Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Síða 16
16 | Erlent 10. janúar 2011 Mánudagur
Ungverjaland tók við forsætishlut-
verki í ráðherraráði Evrópusam-
bandsins af Belgum nú um áramót-
in. Ungverjar taka við leiðtogakeflinu
í skugga mikillar alþjóðlegrar gagn-
rýni á forsætisráðherra þeirra, Vikt-
or Orban. Stjórnmálaflokkur Orbans,
Fidesz-flokkurinn, vann stórsigur í
þingkosningum í Ungverjalandi fyrir
sjö mánuðum og hlaut um tvo þriðju
þingsæta. Tók flokkurinn við af rík-
isstjórn sósíalista og frjálsra demó-
krata en Ungverjar höfðu fengið sig
fullsadda af henni. Sú ríkisstjórn hélt
meirihluta sínum eftir kosningar árið
2006 en skildi eftir sig efnahagslífið í
rústum. Þurftu Ungverjar þess vegna
að leita á náðir Evrópusambandsins
og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um 25
milljarða evra lán árið 2008. Fyrrver-
andi forsætisráðherra Ungverja, Fer-
enc Gyurcsány, hefur viðurkennt að
hann hafi gefið kosningaloforð sem
hann gat ekki með nokkru móti stað-
ið við – til þess eins að halda völdum.
Því kemur ef til vill ekki á óvart að Or-
ban og Fidesz-flokkur hans hafi sigr-
að í kosningunum í fyrra með jafn af-
gerandi hætti og raun bar vitni. En
hvers vegna er Orban þá gagnrýnd-
ur?
Hetja þegar austurblokkin féll
Orban, sem er 47 ára, var ennþá há-
skólanemi árið 1989 þegar valdatíð
kommúnista lauk í Austur-Evrópu
með byltingum í hverju landinu á
fætur öðru. Á eftir Pólverjum voru
það Ungverjar sem fengu fyrstir frelsi
frá leppstjórnvöldum Sovétmanna.
Var það önnur tilraun Ungverja til
að brjótast undan oki ógnarveldis-
ins í Moskvu. Í ungversku bylting-
unni um haustið 1956 var Imre Nagy
komið í stól leiðtoga Ungverjalands
samkvæmt óskum þjóðarinnar, en
hann vildi koma á lýðræði í landinu.
Sovéskar hersveitir voru kallaðar á
vettvang og börðu byltinguna misk-
unnarlaust niður. Nagy var dæmd-
ur sekur um landráð, tekinn af lífi og
grafinn í kyrrþey.
Ungverjar telja ein helstu tíma-
mótin hafa átt sér stað 16. júní árið
1989 en þá var 31 ár liðið frá dánar-
degi Imre Nagy. Var hann þá grafinn
aftur en í þetta sinn sem hetja. Há-
skólaneminn Orban flutti ræðu við
útförina í áheyrn 100 þúsund Ung-
verja. Þar sagði hann sovéskum her-
mönnum að fara heim til Moskvu og
uppskar mikinn fögnuð viðstaddra.
Frakkar og Þjóðverjar ósáttir
við fjölmiðlalög
Helsta ástæða þess að gagnrýni á Or-
ban hefur nú náð út fyrir landamæri
Ungverjalands eru ný fjölmiðla-
lög, sem taka líklega gildi nú í jan-
úar – á sama tíma og Ungverjar taka
við forsæti í ráðherraráði Evrópu-
sambandsins. Ríkisstjórnir tveggja
voldugustu ríkjanna í samband-
inu, Þýskalands og Frakklands, hafa
gagnrýnt lögin harkalega. Þjóðverj-
ar segja lögin vera „aðför að lýðræð-
inu,“ á meðan Frakkar segja að nýju
lögin „samræmist ekki því sem kall-
að verður fjölmiðlafrelsi.“
Það orkar því tvímælis að Ung-
verjar séu um þessar mundir að leiða
Evrópusambandið næsta hálfa árið,
en eitt af Kaupmannahafnarskilyrð-
unum svokölluðu, sem öll aðildarríki
sambandsins verða að uppfylla, er að
stofnanir séu til staðar til að tryggja
lýðræðislega stjórnarhætti. Þar á
meðal telst tjáningar- og fjölmiðla-
frelsi. Um miðja næstu viku mun Or-
ban af þessum sökum þurfa að mæta
fyrir Evrópuþingið, þar sem fjöldi
þingmanna hefur óskað eftir því að
Ungverjar verði sviptir forsæti sínu.
Þjóðverjinn Martin Schulz, leiðtogi
sósíalista á Evrópuþinginu, sagði:
„Við getum ekki leyft Ungverjum, eða
nokkurri annarri ríkisstjórn, að vaða
yfir grunngildi Evrópusambandsins
á skítugum skónum.“
Gerir lítið úr gagnrýni
Sjálfur gerir Viktor Orban lítið úr
gagnrýni Þjóðverja og Frakka. „Þetta
eru særandi og móðgandi gagnrýni.
