Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2011, Síða 3
Fréttir | 3Miðvikudagur 12. janúar 2011
SKULDUGASTI
BANKASTJÓRINN
lán til að kaupa hlutabréf í Kaupþingi.
Þegar hann hætti í Kaupþingi í sept-
ember 2006 leysti hann um 800 millj-
óna króna hagnað með sölu bréfanna.
Hann stofnaði svo fjárfestingarbank-
ann Sögu Capital í maí árið 2007 og er
forstjóri bankans í dag.
Öfugt við það sem áður hefur verið
talið virðist Þorvaldur Lúðvík ekki hafa
lagt þá peninga sem hann fékk þegar
hann hætti hjá Kaupþingi í hlutabréf í
Sögu Capital heldur virðist hann hafa
tekið lán hjá Icebank fyrir hlut sínum.
Þorvaldur Lúðvík er fimmti stærsti
hluthafi Sögu í dag með rúmlega 7,4
prósenta eignarhlut.
Hlutabréf í Sögu hrundu í verði
Á móti skuldum Maríutásu eru hluta-
bréf í Sögu Capital sem hafa fallið
umtalsvert í verði. Þannig var eignar-
hlutur félagsins í Sögu metinn á 128
milljónir króna í árslok 2009 öfugt við
352 milljónir í árslok 2008, samkvæmt
ársreikningi. Á móti skuldum upp á
milljarð eru því einungis eignir upp á
tæpar 130 milljónir.
Í skýrslu stjórnar Maríutásu er
þetta verðhrun á hlutabréfunum út-
skýrt þannig að milliganga Sögu
Capital í veðlánaviðskiptum Seðla-
banka Íslands við stóru viðskipta-
bankana þrjá hafi reynst fjárfesting-
arbankanum dýrkeypt. Ástæðan er
sú að slitastjórn Icebank, sem einnig
hafði milligöngu í þessum veðlána-
viðskiptum, hafnaði nærri 200 millj-
arða króna kröfu Seðlabanka Íslands
í þrotabú Icebank á árinu sem leið á
þeim forsendum að Seðlabankinn
hefði vitað að bankarnir voru nær
gjaldþrota. Seðlabankinn lánaði Ice-
bank fjármunina sem svo endurlán-
aði þá til viðskiptabankanna þriggja
sem skorti lausafé á þessum tíma.
Í erfiðri stöðu Þorvaldur
Lúðvík er í erfiðri stöðu. Hann
skuldar á annan milljarð króna
í bankakerfinu og hefur verið
yfirheyrður í tveimur málum
hjá sérstökum saksóknara.
„Hlutabréfavirði Saga Capital féll um
2/3 hluta vegna taps er bankinn varð
fyrir vegna þessarar milligöngu…“ Á
móti þessum hækkandi skuldum eru
því veð í hlutabréfum sem hafa lækk-
að umtalsvert í verði.
Nú er svo komið, samkvæmt
ársreikningnum, að eiginfjárstaða
Maríutásu er neikvæð um nærri 900
milljónir króna. Ekki er vitað hvern-
ig Þorvaldi Lúðvík gengur að standa
í skilum með afborganir af lánum
Maríutásu en af ársreikningnum að
dæma er félagið tæknilega gjald-
þrota. Ljóst er að hrunið, og þátttaka
Sögu Capital í veðlánaviðskiptum
Seðlabanka Íslands, hafa leikið Sögu
og eignarhaldsfélag Þorvaldar Lúð-
víks nokkuð grátt.
Hjördís Edda Harðardóttir, starfs-
maður skilanefndar Icebank, sagð-
ist aðspurð ekki getað rætt um mál-
efni einstakra viðskiptavina Icebank
þegar hún var spurð um stöðuna á
láninu til félags Þorvaldar Lúðvíks.
Hjördís bar fyrir sig bankaleynd í
svari sínu.
Færði fasteign yfir á konuna
Erfið staða Þorvaldar Lúðvíks sést
einnig á því að í lok árs færði hann
fasteign sem þau áttu saman á Ás-
vallagötu yfir á eiginkonu sína. Þetta
kemur fram í veðbandayfirliti fast-
eignarinnar. Margir aðrir þekktir
menn úr íslensku viðskiptalífi gerðu
þetta í kjölfar íslenska efnahags-
hrunsins. Þetta hefur væntanlega
verið gert vegna þess að þeir óttuðust
að gengið yrði að þeim vegna skulda.
