Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2011, Síða 12
12 | Fréttir 12. janúar 2011 Miðvikudagur
GRECO, stofnun sem fylgist með
spillingu í aðildarlöndum Evr-
ópuráðsins, leggur blessun sína
yfir breytingar sem íslensk stjórn-
völd hafa gert á ákvæðum um fjár-
mál stjórnmálaflokka og gegnsæi
í starfsemi þeirra. Í nýrri skýrslu
stofnunarinnar um Ísland er engu
að síður fundið að því að stjórnvöld
hafi ekki enn orðið við tilmælum
um að skýrgreina hvað teljist hæfi-
legar gjafir og hvað teljist mútur og
óhæfilegar gjafir eða greiðslur. Þá
telja sérfræðingar GRECO að enn
láti íslensk stjórnvöld undir höfuð
leggjast að þjálfa og sérhæfa mann-
skap til þess að afhjúpa, rannsaka
og ákæra í spillingarmálum. Ís-
lensk stjórnvöld hafa þó gefið þau
svör að slíkt sé í undirbúningi og
komi til framkvæmda á þessu ári.
Gjöf eða mútur?
GRECO gaf út sex blaðsíðna skýrslu
í mars í fyrra þar sem fundið var
að því að íslensk stjórnvöld hefðu
aðeins orðið við og framfylgt ein-
um tilmælum af fimmtán sem
áður höfðu verið sett fram í eldri
skýrslu. „Upplýsingar þær sem ís-
lensk stjórnvöld hafa látið í té bera
með sér að vinnan við að fram-
fylgja öllum utan einum tilmæl-
um í matsskýrslu þriðju umferð-
ar, hvort heldur er í efnisflokki 1
eða 2, er enn á byrjunarstigi. [...] Í
ljósi framangreinds er það niður-
staða GRECO að hin afar takmark-
aða fylgni við tilmæli nefndarinnar
sé „í heildina óviðunandi“, eins og
orðrétt sagði í umræddri skýrslu.
Efnisflokkar þeir sem vísað er
til fjalla um ákærur og viðurlög við
mútubrotum (1) og gagnsæi við
fjáröflun stjórnmálaflokka og fram-
bjóðenda í kosningabaráttu (2).
Í nýju skýrslunni, sem DV vitn-
ar hér til, fagnar GRECO því að hér
á landi hafi nú með lögum ver-
ið framfylgt öllum tilmælum um
gagnsæi við fjáröflun stjórnmála-
starfseminnar. Þá er einnig til þess
tekið að stjórnvöld séu vel á veg
komin við að undirbúa lagasetn-
ingu sem tengjast mútubrotum,
rannsóknum á þeim og ákærum.
Harðari refsing
GRECO hafði mælst til þess að
ákvæði hegningarlaga um mútu-
brot og ólögmæt kaup á áhrifum
næðu einnig til þingmanna. Einn-
ig yrðu ákvæðin að ná til erlendra
fulltrúa í ráðum og sendinefnd-
um sem fara með mikilvægt vald
til ákvarðanatöku. Loks mælt-
ist GRECO til þess að ákvæði um
mútubrot næðu einnig til erlendra
dómara eða fulltrúa sem veljast til
setu í gerðardómi.
Íslensk stjórnvöld hafa tilkynnt
GRECO um fyrirhugaðar breyting-
ar á hegninarlögum sem ætlað er
að koma til móts við ofangreind til-
mæli. Þar er um að ræða 109. grein
laganna sem fjallar um mútur og
viðurlög við því að bera fé á menn
í því skyni að hafa áhrif á þá í þágu
eigin hagsmuna. Einnig er rætt um
að breyta 128. grein hegningarlag-
anna sem snýr að mútuþægni í op-
inberu starfi.
GRECO hefur í þessu sam-
bandi mælst til þess að skilgreint
verði hvað teljist hæfilegar gjafir og
hvað teljist mútur eða kaup á áhrif-
um. Þetta þykir ákveðnum vand-
kvæðum bundið en talið er koma
til greina að fylgja alþjóðlega við-
urkenndum siðareglum. Drög að
slíkum reglum kveða á um að op-
inberir starfsmenn megi í störfum
sínum aðeins taka við smávægi-
legum gjöfum. Ekki hafa enn verið
samþykktar neinar reglur sem að
þessu lúta og er málið í vinnslu.
Skortir þjálfun
GRECO hafði einnig beint þeim til-
mælum til íslenskra stjórnvalda að
viðurlög við mútubrotum yrðu hert,
ekki aðeins meðal opinberra starfs-
manna heldur einnig á almennum
markaði og í viðskiptum. Að hluta
hefur verið brugðist við þessum til-
mælum en fram kemur að yfirvöld
hafi ekki haft nein áform um að
þyngja refsingar við mútubrotum.
Í skýrslu sinni síðastliðið vor þótti
GRECO undirtektir dræmar og lagði
áherslu á „að núverandi viðurlög
fyrir mútubrot í einkageiranum á
Íslandi virðast vægari í samanburði
við þau sem tiltæk eru í hegningar-
lögum annarra aðildarríkja GRECO,
að Norðurlöndunum meðtöldum.“
Íslensk stjórnvöld hafa ekki
framfylgt tilmælum um að sérhæfa
starfsmenn til þess að kljást við
spillingu, mútubrot og skyld afbrot.
Ætlast er til þess að við þessu verði
brugðist þannig að réttarvörslukerf-
ið verði betur í stakk búið til þess að
afhjúpa, rannsaka og ákæra í spill-
ingarmálum. Íslensk stjórnvöld
hafa þó lýst því að ætlunin sé að
efna til slíkrar þjálfunar á þessu ári.
