Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Blaðsíða 19
S tundum virðist sem við lifum í eilífri nútíð. Fjölmiðlar eiga sína sök á þessu. Fréttir eru fluttar frá degi til dags, stund- um er rennt yfir helstu atburði vik- unnar, en það er sjaldnast sem hlut- irnir eru settir í stærra samhengi. Það er helst á áramótum, í fréttaann- álum og enn fremur í Skaupinu, sem litið er yfir farinn veg. Þessi skortur á yfirsýn getur leitt til þess að orsaka- samhengi brenglast, jafnvel í aug- ljósustu málum. Nú er kreppa og nú er vinstristjórn. Því hlýtur kreppan að vera vinstristjórninni að kenna. En þó kom kreppan á undan vinstri- stjórninni, og hún er því viðbrögð við kreppunni, ekki orsök hennar. Í hinni eilífu nútíð sem virðist ríkja í Alþingissal er það sama uppi á teningnum. Litlu máli skiptir hvað menn sögðu í hitteðfyrra eða jafnvel í gær. Þeir sem gera mistökin kenna þeim um sem þurfa að lagfæra þau. Sá sem þarf að leysa vandamálið er um leið gerður ábyrgur fyrir orsök- um þess. Sögunni snúið á haus Bandaríski heimspekingurinn Em- erson sagði að í opinberri umræðu væri öllu snúið á haus, allt væri skrumskælt og mönnum gerðar upp skoðanir sem þeir hefðu aldrei haft. Það er aðeins ef hlutirnir eru settir í stærra samhengi, þegar ferill fólks er skoðaður í heild, að við sjáum hvað menn raunverulega standa fyrir. Því er nauðsynlegt að rifja stundum upp grundvallaratriði eins og þetta: Sjálfstæðismenn tóku við blómstr- andi efnahag og settu landið á haus- inn, vinstristjórnin tók við landi á hvínandi kúpunni og er í óða önn að byggja það upp aftur. Samkvæmt þessu ætti Steingrímur J. Sigfússon að fara á spjöld sögunnar sem ein- hver færasti fjármálaráðherra sem Ísland hefur átt. En það er hætta á því ef framtíðin verður föst í enda- lausri nútíð að öllu verði snúið á haus. Ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst aftur til valda að kreppu lokinni, þá mun vinstristjórninni vera kennt um kreppuna þrátt fyrir að hún hafi komið okkur út úr henni, og Sjálf- stæðisflokkurinn mun frá hrósið fyrir afrakstur uppbyggingarinnar. Líklega mun hann síðan setja okkur aftur á hausinn í næsta góðæri, því enginn hefur lært neitt af fortíðinni. Tíðindalítið ár? 2010 var tíðindamikið ár á íslenskan mælikvarða, en þó gerðust hér ekki jafn stórir viðburðir og hefði mátt búast við í landi í allsherjarkreppu. Icesave var mál málanna fram eft- ir ári en hvarf síðan á undarleg- an hátt, rannsóknarskýrslan skýrði margt en breytti litlu, að minnsta kosti til skemmri tíma litið, Eyja- fjallagosið vakti heimsathygli en var eitt af fáum málum sem ekki vöktu upp flokkadrætti á Alþingi. Það var engin ný bylting, hvorki frá vinstri né hægri, þó það hefði orðið örlítill vísir að slíkum möguleika á haust- mánuðum. Stjórnin hélt velli, kos- ið var þrisvar en þó ekki til Alþingis. Nýtt framboð komst að í Reykjavík og var líklega það byltingarkennd- asta sem gerðist í stjórnmálum, en helstu og verstu einkenni kreppu, stanslaus stjórnarskipti, verkföll og jafnvel götubardagar, eru fjarver- andi. Þrátt fyrir skýrari flokkadrætti en áður hefur þjóðfélagið ekki gliðn- að í sundur. Þvert á móti má enn greina ákveðinn samhug þrátt fyrir allt, samhug sem var svo áberandi á fyrstu dögunum eftir hrun. Fólk virðist almennt staðráðið í að kom- ast út úr erfiðleikunum á eins fljótan og öruggan hátt og hægt er. Því má leyfa sér að vera hóflega bjartsýnn með það ár sem rétt er að hefjast. En það er þó ekki nóg að reisa efnahaginn við, heldur verðum við að læra af þeim mistökum sem gerð hafa verið. Ríkisstjórnin hefur staðið sig vel í efnahagsmálum, en minna hefur farið fyrir því uppgjöri sem enn á eftir að fara fram. Menn verða að vera látnir bera ábyrgð á því sem þeir báru ábyrgð á. Ef við höld- um áfram að lifa í endalausri nútíð getum við verið viss um að fortíðin muni endurtaka sig, og sömu mis- tökin verði gerð aftur og aftur án þess að nokkur læri nokkurn tím- ann neitt. Umræða | 19Mánudagur 10. janúar 2011 Stolt og auðmjúk 1 Jón Stóri og Semper FI: Yfir 200 manns sóttu um Jón vonast til þess að hleypa inn nokkur hundruð meðlimum í klúbbinn sinn, Semper Fi. 2 Maður valsar ekkert bara inn í Valhöll... Teikning Gulu pressunnar af Friðriki Sophussyni. 