Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Side 6
6 | Fréttir 10. janúar 2011 Mánudagur
Hlaut mænuskaða við fall fram af bjargi í Austurríki:
„Allur að braggast“
n Bandalag háskólamanna byggir tvö ný orlofshús þar sem lítið er til
sparað n Heildarkostnaður við húsin er nálægt hundrað milljónum
n Nær skuldlaus orlofssjóðurinn borgar fyrir byggingu með eigin fé
Orlofssjóður Bandalags háskóla-
manna stendur ný fyrir byggingu
tveggja lúxusorlofshúsa í Brekku-
skógi í Bláskógarbyggð. Átta fyrir-
tæki buðu í verkið í lokuðu útboði en
kostnaðaráætlun hönnuða hljóðaði
upp á 91 milljón króna fyrir byggingu
orlofshúsanna, eða um 45,5 millj-
ónir fyrir hvort hús. Húsin eru bæði
um níutíu og fimm fermetrar að
stærð með íslensku blágrýti á gólf-
um. Framkvæmdastjóri bandalags-
ins segir að það hafi ekkert að fela og
ekkert lán hafi verið tekið til að fjár-
magna framkvæmdirnar.
Allt í pakka
„Það reyndar má samt ekki gleyma
því að inni í því er náttúrulega, fyr-
ir utan grunn, vegur sem þarf að
leggja þarna að, það eru allar heita-
vatnslagnir, kaldavatnslagnir, pípu-
lagnir uppsetning rotþróar. Það eru
ansi margar milljónir af þessu sem
fara í það,“ segir Stefán Aðalsteins-
son, framkvæmdastjóri bandalags-
ins. „Við erum komnir upp í 93 til 94
milljónir og það er með arkitektum,
verkfræðihönnun og svo eftirliti hjá
verkfræðingum með framkvæmd-
inni.“ Húsin eru með stærri húsum
sem bandalagið á eða rekur en Stef-
án segir að nýting þeirra húsa sé ein-
faldlega betri en minni húsanna.
Byggt fyrir eigið fé
Stefán segir að með því að steypa
húsin sparist mikill viðhaldskostn-
aður. „Sjóðurinn er nokkurn veginn
skuldlaus, þetta er allt saman gert
fyrir eigið fé. En það var allt skoðað,
stærðir á húsunum og að kaupa til-
búin hús,“ segir hann og segir að nið-
urstaðan hafi verið sú að með tilliti
til viðhaldskostnaðar hafi þetta ver-
ið besta leiðin. Allt byggingarefni er
unnið hér á landi og er hönnunin og
byggingin í höndum íslenskra aðila.
Er því verið að setja þennan pen-
ing inn í íslenskt atvinnulíf. „Það má
segja að líka í ljósi ástandsins hafi
þessi leið verið farin.“
Pottar og uppþvottavélar
Húsin eru svo sannarlega í anda
þeirra sumarbústaða sem byggð-
ir voru fyrir efnahagshrunið. Hús-
in eru hvort um sig um það bil níu-
tíu og fimm fermetrar að stærð.
Húsin eru steypt og klædd lerki að
hluta, torf er á hluta þaks auk ís-
lensk blágrýtis á gólfum innandyra.
Húsin er búin heitum pottum auk
staðalbúnaðar sem er venjulega að
finna í orlofshúsum sjóðsins. Gert
er ráð fyrir að nýju lúxushúsin verði
tilbúin fyrir þjóðhátíðardag Íslend-
inga, 17. júní næstkomandi, og verði
komin í útleigu frá og með 22. júní.
Fjöldi húsa
Orlofssjóður bandalagsins á nú þeg-
ar fjörutíu og sjö húseignir víðs veg-
ar um landið en langstærstur hluti
þeirra er í heilsársnotkun. Þá bauð
félagið upp á sextíu og sjö orlofs-
hús síðasta sumar, þar af nokkur í
Kaupmannahöfn, París og í Þýska-
landi. Útskýrist sá munur á fjölda
húseigna, sem sjóðurinn á sjálfur og
þess fjölda sem hann býður upp á
fyrir félagsmenn sína, á því að gerð-
ur hefur verið samningur við aðra
orlofssjóði um samstarf, auk beinn-
ar leigu af öðrum aðilum. Félagið
hefur þá einnig boðið félagsmönn-
um sínum upp á ódýra hótelgist-
ingu.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
„ En það var allt
skoðað, stærðir á
húsunum og að kaupa til-
búin hús.
BHM byggir tvö
lúxusorlofshús
Teikning Hér má sjá hönnun húsanna. Örlítið
hefur breyst frá þessari teikningu, þar á meðal
hefur torfi verið bætt á hluta þaks.
