Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Blaðsíða 4
sleppur við skulda- halann 4 | Fréttir 10. janúar 2011 Mánudagur Afbrotafræðingur hefur ekkert út á samtökin Semper Fi að setja: „Hið besta mál“ Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is Stuðningshlífar fjölbreytt úrval „Á meðan menn eru að stunda lög- lega iðju er ekkert út á þetta að setja,“ segir Helgi Gunnlaugsson, prófess- or í félags- og mannvísindadeild Há- skóla Íslands. Í helgarblaði DV var greint frá því að Jón Hilmar Hall- grímsson, betur þekktur sem Jón stóri, væri að stofna samtök sem bera nafnið Semper Fi. Sagði Jón í samtali við DV að allir væru velkomnir í sam- tökin, líka afbrotamenn. Helgi vonast til að innan Semper Fi verði aðeins stunduð lögleg iðja. „Á meðan menn eru að stunda löglega iðju er ekkert út á þetta að setja. Að menn skapi með sér tengsl er gott mál og það er jákvætt að svona félagsskap- ur sé sýnilegur. Þá er ekki verið að fela eitt eða neitt og ef menn hefðu eitthvað ólöglegt í hyggju væru þeir væntanlega ekki að auglýsa þetta,“ segir Helgi. „Fangar hafa með sér svona sam- tök inni í fangelsunum sem hafa gert ýmislegt gott. Um eflingu félags- banda er í sjálfu sér ekkert nema gott að segja og er raunverulega jákvætt. Í sjálfu sér getur þessi félagsskapur orðið hið besta mál, svo fremi sem menn stundi þarna löglega iðju.“ Helgi óttast ekki fyrir fram að samtök sem þessi þurfi að leiða af sér afbrot af hálfu meðlima. Þvert á móti vonast hann til að svona sam- tök geti jafnvel hjálpað mönnum af glæpabrautinni. „Það má segja að hér á landi hafi skort félagsbönd eftir afplánun svo menn geti átt leiðir út úr brotastarfseminni. Ef menn geta í þessum samtökum haft stuðning hver af öðrum þá er það hið besta mál. Í fljótu bragði virðist þetta stofn- að í góðum tilgangi en ef menn verða uppvísir að öðru þá verður auðvit- að að taka á því. Við verðum að gefa þeim tækifæri,“ segir Helgi. Jákvætt Helgi segir að félagsskapurinn geti orðið hið besta mál, svo lengi sem lögleg iðja sé stunduð. Rúmlega 2.500 fermetra fasteign í Borgartúni, sem áður var í eigu Lúðvíks Bergvinssonar fyrrver- andi þingmanns Samfylkingarinn- ar og viðskiptafélaga hans í eignar- haldsfélaginu Miðkletti, er til sölu hjá Regin ehf., dótturfélagi Lands- bankans. Bankinn leysti fasteign- ina til sín í febrúar í fyrra og er hún auglýst til sölu á heimasíðu Regins ásamt öðrum eignum félagsins. Í skýrslu rannsóknarnefndar Al- þingis kemur fram að Lúðvík hafi verið fjórði skuldugasti þingmaður landsins á árunum fyrir hrunið en skuldirnar sem voru tengdar nafni hans námu 755 milljónum króna samkvæmt skýrslunni. Í skýrsl- unni kom fram að öll veruleg lán sem tengdust Lúðvíki á tímabilinu hefðu verið á vegum Miðkletts sem var í helmingseigu þingmannsins fyrrverandi. DV hafði samband við Lúðvík á sunnudaginn til að ræða við hann um stöðu Miðkletts. Lúðvík vildi ekki ræða stöðu félagsins þar sem hann sagði að hann ætti ekki leng- ur hlut í því. „Ég get ekki tjáð mig um félag sem ég á ekki lengur hlut í,“ sagði Lúðvík. Hins vegar skal tek- ið fram að Miðklettur stofnaði til skuldanna á meðan Lúðvík átti enn hlut í því. Mikil umræða um fjármál Lúðvíks Mikil umræða skapaðist um fjár- mál Lúðvíks í kjölfar hrunsins haustið 2008. Meðal annars var greint frá því í lok árs 2008 að Lúð- vík hefði sagt sig úr stjórn Mið- kletts – tilkynning um úrsögn hans úr stjórninni barst hlutafélagaskrá þann 6. janúar 2009. Þá var sagt frá því í Morgunblaðinu í febrúar 2009 að skuldastaða þingmannsins þá- verandi hefði komið í veg fyrir að hann fengi ráðherraembætti, lík- lega embætti dómsmálaráðherra, í stjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Þessu hafnaði Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylk- ingarinnar, í tilkynningu og sagði að fyrir hefði hefði legið að utan- aðkomandi aðili, ekki þingmaður, hefði átt að gegna starfi dómsmála- ráðherra. Í sama mánuði sendi Lúðvík frá sér tilkynningu þar sem hann sagð- ist ætla að hætta þingmennsku og að hann ætlaði ekki að bjóða sig fram í þingkosningunum sem fram fóru þá um vorið. Lúðvík hafði þá setið á þingi í fjórtán ár. Í tilkynn- ingunni rökstuddi Lúðvík meðal annars þessa niðurstöðu sína með eftirfarandi orðum: „Þau miklu straumhvörf sem orðið hafa í ís- lensku samfélagi undanfarna mán- uði, gera þá sjálfsögðu og eðlilegu kröfu að breytingar verði á skipan Alþingis, enda er þáttur stjórnvalda mikill þegar kemur að ábyrgð á því að fjármálakerfi landsins hrundi.