Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Blaðsíða 22
22 | Viðtal 10. janúar 2011 Mánudagur Þ ekkir þú marga sem eru í jafnvægi, brosandi út að eyr- um? Líður þeim vel? Eru þeir hamingjusamir? Þeir eru ansi fáir sem fara þannig í gegnum lífið,“ segir Guðni Gunnarsson, lífs- ráðgjafi og hönnuður GlóMotion- kerfisins sem er kennt í Rope Yoga- setrinu í Engjateig. Þar er áherslan ekki lögð á líkamsrækt heldur alhliða heilsurækt til að hugur, líkami og sál séu í sem bestu jafnvægi. Fyrsta skrefið er að taka völdin í eigin hend- ur og bera ábyrgð á sjálfum sér. „Lífið er okkar og við getum ekki komist hjá því að taka ákvörðun. Ef við tökum ákvörðun um að taka ekki ákvörðun hefur sú ákvörðun aðrar afleiðing- ar en þegar við veljum eitthvað. Hér erum við að reyna að vekja það besta og öflugasta innra með þér. Því ann- aðhvort er líf okkar viljandi val sem við berum fulla ábyrgð á eða óvilj- andi slys sem við viljum ekki taka ábyrgð á. Stærsta höfnunin sem við getum veitt okkur er að telja að öðr- um sé betur gefið að ráðstafa okkar lífi. Að við séum bara farþegar í mót- þróa. Það er ekki gott líf.“ Meiða sig með mat GlóMotion-kerfið er byggt á hreyf- ingu, hugarfari, öndun og næringar- sálfræði. „Næring er orka og við get- um ekki varið orku nema í vansæld eða velsæld. Flestir nota orkuna til þess að bæla sig og kvelja í stað þess að næra sig og upphefja. Það sama gildir um hreyfinguna, fullt af fólki hreyfir sig en er að meiða sig með því í stað þess að sýna sér umhyggju og kærleik. Öll okkar umgörð bygg- ir á skynsemi, að hvetja líkamann í vitund með kærleika og alúð. Beita honum til velsældar en ekki til van- sældar. Best er að gera þetta á heild- rænan hátt þar sem enginn þáttur er undanskilinn.“ Rope Yoga-kerfið er í raun hluti af GlóMotion en Guðni leggur áherslu á það að aðeins eitt skref sé tekið í einu. „Þetta er tekið í stigum. Þegar þú kemur inn sem byrjandi er þér fyrst kennt að virkja vöðva í djúp- kviðnum til að bæta meltinguna og kviðstyrkinn. Þegar þú hefur öðl- ast kviðstyrk öðlast þú öðruvísi jafn- vægi og miðju í líkamann. Síðan er hægt að byggja smám saman ofan á það eftir því sem fólk verður styrkara, næringarfræðinni og hugmynda- fræðinni.“ Máttur fyrirgefningar Hann segir erfitt að kafa dýpra ofan í hlutina þegar fólk hefur ekki burði eða orku til þess að takast á við þá. „Við þurfum að byrja á því að kveikja á ofninum sem er í kviðnum, kveikja á ástríðunni, fá meiri orku og öðlast styrk og kraft. Byrja á því að hreyfa okkur og fá súrefni til að kveikja upp í okkar eigin tilvist. Þegar það gerist hefur fólk meiri orku til þess að stíga lengra, fara inn í hugmyndafræðina, taka ábyrgð og fyrirgefa sjálfum sér. Veistu hvað það er gríðarlega mik- il orka sem er leyst úr læðingi þegar fólk fyrirgefur sjálfu sér?“ Hann segir að allir þurfi að fyr- irgefa sjálfum sér. Alla vega hafi all- ir sem hann hefur kynnst þurft að gera það. „Því allir sem ég hef kynnst hafa búið við gríðarlegt ofbeldi af eigin völdum. Menn eru yfirhöf- uð vondir við sjálfa sig. Ég held að það sé kominn tími til að við skilj- um það að við erum að beita okkur sjálf ofbeldi. Við erum að reyna að fá fólk til þess að hugsa um möguleik- ana, virkja það besta í eigin tilvist og beina athyglinni að því. Snerta sína eigin sál. Ganga að eiga sjálfan sig og vera í sómakærri samvist við sig. Oft- ast ganga okkar samskipti út á það að vera vel metin af öðrum en ég vil vera vel metinn af sjálfum mér. Því er ég að búa til heimild í sjálfum mér fyrir velsæld. Ég kemst aldrei langt nema mér líki vel við sjálfan mig. Ég fer aldrei lengra en heimildin leyfir.“ Barn alkóhólista Guðni kemur sjálfur úr alkóhólísku umhverfi og var óstýrilátur ungling- ur. Engu að síður vissi hann strax þrettán ára að hann bar ábyrgð á eig- in líðan og lífi. „Ég brölti samt um eins og aðrir unglingar og var skítlog- andi hræddur. Meirihluta unglings- áranna var ég nánast sjálfala. Þá gekk ég í gegnum alls konar tímabil og þau voru ekki öll átakalaus. En ég var allt- af í vitund gagnvart minni ábyrgð, ég vissi hvað ég þurfti að gera til að líða vel og hvað varð til þess að mér leið illa. Ég valdi ekki alltaf að líða vel. En þar sem ég var meðvitaður vissi ég hvenær ég var kominn að mínum mörkum og þegar ég gekk of nærri mér fann ég alltaf leiðina til baka í gegnum hreyfingu. Smám saman rann það upp fyrir mér að það voru ákveðnar forsendur fyrir jafnvægi og vellíðan. Í kjölfarið fór ég að búa til ákveðnar iðkanir, varð áhugamaður um hreyfingu, keypti fyrirtæki og fór að starfa í þessum geira.