Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Blaðsíða 18
18 | Umræða 10. janúar 2011 Mánudagur Örvænting Páls „Það var fínt fyrsta daginn en svo daginn eftir var hún sofnuð. Ég sat með hana þarna á hótel-herberginu í viku og dró hana svo með heim.“ n Lene Bernhöj, móðir Söndru Daðadóttur 17 ára stúlku sem þjáist af taugasjúkdómnum Kleine-Levin Syndrome sem veldur því að hún fær svefnköst sem hún ræður ekki við. – DV „Brotamenn mega alveg koma, alveg í tonnatali, maður.“ n Jón Hilmar Hallgrímsson betur þekktur sem Jón stóri, forseti nýrrar klíku, Semper Fi. – DV „Þetta er tómt kjaftæði eins og annað sem þið skrifið.“ n Bjarni Benedikts- son, formaður Sjálfstæð- isflokksins, þegar blaðamaður spyr hvort embætti sérstaks saksóknara hafi rætt við hann í tengslum við rannsóknina á tryggingafélaginu Sjóvá. – DV „Ég hef ekki heimild til að tjá mig um málið.“ n Hreiðar Már Sigurðsson fyrrverandi forstjóri Kaupþings, um það hvort hann sé einn þeirra sem hafa áfrýjað þeirri niðurstöðu dómstóls í Lúxemborg að veita sérstökum saksóknara aðgang að gögnum sem um starfsemi Kaupþings þar í landi – DV Fólkið sem vill þögn V axandi barátta er á Íslandi um að fjölmiðlar þegi um ákveð- in mál. Þegar sagt var frá því á DV.is að rukkarinn landsfrægi, Jón stóri, hefði stofnað samtök, kvart- aði hópur lesenda í ummælum und- ir fréttinni á þeim forsendum að það væri ósiðlegt eða ómerkilegt að segja frá þessu, þótt áhugi fólks á fréttinni væri mikill. Eiður Smári Guðjohnsen fótbolta- maður vill láta refsa blaðamönnum fyrir að leyfa fólki að vita af ríflegri fyrirgreiðslu hans hjá íslensku bönk- unum áður en þeir urðu gjaldþrota á kostnað almennings. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðsiflokksins, reiddist blaða- manni DV í síðustu viku, þegar blaða- maðurinn sinnti þeirri skyldu sinni að kanna hvort hann hefði verið yf- irheyrður af sérstökum saksóknara vegna þekktrar aðkomu hans að við- skiptafléttu, sem leiddi til þess að bótasjóður Sjóvár var tæmdur. Fjölmiðlar þurfa að hafa skýr við- mið um hvað sé frétt og hvað ekki, þegar kemur að því að velja úr því ógrynni upplýsinga sem fyrirfinnst í samfélaginu. Stefna DV er að segja sannar fréttir um það sem ætla má að sem flest fólk hafi áhuga á. Viðmiðið er áhugi almennings. Ríkisútvarpið gegnir hins vegar uppeldishlutverki. Það er niðurgreitt af skattfé í þeim til- gangi að velja efni sem ætla má að sé hollt og gott fyrir þjóðina. Fylgifiskur þess að fjalla um það sem fólk hefur áhuga á er fréttir, sem ákveðnum hópi samfélagsins þykja annað hvort ómerkilegar og/eða skaðlegar. Algengt er á Íslandi að hluti þessa hóps kvarti og biðji um að slíkar fréttir liggi í þagnargildi vegna þess að þær séu með einhverjum hætti skað- legar eða einfaldlega ekki nógu mikil- vægar. Þegar fjölmiðlar byrja að velja þögnina um áhugaverð mál er alltaf hætta á að upplýsingagjöf til almenn- ings spillist. Á að þegja um stórfelldar lántökur landsliðsfyrirliðans til fast- eignabrasks? Á að þegja um það þeg- ar rukkari, sem er gríðarlega vinsæll hjá unglingum á Facebook, stofnar samtök? Á að þegja um dónaleg svör stjórnmálamanns? Á að sleppa því að birta viðkvæmar upplýsingar um auðjöfra og banka, því ríkjandi við- horf sé að þeir séu góðir fyrir þjóðina? Þegar forsendan er að fréttin sé sönn og fólk hafi almennt áhuga á upplýsingunum er svarið einfalt. Ef spurningin er hvort efnið sé hollt fyr- ir fólk, eða að það sé gott fyrir samfé- lagið að birta upplýsingarnar, getur svarið orðið með ýmsu móti. Óljós ritstjórnarstefna og forræðishyggja býður upp á spillingu í fjölmiðlum og brenglaða upplýsingagjöf. Það er hagur almennings að á Ís- landi séu til öflugir