Allir vita að Ungverjaland er lýð-
ræðisríki,“ sagði hann. „Sýnið mér
eina málsgrein í ungversku fjöl-
miðlalögunum sem er ekki að finna
í einhverju öðru evrópsku landi.“
Orb an skaut sérstaklega á Nicol-
as Sark ozy, forseta Frakklands, en
hann lét einmitt breyta fjölmiðlalög-
um í Frakklandi fyrir tveimur árum.
Eftir breytingu Sarkozys, getur for-
seti Frakklands skipað persónu-
lega einn sjónvarpsstjóra til að stýra
einni af fimm ríkissjónvarpsstöðvum
í Frakklandi. „Ég man ekki eftir einu
skipti sem Ungverjar gagnrýndu
frönsku fjölmiðlalögin. Í Ungverja-
landi var það ómögulegt að útnefna
sjónvarpsstjóra. En í Frakklandi er
það mögulegt. Aldrei sagði ég að
frönsku lögin væru andlýðræðisleg,“
sagði Orban.
Hver eru hin nýju lög?
Orban er fyrst og fremst gagnrýnd-
ur af andstæðingum sínum í Ung-
verjalandi fyrir að hafa umbylt öll-
um stjórnarháttum á skömmum
tíma. Þar sem Fidesz-flokkur hans
er með hreinan meirihluta á þingi,
og eini flokkurinn í ríkisstjórn, er
hvert einasta ríkisstjórnarfrumvarp
samþykkt. Hann hefur komið fyr-
ir samherjum sínum í allar helstu
valdastöður í stjórnkerfinu, sem og
í dómskerfinu. Hann hefur lagt nið-
ur stjórnlagadómstól og stofnað eig-
in nefnd til að semja nýja stjórnar-
skrá fyrir Ungverjaland, sem verður
tilbúin á síðari hluta þessa árs. Það
þarf vart að taka fram að í þessari
nefnd eru einungis meðlimir úr Fid-
esz-flokknum.
Fjölmiðlalögin snúa að því að
miðstýra öllum ríkisfjölmiðlum og
koma þeim undir sama hatt. Rík-
isfjölmiðlarnir telja sjónvarpsstöð,
útvarpsstöð og vinsælt dagblað. Rík-
isfjölmiðlarnir munu því lúta sömu
ritstjórnarstefnu, sem verður stýrt
af skjólstæðingi Orbans. Þá verð-
ur einnig stofnað fjölmiðlaráð, sem
mun hafa vald til þess að beita frjálsa
fjölmiðla sektum og jafnvel beita
fangelsisvist birti fjölmiðlar efni sem
ráðið sér tilefni til að ritskoða. Ráðið
verður einnig skipað flokksbræðrum
Orbans.
Líkt við Hitler, Mussolini og
Napóleon
Viktor Orban hefur verið líkt við
næstum alla einræðisherra sem
tekur að nefna. Af núlifandi stjórn-
málamönnum sem honum er líkt
við má helst telja Vladimír Pút-
ín, forsætisráðherra Rússlands, og
Viktor Lúkasjenkó, forseta Hvíta-
Rússlands. Orban gerir einnig lít-
ið úr þeim samanburði í viðtali við
fjölmiðla. „Einu sinni var ég kallað-
ur Hitler eða Mussolini, en nú er ég
kallaður Pútín eða Lúkasjenkó. Ég
læt ykkur eftir að dæma eftir árang-
urinn.“
Orban telur sig vera að fram-
kvæma byltingu, þá þriðju á síð-
ustu 55 árum í Ungverjalandi. Hún
sé líka löngu tímabær. Orban telur
stjórnar andstöðuna – hina fyrri rík-
isstjórn sósíalista og frjálsra demó-
krata –vera siðferðislega gjaldþrota.
Hann treystir henni ekki til að eiga
hlut að máli í ungverskum stjórn-
málum. Á meðan er stjórnmálaá-
standinu í Ungverjalandi lýst sem
skotgrafarhernaði. Stjórnmál snúast
um að leggja undir, og sá sem sigrar
hirðir allan pottinn. Fylkingar halda
áfram í stríði gegn hverri annarri, og
litlar líkur eru á að sættir muni nást
á milli vinstri og hægri vængs stjórn-
málanna.
Ungverjaland verði
svipt forsæti í esB
n Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, sætir gagnrýni fyrir ný fjöl-
miðlalög n Evrópuþingmenn krefjast þess að Ungverjar verði sviptir forsæti
yfir ráðherraráði ESB n Orban hefur verið líkt við Hitler og Mussolini
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Ungverjar taka við forsæti í ESB
José Manuel Barroso, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB, ásamt Viktori
Orban, forsætisráðherra Ungverjalands.
Nicolas Sarkozy og Angela Merkel Frakkar og Þjóðverjar hafa gagnrýnt Viktor Orban
og ný fjölmiðlalög í Ungverjalandi.