„Hann er allur að braggast og er í
rauninni búinn að ná sér meira og
minna líkamlega fyrir utan mænu-
skaðann,“ segir Guðmundur Geir
Sigurðsson, faðir Péturs Kristjáns
sem féll fram af bjargi í Innsbruck í
Austurríki á nýársnótt. Guðmund-
ur, sem er staddur hjá syni sínum,
segir að heilsa Péturs sé öll að koma
til og að hann sé að öllum líkindum
orðinn ferðafær. Enn sé hins vegar
óljóst hvenær fjölskyldan geti flog-
ið til Íslands. Hann segist vonandi
fá að vita fljótlega hvernig mál-
in standa. „Þetta er allt á uppleið,“
bætir hann við.
Pétur Kristján var á göngu í fjalls-
hlíð með vinum sínum á nýársnótt
til að horfa á flugeldasýningu. Hon-
um skrikaði fótur með þeim afleið-
ingum að hann féll fram af bjargi.
Við fallið hlaut hann mænuskaða
og er lamaður fyrir neðan mitti.
Stofnuð hefur verið Facebook-síða
til styrktar Pétri Kristjáni og þar
segir að margir hafi spurst fyrir um
hvernig styrkja megi hann til að
takast á við breyttar aðstæður. Því
hafi verið stofnaður bankareikn-
ingur sem áhugasamir geti lagt inn
á. Guðmundur Geir sagði að síð-
ast þegar hann skoðaði hafi verið
komnar yfir 100.000 krónur inn á
þann reikning. Eins hefur kvenfé-
lagið í heimasveit Péturs, Flúðum
í Hrunamannahreppi, ákveðið að
láta allan ágóða þorrablóts félags-
ins renna til Péturs. Aðstandendur
Péturs Kristjáns vilja koma á fram-
færi þakklæti til þeirra sem sýnt
hafa hlýhug og stuðning.
gunnhildur@dv.is
Mál Birgittu Jónsdóttur:
„Grafalvarlegt
mál“
„Ég lít á það sem grafalvarlegt mál
þegar bandarísk dómsmálayfirvöld
gera kröfur á hendur íslenskum al-
þingismanni og
fulltrúa í utan-
ríkismálanefnd
Alþingis um að af-
henda persónuleg
gögn sín. Ég vil fá
nánari upplýs-
ingar um málið,“
segir Ögmundur
Jónasson, inn-
anríkisráðherra
um fréttir þess
efnis að banda-
rísk stjórnvöld krefjist upplýsinga
um tölvunotkun Birgittu Jónsdóttur.
Ögmundur stefnir á að eiga fund með
Birgittu í dag, mánudag, þar sem farið
verður yfir málið frá hennar sjónarhóli
og reynt verður að greina réttarstöðu
hennar betur.
Ögmundur segist taka undir með
Hreyfingunni um að þetta sé aðför
að tjáningar- og persónufrelsi. „Þessi
stóru fyrirtæki og vefmiðlar byggja
á trausti, fólk á að geta treyst því að
persónulegar upplýsingar séu ekki
afhentar stjórnvöldum af geðþótta,“
segir hann. Aðspurður um aðgerðir
stjórnvalda þá segir hann það í verka-
hring utanríkisráðherra sem hefur
gefið út þá yfirlýsingu að hann muni
beita sér í málinu. „Ég er afar sáttur
við það og það er greinilegt að þau
ráðuneyti sem málið heyrir undir hafa
af þessu áhyggjur og við viljum fylgjast
með framvindunni og reyna eftir því
sem kostur er að hafa áhrif á hana.“
Fram hefur komið í fréttum að
Össur Skarphéðinsson utanríkisráð-
herra hefur lýst því yfir að ráðuneytið
muni koma ákveðnum sjónarmiðum
á framfæri við bandarísk stjórnvöld
með milligöngu sendiherra Banda-
ríkjanna. Kallað hefur verið til fundar
með sendiherranum en fundartími
hefur ekki verið ákveðinn.
gunnhildur@dv.is
Birgitta
Jónsdóttir
Mikið fall
í lögfræði
Aðeins 57 af þeim 221 sem þreyttu
próf í almennri lögfræði við Háskóla
Íslands fyrir jól náðu prófinu. Það
þýðir að rúmlega 74 prósent þeirra
sem tóku prófið féllu.
Róbert Spanó, forseti lagadeildar
Háskóla Íslands, sagði í fréttum RÚV
á sunnudag að hlutfallið nú sé svip-
að því sem verið hefur undanfarin
ár. Þeim sem féllu stendur til boða
að taka upptökupróf þann 19. apríl
næstkomandi. Segir Róbert að und-
anfarin ár hafi 30 til 40 náð því prófi.
Gerir hann ráð fyrir að niðurstaðan í
vor verði svipuð.
Pétur Kristján Pétur er allur að
braggast og búinn að ná sér meira
og minna fyrir utan mænuskaðann.