fjölmiðlar sem vinna eftir þeirri stefnu að fjalla um það sem fólk hefur áhuga á, frekar en að hafa vit fyrir fólki og ritskoða burt þær upplýsingar sem gætu orðið skaðlegar. Fríblöðin, RÚV og Mogg- inn eru ekki nóg. Réttmæti stefnunnar byggir á þeirri frumforsendu að fjöldinn eigi að ráða og að fjölmiðillinn eigi ekki að stýra fólkinu, heldur upplýsa fólk um það sem fólk hefur áhuga á. Í þessu felst að hvorki ritstjórar né aðrir hafa sjálfgefinn rétt til að stýra því hvað fólk á að vita og hvað ekki. Fólki á að vera treyst til að velja sjálft hvað það kýs að lesa eða horfa á. Leiðari Mæta menn illa í vinnuna? „Nei, en það má segja að það sé stundum illa fært í vinnuna,“ segir Erna Indriðadóttir, upplýsingafulltrúi Fjarðaáls á Reyðarfirði. Í vetrarhríðinni fyrir helgina voru starfsmenn álversins á Reyðarfirði, sem búsettir eru á Egilsstöðum, heilar þrjár klukku- stundir að komast yfir Fagradal til vinnu sinnar með rútu. Spurningin Bókstaflega Á lit Svarthöfða á Páli Magn- ússyni, sjónvarpsstjóra RÚV, hefur minnkað talsvert eftir að hann gerði fjölmiðlafyr- irtækinu 365 örvæntingarfullt tilboð í sýningarréttinn að HM í hand- bolta. Svarthöfða fannst eitthvað svo aumkunarvert við tilboð sjón- varpstjórans og telur hann það rétt- mæta spurningu hvort honum sé sætt áfram í starfi sínu. Tilboði hans var auðvitað, og eðlilega, hafnað því 365 hefur lagt út í talsverðan kostnað vegna mótsins og hafa margir keypt sér aðgang að Stöð 2 eingöngu til að horfa á þessa keppni. Stöð 2 hefði lík- lega þurft að endurgreiða þessu fólki afnotagjöldin ef stöðin hefði tekið til- boði RÚV. T ilboð Páls lyktaði líka af því að sjónvarpsstjórinn gerði það tilboðsins vegna – í einskær- um PR-tilgangi vegna þess að viðleitni hans til að kaupa sýning- arréttinn af 365 væri skárri en gera þeim ekki þetta tilboð. Þetta eru jú strákarnir okkar, handboltalands- liðið, kannski eina landslið Íslands í hópíþrótt sem lands- menn geta verið stoltir af og fylkja sér um – jafnvel þó að hand- bolti sé lít- ið stunduð og ómerkileg jaðaríþrótt á heimsmæli- kvarða sem þorri fólks veit ekki einu sinni út á hvað gengur. Leikir strákanna okk- ar ættu því, eðli málsins sam- kvæmt, að vera sýndir hjá Páli í sjónvarpi allra landsmanna, Ríkissjónvarpinu, sem allir landsmenn borga fyrir. Páll veit sem er að það er slæmt fyrir hann sjálfan – pungspark – að bjóða land- anum ekki upp á leiki með þessum strákum sem náð hafa þeim merki- lega árangri fyrir hönd smáþjóðar- innar að ganga vel á stórmótum. Þess í stað þurfa þeir landsmenn sem vilja horfa á alla leiki strákanna okkar að borga Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Ara Edwald, útrásarjöfrunum miklu, fyrir það að horfa á íslenska landslið- ið. Páll veit upp á sig skömmina og hann er með skítinn upp á bak. S kömm Páls er svo auðvitað þeim mun meiri þar sem hann glutraði frá sér sýn- ingarréttinum á HM í handbolta á Íslandi í samningaviðræðunum við þýska fyrirtækið sem sér um að selja þenn- an rétt til landa heims- ins. Svo virðist sem Páll og starfsfólk RÚV hafi ekki sinnt samninga- viðræðunum við þýska fyrirtækið nægilega vel og þess vegna leit- aði það einfaldlega til Ara Edwald og 365 sem tryggðu sér sýningarrétt- inn á kostnað RÚV. A ri Edwald og Jón Ásgeir standa því uppi sem sigur- vegararnir í stóra handbolta- málinu og geta híað og ull- að á Pál Magnússon sem nær ekki að koma þjóðarstoltinu inn í stofur landsmanna þetta árið. Páll opinber- ar svo klúður sitt enn frekar með því að sleikja Stöð 2 upp og bjóða stöð- inni sama verð og þeir keyptu sýn- ingarréttinn á plús 20 prósent álag. 365 gerir svo það eina sem fyrirtæk- ið getur gert og afþakkar þetta