Báðir forstjórar Exista, Sigurður Val-
týsson og Erlendur Hjaltason, færðu
til dæmis hús sín yfir á nöfn eigin-
kvenna sinna í kjölfar hrunsins.
Á árinu 2010 bættust þrjú ný
skuldabréf við veðbandayfirlit fast-
eignarinnar upp á samtals rúmar 42
milljónir króna. Eitt af skuldabréf-
unum er stílað á Arion banka en hin
tvö á ótilgreindan handhafa. Fyrir
árið 2010 hvíldu hins vegar einung-
is tvö skuldabréf á fasteigninni, ann-
að frá Lífeyrissjóði verslunarmanna
upp á fimm milljónir króna og hitt
frá Kaupþingi. Rúmlega 62 millj-
ónir króna hvíla því á fasteigninni
sem metin er á rúmar 33 milljónir
króna. Fasteignin er því yfirveðsett.
Þorvaldur Lúðvík hefur því hugsan-
lega þurft að ná sér í fjármuni á ár-
inu 2010 og því veðsett fasteignina
enn frekar. Hugsanlegt er að þetta
hafi verið gert til að greiða af öðrum
skuldum eða til að leggja fram frekari
tryggingar vegna lána.
Yfirheyrður í tveimur málum
Bankastjórinn er því í erfiðri stöðu
fjárhagslega samkvæmt þessu. Við
þetta bætist að Þorvaldur Lúðvík hef-
ur verið yfirheyrður í tveimur málum
sem sérstakur saksóknari íslenska
efnahagshrunsins hefur verið með til
rannsóknar.
Annars vegar í rannsókninni á
sölu Sögu Capital á skuldabréfi sem
bankinn átti á Stími til sjóðs í vörslu
Glitnis í ágúst 2008. Með sölunni á
skuldabréfinu fékk Saga Capital tæp-
lega 1.200 milljónir króna frá Glitni
sem annars hefðu tapast vegna þess
að Stím var tæknilega gjaldþrota fé-
lag. Verið er að rannsaka hvort um-
boðssvik hafi verið framin við söluna
á skuldabréfinu.
Hins vegar vegna rannsóknar
embættisins á allsherjarmarkaðs-
misnotkun Kaupþings á árunum fyr-
ir hrunið. Þorvaldur Lúðvík var fram-
kvæmdastjóri eigin viðskipta hjá
Kaupþingi þar til hann lét af störfum
í bankanum á seinni hluta árs 2006 og
því er ekki óeðlilegt að embætti sér-
staks saksóknara hafi rætt við hann
vegna meintrar markaðsmisnotkunar
Kaupþings með hlutabréf í bankan-
um sjálfum. Af þessari staðreynd má
álykta að rannsóknin á meintri mark-
aðsmisnotkun Kaupþing með bréf í
bankanum sjálfum nái að minnsta
kosti nokkur ár aftur í tímann.
DV leitaði eftir viðbrögðum frá
Þorvaldi Lúðvík vegna Maríutásu
og viðræðna hans við lánardrottna.
Þorvaldur Lúðvík sagði þá að hrun-
ið hefði haft áhrif á hann en að hann
vildi ekki fara nánar út í fjármál sín.
„Hrunið hafði vitanlega áhrif á mig
eins og aðra landsmenn. Þettu eru
mín persónulegu mál og ég kýs að tjá
mig ekki um þau, að öðru leyti en því
að þau eru í viðráðanlegum farvegi.“
Eigendur eignarhaldsfélagsins
Tractus ehf., sem áður hét Con-
solium, vilja greiða sér sex millj-
óna króna arð fyrir árið 2009
samkvæmt ársreikningi félags-
ins sem skilað var til ársreikn-
ingaskrár snemma árs í fyrra.
Eigendur félagsins eru nokkrir af
fyrrverandi æðstu stjórnendum
Kaupþings, meðal annars Hreiðar
Már Sigurðsson, Ingólfur Helga-
son og Steingrímur Kárason. Hver
um sig á 20 prósenta hlut í félag-
inu.
