Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2011, Síða 21
Erla fæddist á Akureyri en ólst upp á Göngustöðum í Svarfað-ardal. Hún var í Húsabakkaskóla
og Dalvíkurskóla, stundaði nám við
Verkmenntaskólann á Akureyri og
lauk þaðan stúdentsprófi 2001, stund-
aði nám við Hússtjórnarskólann á
Hallormsstað og lauk þaðan prófum,
stundaði nám við Háskólann á Akur-
eyri og lauk þaðan prófum sem leik-
skólakennari 2005.
Erla ólst upp við öll almenn sveita-
störf, vann við leikskóla á Dalvík tvö
sumur á unglingsárunum, lauk vinnu-
vélaprófi og var síðan ráðskona hjá
Arnarfelli og starfaði þá jafnframt á
vélgröfu við malarvinnslu víða á Aust-
urlandi á sumrin frá 1999–2005 og hef-
ur síðan unnið við bókhald hjá Arn-
arfelli á Akureyri frá 2006. Hún er nú
jafnframt leikskólakennari við leik-
skólann Kiðagil á Akureyri frá 2010.
Erla æfir dans hjá Point Dansstúd-
íói á Akureyri þar sem mæður koma
saman og dansa djassballet.
Fjölskylda
Maður Erlu er Björn Konráðsson, f.
12.4. 1970, verktaki á Akureyri.
Synir Erlu og Björns eru Guðmund-
ur Páll Björnsson, f. 7.2. 2005; Ragnar
Logi Bjönsson, f. 2.5. 2007.
Systkin Erlu eru Ingibjörg Stef-
ánsdóttir, f. 5.4. 1973, starfsmaður
hjá Þekkingu á Akureyri; Sigursteinn
Ingvarsson, f. 18.4. 1975, fjármála-
stjóri Samherja, búsettur á Akureyri;
Gunnar Kristinn Guðmundsson, f.
29.7. 1985, fjárbóndi á Göngustöðum
í Svarfaðardal.
Foreldrar Erlu eru Guðmundur
Gunnlaugsson, f. 15.8. 1949, bóndi á
Göngustöðum í Svarfaðardal, og Mar-
grét Berglind Gunnarsdóttir, f. 3.12.
1953, bóndi á Göngustöðum.
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is Ættfræði | 21Miðvikudagur 16. febrúar 2011
Til hamingju!
Afmæli 16. febrúar
Til hamingju!
Afmæli 17. febrúar
30 ára
Guðbjörg Hrönn Björnsdóttir Þrastarhöfða
35, Mosfellsbæ VIP
Eiður Árnason Suðurhlíð 38c, Reykjavík
Einar Björgvin Davíðsson Skúlagötu 42,
Reykjavík
Birnir Vilhelm Ásbjörnsson Hafnarnesi 1,
Höfn í Hornafirði
Anna Heidi Hilmarsdóttir Klapparhlíð 28,
Mosfellsbæ
Helgi Grímsson Laxdal Grettisgötu 75,
Reykjavík
Einar Björn Magnússon Ljósvallagötu 30,
Reykjavík
Pétur Georg Markan Keldulandi 21, Reykjavík
Margrét Reynisdóttir Sunnuvegi 17, Reykjavík
Margrét Dúa Einarsdóttir Flétturima 33,
Reykjavík
Karl Ingi Karlsson Marbakkabraut 16, Kópavogi
Ólafur Torfi Ásgeirsson Árholti 10, Húsavík
40 ára
Sladana Rudinac Þórufelli 12, Reykjavík
Bergþóra Kristín Borgarsdóttir Sundstræti
30, Ísafirði
Pétur Magnússon Hrafnshöfða 8, Mosfellsbæ
Guðrún Kristjana Jónsdóttir Staðarhrauni
50, Grindavík
Rúnar Brynjar Einarsson Vesturbergi 74,
Reykjavík
Ragnar Ulrich Valsson Álfkonuhvarfi 33,
Kópavogi
Þuríður Edda Eggertsdóttir Laufvangi 3,
Hafnarfirði
Ellert Baldur Magnússon Herjólfsgötu 24,
Hafnarfirði
Anna Jóhanna Sigurðardóttir Kleppsvegi
24, Reykjavík
Ingólfur Karl Bjargmundsson Asparholti
