Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2011, Qupperneq 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 10. janúar 2011 Mánudagur
Beckham ekki til
Tottenham
n Ekkert verður af því að David
Beckham fari á tveggja mánaða
láni til Tottenham en í staðinn
mun hann æfa
með liðinu í
einn mánuð.
Harry Red-
knapp, knatt-
spyrnustjóri
liðsins, sagði
blaðamönnum
þetta í gærmorg-
un en ástæðan
er sögð of flókin samningsatriði
varðandi tryggingar Beckhams.
Fætur Beckhams eru tryggðir
fyrir fleiri milljónir punda, hærri
upphæð en hjá nokkrum öðrum
knattspyrnumanni segir sagan en
aldrei hefur fengist uppgefið hver
upphæðin er. Fyrrverandi lands-
liðsfyrirliðinn fær því ekki tækifæri
til að leika gegn Manchester Unit-
ed með öðru ensku liði, alla vega
ekki í ár.
Kóngurinn Kenny
n Allir sem koma nálægt Liverpool
þessa dagana eru aftur komnir
með bros á vör. Ekki nóg með að
Roy Hodgson sé
farinn heldur er
Kenny Dalglish
tekinn við lið-
inu. Xabi Alonso,
miðjumaður
Real Madrid,
sem lék með
Liverpool um
árabil hefur ekki
gleymt liðinu sem gerði hann að
stjörnu. Þegar hann sá að Dalglish
væri á leið heim úr fríi í Dúbaí til
að taka við liðinu skellti hann sér
á Twitter og ritaði: „Kóngurinn
Kenny, gangi þér vel!“ Er bókað
mál að þetta fellur í góðan jarðveg
hjá stuðningsmönnum Liverpool.
Juventus vill Bale
n Ítalska stórliðið Juventus er með
velska vængmanninn hjá Totten-
ham, Gareth Bale, í sigtinu og telur
hann algjöran
draumaleik-
mann. „Það er
áhugi frá Ju-
ventus sem vill
fá hann strax
í júní. Fylgist
þó samt með
Real Madrid,
það gæti reynt
að næla í hann í þessum mánuði,“
segir umboðsmaður Bale, Ítal-
inn Peppino Tirri. Fyrst var greint
frá áhuga Juventus á Bale í ítalska
íþróttablaðinu Gazetta delli Sport
en þar var sagt að þjálfari liðsins,
Luigi del Neri, væri til í að gera him-
inhátt tilboð í leikmanninn.
Adler gæti varið
mark United
n Sir Alex Ferguson leitar nú log-
andi ljósi að markverði til að taka
stöðu Hollendingsins Edwins van
der Sar sem
leggur hansk-
ana á hilluna í
vor. Samkvæmt
fréttum um
helgina er Rene
Adler, markvörð-
ur Bayern Lev-
erkusen, efstur
á óskalistan-
um en þessi 25 ára gamli mark-
vörður er opinber stuðningsmað-
ur Manchester United og á aðeins
átján mánuði eftir af samningi sín-
um. Samkvæmt slúðurblaðinu Da-
ily Mirror dreymir hann um að feta
í fótspor Peters Schmeichels.
Molar
Jóni Guðni skoðar aðstæður hjá AEK
Einn albesti leikmaður Pepsi-deildar karla síðastliðið sumar,
Framarinn Jón Guðni Fjóluson, hélt utan til Grikklands í gær
en þar mun hann skoða aðstæður hjá stórliðinu AEK í Aþenu.
Hann mun æfa með liðinu fram á föstudag en þetta kom fram
á knattspyrnuvefmiðlinum fótbolti.net. Blikinn og fyrrverandi
landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Arnar Grétarsson, er yfirmaður
íþróttamála hjá félaginu en hann lék með því um þriggja ára
skeið á sínum ferli.
Stjörnuliðin klár hjá konunum Búið er að
kjósa byrjunarliðin sem mætast í stjörnuleik kvenna í körfubolta
þann fimmtánda janúar. Þar mætast lið Reykjaness og lið landsins
en kosning fór fram á kki.is. Lið Reykjaness er þannig skipað: Pálína
Gunnlaugsdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir, Birna Valgarðsdóttir og
Jacquline Adamshick, allar úr Keflavík, og Íris Sverrisdóttir, Haukum, en
lið landsins: Hildur Sigurðardóttir, Margrét Kara Sturludóttir og Signý
Hermannsdóttir, allar úr KR, og þær Savica Dimovska og Jaleesa Butler
úr Hamri.
Strákarnir okkar í íslenska hand-
boltalandsliðinu unnu tvo góða
sigra á Þýskalandi um helgina.
Fyrst 27–23 á föstudagskvöldið
og svo annan fjögurra marka sig-
ur á laugardaginn, 31–27. Báðir
leikirnir unnust nokkuð sannfær-
andi en íslenska liðið hefur haft
ágætis tak á því þýska undanfar-
in ár. Guðmundur Guðmunds-
son, landsliðsþjálfari, var ákveð-
inn í að segja ekki of mikið um
getu íslenska liðsins fyrir leikina
og kallaði þá „stöðumat“. Það verð-
ur ekki annað sagt en strákarnir
okkar hafi komist vel frá leikjun-
um. Neistinn var kviknaður aftur
í vörninni, markvarslan var hlut-
fallslega frábær og sóknarleikur-
inn meira og minna í lagi. Mörgum
af þeim spurningum sem vöknuðu
eftir skelfingarframmistöðu liðsins
gegn Lettlandi og Austurríki í und-
ankeppni EM fyrr í vetur var svar-
að og á heildina litið voru leikirn-
ir gott veganesti á HM sem hefst
næsta fimmtudag.