neyð- arlega tilboð pent. Þessi af- leikur Páls er nú þegar kominn í sögubækurn- ar hjá Svarthöfða sem eitt af klúðrum þessa nýja og unga árs: Handaboltalandsliðið verður í boði Jóns Ásgeirs þökk sé Páli. Jón Trausti Reynisson ritstjóri skrifar„Fólki á að vera treyst til að velja sjálft hvað það kýs að lesa eða horfa á. „Hand bolta lands- liðið verður í boði Jóns Ásgeirs þökk sé Páli. Björgólfur og félagarnir n Gjaldþrot Dreifingar virðist ætla að draga dilk á eftir sér. Helsti kröfuhafi félagsins, Landsbankinn, er ósáttur við að eigandi Dreifingar, Haukur Hjaltason, hafi gert ráðgjaf- arsamning við Ölgerðina og ætli að tryggja því fyrirtæki umboð og viðskiptasamninga heildverslun- arinnar. Ætla má að samningurinn rýri verðmæti þrotabús Dreifingar. Dreifing skuldar Landsbankanum á bilinu 500 til 600 milljónir króna. Ein af ástæðunum fyrir góðu að- gengi Dreifingar að lánsfé í bank- anum mun vera sú að góð tengsl voru á milli Hauks og Björgólfs Guð- mundssonar, aðaleiganda bankans. Sár SME n Fjölmiðlamaðurinn Sigurjón M. Egilsson virðist hafa allt á hornum sér gagnvart sínum gamla vinnu- veitanda, Hreini Loftssyni. Sigurjón gengur svo langt að spá því að Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumað- ur í Englandi, vinni mál sitt gegn DV. Ástæðan sem Sigurjón, eða SME eins og hann er oft nefndur, nefnir er einföld: lögmannastofa Hreins Loftssonar tekur þátt í vörn blaðsins. „Hef ekki gert rannsóknir, en finnst sem sú lögmannsstofa tapi flestum þeim málum sem hún kem- ur nærri. Einkum meiðyrðamálum,“ segir Sigurjón á bloggi sínu sem hann notar til að hnýta í Hrein. Birgitta og fangelsið n Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, virðist vera búin að koma sér í klandur. Bandarísk stjórnvöld hafa farið fram á það við samskiptasíðuna Twitter að þeim verði afhentar allar Twitter-færsl- ur og aðrar persónuupplýsingar um Birgittu vegna tengsla hennar við uppljóstrunarvefinn Wikileaks. Óvíst er um framvinduna á þessu stigi málsins en þess er skemmst að minnast að völva DV spáði því að Birgitta ætti eftir að verða mikið í sviðsljósinu á árinu vegna tengsla sinna við Wikileaks. Gekk völvan svo langt að spá því að Birgitta ætti eftir að lenda í fangelsi vegna mála sem tengjast Wikileaks. Jón Steinar og skotárásin n Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta- réttardómari er fyrir löngu orðinn þekktur fyrir sérálitin sem hann skilar í Hæstarétti Íslands. Síðasta sérálit Jóns Steinars er hins veg- ar nokkuð svakalegt. Þá vildi Jón Steinar ekki staðfesta gæsluvarð- haldsúrskurð yfir manni sem skaut sér leið inn í hús í Reykjavík með haglabyssu vegna þess að ekki teld- ist sannað að maðurinn hefði ætl- að að meiða húsráðanda. Mat Jón Steinar það sem svo að ekki teldist sannað að haglabyssan hefði ekki verið til þess eins að komast inn í húsið. Hinir tveir dómararnir voru ósammála þessu mati Jón Stein- ars og staðfestu gæsluvarðhaldsúr- skurðinn. Ofbeldis- og glæpamenn landsins þurfa því ekki að óttast Jón Steinar mjög mikið á meðan hann situr í Hæstarétti þar sem hann leyf- ir þeim yfirleitt að njóta vafans. Sandkorn tRyggVagötu 11, 101 REyKJaVÍK Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir traustason, rt@dv.is Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is Ritstjórnarfulltrúi: Jóhann Hauksson, johannh@dv.is Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is Umsjón innblaðs: Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is DV á netinu: dv.is Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010, Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050. Smáauglýsingar: 512 7004. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.