar hratt
Grænlandsjökull bráðnar mun hrað-
ar en áður var talið og brátt verð-
ur orðið of seint að bjarga jöklinum.
Þetta er fullyrt í vísindagrein sem birt-
ist í tímaritinu Journal of Hydromet-
eorology. Greinin var unnin af vís-
indamönnum við háskóla í Alaska og
Colorado í Bandaríkjunum, en einn-
ig af sérfræðingum við dönsku veð-
urstofuna, en rannsóknin var byggð á
gögnum frá stofnuninni.
Búið var til rannsóknarlíkan af
þróun ísbreiðunnar á Grænlandi, og
notaðar til þess tölur frá árinu 1950 en
líkanið nær allt til ársins 2080. Sam-
kvæmt greininni var ísbreiðan þegar
tekin að minnka um miðbik 20. aldar.
Á 8. og 9. áratug síðustu aldar komu
þó kuldaskeið sem héldu hnignun
jökulsins í skefjum um stundarsak-
ir. Nú er hins vegar svo komið að ís-
breiðan minnkar hratt, eftir hlýinda-
skeiðið sem ríkt hefur undanfarna tvo
áratugi en ekkert bendir til þess að
það skeið sé á enda runnið.
Í greininni kemur fram að lík-
lega sé um að kenna hlýnun jarðar
sem er af manna völdum. „Þó að það
myndi snjóa óeðlilega mikið á næstu
30 árum myndi það ekki bæta upp þá
hnignun sem þegar hefur átt sér stað,“
segir Jens Hesselbjerg Christensen,
einn höfunda greinarinnar. „Sam-
kvæmt líkaninu myndi ég segja að
þegar sé orðið of seint að snúa þróun-
inni við. Niðurstöðurnar sýna að stöð-
ug bráðnun ísbreiðunnar er óumflýj-
anleg.“
Þrátt fyrir þessar niðurstöður seg-
ir Christensen að það muni taka allt
að 1.000 ár fyrir Grænlandsjökul að
hverfa með öllu, en það gæti engu að
síður haft alvarlegar afleiðingar. „Ef
Grænlandsjökull bráðnar með öllu,
mun yfirborð sjávar hækka um sex til
sjö metra.“
Grænlandsjökull er í rénum Yfirborð sjávar gæti hækkað um sex til sjö metra bráðni jökullinn.
„Tilefnislaust
ofbeldisverk“
Bandarísk þingkona, Gabrielle Giff-
ords, liggur þungt haldin á sjúkra-
húsi eftir að hafa verið skotin í
höfuðið í Tucson í Arizona á laug-
ardag. Giffords var að halda útifund
á götuhorni, á viðburði sem hún
hafði auglýst á Twitter-síðu sinni
„fáðu þingið á þitt götuhorn.“ Þegar
skammt var liðið á fundinn var gerð
skot árás sem skildi eftir sig sex látna,
auk þess sem 12 voru særðir alvar-
lega. Þar á meðal var níu ára stúlka.
Barack Obama, forseti Banda-
ríkjanna, fordæmdi árásina og
hvatti landa sína til að biðja fyr-
ir Giffords. Hún er þingkona fyrir
Demókrataflokkinn í Arizona og var
að ræða við kjósendur sína þegar
maður gekk að henni og skaut hana
í höfuðið af stuttu færi. Hann skaut
síðan fólk af handahófi áður en við-
staddir náðu að yfirbuga hann og
afvopna.
Ætlaði að myrða þingkonuna
Einn þeirra sem aðstoðaði Giffords
á fundinum var Alex Villec. Giffords
sat við borð þar sem hún ræddi við
kjósendur sína einn af öðrum. Vill-
ec tók á móti 22 ára manni, Jared
Loughner, sem spurði hvort hann
mætti fá að ræða við þingkonuna.
Villec benti honum á að fara í röð-
ina, sem Loughner gerði. Nokkr-
um mínútum síðar gekk Loughner
úr röðinni og gekk beint að borði
Giffords, lyfti byssu sinni og skaut
hana í höfuðið. „Það var greinilegt
hver var skotmarkið. Hann ætlaði
að myrða þingkonuna,“ sagði Vill-
ec. Mikil geðshræring greip um sig
og fólk tók að hlaupa í allar áttir, en
árásin átti sér stað á bílastæði fyr-
ir utan matvöruverslun. Loughner
náði að skjóta 15 til 20 skotum áður
en hann var yfirbugaður.
Hafði fengið hótanir áður
Giffords sigraði naumlega í kosn-
ingum til fulltrúadeildar Banda-
ríkjaþings í nóvember síðast-
liðnum. Hún bar sigurorð af
frambjóðanda repúblikana, Jesse
Kelly, sem er fyrrverandi hermað-
ur sem naut mikils stuðnings frá
Teboðshreyfingunni svokölluðu.
Giffords hefur legið undir mikilli
gagnrýni frá íhaldsömum Banda-
ríkjamönnum, en hún er meðal
annars þekkt fyrir stuðning sinn
við heilbrigðisfrumvarp Baracks
Obama – frumvarp sem er rep-
úblikönum mjög á móti skapi. Þá
hefur hún einnig barist fyrir rétt-
indum kvenna til að fara í fóstur-
eyðingu.
Í aðdraganda kosninganna í
nóvember fékk Giffords fjölmarg-
ar hótanir. Gerð var aðför að kosn-
ingamiðstöð hennar þar sem rúð-
ur voru brotnar með grjótkasti.
Giffords ákvað samt sem áður að
halda sínu striki, og var fundurinn
á laugardag hluti af tilraun hennar
til að gera kjósendur sína meðvit-
aðri um stjórnmál.
Hræðilegur harmleikur
Obama sagði við fjölmiðla að um
hræðilegan harmleik væri að ræða.
„Við vitum ekki nákvæmlega hvað
gerðist. Það sem við vitum hins
vegar er að þetta var tilefnislaust
ofbeldisverk sem á ekki að eiga sér
stað í frjálsu samfélagi.“ Ótrúlegt
þykir að Giffords hafi lifað árás-
ina af en byssukúlan fór í gegnum
höfuð hennar. Peter Rhee var einn
skurðlæknanna sem framkvæmdu
aðgerð á Giffords. „Það er erfitt að
segja til um batahorfur en ég er
eins bjartsýnn og mögulegt er við
þessar aðstæður.“
n Bandarísk þingkona, Gabrielle Giffords, var skotin í höfuðið á
útifundi í Arizona n Árásarmaðurinn myrti sex áður en tókst að
yfirbuga hann n Giffords hafði fengið morðhótanir áður
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
„Það var greinilegt
hver var skot-
markið. Hann ætlaði að
myrða þingkonuna.
Gabrielle Giffords Liggur þungt haldin á
sjúkrahúsi eftir skotárás.
Innbrotsþjófur
drakk sig fullan
Lögreglan í Delaware í Bandaríkj-
unum fékk óvenjulegt mál upp í
hendurnar í síðustu viku. Hringdi
þá inn maður sem lýsti sig sekan um
innbrot og bað lögregluna vinsam-
legast um að sækja sig. Maðurinn
hafði brotist inn í hús nokkrum dög-
um áður og ætlaði sér að hafa ein-
hver verðmæti á brott. Í húsinu fann
hann hins vegar tvær ginflöskur
og eina viskíflösku. Hann ákvað að
drekka áfengið og varð í kjölfarið svo
ölvaður að hann treysti sér ekki til að
yfirgefa húsið. Að lokum var hann
orðinn svo bugaður af áfenginu að
hann ákvað að hringja á lögregluna
sér til aðstoðar.
Lengsta brú
í heimi
Kínverjar vígðu á dögunum lengstu
brú í heimi yfir vatni, Quingdao
Haiwan-brúna. Brúin er 42,5 kíló-
metrar að lengd og slær hún þar
með Lake Pontchartrain-brúnni í
Louisiana í Bandaríkjunum við, en
sú brú var áður sú lengsta, eða 38,5
kílómetrar. Quingdao Haiwan-brúin
var byggð á fjórum árum og kostaði
sem samsvarar þúsund milljörðum
íslenskra króna. Við brúargerðina
voru notuð rúmlega 450 þúsund
tonn af stáli, sem myndu nægja
til að byggja 65 Eiffel-turna. Brúin
tengir hafnarborgina Quingdao við
borgina Huangdao.
Trúin af hinu
slæma
Annar hver Dani telur að trúarbrögð
geri heiminn verri. Samkvæmt
Gallup-könnun sem framkvæmd var
í Danmörku kom í ljós að 44 prósent
Dana telja trúarbrögð gera heim-
inn að verri stað. Til samanburðar
voru aðeins 18 prósent sem töldu að
trúarbrögð gerðu heiminn að betri
stað. Phil Zuckerman, prófessor í
trúarbragðarfræði í háskólanum í
Árósum, segir ástæðuna margþætta.
„Skopmyndir, trúaðir Bandaríkja-
menn eins og George W. Bush og
Sarah Palin, svo ekki sé minnst á tíð-
ar sögur af kaþólskum prestum sem
misnota börn. Þetta eru atriði sem
eru föst í hugum Dana.“