Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Page 3
Fréttir | 3Mánudagur 10. janúar 2011
LÚXUSLÍF Í SKUGGA
MILLJARÐASKULDA
dómsmál til að fá sölunni á eign-
um Þreks ehf. til Lauga ehf. rift fyrir
dómstólum. Sigurbjörn gat hins veg-
ar ekki tilgreint nákvæmlega hvenær
málið yrði höfðað.
Kennitöluflakk
Björn hefur réttlætt kenntitöluflakk
fyrirtækisins og lét hafa eftir sér í fjöl-
miðlum í fyrra að það hefði verið gert
til að bjarga viðskiptavinum fyrir-
tækisins. „Við erum að bjarga rekstr-
inum út úr greiðsluþrotinu þannig
að viðskiptavinir geti haldið áfram
að æfa. Annars hefðum við þurft að
loka stöðinni því bankinn rifti húsa-
leigusamningnum. Þá hefði ég þurft
að taka tækin og opna einhvers stað-
ar annars staðar undir nafninu,“
sagði Björn. Hann sagðist ekki hafa
fært reksturinn yfir í nýtt félag held-
ur í móðurfélag og bætti við: „Mál-
ið er mjög einfalt, félagið var orð-
ið greiðsluþrota og til að bjarga var
reksturinn færður yfir. Þetta var allt
gert með löglegum hætti.“
Tapaði á Nýsi hf.
Árið 2009 var rúmlega 150 milljóna
tap á rekstri Lauga ehf. Samkvæmt
ársreikningi er tapið aðallega til-
komið af tveimur ástæðum. Þess-
ar ástæður eru: tapað hlutafé í Nýsi
fasteignum að upphæð 55 milljón-
ir króna, en Laugar ehf. átti tæplega
7 prósent hlut í Nýsi, og niðurfelling
á hluthafaláni til Nýsis upp á rúm-
lega 150 milljóna. Laugar ehf. tapaði
því samtals tæpum 209 milljónum á
samstarfi sínu við félagið. Nýsir fast-
eignafélag varð gjaldþrota.
DV reyndi að ná tali af Birni Leifs-
syni og Hafdísi Jónsdóttur í World
Class á föstudaginn og um helg-
ina til að ræða við þau um skulda-
stöðu þeirra. Blaðið náði hins veg-
ar ekki tali af þeim hjónum. Ljóst er
hins vegar að þrátt fyrir kennitölu-
flakk, hugsanlegt riftunarmál þrota-
bús fyrrverandi rekstrarfélags World
Class sem og erfiða skuldastöðu nýja
rekstrarfélagsins þá geta Björn og
Hafdís leyft sér að lifa lúxuslífi.
Framkvæmdum miðar vel Sumarbústaðurinn er alls um 150 fermetrar og stendur á
besta stað við Þingvallavatn
Rogelio Biscara flutti til Íslands frá Fil-
ippseyjum fyrir 10 árum. Hann vann
í þvottahúsinu í World Class frá júní
2008 til apríl 2010 en segir farir sín-
ar ekki sléttar þegar kemur að þeim
vinnustað og kveðst hlunnfarinn af
eigendum fyrirtækisins. Tímakaup
Rogelios var of lágt miðað við löggilda
launataxta og samkvæmt útreikning-
um Eflingar stéttarfélags var hann
hlunnfarinn um rúmlega 900 þúsund
krónur. Vegna kennitöluflakks fyrir-
tækisins hefur hann einungis getað
fengið brot af þeirri upphæð borgað.
Sár og reiður
Rogelio segist í samtali við DV vera
reiður og sár vegna málsins. Hann hafi
unnið mikið, jafnvel of mikið og það
sé nú að bitna á heilsu hans. „Ég kom
til Íslands til þess að geta aflað tekna.
Ég á þrjú börn á Filippseyjum sem eru
í framhaldskóla og það er mikilvægt
fyrir mig að geta borgað fyrir skóla-
göngu þeirra.“
Hann segist ekki skilja hvers vegna
hann geti ekki fengið launin sín
greidd, hann hafi unnið vinnuna sína
vel og segist upplifa mikið óréttlæti.
Í dag vinnur Rogelio í Ísaksskóla
við þrif og segir gott að búa á Íslandi.
„Ísland hefur hjálpað mér mjög mikið.
Ísland hefur skapað börnunum mín-
um framtíð.“
Með 882 krónur á tímann
Laun Rogelio fyrir dagvinnu hjá fyrir-
tækinu voru 882 krónur á tímann en
fyrir yfirvinnu fékk hann 1.235 krón-
ur. Samkvæmt kjarasamningum Efl-
ingar hefði hann átt að fá 966 krónur
á tímann fyrir dagvinnu samkvæmt
lægsta taxta og 1.587 krónur fyrir yf-
irvinnu. Hann leitaði til Eflingar eftir
að hafa lesið sér til um launakjör þar
sem honum fannst launin helst til lág.
Þar kom í ljós að fyrirtækið skuldaði
honum rúmlega 900.000 krónur í laun
samkvæmt löglegum launataxta.
Þar sem World Class skipti um
kennitölu á tímabilinu sem Rogelio
vann þar, fékk hann ekki nema lítinn
hluta þeirra launa sem hann átti inni,
eða um 180.000 krónur af þeim rúm-
lega 900.000 sem hann átti inni. Hann
fékk þau svör hjá Eflingu að hann hafi
komið of seint, ekkert væri hægt að
aðhafast frekar í málinu.
Eldri kennitala farin í þrot
Oddný Einarsdóttir þjónustufulltrúi
hjá Eflingu sem vann kröfuna fyr-
ir Rogelio á hendur World Class seg-
ir það leitt að ekki hafi verið hægt að
hjálpa honum frekar. „Hann fékk eitt
tímabil greitt frá fyrirtækinu, en hitt
var á eldri kennitölu sem var farin í
þrot. Hann kom bara of seint til okkar,
kröfufresturinn var liðinn og það var
því miður ekki hægt að innheimta það
sem hann átti inni hjá fyrirtækinu.“
n World Class skuldaði honum rúmlega 900.000 samkvæmt
löglegum launataxta n World Class sett á nýja kennitölu og
ekki hægt að gera kröfu í þrotabú n Vinnur á Íslandi til að
borga fyrir skólagöngu barna sinna á Filippseyjum
ÁttI tæpA
MILLJón hJÁ
WoRLD CLASS
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Rogelio frá Filippseyjum
Rogelio segist hafa verið
hlunnfarinn af World Class.