12, Álftanesi
Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir Faxatúni
23, Garðabæ
Sigurbjörn Þorgeirsson Mararbyggð 10,
Ólafsfirði
Díana Erlingsdóttir Bakkastíg 12, Bolungarvík
50 ára
Jonas Skirka Einhamri 2, Akranesi
Lilita Novikova Krummahólum 2, Reykjavík
Ingibjörg Laufey Ólafsdóttir Bakkastöðum
5a, Reykjavík
Sveinn Brynjar Diego Álftahólum 6, Reykjavík
Guðný Helgadóttir Þrastarhöfða 10, Mos-
fellsbæ
Bryndís Björk Guðjónsdóttir Ennishvarfi
27, Kópavogi
Hrefna Stefánsdóttir Háaleitisbraut 39,
Reykjavík
60 ára
Kristjana Fenger Akurholti 4, Mosfellsbæ
Kristrún Árný Sigurðardóttir Fornuströnd 13,
Seltjarnarnesi
Jón Sigurgeirsson Skipalóni 22, Hafnarfirði
Ómar Þórsson Álfkonuhvarfi 61, Kópavogi
Birgir Páll Jónsson Sunnuflöt 29, Garðabæ
Lilja Kristín Guðmundsdóttir Hvanneyrar-
braut 55, Siglufirði
Jóhanna G. Hafliðadóttir Miðgarði 2, Egils-
stöðum
Jóhanna Stefánsdóttir Marbakka 11, Nes-
kaupstað
Helga M. Sigurjónsdóttir Reykási 21,
Reykjavík
Gunnlaugur Ólafsson Hallgilsstöðum 2,
Þórshöfn
70 ára
Kristbjörg M. Gunnarsdóttir Skógum húsi
SS, Hvolsvelli
Guðrún Einarsdóttir Þangbakka 10, Reykjavík
Valdimar Brynjólfsson Austurbyggð 2,
Akureyri
Ingibjörg G. Kristmannsdóttir Áshamri 69,
Vestmannaeyjum
Bergur Sigurðsson Norðurbraut 9, Hafnarfirði
Jóna Guðlaugsdóttir Víkurbakka 18, Reykjavík
Gísli Hermannsson Ártúni, Höfn í Hornafirði
Svanhvít Magnúsdóttir Goðatúni 25, Garðabæ
75 ára
Auður Björnsdóttir Hlíðarvegi 17, Siglufirði
Magnús Jónsson Háteigi 19, Reykjanesbæ
Bryndís Magnúsdóttir Lækjasmára 6,
Kópavogi
Júlíus Arnórsson Kóngsbakka 11, Reykjavík
Ingibjörg Skúladóttir Álfhólsvegi 21, Kópavogi
80 ára
Tryggvi A. Sigurðsson Birkihlíð 11, Vest-
mannaeyjum
Valdimar Björnsson Kleppsvegi 62, Reykjavík
85 ára
Margrét Valtýsdóttir Þórunnarstræti 129,
Akureyri
Gunnar Heiðdal Skaftahlíð 22, Reykjavík
Bragi Níelsson Höfðagrund 27, Akranesi
90 ára
Helga Þórdís Benediktsdóttir Stórholti 22,
Reykjavík
Páll Þórir Beck Hamraborg 36, Kópavogi
Jóna S. Jensen Sólvallagötu 3, Reykjavík
100 ára
Guðrún Þorsteinsdóttir Hraunvangi 7,
Hafnarfirði
30 ára
Somnuk Thongbun Hraunbæ 148, Reykjavík
Miftar Bllaca Helgubraut 3, Kópavogi
Aunchaleewan Inphet Klébergi 10, Þorlákshöfn
Daði Eyjólfsson Arnarhrauni 21, Hafnarfirði
Bryndís Birgisdóttir Jóruseli 2, Reykjavík
Arnar Freyr Böðvarsson Blikaási 13, Hafnarfirði
Sveinbjörn Á. Sveinbjörnsson Bogabraut 950,
Reykjanesbæ
Guðmundur Finnbogason Engihjalla 25,
Kópavogi
Guðlaugur Rúnar Jónsson Stigahlíð 46,
Reykjavík
Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir Ásgarði 153,
Reykjavík
Kristín Ósk Ómarsdóttir Sjónarhóli, Hellu
Luis Gerardo Ascanio Hernandez Tjaldanesi
1, Garðabæ
Mauricio Andrés Teke Millachine Suðurgötu
121, Reykjavík
40 ára
Sigrid Sepp Sundlaugavegi 18, Reykjavík
Amir Azaron Álftamýri 58, Reykjavík
Arnaldur Skúli Baldursson Hraunteigi 23,