3 Sefur í tvær vikur í einu: „Ég verð bara rosalega reið og ljót“ Viðtal við Söndru Daðadóttur sem þjáist af Kleine-Levin Syndrome. 4 Laumuðu sér í heitu pottana Tveir unglingar handteknir um nótt eftir að hafa stolist í heitu pottana í sundlaug í Hafnarfirði 5 Mistókst að brjóta skilti Myndband af manni sem reyndi að brjóta skilti með höfðinu. 6 Gabrielle Giffords alvarlega særð Bandaríska þingkonan Gabrielle Giffords liggur þungt haldin á sjúkrahúsi eftir að hafa verið skotin í höfuðið. 7 Usmanov þótti mjög góður viðskiptavinur Kaupþingi þótti það mikill happafengur þegar Usmanov hóf viðskipti við bankann. Lára Björnsdóttir er handhafi Rósarinnar 2011, en verðlaunin eru veitt árlega í minningu Ástu B. Þorsteins- dóttur fyrir framúrskarandi störf sem stuðla að þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu til jafns við aðra. Lára var félagsmálastjóri Reykjavíkur í tólf ár, en hefur frá árinu 2007 verið við stjórnunarstörf í félags- og trygginga- málaráðuneyti, sem nú heitir velferðar- ráðuneyti. Áhugi Láru á velferð fatlaðs fólks, ásamt virðing fyrir einstaklingn- um og ákvörðunarrétti hans, hefur fylgt henni alla tíð. Hvaða þýðingu hefur þessi viðurkenning fyrir þig? „Ég er mjög glöð og stolt, hrærð og auðmjúk. Ég þekkti Ástu mjög vel og bar mikla virð- ingu fyrir henni. Ég hef ekki kynnst neinum sem býr yfir öðrum eins sannfæringarkrafti og Ásta gerði. Höfum við þokast í rétta átt í málefnum fatlaðra? „Já, en ekki nægjanlega langt. Þess vegna mátti málaflokkurinn ekki við því að missa Ástu svona fljótt. Mér finnst hafa verið ákveðin stöðnun í þessum málum undan- farin ár, sem er þó aðeins að breytast.“ Hvað stendur helst í veginum fyrir frekari árangri? „Fatlaðir eru enn í of mikilli einangrun. Eitt af því sem Ásta og ég vorum samtaka um var að betri árangur næðist með því að þessi málaflokkur flyttist til sveitarfélaga. Nú um áramótin varð þetta að veruleika og ég held það eigi eftir að verða til góðs. Eru fordómar enn við lýði? „Já, það er því miður grunnt á þeim. Ástæðan er þekkingarleysi, en til að útrýma fordómum þarf meiri þekkingu og betri fræði. Nú er kennd fötlunarfræði við háskólann sem er mjög af hinu góða. Það var líka stór áfangi þegar fötluð börn voru tekin inn í leikskólana. Það er svo mikilvægt að útrýma þeirri einangrun sem verður oft hlutskipti fatlaðra. Þá er sáttmáli SÞ um réttindi fatlaðs fólks, sem Ísland er búið að undirrita og við ætlum að reyna að fullgilda í ráðuneytinu og kannski lögfesta, mikið framfaraskref. Þar er kveðið mjög skýrt á um að þetta sé mannréttindasamningur og að í honum felist ekkert annað en að fatlað fólk eigi að njóta sömu mannréttinda og við sem erum heilbrigð. Ætlar þú að halda áfram að berjast fyrir mannréttindum fatlaðra? „Já, þessi málaflokkur stendur mér mjög nærri og ég held að þetta verði mér hjartans mál meðan ég dreg andann. “ „Nei, mjög lítið.“ Kristín Sigurðardóttir 44 ára, íþróttafræðingur í atvinnuleit „Nei, ekkert.“ Guðrún Blöndal 50 ára, vinnur í fjármálafyrirtæki „Eitthvað, já.“ Ester Gunnarsdóttir 26 ára, nemi „Ekkert fyrir mig, en ég er búin að kaupa aðeins fyrir dóttur mína.“ Guðlaug Sturlaugsdóttir 45 ára, skólastjóri „Já, ég er búin að gera ágætiskaup.“ Tanja Jóhannsdóttir 20 ára, nemi Mest lesið á dv.is Maður dagsins Ertu búin að kaupa mikið á útsölum? Kuldalegt Óvanalegt verður að teljast að sjá hjólhýsi við Þingvallavatn á þessum árstíma. Þetta var þó staðsett þar í fimbulkulda um helgina. Mynd: Róbert Reynisson Myndin Endalaus nútíð Dómstóll götunnar „Eyjafjallagosið vakti heimsathygli en var eitt af fáum málum sem ekki vöktu upp flokkadrætti á Alþingi. Kjallari Valur Gunnarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.