Vel viðunandi árangur
Eftir áralanga glímu við íslensk
stjórnvöld er GRECO nú bærilega
ánægt með árangurinn að því er
varðar gagnsæi og reglur varðandi
fjáröflun stjórnmálaflokka og fram-
bjóðenda. Það var meðal annars
fyrir tilstuðlan og tilmæli GRECO
sem ný lög um fjárreiður stjórn-
málaflokkanna tóku gildi 1. jan-
úar 2007, en árum saman höfðu Ís-
lendingar dregið lappirnar í þeim
efnum. Hæstu framlögin runnu til
Sjálfstæðisflokksins frá FL Group
og Landsbankanum, samtals 55
milljónir króna, skömmu áður en
þau lög tóku gildi.
Sömu lög voru endurskoðuð
síðastliðið haust og samþykkt seint
á nýliðnu ári. Þar með hafa íslensk
stjórnvöld að mati GRECO orð-
ið við öllum tilmælum um gagn-
sæi og fjáröflun stjórnmálaflokka
og einstakra frambjóðenda. Talið
er fullnægjandi frá því gengið að
stjórnmálaflokkar og frambjóð-
endur skili skýrslum um framlög
og styrki og að slíkar upplýsingar
séu birtar. Lögum samkvæmt getur
Ríkisendurskoðun hvenær sem er
krafist allra gagna til að sannreyna
hvort uppgefnar upplýsingar fram-
bjóðenda eða stjórnmálaflokka séu
sannleikanum samkvæmar.
Að öllu samanlögðu þykir
GRECO viðbrögð íslenskra stjórn-
valda við tilmælum sínum vera vel
viðunandi.
n Reglur um gagnsæi og fjármál frambjóðenda og stjórnmálaflokka eru nú
fullnægjandi n Ákvæðum um mútubrot og refsingu er þó enn áfátt n Þjálfaða
menn skortir til að afhjúpa, rannsaka og ákæra í spillingarmálum
Hert eftirlit með
mútum í vændum
Hegningarlög og mútubrot
109. grein hegningarlaga:
Hver sem gefur, lofar eða býður opinberum starfsmanni gjöf eða annan ávinning, sem
hann á ekki tilkall til, í þágu hans eða annarra, til að fá hann til að gera eitthvað eða láta
eitthvað ógert sem tengist opinberum skyldum hans skal sæta fangelsi allt að 3 árum
eða sektum ef málsbætur eru fyrir hendi.
Sömu refsingu skal sá sæta sem beinir slíku að erlendum opinberum starfsmanni,
starfsmanni alþjóðastofnunar, manni sem á sæti á þingi slíkrar stofnunar eða á
opinberu löggjafarþingi í erlendu ríki, dómara sem á sæti í alþjóðlegum dómstóli eða
starfsmanni við slíkan dómstól, í því skyni að fá hann til að gera eitthvað eða láta
eitthvað ógert sem tengist opinberum skyldum hans.
Sömu refsingu skal enn fremur sá sæta sem beinir slíku að manni, sem heldur því fram
eða veitir vissu fyrir að hann geti haft óeðlileg áhrif á ákvarðanatöku manns sem fjallað
er um í 1. og 2. mgr. þessarar greinar, í því skyni að fá hann til að beita þessum áhrifum.
Enn fremur skal sæta sömu refsingu sá maður sem heldur því fram eða veitir vissu fyrir
að hann geti haft óeðlileg áhrif á ákvarðanatöku manns, sem fjallað er um í 1. og 2. mgr.
þessarar greinar, og heimtar, tekur við eða lætur lofa sér eða öðrum gjöfum eða öðrum
ávinningi, sem hann á ekki tilkall til, án tillits til þess hvort áhrifunum er beitt eða hvort
þau leiða til þess markmiðs sem stefnt var að.
128. grein hegningarlaga:
Ef opinber starfsmaður heimtar, tekur við eða lætur lofa sér eða öðrum gjöfum eða
öðrum ávinningi, sem hann á ekki tilkall til, í sambandi við framkvæmd starfa síns, þá
skal hann sæta fangelsi allt að 6 árum, eða sektum, ef málsbætur eru.
Sömu refsingu skal sæta erlendur opinber starfsmaður, starfsmaður alþjóðastofnunar,
maður sem á sæti á þingi slíkrar stofnunar eða á opinberu löggjafarþingi í erlendu ríki,
dómari sem á sæti í alþjóðlegum dómstóli eða starfsmaður við slíkan dómstól, sem
heimtar, tekur við eða lætur lofa sér eða öðrum gjöfum eða öðrum ávinningi, sem hann
á ekki tilkall til, í sambandi við framkvæmd starfa síns.
Jóhann Hauksson
blaðamaður skrifar johannh@dv.is
Eftirlitið í Strassborg GRECO er með aðsetur í Strassborg og byggist starfsemin á
sáttmála Evrópuþjóða um eftirlit með spillingu og aðgerðir gegn henni, meðal annars
með lagabreytingum.
Valhöll Sjálfstæðisflokkurinn tók við 55 milljónum króna frá FL Group og Landsbank-
anum 2006. Þeim var skilað, en ófáir töluðu um framlögin sem mútugreiðslur.
„ Íslensk stjórnvöld hafa
ekki framfylgt tilmæl-
um um að sérhæfa starfsmenn
til þess að kljást við spillingu,
mútubrot og skyld afbrot.
Hegningarlög nái til þingmanna Á snærum innanríkis-
ráðuneytis Ögmundar Jónassonar er unnið að breytingum á
ákvæðum hegningarlaga um mútubrot og mútuþægni.