Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Qupperneq 23
Viðtal | 23Mánudagur 10. janúar 2011
Þú ráðstafar þinni eigin orku. Það
geta það allir. Við þurfum bara leið-
sögn.“
Hamingjusamur maður,
brosandi út að eyrum
„Það hafa allir sömu tækifærin þegar
þeir skilja að þeir eru fullkomnir eins
og þeir eru. Það er ekkert að okkur.
Svo stór hluti af okkur ver gríðarlegri
orku í að hafna sjálfum sér. Við vilj-
um ekki vera eins og við erum fyrr en
eitthvað breytist. Öll orkan fer í við-
nám gangvart því sem er, að reyna að
vera ekki eins og þú ert. Um leið og
þú leyfir þér að vera eins og þú ert og
ferð að byggja á því geta kraftaverkin
gerst. Ef ég tala bara fyrir sjálfan mig
þá hefur það fært mér líf þar sem ég
er miklu jafnvægi.
Auðvitað er áreiti í mínu lífi eins
og annarra en ég er engu að síður
hamingjusamur maður, brosandi út
að eyrum. Þegar ég þarf að takast á
við áreiti geri ég það ekki með við-
nám eða sjálfsvorkun í huga heldur
sé ég það sem tækifæri. Ég geri mér
grein fyrir því að ég hef sjálfur skap-
að þrengingar í mínu lífi og mér vex
ásmegin við að takast á við þær. Ég lít
á lífið sem tækifæri og lifi í gleði. Ég
er að reyna að hvetja fólk til þess að
gera slíkt hið sama því lífið er núna,
ekki þegar þú hefur
náð af þér þessum
fimm kílóum eða
hvað það er sem þú
vilt. Það er núna.“
Búum við gríðar-
legt ofbeldi
Höfnun er hluti af
þessu og eitthvað
sem allir þurfa að
glíma við. „Meðalmaður hafnar sér
800 sinnum á dag. Allt viðnám gagn-
vart augnablikinu, gagnvart því að
vera eins og þú ert, er höfnun. Þeg-
ar þú blótar þér með því að segjast
vera of feit, of ljót, of stutt eða of stór,
því það vantar alltaf tommu, ertu að
hafna þér, yfirgefa þig og svíkja. Of-
beldið er gríðarlegt. Þú tapar orku í
hvert sinn sem þú segir nei, af hverju
gerði ég þetta, af hverju sagði ég
þetta, af hverju er ég svona? Segjum
að þú ákveðir að elska þig skilyrðis-
laust, leyfa þér að vera eins og þú
ert, veita þér athygli og næra þig af
kostgæfni. Heldur þú að það myndi
ekki eitthvað breytast? Ég er búinn
að vinna með fólki í þrjátíu ár og hef
séð að þegar fólk ákveður að hætta
að sparka í sig liggjandi eykst orkan
um leið. “
Tíðni hjartans ræður för
Veistu hvað orka er – í sinni ein-
földustu mynd?“ spyr hann og svar-
ar spurningunni strax sjálfur: „Raf-
magn. Veistu hvað er í matnum sem
við innbyrðum? Rafmagn. Ef þú tek-
ur tvo jafn þunga tómata og berð þá
saman, annar er lífrænt ræktaðar
en hinn ekki, er orkumagnið og út-
geislunin misjöfn þó að hitaeining-
arnar séu jafn margar. Orkumagnið
í lífræna tómatnum er meira. Þetta
er það sem við köllum kærleikur og
blíða og ást. Ef við förum að hlúa að
okkur sjálfum á þennan hátt, með
þessari athygli og þessari vitund, þá
gefur það auga leið að líf okkar breyt-
ist og orkan eykst.“
Síðan segir hann að þegar við
brosum breytist efnasamsetning lík-
amans. „Í alvöru, ég sver það. Þú get-
ur tekið tár sem er sprottið af reiði
eða sorg og borið það saman við tár
sem rennur af gleði. Raunin er sú að
það er gjörólík efnabirting í þessum
tárum. Líkaminn er í rauninni alveg
stórbrotin maskína sem byggir á raf-
leiðni. Öll taugaboð eru rafmagn. Því
er svo mikilvægt að skilja að tíðni
hjartans ræður för. Limirnir dansa
ekki eftir höfðinu, þeir dansa eftir
hjartanu.
Um leið og það kemur kyrrð í fólk
breytist flæðið. Ef þú kreppir hnef-
ann kemur samdráttur og spenna.
Streita er alltaf viðnám en um leið og
þú slakar á og treystir verður flæði.
Gefur það ekki auga leið að vöxt-
ur verður heilli og þroskaðri í flæði
heldur en í samdrætti? Fólk kallar
áreiti líka streituvalda en í raun er
bara einn streituvaldur í okkar lífi,
við sjálf.“
Stjórnaðist af ótta
Sjálfur óttaðist hann að verða eins og
foreldrar sínir. Af því að hann veitti
óttanum athygli laðaði hann akkúrat
það að sér. Einn daginn áttaði hann
sig á því að hann var orðinn eins og
þeir. „Um leið og ég skildi að ég var
eins og foreldrar mínir en gat líka
verið öðruvísi og fór að veita því at-
hygli óx það og dafnaði. Við erum sál,
við erum ljós, við erum kærleikur, við
erum ást, við erum orka. Við erum
ekki hugsanir okkar eða skoðanir.
