Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2011, Side 19
H
elstu boðberar lýðræðis eftir-
hrunsáranna fara stundum
hástemmdum orðum um lýð-
ræðisgróskuna sem á að hafa
klæðst holdi í kjölfar búsáhaldabylt-
ingarinnar. Forseti lýðveldisins hefur
aðstoðað þessa boðbera með því að
færa reglulega í tal að valdið liggi hjá
þjóðinni.
Allt er þetta gott og blessað, en ekk-
ert af þessu er nýtt. Engin ný uppgötv-
un hefur verið gerð um lýðræðið og
engin ástæða fyrir nokkurn mann að
eigna sér gamalgrónar hugsjónir um
almannavald.
Hér gildir sem oft áður að unnt er
að bæta lýðræðið án breytinga á reglu-
verki samfélagsins. Rétt eins og hægt
er að draga úr spillingu og auka ráð-
vendni í stjórnmálum og viðskiptum
með því að framfylgja settum lögum
og sjá til þess að allir séu jafnir frammi
fyrir þeim.
Opin stjórnsýsla og gagnsæi
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir flutti
fræga Borgarnesræðu snemma árs
2003. Hún var þá borgarstjóri og vara-
formaður Samfylkingarinnar. Í ræð-
unni gerði hún meðal annars frjálslynt
og stjórnlynt lýðræði að umtalsefni. „Í
fjármálum, fyrirtækjarekstri, fjölmiðl-
um og sveitarstjórnarmálum á Íslandi
er ennþá spurt: Í hvaða liði ertu? Ertu
í náðinni hjá stjórnarráðinu eða ekki?
Þessu verður að linna, við verðum að
losna við hina sjálfmiðuðu, stjórn-
lyndu valdsmenn. Við verðum að end-
urvekja traust almennings á stofnanir
samfélagsins með nýjum leikreglum,
nýju inntaki, nýrri ímynd.“
Á þessum tíma taldi sem sagt verð-
andi leiðtogi Samfylkingarinnar það
vera sérstakt hlutverk flokksins að losa
þjóðina undan forherðingu og spill-
ingu stjórnlyndra valdsmanna. Losa
hana við það sem með vanþóknun og
fyrirlitningu er nú kallað „gamla Ís-
land“.
Tækifærin til lýðræðisumbóta
blöstu við eftir fall fjármálakerfisins.
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður
Samfylkingarinnar, hefur þokað þess-
um umbótum áfram. Stjórnlagaþing
kemur brátt saman og nefnd hefur
skilað tillögum um endurskoðun laga
um stjórnarráðið.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
er áhugasamt um lýðræðisumbætur
eins og Samfylkingin enda birtist sá
áhugi í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar. „Ríkisstjórnin mun beita sér fyr-
ir opinni stjórnsýslu, auknu gagnsæi
og lýðræðisumbótum,“ stendur þar.
Góðir hlutir gerast hægt
Verkefnið er kannski hið allra mikil-
vægasta og að mörgu leyti snúið. En
hverjir aðrir en jafnaðar- og vinstri-
menn eiga að taka þetta verkefni að sér?
Ber þeim gæfa til að stilla saman streng-
ina og horfa yfir sviðið með langtíma-
markmiðin í huga? Eða steytir á skerj-
um persónulegs metnaðar, skrums og
ágreinings um einstök mál og aðferðir
í hreingerningunni eftir framsóknar- og
sjálfstæðismenn sem höfðu næði í tólf
ár til að undirbúa hrunið?
Margt bendir til þess að heilum
80 árum eftir klofning Alþýðuflokks-
ins, og látlaust sundurlyndi jafnað-
armanna og sósíalista/kommúnista
allar götur síðan, sé neyð íslenska
þjóðfélagsins í þann mund að kenna
þeim lexíu. Þrátt fyrir að ystavinstrið
í VG hafi í hótunum nánast daglega
virðist þorri þeirra sem stofnuðu VG
árið 1999 þeirrar skoðunar nú að far-
sælast sé fyrir íslenskan almenning að
líta á stjórnmálin sem langhlaup og að
ávinningar samstarfsins verði að fá að
koma fram í hægum takti.
Sundurþykkja lýðræðislegra jafn-
aðarmanna og vinstrimanna á sér
langa og örlagaríka sögu, ekki að-
eins hér á landi. Átakanlegasta dæm-
ið var andstaða þýskra kommúnista
við lýðræðislega jafnaðarmannastjórn
Weimarlýðveldisins eftir fyrri heims-
styrjöldina. Auðvelt er að halda því
fram að sú andstaða hafi greitt nasism-
anum og Hitler leið til valda árið 1933.
Það varð þýskum kommúnistum dýr-
keypt sem nasistar hundeltu og drápu
eftir valdatökuna.
Auðvelt er einnig að benda á að
átök jafnarðarmanna og kommúnista
náðu ekki neinum hæðum víðast hvar
á Norðurlöndum. Jafnaðarmenn náðu
undirtökum með stuðningi verkalýðs-
hreyfingarinnar. Þróunina þekkja allir:
Norrænt velferðarríki er heimsþekkt
„vörumerki“ í þjóðfélagsumræðu um
heim allan.
Sundrungarsaga jafnaðar- og
vinstrimanna hér á landi er saga vald-
stjórnar Sjálfstæðisflokksins. Þetta
veit þingmeirihlutinn. Enginn þarf að
undrast þótt sögulegt ríkisstjórnar-
samstarf, sem hófst við erfiðar aðstæð-
ur, birtist um tíma í óróleika lengst til
vinstri. Sá óróleiki er birtingarhátt-
ur mikilsverðra breytinga, sem fæstir
hafa tekið eftir ennþá, og eiga rætur í
slökkvistarfi sem jafnaðar- og vinstri-
menn í landinu tóku að sér fyrir tveim-
ur árum.