Reykjavík
Dagbjört Kjartansdóttir Njálsgötu 50,
Reykjavík
Smári Sigurbjörnsson Króktúni 11, Hvolsvelli
Halldór Bragi Gíslason Garðsbrún 3, Höfn í
Hornafirði
Jón Guðbjarni Magnússon Hraunbæ 86,
Reykjavík
Heimir Sigurpáll Áslaugsson Hólabraut 18,
Hrísey
Jóhanna Gunnarsdóttir Björtusölum 2,
Kópavogi
Jóna Björg Hafsteinsdóttir Máshólum 4,
Reykjavík
50 ára
Darija Kospenda Hrauntungu 10, Hafnarfirði
Jose Domingues Do Couto Karlagötu 6,
Reykjavík
Prescilla Prangan Nana Smáragötu 16,
Reykjavík
Krystyna Rabiczko Brekkuseli 2, Reykjavík
Vignir Ólafsson Flúðaseli 90, Reykjavík
Sigurður Óli Ólason Kjarrmóum 3, Garðabæ
Bryndís Þórhallsdóttir Ranavaði 1, Egilsstöðum
60 ára
Olga Sigvaldadóttir Hamarlandi, Reykhóla-
hreppi
Elín Sigríður Bragadóttir Björtuhlíð 8, Mos-
fellsbæ
Arnbjörg Kristín Hjaltadóttir Víðilundi 8b,
Akureyri
Þóra Sigríður Einarsdóttir Hamravík 6,
Borgarnesi
Krzysztof Stanislaw Stajuda Breiðvangi 7,
Hafnarfirði
Guðmundur Þórhallsson Búlandi 11, Reykjavík
Sigurður Jónsson Reykjabraut 4, Þorlákshöfn
Guðni Birgir Sigfússon Víðihlíð 40, Reykjavík
Ásgeir Kristófer Ásgeirsson Fálkakletti 10,
Borgarnesi
Sigríður Steina Sigfúsdóttir Vesturbergi 120,
Reykjavík
Guðríður Haraldsdóttir Þingaseli 4, Reykjavík
Sigurður Kristófersson Víðilundi 15, Garðabæ
Ragnheiður Stefánsdóttir Írabakka 8,
Reykjavík
70 ára
Svandís Jónasína Þóroddsdóttir Sunnuhvoli,
Hofsós
Ragnheiður Pálsdóttir Látraströnd 4, Sel-
tjarnarnesi
Guðmundur Sigurpálsson Hörgatúni 23,
Garðabæ
Birgir V. Dagbjartsson Hringbraut 2a, Hafn-
arfirði
Halldóra Filippusdóttir Höfðabóli, Vest-
mannaeyjum
Davíð Gíslason Eskiholti 8, Garðabæ
Matthildur Árdal Antonsdóttir Hrannarbyggð
16, Ólafsfirði
Jón Ragnar Stefánsson Hrefnugötu 10,
Reykjavík
Hörður Falsson Pósthússtræti 1, Reykjanesbæ
Ólöf Halblaub Brekkugötu 38, Akureyri
Rósa Aðalsteinsdóttir Stóru-Mörk 2, Hvolsvelli
75 ára
Halldóra Karlsdóttir Gautavík 11, Reykjavík
Hólmfríður Snæbjörnsdóttir Víðimel 49,
Reykjavík
Berghreinn Guðni Þorsteinsson Dalseli 34,
Reykjavík
Guðmundur Ágústsson Krummahólum 6,
Reykjavík
Þórður Arnar Marteinsson Suðurbraut 12,
Hafnarfirði
80 ára
Þóra Guðnadóttir Sólheimum 25, Reykjavík
Marel Jóhann Jónsson Súlunesi 6, Garðabæ
Ágúst Kristmanns Eskiholti 10, Garðabæ
Þorvaldur Jósefsson Skúlagötu 14, Borgarnesi
Sigurgeir Bjarnason Drápuhlíð 15, Reykjavík
Ásta Guðbrandsdóttir Torfnesi Hlíf 1, Ísafirði
85 ára
Eyvindur Árnason Kópavogsbraut 1a, Kópavogi
90 ára
Anna Björnsdóttir Laugarvegi 30, Siglufirði
Pálína Þórólfsdóttir Tjarnarlundi 9a, Akureyri
Örnólfur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík
1960, las lögfræði og viðskiptafræði við
Háskóla Íslands næstu þrjú ár, stundaði
síðar nám í ensku við Háskóla Íslands,
í spænskum bókmenntum við háskól-
ann í Barcelona og nám í leiklist við
Leiklistarháskólann í Barcelona.
