Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2011, Blaðsíða 20
Johnny Marco (Stephen Dorff) er þvílíkur Hollywood-spaði sem er heimsfrægur fyrir hasar-
myndirnar sem hann leikur í. Hann
gerir áhættuatriðin sín sjálfur en
hefur engan sérstakan áhuga á
sjálfri leiklistinni eða bara öðru yfir
höfuð. Hann virðist lyppast gegn-
um lífið eins og hann væri lyfjaður
á stjörnulífstílnum sem fylgir brans-
anum. Hann sinnir sínu og virðist
hafa fundið jafnvægi í því að vakna
á hótelherbergjum hvern morgun
með nýjum og nýjum hjásvæfum.
Það er enginn glamúr eða hátíðar-
brigði yfir öllu því sem venjulegur
maður myndi sjá sem eftirsóknar-
vert.
Sofia Coppola sýnir sniðuglega
gegnum myndina hvernig hann er
einhvern veginn í móki. Til dæmis
á blaðamannafundi við kynningu á
nýjustu mynd hans kemur í ljós að
hann hefur ekki skít áhuga á nokkr-
um sköpuðum hlut, hvað þá því sem
hann vinnur við og er frægur fyrir.
Hann er samt aldrei í skítsama gírn-
um og virðist vera sáttur sem óvirk-
ur þátttakandi í eigin lífi. Við og við
hangir hann með skilnaðarbarn-
inu dóttur sinni en stendur skyndi-
lega frammi fyrir því að hún sé að
verða mun stærri hluti af lífi hans
en nokkurn tímann fyrr. Barnsmóð-
ir hans skilur dótturina eftir í hans
umsjá og hún er skyndilega hluti af
lífi hans sem kvikmyndastjörnu.
Myndin rúllar hægt áfram og
áferðin er lítilfjörleg rétt eins og líf
hans. Hann er alltaf sötrandi áfengi
á fínum hótelum. Kynlífið sem ætti
þó að vera spennandi er það alls
ekki og hann á það til að sofna í
miðjum klíðum. Eitt besta dæmið
um þetta er þegar tveir kjánaleg-
ir stripparatvíburar með færanlega
súlu svæfa hann í rútínukenndum
dansi meðan hann sýpur viskí í hót-
elrúminu sínu. Í ládeyðu lífs hans
hefði hvað sem er komið á óvart. En
ekkert gerist (nema reyndar missir
hljóðmaðurinn óvart hljóðnemann
inn í myndrammann), samt leið-
ist manni aldrei því það er vitað að
Sofia Coppola er að fara eitthvert
með mann þarna.
Á leiðinni að lokunum tekst að
sýna manni fram á yfirdrifin tóm-
leikann og innihaldsleysið með vél-
rænni framvindunni. Maður bara
bíður út myndina sem er eflaust of
langdregið fyrir einhverja en mað-
ur veit að myndin er að fara með
mann eitthvert og plottið er út-
hugsað, gengur klárlega upp og
er skýrt. Maður fattar raunar ekki
fyrr en undir lokin hver djöfullinn
er að gerast. Myndin byrjar á hon-
um keyrandi sama hringinn trekk
í trekk á flottum bíl. Táknrænt fyr-
ir lífsstílinn. Aldrei hefur kynlíf,
áfengi og stjörnulíferni virkað jafn
óspennandi.
20 | Fókus 12. janúar 2011 Miðvikudagur
Djammað fyrir
9-menningana
Tónleikar til stuðnings 9-menning-
unum verða haldnir á Nasa, fimmtu-
daginn 13. janúar kl. 20.30, en það var
veturinn 2009 sem fólk hópaðist út
á götur og felldi með því ríkisstjórn.