Consolium er ráðgjafarfyrir-
tæki á sviði fjármála sem Hreiðar
Már og Ingólfur stofnuðu í kjölfar
hrunsins um haustið 2008. Stofn-
un félagsins vakti mikla athygli
hér á landi síðla árs 2008 því ekki
leið langur tími frá falli Kaupþings
og þar til helstu stjórnendur bank-
ans voru komnir yfir í annars kon-
ar fjármálastarfsemi. Félagið var
stofnað þann 30. október, einung-
is rúmum þremur vikum eftir fall
Kaupþings.
Eigendur Consolium fluttu til
Lúxemborgar nokkru eftir hrun og
reka ráðgjafarfyrirtæki þar í landi
með sama nafni.
Rúmlega 25 milljóna króna
hagnaður
Rúmlega 25 milljóna króna hagn-
aður var af starfsemi Consolium
á árinu 2009 samkvæmt ársreikn-
ingnum. Stjórn félagsins, sem
meðal annars Ingólfur Helga-
son og Steingrímur Kárason sátu
í, gerði tillögu um greiðslu arðs
til hluthafa að fjárhæð 6 milljónir
króna á árinu 2010 vegna rekstrar-
ársins 2009. Ársreikningur félags-
ins fyrir árið 2010 liggur hins vegar
ekki fyrir og því er ekki vitað hvort
arðurinn af starfsemi Consolium
var greiddur út til hluthafa félags-
ins eða ekki. Þetta mun koma fram
í ársreikningi félagsins fyrir árið
2010.
Tilkynning um breytingu á
nafni, samþykktum, stjórn, pró-
kúruhafa og heimilisfangi barst
fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra í okt-
óber í fyrra. Þá fóru Ingólfur og
Steingrímur út úr stjórn félagsins.
Fyrrverandi stjórnendur Kaup-
þings tengjast félaginu nú ekki að
öðru leyti en að þeir eru 60 pró-
senta eigendur þess á móti Jó-
hönnu Gústavsdóttur og Kristni
Eiríkssyni.
Af ársreikningi félagsins er ekki
að sjá annað en að það sé í ágætis
rekstri og að Kaupþingsmenn sjái
sér hag í því að eiga félagið áfram
þrátt fyrir að vera fluttir til Lúxem-
borgar.
1.100 milljóna skuld
Þremenningarnir eiga saman
annað félag ásamt Sigurði Ein-
arssyni, fyrrverandi stjórnarfor-
manni Kaupþings, og Hreiðari
Má Sigurðssyni, fyrrverandi for-
stjóra bankans. Það er jarðafélag-
ið Hvítsstaðir ehf. sem þeir stofn-
uðu vegna kaupa á fjórum jörðum
við Langá á Mýrum. Félagið keypti
jarðirnar fjórar á um 400 milljón-
ir króna. Hvítsstaðir skulda rúmar
1.100 milljónir króna í dag, sam-
kvæmt ársreikningi félagsins fyrir
árið 2009. Skuldirnar eru við Ari-
on banka, áður Kaupþing, að því
er segir í ársreikningnum.
Félagið tapaði rúmum 130
milljónum króna árið 2009 og er
eigið fé þess neikvætt um nærri
636 milljónir króna. Við félaginu
blasir fátt annað en gjaldþrot.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
n Fyrrverandi stjórnendur Kaupþings vilja taka arð út úr
ráðgjafarfyrirtæki sínu á Íslandi n Stofnuðu félagið rétt
eftir hrun n Fluttu til Lúxemborgar og vinna fyrir Consolium
KAUPÞINGS-
MENN VILJA
TAKA ARÐ
„Rúmlega 25 milljóna
króna hagnaður var
af starfsemi Consolium
á árinu 2009 samkvæmt
ársreikningnum.
25 milljóna hagnaður
Ráðgjafarfyrirtæki sem Hreiðar Már
Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri
Kaupþings, á hlut í skilaði rúmlega
25 milljóna hagnaði árið 2009.
Eigendurnir vilja taka arð út úr
félaginu. Annað félag í þeirra eigu
rambar á barmi gjaldþrots með skuld
upp á rúman milljarð.