Björgvin svaraði kallinu
Allt frá því á Ólympíuleikunum í
Peking 2008 hefur verið hægt að
treysta á góða markvörslu, eða síð-
an Björgvin Páll Gústavsson kom
inn í liðið. Var frammistaða hans
í Peking og svo aftur í Austurríki
í janúar í fyrra ekki lítill þáttur í
verðlaunum íslenska liðsins. Brá
því mörgum í brún þegar Björg-
vin varði ekki eitt skot í leikjunum
gegn Austurríki og Lettlandi í okt-
óber á síðasta ári. Án góðrar mark-
vörslu í nútímahandbolta gera lið
nákvæmlega ekki neitt.
Björgvin Páll svaraði þó held-
ur betur kallinu í leikjunum gegn
Þýskalandi. Hann stóð alla vakt-
ina í markinu í fyrri leiknum og var
með 42 prósenta hlutfallsmark-
vörslu sem er í heimsklassa. Tal-
aði Heiner Brand, landsliðsþjálf-
ari Þýskalands, í viðtali við þýska
vefmiðilinn handball-world.de
um að Björgvin hefði einfaldlega
klárað leikinn fyrir íslenska lið-
ið. Var Björgvin nokkuð öruggur
í langskotunum frá stórskyttum
þýska liðsins og varði einnig fjöl-
mörg dauðafæri.
Björgvin byrjaði einnig í seinni
leiknum og var þá með 34 pró-
senta hlutfallsmarkvörslu, nokk-
uð gott. Til að kæta landsliðsþjálf-
arann og áhorfendur enn meira
mætti Hreiðar Levy Guðmundsson
til leiks í seinni hálfleik og var með
44 prósenta hlutfallsmarkvörslu.
Er þetta nákvæmlega það sem lið-
ið vantar í Svíþjóð.
Neistinn kveiktur í vörninni
Markverðir gera lítið án góðr-
ar varnar en hin vel hreyfanlega
og oft og tíðum kolgeðveika vörn
n Ísland vann tvo fjögurra marka sigra á Þýskalandi n Mörgum
spurningum svarað n Varnarleikurinn í lagi og markvarslan
góð n Hausverkur fyrir Guðmund að skera niður hópinn
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Allt klárt fyrir
HM í Svíþjóð
Flottir Strákarnir okkar unnu tvo góða sigra á Þýskalandi. MyND RóBERT REyNiSSoN
Manchester United er komið í fjórðu
umferð ensku bikarkeppninnar eftir
sigur á erkifjendunum í Liverpool,
1–0, á Old Trafford í gær. Eina mark
leiksins var skorað úr vítaspyrnu
strax á annarri mínútu en það skor-
aði elsti leikmaður United-liðsins,
Ryan Giggs. Vítið verður þó að teljast
nokkuð umdeilt þar sem Daniel Agg-
er virtist ekki snerta Dimitar Berbat-
ov mikið þegar Búlgarinn féll í teign-
um.
Allt ætlaði um koll að keyra í
Liverpool-hluta stúkunnar á Old
Trafford þegar Kenny Dalglish mætti
til leiks en hann tók við liðinu í gær.
Fékk hann starfið símleiðis þegar
hann var staddur í Dúbaí og flaug
rakleiðis heim. Fékk hann því ekki
æfingu með liðið.
Eins og það væri ekki nóg fyr-
ir Liverpool að fá á sig mark úr víta-
spyrnu strax á annarri mínútu þá
fóru hlutirnir úr öskunni í eldinn eftir
hálftíma leik. Steven Gerrard var þá
rekinn af velli fyrir tveggja fóta tæk-
lingu á Michael Carrick. Var Howard
Webb, dómari leiksins, ekki í vafa og
mótmælti Kenny Dalglish ekki mikið
eftir að hann sá atvikið á skjá nálægt
varamannaskýlinu.
Í seinni hálfleik börðust Liver-
pool-menn eins og grenjandi ljón.
Ekki var að sjá að þeir væru ein-
um færri. United-menn fundu ekki
margar glufur á Liverpool-liðinu en
fengu þó nóg af færum til að klára
leikinn. Einu sinni sem oftar var það
þó vörn United sem kláraði leikinn
en Liverpool fékk ekki teljandi færi í
leiknum.
Miðað við baráttu Liverpool-liðs-
ins í leiknum má sjá að koma Dal-
glish hefur létt andann í liðinu. Það
verður þó að setja spurningamerki
við hvar þessi baráttuandi hefur
verið á tímabilinu því það þýðir lít-
ið að berjast bara í leikjum gegn
Manchester United.
tomas@dv.is
Liverpool úr leik í fyrsta leik undir stjórn Kennys Dalglish:
Eitt mark frá Giggs nægði
Eitt mark nóg Ryan Giggs
skoraði sigurmarkið úr víti.
MyND REuTERS