Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2011, Blaðsíða 25
Sport | 25Miðvikudagur 12. janúar 2011
Valdi Messi ekki
n Cristiano Ronaldo, leikmaður
Real Madrid, komst ekki einu sinni
í eitt af efstu þremur sætunum á
lista yfir bestu
knattspyrnu-
menn heims.
Argentínumað-
urinn Lionel
Messi, leikmað-
ur Barcelona,
fékk verðlaun-
in í fyrrakvöld.
Sjálfur valdi
Ronaldo Messi ekki í eitt af þremur
efstu sætunum á sínum lista.Ron-
aldo valdi hins vegar Xavi, leik-
mann Barcelona og heimsmeist-
ara Spánverja, í fyrsta sæti. Í öðru
sæti var liðsmaður hans hjá Real
Madrid, Iker Casillas. Í þriðja sæti
var Hollendingurinn Wesley Sneij-
der sem átti nokkra stórleiki á HM
sem fram fór síðasta sumar.
Ronaldinho
fer heim
n Brasilíumaðurinn Ronaldinho,
sem eitt sinn var besti leikmaður
heims, hefur skrifað undir 4 ára
samning við Flamengo í heima-
landi sínu.
Ronaldinho lék
áður með AC
Milan og þar
áður með Bar-
celona þar sem
stjarna hans
skein skærast.
Ronaldinho var
einnig orðað-
ur við brasilísku liðin Gremio og
Palmeiras. Enska úrvalsdeildarlið-
ið Blackburn Rovers vildi einnig
fá hann í sínar raðir. Forseti Fla-
mengo, Patricia Amorim, er hæst-
ánægður með nýja leikmanninn.
„Þetta verkefni hófst um leið og
ég varð forseti liðsins. Ég vil þakka
öllum sem komu að því að hann
gekk til liðs við okkur.“
Lánaður til
Hollands
n Meira af málefnum tengdum
AC Milan. Bandaríska varnar-
tröllið Oguchi Onyewu hefur ver-
ið lánaður til hollenska liðsins
FC Twente út tímabilið. Onyweu
hefur leikið með Milan síðan árið
2009, en hefur lítið fengið að spila
upp á síðkastið eftir að hafa lent í
erfiðum meiðslum. Onyewu hefur
spilað 51 landsleik fyrir Banda-
ríkin og þótti standa sig vel með
liðinu á heimsmeistaramótinu síð-
asta sumar. Twente er í öðru sæti í
hollensku deildinni og ætti koma
varnarmannsins að styrkja liðið
enn frekar.
16,7 milljónir á viku
n Búist er við því að Wayne Bridge,
bakvörður Manchester City, gangi
til liðs við West Ham United.
Lundúnaliðið er tilbúið til þess að
greiða Bridge
90 þúsund
pund á viku,
sem samsvar-
ar 16,7 millj-
ónum króna á
viku. Hann yrði
þar með launa-
hæsti leikmaður
liðsins. Von-
ir standa til að hann verði klár í
slaginn með liðinu á móti Arsenal
á sunnudaginn. Bridge er sagður
æstur í að komast aftur til Lond-
on, en hann lék áður með Chel-
sea. Hann hefur ekki verið í náð-
inni hjá Roberto Mancini, þjálfara
Manchester City, síðustu mánuði.
Bridge hefur þegar hafnað tilboði
frá Aston Villa.
Molar
Grindavík í undanúrslit Powerade-bikarsins
Það kom fáum á óvart að úrvalsdeildarlið Grindavíkur bar sigurorð af 1.
deildarliði Laugdæla í 8-liða úrslitum Powerade-bikarkeppninnar í körfubolta.
Lokatölur leiksins urðu 91-56 og það var landsliðsmaðurinn Páll Axel Vilbergs-
son sem var stigahæstur í liði Grindavíkur með 25 stig. Fyrir Laugdæli skoraði
Anton Kári Kárason einnig 25 stig, en hann var með ótrúlega nýtingu í 3 stiga
skotum sínum, eða 83 prósent. Laugdælir eru flestir nemendur við íþrótta-
kennaradeild HÍ á Laugarvatni. Grindavík er þar með komið í undanúrslit
ásamt KR-ingum, Haukum og Tindastóli.
Handboltinn í beinni á netinu Þeir sem hafa ekki hugsað sér að
fjárfesta í áskrift að Stöð 2 Sport til þess eins að horfa á íslenska handboltalandsliðið í
beinni útsendingu þurfa ekki að örvænta. Þetta á að minnsta kosti við um þá sem hafa
sæmilega nettengingu, en í gegnum síðurnar livehandball.tv og einnig fromsport.com
verður hægt að sjá alla leikina á heimsmeistaramótinu í handbolta í beinni útsendingu.