Umræða | 19Miðvikudagur 12. janúar 2011
Snýst um
okkur öll
Stöðutakan gegn almenningi 1 Barinn fyrir framan börnin sín rétt fyrir jól Fórnarlamb handrukk-ara hefur orðið fyrir síendurteknu
ónæði af hendi rukkaranna.
2 Matthías hætti að láta fjöl-skylduna vita af sér Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu lýsir enn eftir
Matthíasi Þórarinssyni
3 Ólafur Stefáns heimsækir dularfullu gróðamaskínuna
„Ólafur Stefánsson handboltamaður
er einn af hugmyndafræðingunum í
verkefninu okkar.“
4 Charlie Sheen með klámstjörn-um í Vegas Þar í borg er nú haldin
heljarinnar klámráðstefna.
5 Jón Steinar og skotárásin Jón Steinar staðfesti ekki gæsluvarð-
haldsúrskurð yfir manni sem skaut
sér leið inn í hús í Reykjavík með
haglabyssu.
6 Vilja reka Lúðvík úr VR Tillaga um að reka Lúðvík Lúðvíksson úr
stéttarfélaginu var lögð fyrir á
síðasta stjórnarfundi.
7 Óttast að bólusetning hafi valdið drómasýki Fimm ný tilfelli
af drómasýki hafa greinst í börnum
og unglingum á Íslandi frá því í sumar. Jórunn Edda Helgadóttir er ein þeirra sem standa að tónleikum á Nasa
til stuðnings níumenningunum sem
ákærðir eru fyrir brot á 100. grein
hegningarlaganna. Hún segir
mikilvægt að sýna þeim stuðning og
vill gera það á jákvæðan og skemmti-
legan máta. Fjölmargir listamenn taka
þátt í þessum viðburði og voru að sögn
Jórunnar allir ánægðir með að taka
þátt.
Hver er maðurinn?
„Jórunn Edda Helgadóttir, heimspekingur
og nemi í alþjóðalögfræði. Vinn á Ölstofunni
og sinni þeim verkefnum sem mér finnast
áhugaverðust á hverjum tíma.“
Hvar eru bernskuslóðirnar?
„Ég ólst upp á Vestfjörðum og í Kópa-
voginum en hef búið í Vesturbænum og
miðbænum mörg síðustu ár.“
Hvað er fram undan?
„Ég er að skipuleggja tónleika á fimmtudag-
inn sem eru til stuðnings níumenningunum
sem hafa verið ákærðir fyrir brot á 100. grein
hegningarlaga sem varðar árás á Alþingi.
Sem er pólítískt hugtak að mínu mati og
hefur ekki verið skilgreint. Við viljum vekja á
athygli á þessu máli og fá fólk til að kynna
sér um hvað það snýst.“
Þekkirðu þau persónulega?
„Þrjú þeirra eru kunningjar mínir. En
ástæðan fyrir því að ég tek þátt í þessu er að
mér finnst málstaðurinn góður, málið snýst
um rétt okkar til þess að mótmæla og taka
þátt í lýðræðinu.“
Mótmæltir þú sjálf?
„Ég tók virkan þátt í mótmælunum sjálf
en eins og hefur verið bent á hafði akkúrat
þessi mótmælaaðgerð mun minni áhrif en
önnur mótmæli. Tugþúsundir réðust í þeirra
skilningi á Alþingi þótt ég vilji meina að ef
einhverjir gerðu það þá voru það aðrir en
mótmælendur sem réðust gegn sjálfræði
Alþingis því þar fór með völd fólk sem var
hætt að þjóna lýðræðinu og vann gegn því.
Þess utan þá get ég ekki séð að það að fara
óvopnaður á almenningspalla til þess að
lesa yfirlýsingu sé árás.“
Hverjar eru væntingarnar?
„Við vonumst til að sem flestir mæti. Það er
pláss fyrir 800 manns. Þá vonumst við til
að sem flestir fylgist vel með aðalmeðferð
málsins 18.–20. janúar. Þetta mál snýst
ekki bara um þau, heldur okkur öll enda
grafalvarlegur áfellisdómur um samfélagið
verði þau sakfelld. Viðurlög við brotum á
100. grein eru 1–16 ára fangelsisvist.“
„1. sæti.“
Ylva Helgadóttir
23 ára matreiðslumaður
„4. sæti.“
Guðlaugur B.
25 ára matreiðslumaður
„1. sæti.“
Hörður Sveinsson
29 ára ljósmyndari
„1. sæti“
Freyja Melsted
19 ára nemi í HÍ
„1. sæti“
Konráð Jónsson
26 ára lögfræðingur
Mest lesið á dv.is Maður dagsins
Í hvaða sæti lenda Íslendingar á HM í handbolta?
Kauphlaup Kalt hefur verið í höfuðborginni að undanförnu og gera má ráð fyrir að margir hafi þurft að
hlaupa undan kuldabola, líkt og þessi virðist gera. Mynd: Róbert Reynisson
Myndin
Hljóðlátu breytingarnar
Dómstóll götunnar
„Enginn þarf að
undrast þótt
sögulegt ríkisstjórnar-
samstarf, sem hófst
við erfiðar aðstæður,
birtist um tíma í óróleika
lengst til vinstri. Sá
óróleiki er birtingarháttur
mikilsverðra breytinga.
Kjallari
Jóhann
Hauksson