“ Hann var meðal annars fyrsti líkamsræktar- þjálfari landsins. „Í framhaldi af því fór ég að kafa ofan í næringarfræði, jóga, slökun og hugrækt og menntaði mig sem lífsráðgjafi. Ég starfa enn við það í dag og vil taka á hug og heilsu- rækt sem tæki til alhliða vesældar.“ Vann með stórstjörnur í Bandaríkjunum Hann hélt til Bandaríkjanna þar sem hann þróaði þetta kerfi. Þar vann hann með framkvæmdastjór- um, forstjórum og kvikmyndastjörn- um og alls konar fólki. „Sumir komu af því að þeir vildu gera sem mest úr sinni tilveru og vera í sem bestu andlegu, líkam- legu og tilfinn- ingalegu ástandi. Síðan vann ég við það að koma fólki í andlegt og líkamlegt at- gervi fyrir bíó- myndir og ann- að. Sumir komu í miklu ójafnvægi, með orkuskort og þráhyggju sem skapaði vanda- mál. Þannig að það er ansi misjafnt í hvaða ástandi fólk kemur eða á hvaða forsendum. Ég get hjálpað öllum sem vilja hjálp. Lífsráðgjöf gengur út á orkuumssýslu og ég get alltaf sagt fólki hvernig það er að verja orku sinni. Þetta er ekkert ólíkt því að vera endurskoðandi því þegar ég horfi yfir þína tilvist þá sé ég hvað er í gangi hjá þér og hvort þú sért í mínus eða plús.“ Kim Basinger eftirminnilegust Kim Basinger er ein eftirminnileg- asta stórstjarnan sem Guðni vann með. „Hún var yndisleg, björt og glaðvær. Hún var mjög spontant og átti það til að fara að syngja upp úr þurru. Mér fannst það skrýtið til að byrja með en síð- an vandist það eins og annað. Ég á alls konar minningar en það sem eftir stendur er aðallega það að þetta var allt ynd- islegt fólk sem vildi hafa gaman af lífinu og láta gott af sér leiða. Þetta er afreksfólk sem hefur útgeisl- un sem mynda- vélarnar fanga. Útgeislunin, það er að segja löngunin til að láta ljós sitt skína, er það sem gerir að verkum að sumir verða frægir. Það hefur ekkert með leikhæfileikana að gera. Ef þú hefur útgeislun ertu full af ástríðu því þú hefur fundið þitt hlutverk í til- verunni.“ Máttur viljans er eitt af því sem Guðni er að vinna með. Löngun hans til þess að deila þeim hug- myndum með öðrum varð til þess að hann skrifaði bók sem er væntanleg á næstu vikum. „Lífið er orka. Ef far- artæki sálarinnar er ekki í jafnvægi þá geta sálin, hugurinn eða heils- an aldrei verið í jafnvægi. Sem þýðir að þú þarft að verja gríðarlegri orku í krísur, sjúkdóma eða vansæld. Þú getur aldrei lifað sem fullvaxta eða blómstrandi blóm nema allir þættir þinnar tilvistar séu í jafnvægi. Þú get- ur aldrei upplifað hamingju ef þú ert ekki í þakklæti og þú getur ekki ver- ið í þakklæti ef þú hefur ekki heilsu. Þú getur haft snefil af því sem sumir kalla hamingju en ég kalla gleymsku. Menn gleyma sér í einhvers kon- ar fjarvist eða afþreyingu og upplifa gleymsku sem þeir kalla hamingju. Það er ekki hamingja. Hamingja er kyrrð, kærleikur og þakklæti.“ Streita er aðþrengt hjarta Aftur á móti telur hann að það sé ekki hægt að ástunda þetta prógram án þess að öðlast velgengni. „Ég held að þegar fólk vinnur út frá for- sendum nægjunnar en ekki skorts- ins og ef það skilur að þetta augna- blik er fullkomið hefur það áhrif á allt lífið. Í veruleikanum er þetta svo ein- falt. Streita er aðþrengt hjarta. Þeg- ar við höfum þrengt að okkar til- finningalífi upplifum við í streitu og ótta. Um leið og við leyfum okkur að blómstra breytist tíðnin í samskipt- um við tilveruna. Þegar það gerist þá laðar þú að þér hamingju og vel- ferð í stað þess að hrinda henni frá. Meðalmaður hafnar sér 800 sinnum á dag Guðni Gunnarsson lífsráð- gjafi ólst upp við alkóhólisma en var meðvitaður um ábyrgðina sem hann bar á eigin lífi. Hann hefur þróað kerfi til að hjálpa fólki að öðlast hamingjuna, sem hann notaði til að hjálpa stórstjörnum í Hollywood. Einfaldasta leiðin til að öðlast velsæld er að breyta matar- venjunum en hann telur að matur sé mesta böl samfé- lagsins. Hann segir líka að allir sem hann hafi kynnst hafi beitt sjálfa sig ofbeldi og því þurft að fyrirgefa sjálfum sér. „Þegar þú blótar þér með því að segjast vera of feit, of ljót, of stutt eða of stór, því það vantar alltaf tommu, ertu að hafna þér, yfirgefa þig og svíkja. Ofbeldið er gríðarlegt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.