Þetta gæti auðvitað kostað sitt vegna alls þess erlenda niðurhals sem fylgir, en fólki
er þá í sjálfsvald sett hvað það gerir. Verst af öllu verður sennilega að enginn íslenskur
lýsandi verður til staðar á netinu, en margir handboltaaðdáendur munu sakna
tilfinningaþrunginna lýsinga Adolfs Inga Erlingssonar, sem verður nú fjarri góðu gamni.
af skorti á vaxtarhormónum sem yrði
að bregðast við því útséð var um að
hann yrði nokkurn tíma knattspyrnu-
maður í efstu deild sökum smæðar. Á
þessum tíma var argen tínska stórliðið
River Plate farið að sýna Messi áhuga
vegna hæfileika hans en lækniskostn-
aðurinn vegna hormónameðferðar
stóð í forráðamönnum stórliðsins. 900
bandaríkjadalir á mánuði þóttu miklir
peningar til að eyða í 11 ára pilt í Arg-
entínu á þessum árum.
Barcelona bankar upp á
En hik River Plate reyndist þeim dýrt.
Því Carles Rexach, íþróttastjóri hjá FC
Barcelona á Spáni, hafði haft veður af
hæfileikum Messi. Og þegar honum
var greint frá ástandi hans gerði hann
honum og foreldrum hans tilboð sem
þau gátu ekki hafnað. Þar sem Messi-
fjölskyldan átti ættingja í Katalónínu á
Spáni tókst að bjóða Messi til reynslu
hjá unglingastarfi Barcelona. Rexach
og njósnarar Barcelona fylgdust með
Messi spila og ákváðu að bjóða hin-
um smávaxna þrettán ára Argentínu-
manni samning umsvifalaust og borga
sjúkrareikninginn vegna hormóna-
meðferðar hans ef hann væri reiðu-
búinn að flytjast til Spánar. Svo varð
að Barcelona flutti alla fjölskylduna
til Evrópu og Messi hóf að leika með
unglingaliði félagsins. Menn geta rétt
ímyndað sér hversu óslípaðan dem-
ant stórlið Barcelona sá í þessum unga
pilti fyrst menn lögðu svona mikla
áherslu á að fá hann, lágvaxinn, fín-
gerðan og aðeins þrettán ára gamlan
árið 2000.
Yngstur til að skora
Messi óx, dafnaði og þroskaðist vel
hjá Barcelona og hann þurfti ekki að
bíða lengi eftir tækifærinu. 16. nóvem-
ber 2003 lék hann sinn fyrsta leik fyrir
aðallið félagsins. Um var að ræða vin-
áttuleik gegn Porto sem þá var und-
ir stjórn Jose Mourinho. Messi var 16
ára og 145 daga gamall. Tæplega ári
síðar varð Messi yngsti leikmaður í
sögu Barcelona til að leika deildarleik
í La Liga þegar hann lék sinn fyrsta
leik gegn Espanyol í október 2004, þá
17 ára og 114 daga gamall. Í maí 2005
skoraði hann sitt fyrsta mark fyrir fé-
lagið í deildinni gegn Albacete 17 ára
og tíu mánaða. Yngsti markaskorari í
sögu félagsins í deildinni. Bojan Krkic
sló bæði þessi met árið 2007 að vísu.
Gimsteinn á hliðarlínunni
Á þessum tíma var mikið látið með
þann gimstein sem Barcelona geymdi
á hliðarlínunni. Fæstir höfðu séð nokk-
uð til hans á vellinum að ráði en al-
mannarómur var sá að þarna færi hinn
nýi Maradona. En það var erfitt að finna
honum byrjunarliðssæti þrátt fyrir
óumdeilda hæfileika. Á þessum tíma
var Ronaldinho kóngurinn á Camp
Nou og Ludovic Guily lék vel á hægri
kantinum þar sem stóð til að nota
Messi. Orðspor hans jókst og spennan
óx meðal áhangenda og sparkspekinga
sem vildu ólmir fá að sjá undrabarnið
standa undir öllu hólinu.
Vitandi þetta voru Barcelona-menn
ekki lengi að tryggja sig. Í desember
2005 varð Messi spænskur ríkisborgari
og Barcelona bætti samning hans til
muna, í annað skiptið á þremur mán-
uðum. Messi skrifaði undir fáheyrðan
níu ára samning við Barcelona sem
tryggði að hann yrði samningsbund-
inn til ársins 2014.
Ný hetja fædd
Krónprinsinn hjá Katalóníurisan-
um var hylltur af stuðningsmönnum
félagsins þegar hann lék sinn fyrsta
heimaleik í Meistaradeild Evrópu
þann 27. september gegn Udinese.