Örnólfur var blaðamaður við Morg-
unblaðið 1963–66, leiklistargagnrýn-
andi þar 1966–69, kennari við gagn-
fræðaskóla 1966–70, fararstjóri á
Englandi og síðast aðalfararstjóri Út-
sýnar á Spáni 1968–78, umsjónarmað-
ur fastra þátta um leiklist í sjónvarpi
1969–70, og í útvarpi 1973–74, fram-
kvæmdastjóri Kvikmyndafélagsins
Óðins hf. 1980–87, framleiðandi kvik-
myndanna Punktur, punktur, komma
strik og Atómstöðvarinnar, og skóla-
stjóri Alþjóðlega fararstjóra- og ferða-
málaskólans í Palma á Mallorca 1989.
Örnólfur var formaður Leikskálda-
félags Íslands 1975–86, formaður Leik-
skáldafélags Norðurlanda 1980–82,
varaformaður Fastanefndar leikskálda,
PPC, við Alþjóðaleikhússtofnunina hjá
UNESCO 1981–85, ritari Leiklistarráðs
Íslands 1978–85, framkvæmdastjóri
Listahátíðar í Reykjavík 1979–83 og
Kvikmyndahátíðar 1980–83.
Meðal frumsaminna verka Örn-
ólfs eru Svartfugl, leikrit eftir skáld-
sögu Gunnars Gunnarssonar, sýnt í
Þjóðleikhúsinu 1971; Samson, leikrit
sýnt í íslenska og norska sjónvarpinu
1971; Viðtal, leikrit flutt í Ríkisútvarpinu
1975 og útvarpað í Noregi, Finnlandi,
Hollandi, Þýskalandi og Portúgal; Að
selja sólina, handrit að heimildarkvik-
mynd um Andalúsíu, Sjónvarpi 1976;
Costa del Sol – Andalúsía, ferðahand-
bók 1977; Costa Brava-Mallorca-Costa-
Blanca, ferðahandbók 1978; Upp úr
efstu skúffu (Blessuð minning), leikrit
í Ríkisútvarpi 1977, einnig útvarpað í
Noregi, Belgíu og á Írlandi, flutt á sviði
í Hampstead Theatre í London 1978 og
á Edinborgarhátíðinni sama ár; Silki-
tromman, líbrettó óperunnar sem sýnd
var í Þjóðleikhúsinu 1982 og í þjóð-
leikhúsi Venesúela 1983; Atómstöðin,
ásamt öðrum, kvikmyndahandrit 1983;
The Secret of the Icecave, ásamt öðr-
um, kvikmyndahandrit fyrir Cannon
Film 1989.
Bækur Örnólfs: Á slóð kolkrabbans,
1991; Lífsins dominó, 1992; Járnkarl-
inn, 1993; Bankabókin, 1994; Kóng-
ur um stund, 1995. Þá hefur Örnólf-
ur þýtt fjölda leikrita eftir ýmsa þekkta
höfunda. Hann hefur flutt u.þ.b. átta-
tíu ferðaþætti í ríkisútvarpið um ferðir
til hinna ýmsu landa og héraða og hef-
ur undanfarin ár verið mikilvirkur þýð-
andi sjónvarpsþátta af ýmsum toga.
Fjölskylda
Örnólfur kvæntist 26.8. 1967 Helgu E.
Jónsdóttur, f. 28.12. 1945, leikkonu og
leikstjóra. Hún er dóttir Jóns Kristins-
sonar, fyrrv. forstöðumanns elliheim-
ilanna á Akureyri, og Arnþrúðar Ingi-
marsdóttur húsmóður.