Síðar meir voru 9 einstaklingar vald-
ir úr og sakaðir um brot á 100. grein
hegningarlaga. Viðurlög við brot á
þeirri grein varða fangelsi frá 1 og allt
að 16 árum. Tónleikarnir eru um leið
hvatning til fólks um að fylgjast með
aðalmeðferð málsins dagana 18.–20.
janúar. Aðgangseyrir er aðeins 500
krónur og frjáls framlög eru vel þeg-
in. Fjöldi tónlistarmanna býður fram
stuðning sinn. Páll Óskar, KK og Ellen,
múm og einn þeirra ákærðu úr hópi
níumenningana eru meðal þeirra fjöl-
mörgu sem troða upp á sviðinu.
Hvað ertu að lesa núna? „Ég les
mikið. Elska góða bók. Var að byrja á
Freedom eftir Jonathan Franzen, bók sem
mikið er lofuð víða. Veit ekki ennþá hvað
mér finnst. Um jólin las ég Svar við bréfi
Helgu eftir Bergsvein Birgisson, bók sem
líka var mikið lofuð og ég get tekið undir
allt það góða sem um hana hefur verið
sagt. Dásamleg lítil bók. Ég fékk bókina
hans Braga líka í jólagjöf og hef verið að
spara mér hana. Hún er pottþétt næsta
bók sem ég les.“
Hver er uppáhaldsbókin þín? „Ég
á enga uppáhaldsbók. Og ég geri aldrei
eins og sumir, að lesa bók sem mér finnst
góð oftar en einu sinni. Það er svo mikið
til af skáldskap að ég tími ekki að eyða
tímanum í eitthvað sem ég hef innbyrt,
nema þá að ég þurfi þess starfs míns
vegna.“
Hvað ertu að hlusta á? „Það sama
er að segja um músík. Voða lítið um
uppáhalds þar. Hlusta á hitt og þetta
og smekkurinn mjög fjölbreyttur. Það er
aðeins ein stefna í músík sem ég hef af
einhverjum ástæðum aldrei meikað, og
það er diskó. Get ekki diskó.“
Hvaða tónlist kemur þér alltaf
í rétta gírinn? „Það er misjafnt hver
rétti gírinn er, og þar kemur allt til greina.
Nema diskó.“
Fimmtudaginn 13. janúar verður
söngleikurinn Fela! sýndur í Sam-
bíóunum í Kringlunni í beinni út-
sendingu frá National Theatre í
London. Söngleikurinn fjallar um líf
og tónlist nígeríska tónlistarmanns-
ins Fela Kuti. Kuti varð frægur á átt-
unda áratug síðustu aldar fyrir sér-
stæðan tónlistarstíl sinn, sem hann
nefndi Afrobeat og er sambland af
hefðbundinni afrískri tónlist, djassi,
fönki og rokki. Hann var einnig öt-
ull baráttumaður gegn vestrænni
heimsvaldastefnu og pólitískri
kúgun í heimalandi sínu og beitti
tónlistinni markvisst í þeirri baráttu.
Söngleikurinn varð til í samvinnu
leikstjórans Bills T. Jones og hljóm-
sveitarinnar Antibalas.
Hann var upphaflega frumsýndur
í New York árið 2008, Off-Broadway,
og fluttur þaðan á Broadway, þar
sem hann hlaut frábærar viðtökur.
Hann var tilnefndur til margra Tony-
verðlauna í fyrra og hlaut þrenn, þar
á meðal fyrir dansa, og hefur hlotið
margar fleiri viðurkenningar.
Ekki missa af heimsfrumsýningu á margverðlaunuðum söngleik í Sambíóunum Kringlunni:
National Theatre í beinni
Nýtt leikverk eftir Sölku Guðmunds-
dóttur verður frumsýnt 14. janúar
í Tjarnarbíói. Verkið nefnist Súld-
arsker og er í leikstjórn Hörpu Arn-
ardóttur en með leik fara Aðal-
björg Árnadóttir og Maríanna Clara
Lúthers dóttir.