“ Með útkomu rannsóknarskýrslu Alþingis rúmu ári síðar kom í ljós hversu háar þessar skuldir Mið- kletts í bankakerfinu voru í raun. Skuldin milljarður Í ársreikningi Miðkletts, sem í dag heitir MMK ehf., kemur fram að skuldir félagsins hafi numið rúm- um milljarði króna í árslok 2009. Þá kemur fram að tæplega 966 millj- ónir af þessum skuldum hafi verið við Landsbanka Íslands og að félag- ið átti að greiða allar þessir skuldir árið 2010, í fyrra. Enn frekar er til- greint að vanskil félagsins vegna þessara lána við Landsbankann hafi numið tæpum milljarði króna árið 2009. Á móti þessum skuldum eru eignir sem bókfærðar eru sem rúm- lega 608 milljóna króna virði. Þar af er fasteignin í Borgartúni metin á rúmlega 508 milljónir króna. Um 400 milljóna króna munur er því á skuldum félagsins og eignum. Enn fremur segir að rekstrartap ársins hafi verið nærri 161 milljón króna árið 2009. Af ársreikningnum að dæma verður því ekki séð að félagið hafi getað staðið við skuldbindingar sínar gagnvart Landsbankanum og því hafi bankinn leyst fasteign- ina í Borgartúni til sín. Jafnframt er erfitt að draga aðra ályktun af árs- reikningi félagsins en að afskrifa þurfi hluta af skuldum félagsins. Óvíst er hins vegar hversu mikið mun fást fyrir húseignina í Borg- artúni en matsverð hússins er, eins og áður segir, rúmur hálfur millj- arður króna samkvæmt ársreikn- ingnum. n Skuld eignarhaldsfélags Lúðvíks Bergvinssonar nemur rúmum milljarði króna n Landsbankinn leysti fasteign félagsins til sín í febrúar í fyrra n Lánið er í vanskilum um nærri hálfan milljarð n Skuldir félagsins 400 milljónum hærri en virði eigna„Þau miklu straum- hvörf, sem orðið hafa í íslensku samfélagi undanfarna mánuði, gera þá sjálfsögðu og eðlilegu kröfu að breytingar verði á skipan Alþingis. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Tunnumótmæli hefjast aftur Boðað hefur verið til tunnumót- mæla á Austurvelli þann 17. janúar. Þetta kemur fram á Facebook-síðu sem nefnist Tunnurnar krefjast gagngerrar uppstokkunar, en þar er fólk hvatt til að fjölmenna og sam- einast í mótmælum. Þar segir meðal annars: „Tunnuslættinum hefur ver- ið líkt við „hjartslátt þjóðarinnar“ og nú látum við hann heyrast enn á ný í tilefni af því að þing kemur saman eftir jóla- og áramótafrí. Mætum, eins og 4. október, í öllum okkar fjölbreytileik og stöndum saman í því að brjóta niður spillingar- og lygamúrinn og krefjumst gagngerrar uppstokkunar.“ „Stjórnin situr áfram“ „Ég sé ekki ástæðu til að ætla ann- að,“ sagði Svavar Gestsson, fyrrver- andi alþingismaður, í Silfri Egils á sunnudag aðspurður hvort ríkis- stjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna myndi sitja út kjörtímabilið. Tæpur meirihluti núverandi ríkis- stjórnar sé ekki einsdæmi. Ríkis- stjórnin hafi komið öllum sínum málum í gegnum þingið. Hann segir það ótækt að fjöldi fólks þurfi að standa í biðröðum eftir matargjöfum. Stjórnvöld ættu að taka að sér að ræða við þetta fólk og koma því skipulega til hjálpar. Laun skilanefnda séu líka með ólíkindum. Það gangi ekki að sumir starfsmenn skilanefndanna séu með tugi millj- óna króna í árslaun. Skuldin milljarður Félag sem áður var í eigu Lúðvíks Berg- vinssonar skuldar rúman milljarð króna. Landsbankinn hefur leyst til sín helstu eign félagsins og er með hana í söluferli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.