Börn Örnólfs og Helgu: Margrét
Örnólfsdóttir, f. 21.11. 1967, handrita-
höfundur og tónskáld, í sambúð með
Oddi Ingólfssyni, prófessor í efnafræði
við Háskóla Íslands, og eru börn þeirra
Helga Finnborg, Hringur og Snæbjörn,
en fyrir á Margrét Sunnu Eldon og Örn-
ólf Eldon; Jón Ragnar, f. 22.9. 1970, lög-
fræðingur, búsettur í Japan, kvæntur
Naomi Iwase píanóleikara og eru börn
þeirra Stefán Kei og Tómas Kou; Álf-
rún Helga. f. 23.3. 1981, leikkona, í sam-
búð með Friðriki Friðrikssyni leikara
og er dóttir þeirra Margrét; Árni Egill, f.
24.7. 1983, læknir, kvæntur Elínu Gunn-
laugsdóttur lækni og eru börn þeirra
Grímur og Kári.
Systur Örnólfs eru Margrét Árna-
dóttir, f. 11.6. 1951, bókasafnsfræðing-
ur og leikari í Reykjavík; Olga Guðrún
Árnadóttir, f. 31.8. 1953, rithöfundur í
Reykjavík.
Foreldrar Örnólfs voru Árni Þor-
steinn Egilsson, f. 22.3. 1918, d. 3.12.
1998, loftskeytamaður og fulltrúi hjá
Pósti og síma, og Finnborg Örnólfsdótt-
ir, f. 22.11. 1918, d. 13.6.1993, útvarps-
þulur og leikkona.
Ætt
Árni var kjörsonur Egils, veitingamanns
í Tjarnar-Café Benediktssonar, b. á Þor-
bergsstöðum í Dölum.
Móðir Árna var Margrét Árnadótt-
ir, pr. í Kálfatjörn, bróður Steinunnar
Guðrúnar, móður Þóris Bergssonar og
Magnúsar Jónssonar, prófessors og ráð-
herra. Árni var einnig bróðir Þorsteins,
langafa Karítasar, móður Jóhönnu Sig-
urðardóttur forsætisráðherra. Árni var
sonur Þorsteins, b. í Úthlíð Þorsteins-
sonar, b. á Hvoli í Mýrdal, hálfbróður
Bjarna Thorsteinssonar amtmanns,
föður Steingríms Thorsteinson skálds
og afa Árna tónskálds. Þorsteinn var
sonur Þorsteins, b. í Kerlingadal Stein-
grímssonar, bróður Jóns eldprests.
Móðir Árna var Sesselja Árnadóttir,
b. á Naustum í Eyjafirði Sigurðssonar.
Móðir Margrétar var Ingibjörg Valgerð-
ur Sigurðardóttir, b. í Þerney í Kollafirði
Arasonar.
Finnborg var hálfsystir Valdimars
íþróttakennara. Finnborg var dótt-
ir Örnólfs, kaupmanns og útgerðar-
manns á Suðureyri við Súgandafjörð
Valdimarssonar, bókhaldara þar Örn-
ólfssonar, skipstjóra á Ísafirði Þor-
leifssonar, hreppstjóra á Suðureyri
Þorkelssonar. Móðir Valdimars var
Margrét Jónsdóttir Sumarliðasonar og
Þorbjargar Þorvarðardóttur, b. í Eyr-
ardal við Álftafjörð Sigurðssonar, ætt-
föður Eyrardalsættar Þorvarðarsonar.
Móðir Örnólfs var Guðrún Sigfúsdóttir,
trésmiðs á Ísafirði Pálssonar, í Þórunn-
arseli, bróður Jónínu, móður Björns
Kristjánssonar alþm.. Páll var son-
ur Þórarins, b. á Víkingavatni, bróður
Ólafar, ömmu Benedikts Sveinssonar
alþm. föður Bjarna forsætisráðherra,
föður Björns, fyrrv. ráðherra, og Val-
gerðar alþm., en bróðir Bjarna var
Sveinn, afi Bjarna Benediktssonar,
alþm. og formanns Sjálfstæðisflokks-
ins. Þórarinn var sonur Björns á Vík-
ingavatni, bróður Þórarins, afa Nonna.
Móðir Finnborgar var Finnborg Kristj-
ánsdóttir, útvegsb. á Suðureyri Al-
bertssonar, b. á Gilsbrekku Jónssonar.
Örnólfur er í Róm um þessar
mundir.
Örnólfur Árnason
Rithöfundur, dagskrárgerðarmaður og þýðandi
Erla Rebekka Guðmundsdóttir
Leikskólakennari á Akureyri
70 ára sl. þriðjudag
30 ára á miðvikudag