Athygli er eins og vasaljós, þú get-
ur beint henni hvert sem er og ef þú
ert með fullhlaðin batterí er geislinn
sterkur en ef þú ert með daufar eða
ónýtar rafhlöður er geislinn veikur.
Ég vil bara kærleika, blíðu, gleði,
þakklæti og ást. Hver heldur þú að
vilji það ekki innst inni? Margir eru
bara komnir svo langt frá sinni tilvist
að þeir vita ekki hvernig þeir eiga að
nálgast þetta. Mig langar bara að vera
í kærleika með fólki og í stuði með
Guði en ekki í fýlu með Grýlu. Svo
er spurning hvort að ég sé tilbúinn
til að taka ábyrgð og gera það sem ég
þarf að gera til að rækta falleg blóm
en ekki illgresi. Það eru allir þar sem
þeir eru af því að þeir fóru þangað en
fæstir vilja breyta því sjálfir. Þeir vilja
að einhver annar geri það. Við þurf-
um að fá fólk til að skilja þetta með
orsök og afleiðingu, að það beri fulla
ábyrgð. Þar til það
tekur ábyrgð á lífi
sínu breytist ekkert.
Ef þú borðar ónýt-
an mat, skemmdan
mat eða of mikið af
honum ertu alltaf
með dauft ljós.“
Stærsta böl
samfélagsins
Mataræðið skiptir gríðarlegu miklu
máli segir hann og eins það hvern-
ig við mötumst. „Það er ekkert sem
hefur eins mikil áhrif á líf okkar eins
og matur. Megnið af matnum sem
við erum að innbyrða er skemmdur,
lífrændur en ekki lífrænn. Dauður
matur sem búið er að mauksjóða og
fullur af g-efnum. Ekki nóg með það
að við séum að borða mjög næring-
arsnauðan mat heldur erum við líka
að borða miklu meira en við þurfum.
Fólk notar mat til þess að berja á sér
en ekki til þess að upphefja sig. Mat-
ur er stærsta böl samfélagsins. Það er
engin aðgerð sem er eins bölsótt og
að matast. Ef þú lítur í kringum þig
þá eru mjög fáir sem nota mat til þess
að öðlast hamingju. Flestir nota mat
til að öðlast óhamingju; með því að
borða meira en þeir þurfa, með því
að njóta ekki máltíðarinnar, með því
að borða og hafna sér fyrir það, með
því að borða skyndibita, með því að
borða mjög lélegan mat sem er soð-
inn, steiktur eða fullur af rotvarnar-
efnum. Ef þú borðar lélegan mat ertu
að verja miklum peningum í lélegt
hráefni sem gefur litla orku.“
Einfaldasta leiðin til að breyta
lífinu
„Þeir sem vilja breyta lífi sínu geta
breytt því hraðast með því að breyta
matarvenjunum,“ segir hann óhikað.
„Tökum dæmi: Líkaminn er 60 prósent
vatn. Um leið og þú byrjar að drekka
vatn í einhverjum mæli kemst meira
flæði á í líkamanum, leiðni eykst og
orkuflutningur er margfaldaður. Með
því að breyta matarvenjum en ekki
mataræði gjörbreytir þú starfsemi lík-
amans og getu hans til að vinna úr
matnum. Þetta getur þú gert með sára-
einföldum hlutum eins og að tyggja
almennilega. Síðan getur þú dregið
úr mjólkur- og kjötneyslu og bætt það
upp með grænmeti. Þessir þrír þættir
hafa gríðarleg áhrif.
Ef þú nærist síðan með ást og
kærleika í hverjum munnbita ertu
kominn í hamingju. Allt sem þú veit-
ir athygli vex og dafnar. Ef þú ert til
staðar og hugar að eigin tilvist með
kærleika og umhyggju blómstrar þú
eins og allt annað. Ef að þú sýnir þér
hlýhug og skapar umhverfi þar sem
þú getur vaxið og dafnað fer þér að
líða vel.“
Markmiðið er frelsi
Að lokum vill hann þó árétta að ham-
ingja þýði ekki að við séum í stöðugu
alsæluástandi. „Ef við skoðum orð-
ið hamingja þá er það hamur sem er
að yngjast – hamingja. Það að vera
hamingjusamur þýðir að við höfum
orku og erum í jafnvægi þannig að
við flæðum með tilverunni en ekki á
móti henni. Það þýðir líka að þegar
við verðum fyrir áreiti fögnum við því
í stað þess að berjast gegn því. Ham-
ingjan þýðir að við vitum að lífið er
þetta augnablik og við súpum það til
fulls í stað þess að segja oj það er vont
veður, ég vil ekki þetta, ég vil ekki
vera svona, ég vil ekki vera hinsegin
og svo framvegis. Hamingjan gengur
út á það að vera fullkominn.
