Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2011, Blaðsíða 29
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
Fólk | 29Miðvikudagur 12. janúar 2011
N
atalie Portman nýtur sviðsljóssins í
Hollywood þessa dagana. Hún sló í
gegn í The Black Swan og ljómar af
hamingju enda bæði barnshafandi
og nýtrúlofuð. Henni var þó komið á óvart á
verðlaunaafhendingu í Palm Springs á dög-
unum. Þar átti hún að taka á móti verðlaun-
um og svo vildi til að hennar fyrrverandi, Jake
Gyllenhaal, var kynnir á hátíðinni og það kom
í hans hlut að afhenda henni verðlaunin.
„Natalie er Audrey Hepburn okkar kyn-
slóðar,“ sagði Jake. „Hún er glæsileg, þokka-
full og með fallegar augabrúnir... hæfi-
leikarík, smávaxin, fyndin, klár, ákveðin og
ótrúlega góð.“
Unnusti Portman, Benjamin Millepied,
hló sem betur fer að þessu öllu saman og þá
sérstaklega þegar Jake endaði lofræðuna og
hóf að telja upp lestina.
„Hún er grænmetisæta sem er ótrúlega
pirrandi þegar velja á veitingastað til að
borða á,“ sagði Gyllenhal og bætti svo við:
„Hún hefur einnig nýlega tilkynnt að hún sé
að verða mamma og barnið hennar þarf lík-
lega á meðferð að halda eftir að hafa séð The
Black Swan.“
Johnny Depp:
Þolir ekki áreitið
J
ohnny Depp, sem síðast sló
í gegn í kvikmyndinni The
Tourist, segir að tækniþróun
undan farinna ára og offram-
boð á afþreyingu hafi gert það að
verkum að mannskepnan hafi týnt
sjálfri sér.
Johnny er giftur Vanessu Paradis
og á með henni börnin Lily-Rose, 11
ára, og Jack, 8 ára.
„Stundum langar mig að hlaupa
öskrandi burtu úr þessari tækni-
brjáluðu veröld sem við lifum í,
burt frá áreiti fjölmiðlanna og þeirri
geðveiki sem raunveruleikasjón-
varpið er. Við höfum tapað tengsl-
unum við allt þetta einfalda í lífinu
og þar af leiðandi vitum við varla
hver við erum lengur.“
Johnny býr í Suður-Frakklandi
með fjölskyldu sinni, en hann og
Vanessa eiga eyju í Karíbahafinu
sem þau geta flúið til þegar tæknin
og áreitið verða þeim um megn.
Johnny sagði í viðtali við Red
Bulletin magazine að fólki almennt
þætti eigin eyja í Karíbahafinu ótrú-
legur lúxus, en fyrir honum væri
það eina leiðin til að halda geð-
heilsunni.
„Ég verð að eiga athvarf þar sem
ég get andað rólega og haft það
notalegt án þess að einhver sé á eft-
ir mér með myndavél,“ segir Depp,
sem fyrir nokkrum árum var alltaf
liðtækur í djammið. Hann segir
kynni sín af Vanessu fyrir 12 árum
hafa orðið vendipunktur í lífi hans.
„Allt sem ég gerði fyrir þann
tíma er óraunverulegt fyrir mér.
Þegar dóttir mín fæddist gerðist
eitthvað innra með mér og nú á ég
þá ósk heitasta að reynast vel þeim
sem ég elska og standa mér næst.“
Áreitið er að drepa Depp Þá er
gott að eiga eyju í Karíbahafinu.
Hættur í djamminu Gjörbreyttist
þegar hann kynntist eiginkonunni.
Natalie,
Natalie,
Natalie...
Jake Gyllenhaal jós lofi yfir fyrrverandi kærustu: