Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Blaðsíða 14
Frábær þjónusta n Starfsmenn Hugo Boss í Kringlunni fá lofið í dag en ánægður viðskipta- vinur sendi eftirfarandi: „Ég vil gjarn- an að strákarnir í Hugo Boss fái lof fyrir frábæra þjónustu korter fyrir jól við gríðarúttaugaða kasólétta tveggja barna móður. Ég kom inn í búðina til þeirra að kaupa seðlaveski, því að þetta var eini staðurinn í Kringlunni sem seldi slíkt. Afgreiðslumaðurinn var svo hjálpsamur og almennileg- ur og vissi nákvæmlega hvað hann var að selja. Eftir að hafa rétt honum debetkortið yfir borðið teygði ég á óléttabakinu en þá leit hann á mig og spurði mig hvort ég væri viss um að það væri allt í lagi og hvort ég ætti nokkuð mikið eftir. Hann var ekki bara hjálpsamur heldur elskulegur í þokkabót.“ Þú átt réttinn Á heimasíðu Neytendasamtakanna er rætt um hvaða rétt neytandi hefur ef hann lendir í því að kaupa gallaða vöru og sami galli kemur ítrekað upp. Þar segir að samkvæmt lögum um neytendakaup hafi seljandi tvær tilraunir til að bæta úr sama gallanum á vöru. Þá getur seljandinn annaðhvort gert við vöruna eða afhent kaupanda nýja vöru. Ef selj- andi reynir að gera við vöru tvisvar án árangurs eða afhendir nýja vöru tvisvar, sem er gölluð, hefur neytandinn rétt á að rifta kaupunum og fá kaupverðið endurgreitt. Þvottavélarlaus n Viðskiptavinur vildi kvarta und- an þjónustu sem hann fékk hjá Raf- breidd. Hann segir fyrirtækið svo til það eina sem gerir við amerísk- ar þvottavélar en vélin hans bilaði í sumar. „Þegar loks fékkst maður til að kíkja á vélina þurfti að panta varahlut. Það var hins vegar ekki gert strax og erfiðlega gekk að fá hlutinn. Þegar ég hafði verið þvottavélarlaus í þrjá mánuði gafst ég upp og keypti nýja vél.“ Hann segist afar óánægður með þjónust- una og mörg loforð hafi verið svikin. „Það er eins og sérstaða þeirra í viðgerðum á amer- ískum þvottavélum veiti þeim vald til að koma illa fram við viðskiptavini,“ segir viðskiptavinurinn vonsvikni. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last Drykkir fyrir alla Í desember hóf göngu sína vefur fyrir þá sem leita sér uppskrifta og framsetningar á óáfengum drykkjum. Síðan heitir oafengt.is og þar er að finna ýmsar útfærslur á blönduðum óáfengum drykkjum sem eiga við við öll tækifæri. Má þar nefna hátíðardrykki, kaffidrykki, partíbollur, drykki með mat, aðventudrykki og heita drykki. Það ættu því allir að finna sér drykk við hæfi á þessari síðu. Á vefnum segir að fjölmargir aðilar standi að honum og þeir eigi það sameiginlegt að hafa áhuga á að auka fjölbreytni og valkosti fyrir þá sem nota og veita óáfenga drykki. Einnig að þeir sem veiti drykki í veislum sínum geti nú gert öllum gestum jafnhátt undir höfði þegar kemur að drykkjarföngum. 14 | Neytendur Umsjón: Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is 10. janúar 2011 Mánudagur E ld sn ey ti Verð á lítra 209,5 kr. Verð á lítra 211,3 kr. Bensín Dísilolía Verð á lítra 209,3 kr. Verð á lítra 211,1 kr. Verð á lítra 210,0 kr. Verð á lítra 211,3 kr. Verð á lítra 209,2 kr. Verð á lítra 211,1 kr. Verð á lítra 209,3 kr. Verð á lítra 211,1 kr. Verð á lítra 209,5 kr. Verð á lítra 211,3 kr. Algengt verð Almennt verð Algengt verð Akureyri Melabraut Algengt verð ÓljÓs uppruni og lítil gæði n Euro Shopper-vörur verri að gæðum og með óljósan uppruna n Lægra verði fylgja fleiri kaloríur en minni næring n Kynntar sem gæðavörur Euro Shopper og First Price koma iðulega illa út úr könnunum þar sem skoðað er kaloríuinnihald og gæði hráefna. Það færist í aukana að verslanir bjóði upp á vörumerki sem eru á lægra verði en önnur þekktari. Vör- ur svo sem frá Euro Shopper og First Price verða æ meira áberandi í hillum stórmarkaðanna og eflaust margir sem gleðjast yfir lægra vöru- verði. Í nágrannalöndum okkar eru neytendur töluvert betur upplýstir um