Veistu hvað það þýðir? Að vera
fullkominn? Að vera kominn til fulls,
að vera mættur. Þegar ég er mættur
þá er ég máttugur. Allt mitt líf hef ég
verið að lifa þetta að einhverju leyti
en ég hef líka málað mig út í horn.
Tvisvar sinnum mjög alvarlega sem
gerði að verkum að ég varð að horfa
djúpt í mína tilvist og mínar rætur.
Ég varð til dæmis gjalþrota þrjátíu
og fimm ára gamall og það var mjög
sérkennilegt ástand. Fyrst var ég í af-
neitun gagnvart því og það gaf mér
rými til þess að aðskilja mig og það
sem var að gerast. Fyrir vikið sökk ég
dýpra. En mér hefur tekist að skilja
að þegar eitthvað gerist er það bless-
un en ekki böl. Ég hef lært að skilja
betur þann mátt og það vald sem við
búum yfir. Við erum stöðugt að laða
að okkur tækifæri, líka tækifæri til að
horfast í augu við eigin tilvist. Það eru
engin slys. Þetta er allt orka sem leið-
ir þetta okkur til frelsis. Það er mark-
miðið, að vera frjáls.“
Vilt þú breyta lífi þínu?
Guðni gefur góð ráð:
1Það er mun mikilvægara að hafa skýran tilgang heldur en að fara eftir einhverri forskrift sem á ekki við þig. Veittu því athygli hvað þú ert að
næra – ekki hvað þú borðar. Nærðu ást og velsæld. Spyrðu þig hvað þú vilt
næra þegar þú færð þér að borða og spyrðu þig síðan hvort þú ættir þá að
fá þér hamborgara og franskar eða eitthvað annað og betra.
2 Til að komast að því hvernig matarvenjur þínar eru í raun er sniðugt að halda matardagbók í viku eða tíu daga án þess að breyta neysluvenjum.
3 Taktu fulla ábyrgð á neyslunni og veldu hvort þú vilt næra velsæld eða vansæld.
4 Ef ákvörðunin er að velja velsæld skaltu taka eins mikið af gerviefnum og þú getur út úr mataræðinu. Þá er verið að tala um litarefni, bragð-
efni, rotvarnarefni og svo framvegis. Þetta er mjög oft í brauðvörum og
mjólkurvörum. Þegar þú ert búinn að því er maturinn sem eftir stendur
heilbrigður. Það eru ekki rotvarnarefni í ávöxtum og grænmeti eða kekkju-
efni í fiski og lambakjöti.
5 Tyggðu matinn mjög vel til að breyta meltingunni. Þannig breytir þú hvernig næringin skilar sér út í tilvistina því þegar þú tyggur vel þá
vinnur líkaminn öðruvísi en þegar þú gleypir í þig eins og hundur.
6Drekktu vatn í stað þess að fá þér djús, kaffi, kók eða aðra drykki sem búið er að blanda með vatni. Um leið gjörbreytist heilsa þín. Spenna,
streita og óhreinindi í líkamanum eru af völdum vatnsskorts. Vatnsskortur
lágmarkar flæðið í líkamanum og gerir að verkum að hann missir getuna
til að hreinsa sig.
7Hreyfðu þig – þó það sé ekki nema örlítið, bara til að virkja öndunina. Sogæðakerfið er það sem við köllum holræsakerfi líkamans því líkam-
inn losar sig við úrgang í gegnum það. Um leið og þú hreyfir þig getur þú
byrjað að virkja sogæðakerfið, sérstaklega með djúp kviðöndun.
Meðalmaður hafnar sér
800 sinnum á dag
Lykillinn að velgengni Kraftaverkin
gerast þegar við hættum að berja á okkur
og leyfum okkur að vera eins og við erum.
Þá fyrst getum við blómstrað og náð
hámarksárangri.
„Oftast ganga
okkar sam-
skipti út á það að vera
vel metin af öðrum en
ég vil vera vel metinn
af sjálfum mér.
gítar
skóli ólafs gauks
Gítargaman
www.gitarskoliolafsgauks.com • Gítarskóli Ólafs Gauks er á Facebook
Kennsla í öllum flokkum, fyrir byrjendur sem lengra
komna, á öllum aldri, hefst 24. janúar 2011.
ATH! Þeir sem innritast og ganga frá greiðslu
fyrir 15. janúar fá umtalsverðan afslátt af kennslugjaldinu!
Gítarar á staðnum, kennsluefni innifalið, m.a.
geisladiskur með undirleik við vinsælustu íslensku sönglögin.
Nýja byrjendanámskeiðið LÉTT OG LEIKANDI hefur
slegið í gegn!
Nemendur fá gítara til heimaæfinga endurgjaldslaust á
meðan birgðir endast!
Frístundakort Reykjavíkurborgar í fullu gildi.
Innritun er hafin
og fer fram daglega kl. 14-17 í síma 588 3730,
sendið tölvupóst ol-gaukur@islandia.is
eða komið við í skólanum Síðumúla 17