Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Síða 15
Hugum að brunavörnum Neytendur eru hvattir til að huga vel að
brunavörnum heimilanna og hafa eftirfarandi varúðarráðstafanir í huga. Ávallt skal
slökkva á rafmagnstækjum áður en húsið er yfirgefið. Best er að rjúfa straum á sjónvarpi
með aðalrofa en ekki með fjarstýringu. Eins skal slökkva á kaffivélum og ganga úr
skugga um að straujárn, vöfflujárn, samlokugrill og eldavél séu ekki í gangi. Þvottavélar,
þurrkarar, sjónvörp og tölvubúnaður safna að sér miklu ryki og því nauðsynlegt að hreinsa
þau reglulega. Hægt er að kaupa sjónvarpsslökkvitæki sem einnig er hægt að setja á
þurrkara. Þvottavélar og þurrkarar ættu ekki að vera í gangi á meðan heimilisfólk sefur en
algengasta tegund bruna er þegar kviknar í þvottavél, uppþvottavél eða þurrkara.
Afskriftarreglur vátrygginga Ef fólk lendir í tjóni
eða ef munum er stolið er ekki víst að upprunalegt kaupverð þeirra
sé bætt. Yfirleitt má finna afskriftarreglur í vátryggingarsamningum
sem gilda um þá hluti sem tryggingin nær yfir en reglur þessar heimila
tryggingarfélaginu að afskrifa ákveðinn hluta af verðmæti tiltekins
hlutar á hverju ári frá því að hluturinn var keyptur. Þessar upplýsingar
má finna á heimasíðu Neytendasamtakanna. Þar er neytendum einnig
bent á að gæta að því að ef þeir hafi innbústryggingu skuli gæta þess að
vátryggingarfjárhæðin sé í samræði við verðmæti innbúsins.
Neytendur | 15Mánudagur 10. janúar 2011
Prófessor í næringarfræði um þorramatinn:
Þorramatur er ágætur í hófi
Væntanlega eru landsmenn
komnir með nóg af söltum og
feitum mat nú þegar jólahátíð-
in er nýliðin og ætla má að fisk-
ur og grænmeti sé algengt á borð-
um Íslendinga þessa dagana. En
matgæðingar geta tekið gleði sína
á ný því senn líður að þorranum
með sínum alræmda þorramat.
„Þorramaturinn sem er saltur
og feitur er náttúrulega ekki holl-
ur í sjálfu sér og ekki til að neyta
oft og í miklu magni allt árið um
kring. Sjaldan og í hóflegu magni
ætti það ekki að skipta heilsuna
miklu máli,“ segir Inga Þórsdótt-
ir, prófessor í næringarfræði við
Háskóla Íslands. Hún segir þó að
fullorðnu fólki sé hættara við að
veikjast eftir neyslu slíks matar,
sér í lagi þeim sem eru í áhættu
fyrir hjartasjúkdómum. Magnið
og hve oft sé afgerandi. „Þorra-
matur er feitur matur, fyrir utan
rófustöppuna og kartöflurnar. Til
dæmis er hangikjötið mjög salt
og lundabaggarnir mjög feitir og
þó svo að sýran sjálf sé ekki óholl
þá er kjötið sem er súrsað venju-
lega feitt,“ segir hún.
Samanborið við jólamat-
inn segir Inga að ekki sé endi-
lega mikill munur. Bæði yfir jól
og á þorranum borði fólk meira
af feitum og söltum mat og það
stundum nokkra daga í röð, ólíkt
því sem er aðra tíma ársins. Það
geti valdið óþægindum og líkur
á hækkuðum blóðþrýstingi og
hjartabilunareinkennum auk-
ast. Sérstaklega hjá þeim sem eru
veikir fyrir.
„Ef við getum einskorðað
óhollustuna við nokkra staka
daga á ári er þetta í lagi. Svolítil
fita og salt stöku dag er kannski
ekki svo slæm en mikið magn fitu
og mikið salt er slæmt,“ segir hún
að lokum.
gunnhildur@dv.is
Inga Þórsdóttir Þorramatur
getur aukið líkur á hækkuðum
blóðþrýstingi og hjartabilunar-
einkennum.
raftækin vefjast
helst fyrir fólki
Neytendasamtökin hafa gefið út ár-
lega skýrslu Leiðbeininga- og kvört-
unarþjónustu samtakanna fyrir árið
2010. Þar eru teknar saman upplýsing-
ar um fjölda fyrirspurna og kvörtunar-
mála sem bárust samtökunum í fyrra.
Af þeim mætti gera sér hugmynd um
hvaða vörur eða þjónustu neytendur
ættu að varast eða hafa varann á gagn-
vart.