Þetta er fyrsta verk Sölku sem er
fært á fjalirnar og hún segist full til-
hlökkunar. „Það er enginn skjálfti í
mér, ég hlakka hins vegar mikið til að
mæta á frumsýninguna.“
Verkið fjallar um tvær aðkomu-
konur sem skolar upp á hið grá-
myglulega Súldarsker í ólíkum
erinda gjörðum; önnur gruflar í for-
tíðinni en hin staldrar aldrei við til
að líta um öxl. Koma þeirra setur
samfélagið úr skorðum og hrind-
ir af stað æsispennandi atburðarás
þar sem við sögu koma gamlir vita-
verðir, bæjar hátíðin Hryssingsdagar,
gráðugir ufsar, óupplýst morð, upp-
stoppaðar kríur og síðast en ekki síst
leyndardómar hinnar fullbúnu en
ógangsettu kassettuverksmiðju sem
gnæfir yfir samfélaginu.
Samlíkingin við Ísland er nokkuð
augljós og Salka skellir upp úr þegar
hún er spurð út í sýn sína á samfé-
lagið. „Jú, Ísland er náttúrulega lítið
sker þar sem gerast margir skondn-
ir hlutir.“
Harpa Arnardóttir leikstýrir verk-
inu en hún leiðbeindi einmitt Sölku
og annarri leikkonunni, Aðalbjörgu
Árnadóttur, í Kramhúsinu þegar
þær voru unglingar. „Verkið er skrif-
að vegna þess við Aðalbjörg rædd-
um um að það vantaði leikrit með
tveimur kvenhetjum í aðalhlutverki
og þannig spannst það áfram. Við
höfðum svo samband við Hörpu til
að leiða verkið. Nú er lokaundirbún-
ingur í gangi og mikill hamagangur
eflaust. Verkið verður svo sýnt fram í
miðjan febrúar í Tjarnarbíói.“
kristjana@dv.is
Salka Guðmundsdóttir er upprennandi höfundur:
Hlakkar til frumsýningarinnar
Sirkus Íslands
stækkar
Sirkus Íslands hefur
staðið fyrir metnað-
arfullum sýningum í
vetur í Tjarnarbíói og
sýnt þar sirkusatriði
þar sem fífldirfska
og fjör eru í fyrirrúmi.
Uppselt hefur verið á
sýningar og nú verður
síðasta sýningin í
vetur þann 16. janúar. Þá verða kynntir til
leiks tveir nýir sirkusmeðlimir. Upphafsmað-
ur og drifkraftur Sirkuss Íslands er Lee Nelson
sem er betur þekktur sem trúðurinn Wally
en hann hefur starfað úti um allan heim sem
götulistamaður síðastliðin 15 ár. Hann og
Katla Þórarinsdóttir dansari eru þungamiðja
Sirkussins en frá og með sýningunni 16.
janúar verða þeir Jóakim og Bjarni vígðir inn í
hann sem fullgildir meðlimir.
Víkingur Kristjánsson
leikari og leikstjóri
Get ekki diskó!
Hvað ertu að gera?
Fersk inn í leikhúsið Salka Guðmundsdóttir hefur starfað sem þýðandi síðustu árin og
færir nýtt frumsamið verk á fjalir Tjarnarbíós. MyND SiGTryGGur Ari
Somewhere
iMDb 6,6 rottenTomatoes 76% Metacritic 68
Leikstjóri: Sofia Coppola.
Handrit: Sofia Coppola.
Leikarar: Stephen Dorff, Elle Fanning and
Chris Pontius.
97 mínútur
Bíódómur
Erpur
Eyvindarson
Áfengi, kellingar
og önnur leiðindi
yfirdrifinn tómleiki Sofia Coppola fer með með áhorfendur í ferðalag og aldrei hefur
kynlíf, áfengi og stjörnulíferni virkað jafn óspennandi.
Heimsefni í bíó Það er mikil og góð
viðbót við menningarflóruna að geta
sótt viðburði á heimsmælikvarða í bíó.