Samleikur hans og kóngsins Ronald-
inhos lofaði gríðarlega góðu. Messi var
hægt og bítandi kynntur til leiks í byrj-
unarliði Barcelona og barðist við Guily
um hylli Rikjaards. Tímabilið 2005–
2006 skoraði hann sex mörk í sautján
leikjum í deildinni og eitt mark í sex
leikjum í Meistaradeild Evrópu. 18 ára
var hann orðinn uppáhald stuðnings-
mannanna. Leiktíðina á eftir var Messi
orðinn fastamaður í Barcelona. Skor-
aði 14 mörk í 26 leikjum þrátt fyrir að
hafa misst þrjá mánuði úr vegna bein-
brots. 11 af 14 mörkum hans í deild-
inni komu í síðustu 13 leikjunum. Ný
hetja var fædd.
Betri en Maradona?
Eftir því sem fjaraði undan ferli Ron-
aldinhos hjá félaginu tók Messi yfir.
Margir höfðu uppi efasemdir um að
hann væri reiðubúinn til að gera það
varla orðinn tvítugur. En söguna síð-
an þá þekkja flestir. Messi er ásamt
Cristiano Ronaldo álitinn besti leik-
maður í heimi og þeir tveir álitn-
ir nokkurs konar Maradona og Pelé
21. aldarinnar í þeim skilningi að
menn munu um ókomna tíð rífast um
hvor þeirra sé betri. Eitt er hins veg-
ar á hreinu, árið 2010 var Messi best-
ur að mati kollega sinna og því sit-
ur Gullknöttur FIFA uppi í hillu hjá
argentínska undrabarninu. Ef marka
má frammistöðu hans það sem af er
þessu tímabili og upphafi ársins 2011,
þá er erfitt að sjá fyrir sér að Messi
verði ekki í baráttunni um sömu verð-
laun að ári.
„Messi þjáðist af
skorti á vaxtar-
hormónum sem yrði að
bregðast við því útséð
var um að hann yrði
nokkurn tíma knatt-
spyrnumaður í efstu
deild sökum smæðar.
Stjórn körfuknattleiksdeildar
Njarðvíkur ákvað á mánudags-
kvöld ásamt Sigurði Ingimundar-
syni, að Sigurður tæki pokann sinn
og hætti að þjálfa liðið. Samkvæmt
yfirlýsingu sem birtist á heima-
síðu félagsins komust Sigurður og
körfuknattleiksdeild Njarðvíkur að
þessari sameiginlegu niðurstöðu.
Ákvörðun Njarðvíkur og Sigurð-
ar kemur í kjölfar taps Njarðvík-
urliðsins í Powerade-bikarnum á
sunnudagskvöld, en þar laut liðið
í lægra haldi fyrir Haukum. Sigurð-
ur hverfur þar af vettvangi Iceland
Express-deildarinnar, um sinn að
minnsta kosti, en hann er einn sig-
ursælasti körfuknattleiksþjálfari á
Íslandi frá upphafi.
Njarðvíkingar hafa aðeins
unnið fjóra af 12 leikjum sínum í
Iceland Express-deildinni og sitja
nú í 10. sæti með jafn mörg stig
og Fjölnismenn. Njarðvík er að-
eins tveimur stigum frá fallsæti,
sem er langt frá því að teljast við-
unandi í Njarðvík – sem er rótgró-
ið stórveldi í íslenskum körfubolta.
Sigurður tók við liðinu um haustið
2009 og hefur árangur liðsins ekki
staðist væntingar. Í yfirlýsingunni
sem birtist á heimasíðu Njarðvík-
ur segir: „Ekki náðist sá árangur
hjá liðinu sem Sigurður og Stjórn
KKD UMFN stefndu að og því varð
það ofan á að Sigurður stigi til hlið-
ar. Stjórn deildarinnar kemur sam-
an í kvöld til að fara yfir stöðu liðs-
ins og hefja leit að nýjum þjálfara.
Körfuknattleiksdeild UMFN þakk-
ar Sigurði fyrir samvinnuna og
óskar honum velfarnaðar í því sem
hann tekur sér fyrir hendur.“
Um næstu helgi taka Njarðvík-
ingar á móti ÍR-ingum í sannköll-
uðum fallbaráttuslag, en ÍR-ingar
sitja nú í 11. sæti, tveimur stigum á
eftir Njarðvík.
Njarðvíkingar og Sigurður Ingimundarson hafa ákveðið að hann hverfi á braut eftir slakt gengi:
Hættur með Njarðvík
Sigurður
Ingimundarson
Farinn frá Njarðvík.
Ótrúleg tækni Messi býr yfir gríðarlegum hraða, sprengi-
krafti og óviðjafnanlegri tækni með bolta. Hér skautar hann
fram hjá varnarmanni Villarreal í desember 2005. Orðinn
spænskur ríkisborgari með níu ára samning við Barcelona.
Heimsmeistari Messi leiddi U-20
ára landslið Argentínu til heimsmeist-
aratitils árið 2005. Þá átján ára.
Nýr kóngur Í upphafi árs 2008 var ljóst að nýr
kóngur var kominn fram á Camp Nou. Ronaldinho
var að hverfa á braut og Messi axlaði ábyrgðina.