Fyrirspurnir og kvörtunarmál
„Fyrirspurnir eru þegar neytandinn
hefur samband við okkur með spurn-
ingar um til dæmis ákveðnar vörur
eða hvaða rétt hann á. Þá gefum við
ráðleggingar og oft fer neytandinn og
leysir málið sjálfur,“ segir Hildigunn-
ur Hafsteinsdóttir, lögfræðingur og
stjórnandi leiðbeininga- og kvörtunar-
þjónustu Neytendasamtakanna. Hún
segir það stundum ekki duga og sam-
tökin séu beðin um að hafa milligöngu
í málinu og þá sé það orðið að kvörtun-
armáli. Einnig komi það fyrir að fólk,
sem hafi reynt allt og þekki rétt sinn en
málið komið í óefni, leiti til þeirra.
Flest mál vegna erlendra ferða-
manna
Samtökunum bárust um tíu þús-
und fyrirspurnir á síðasta ári en 7.561
þeirra kom inn á borð Leiðbeininga-
og kvörtunarþjónustu samtakanna.
Af þeim enduðu 199 sem kvörtunar-
mál en flest þeirra komu í gegnum
Evrópsku neytendaaðstoðina, eða 35
talsins. Evrópska neytendaaðstoðin
aðstoðar bæði Íslendinga sem lenda
í vandræðum vegna kaupa á vöru
eða þjónustu erlendis og eins erlenda
ferðamenn sem lenda í vandræðum
hér á landi. Á síðasta ári voru flest
málanna vegna erlendra ferðamanna
á Íslandi. Kvörtunarmál vegna fjar-
skiptafyrirtækja voru 25 talsins, vegna
fjármála- og innheimtufyrirtækja 21
og vegna raftækja 15 talsins.
Getur farið fyrir dómstóla
Í skýrslunni segir að reynt sé að ná
fram sanngjarnri lausn og réttri og
fer milligangan fram með formlegum
hætti. Öllum er frjálst að leita til úr-
skurðar- og kærunefnda. Neytenda-
samtökin aðstoða hins vegar aðeins fé-
lagsmenn í kvörtunarmálum, og aðra
gegn greiðslu málskotsgjalds. Gjald-
ið er mishátt eftir því hvaða nefnd sér
um málið en neytandinn getur fengið
það endurgreitt frá seljanda sé komið
til móts við kröfur hans. Hann getur
einnig lagt mál fyrir dómstóla sé hann
ósáttur við úrskurð nefndarinnar.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
n Tíu þúsund fyrirspurnir bárust Neytendasamtökunum árið 2010 n Þar af voru tvö hundruð
kvörtunarmál n Flestar fyrirspurnir vegna raftækja og fjármála- og innheimtufyrirtækja
Listinn er yfir fyrirspurnir en einungis um 200 þeirra urðu að kvörtunarmálum.
Raftæki 950
Fjármála- og innheimtufyrirtæki 789
Bifreiðar og önnur farartæki 498
Fjarskiptafyrirtæki 437
Húsaleigumál 414
Tölvur og hugbúnaður 368
Tryggingar 359
Flugmál 307
Fatnaður og skartgripir 252
Húsgögn 209
Inneignarnótur, gjafabréf, skilaréttur 202
Önnur þjónusta 200
Iðnaðarmenn 192
Önnur kaup, s.s. gæludýr, húsbúnaður 190
Ferðamál – önnur en flug 166
Verðlag og verðmerkingar 162
Áskriftir og bindisamningar 119
Lögfræðileg ráðgjöf, t.d. greiðsluseðlar 111
Matvæli 105
Innréttingar, hreinlætistæki, gólf- og veggefni 92
Topp tuttugu fyrirspurnir árið 2010
Hildigunnur Hafsteinsdóttir
„Við veitum ráðleggingar og oft fer
neytandinn og leysir málið sjálfur.“
Getur framkallað
eitrunareinkenni
Á heimasíðu Leiðbeiningastöðv-
ar heimilanna er fjallað um MSG
eða þriðja kryddið. Kryddið sem er
unnið úr korni, þangi, sykurrófum
og fleiri hráefnum er notað til að ná
fram auknu bragði. MSG er umdeilt
krydd og hefur verið mikið rannsakað
en ekki þykir sannað að það valdi of-
næmi. Það getur hins vegar framkall-
að eitrunareinkennið óþol, sem lýsir
sér í heilsufarslegum óþægindum, svo
sem svima og höfuðverk. Þegar verst
lætur getur það valdið öndunarerfið-
leikum, auknum hjartslætti og melt-
ingartruflunum. Hins vegar eru þeir til
sem halda því fram að efnið sé skað-
laust sé það notað í litlu magni.