neytendamál og umræðan mun opnari en hér á landi. Rannsókn- ir sýna að slíkar vörur eru verri að gæðum en vörur sem dýrari eru. Ástæða fyrir lágu verði Nokkuð hefur verið rætt um þessi ódýru vörumerki í löndunum í kringum okkur og sú umræða er alla jafna neikvæð. Neytendafrömuðir hafa skoðað vörurnar og borið þær saman við sambærilegar vörur. Nið- urstöður þeirra kannana eru að það er ástæða fyrir lágu verðinu. Euro Shopper og First Price koma iðu- lega illa út úr könnunum þar sem skoðað er kaloríuinnihald og gæði hráefnanna. Tekið skal fram að ekki hefur verið gerð sambærileg íslensk könnun og er því aðeins stuðst við þær erlendu. Engar athuganir hér á landi Ólafur Reykdal, verkefnastjóri hjá MATÍS, segist ekki kannast við að út- tekt hafi verið gerð á vörum frá Euro Shopper og First Price hér á landi. „Ég hef tekið eftir því að þessar vör- ur séu ódýrari en gengur og gerist en það er spurning hvað er á bak við það. Mér er ekki kunnugt um athug- anir hér á landi og veit ekki til þess að heilbrigðiseftirlit sveitarfélag- anna hafi skoðað þetta,“ segir Ólaf- ur. Aðspurður hvort honum finnist tilefni til þess að skoða þessar vör- ur og gera athugsemdir ef við á seg- ir hann svo vera. Ólafur segir fátt geta komið í veg fyrir innflutning á vörum sem uppfylla reglugerðir. Ef varan uppfyllir til dæmis ekki reglu- gerð um aðskotaefni þá sé hægt að stöðva dreifingu þar sem hún er ekki heimil. „Við vitum ekki hvort svo sé í þessum tilfellum,“ bætir hann við. Engar kvartanir Gunnar Ingi Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Hagkaups, segir að verslunin sé mjög sátt við vörurnar frá Euro Shopper. „Neytandinn hef- ur tekið þeim vel og þetta er ódýr valkostur í Hagkaupi. Neytend- ur leita eftir ódýrum valkostum og aldrei meira en einmitt í dag. Hvað okkur snertir þá erum við ánægð og við höfum ekki fengið kvartanir inn á okkar borð vegna Euro Shopper- varanna,“ segir hann. Fleiri kaloríur og minna af næringarefnum Euro Shopper býður upp á ýmsar vörur og á heimasíðu fyrirtækisins segir meðal annars að vörurnar séu gæðavörur á lágu verði. Að hönnun- in á vörunum endurspegli vöruna sjálfa og að þetta sé alþjóðlega við- urkennt merki. Því er vert að skoða nokkur þau atriði sem hafa verið áberandi í umræðunni ytra um Euro Shopper. Rætt hefur verið um að merkið fái yfirleitt lægstu einkunnir í vöru- prófunum. Til að mynda velti blaða- maður sænska blaðsins Dagens Nyheder því fyrir sér af hverju mat- arolían frá Euro Shopper væri eins ódýr og raun ber vitni. Niðurstaðan var að verðið væri alfarið á kostnað gæðanna. Norsk rannsókn sýndi fram á að magn af fiski í fiskréttum Euro Shopper sé aðeins um 25 pró- sent af því sem átti að vera þyngd fiskmetis. Handelsbladet í Noregi gerði úttekt á grillpylsum til að at- huga hverjar væru hollastar og Euro Shopper-pylsur lentu í neðsta sæti. Eins var athugun gerð á bleyjum og þar vermdu þær frá Euro Shopper neðsta sætið. Berjasulta sem fyrir- tækið sagðist hafa framleitt í Hol- landi var í raun framleidd í Serbíu en margir fengu niðurgang af neyslu hennar. Norsku neytendasamtök- in birtu svo grein þar sem lýst var hvernig talsmenn þeirra fóru í búð- ir og spurðu um uppruna vörunnar en fengu þau svör að neytandanum kæmi í raun ekki við hvaðan vörurn- ar kæmu. Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is raftækin vefjast helst fyrir fólki Olís, algengt verð 209,50 og 211,30 kr. Atlantsolía 209,30 og 211,10 kr. Skeljungur, algengt verð 210,00 og 211,30 kr. Orkan, höfuðborgarsvæðið 209,20 og 211,10 kr. ÓB, Melabraut 209,30 og 211,10 kr. N1, algengt verð 209,50 og 211,30 kr. Matarinnkaup Neytendur leita í auknum mæli að ódýrum valkosti. Verslun Framboð á ódýrum og minna þekktum vörumerkjum hefur aukist. Euro Shopper Vörurnar hafa ekki verið athugaðar hér á landi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.