Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Síða 4
4 | Fréttir 18.–20. mars 2011 Helgarblað Bæjarlind 6, Kópavogi, sími 517 6067. Opið mán. - fös. 10 -18, laug. 11-16. VITRA Slope blöndunartæki með botnventli 23.900 GÆÐI VITRA Mod blöndunartæki með botnventli 14.900 Leiðrétting Í viðtali DV við Meisam Rafiei frá Íran sem birtist á DV.is um síðustu helgi var því haldið fram að Mei- sam hefði unnið Evrópumeistara- titil í Tae Kvon Do á móti í Trelle- borg í Svíþjóð á þessu ári. Ítrekað skal að Meisam Rafiei vann brons á Trelleborg-open mótinu í Sví- þjóð, en ekki Evrópumeistaratitil eins og staðhæft var á DV.is. Mis- tökin má rekja til misskilnings sem hafði verið leiðréttur áður en blað- ið fór í prentun. Þau leiðu mistök urðu hins vegar að eldra eintak af greininni, sem ekki var búið að leiðrétta, var birt á vefnum.  Ari Daníelsson eykur umsvif sín í Lúxemborg: Með 25 manns í vinnu Fjárfestinum Ara Daníelssyni virðist vegna vel í Lúxemborg. Hann er yfir félaginu Reviva Capital sem heldur utan um 240 milljarða króna eignir skilanefnda Glitnis og Landsbank- ans þar í landi. Upphaflega voru starfsmenn Ara hjá Reviva Capital 16 en nú hefur þeim verið fjölgað í 25. Eins og kunnugt er var Ara og nokkrum öðrum fyrrverandi stjórn- endum Glitnis í Lúxemborg leyft að stofna Reviva Capital í maí árið 2010. Var það gert að frumkvæði skila- nefndar Glitnis og Erics Collard, starfsmanns KPMG og skiptastjóra þrotabús Glitnis í Lúxemborg. Er fé- lagið í eigu Ara, annarra starfsmanna og þrotabús Glitnis. Reviva Capital sér um stýringu á um 160 milljarða króna eignum Glitnis, sem tengjast aðallega fasteignaverkefnum. Auk þessa sér félagið um að innheimta um 70 prósent af kröfum þrotabús Landsbankans í Lúxemborg. Ari fékk 170 milljóna króna kúlu- lán til hlutabréfakaupa í Glitni í maí 2008 í gegnum eignarhaldsfélagið AB 133. Árið 2010 var lán Ara kom- ið í 232 milljónir króna. Talið er að hann þurfi ekki að standa skil á þess- ari skuld þar sem hann var ekki í per- sónulegri ábyrgð fyrir eignarhalds- félagi sínu. Ari var einn af nánustu samstarfs- mönnum Lárusar Welding hjá Glitni. Í apríl 2008 setti Lárus Ara yfir útibú Glitnis í Lúxemborg. Með því að gera Ara að framkvæmdastjóra Glitn- is í Lúxemborg ætlaði Lárus Ara að stórauka innlánssöfnun Save&Save- reikninga Glitnis í Bretlandi og á meginlandi Evrópu. Hjá Reviva Captial starfa líka fleiri Íslendingar. Má þar nefna Andra Vil- hjálm Sigurðsson, Arnar Ómarsson, Brand Þór Ludwig og Sigþór Hilmar Guðmundsson. as@dv.is Gerir það gott í Lúx Ara Daníelssyni vegnar vel í Lúxemborg. Er hann kominn með 25 starfs- menn í vinnu hjá sér hjá félaginu Reviva Capital. Áframsendu tölvupóst starfsmanns: Brutu lög um persónuvernd Persónuvernd hefur úrskurðað að forsvarsmenn Seltjarnarnesbæjar hafi brotið gegn lögum um persónu- vernd með því að stilla tölvupóst starfsmanns, sem sagt hafði verið upp vegna skipulagsbreytinga, þannig að allur póstur, bæði vinnutengdur og persónulegur, framsendist á annan starfsmann bæjarins. Persónuvernd barst í nóvember síðastliðnum kvörtun frá fyrrverandi starfsmanni hjá bæjarskrifstofu Sel- tjarnarness yfir áframsendingu á tölvupósti hennar á annað pósthólf. Þessa breytingu gerði bærinn eftir að hún lét af störfum hjá bænum og án hennar vitundar. Ásgerður Halldórsdóttir, bæjar- stjóri Seltjarnarnesbæjar, sagði í svari sínu til Persónuverndar að starfs- mannastjóri bæjarins hafi tilkynnt konunni að viðeigandi ráðstafanir yrðu gerðar vegna tölvupósts hennar. Starfsmannastjórinn hafi síðan sent konunni tilkynningu um breyting- arnar sem fólu meðal annars í sér að sjálfvirkri svörun var komið á tölvu- póstfangið, þar sem sagt var að við- komandi hefði látið af störfum, auk þess sem pósturinn var áframsendur á annað pósthólf. Konan kannaðist ekki við að hafa fengið umræddan tölvupóst frá starfs- mannastjóranum né heldur staðfest móttöku hans eða samþykkt innihald. Persónuvernd úrskurðaði að fram- sending Seltjarnarnesbæjar á tölvu- pósti konunnar hafi verið óheimil. Stjórnendur Sigurplasts eyddu gögn- um um starfsemi félagsins úr far- tölvum í eigu fyrirtækisins áður en þeim var skilað til skiptastjóra félags- ins, Gríms Sigurðssonar. Þetta gerð- ist á seinni hluta síðasta árs. Félagið hafði þá verið úrskurðað gjaldþrota og höfðu endurskoðendur Ernst og Young skoðað bókhald félagsins og séð hvaða tölvur höfðu verið í eigu fyrirtækisins. Skiptastjóri Sigurplasts bað stjórnendur félagsins, meðal annars Sigurð L. Sævarsson, þá að skila fartölvunum, sem voru fimm talsins. Við skoðun á tölvunum kom í ljós að búið var að eyða gögnum úr þeim. Þetta er meðal þeirra atriða sem koma fram í endurskoðendaskýrslu um starfsemi Milestone sem DV hef- ur undir höndum. Greint hefur verið frá því að Sigurplastsmálið hafi verið sent til lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu og efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra vegna gruns um að lögbrot hafi átt sér stað í starf- semi félagsins áður en það var gefið upp til gjaldþrotaskipta í lok septem- ber í fyrra. Sigurplast skuldaði Arion banka þá 1.100 milljónir króna og leikur grunur á að Sigurður, og aðr- ir stjórnendur hjá Sigurplasti, hafi gengið á fjármuni og eignir félags- ins í aðdraganda gjaldþrots þess með því að færa eignirnar yfir í annað ný- stofnað félag sem þeir áttu, Viðar- súlu, án þess að tilhlýðileg greiðsla kæmi fyrir þær. Öllu eytt út af hörðum diskum Endurskoðendur Ernst og Young rekja það í skýrslunni hvernig skipta- stjóri Sigurplasts fékk umræddar fimm tölvur afhentar frá fyrrverandi stjórnendum félagsins. Í skýrslunni kemur fram að markmið Ernst og Young með því að skoða tölvurn- ar hafi verið að reyna að finna gögn um starfsemi Sigurplasts sem reynst gætu hjálpleg við rannsókn á búi félagsins. Endurskoðendurnir gripu hins vegar í tómt þegar þeir skoðuðu tölv- urnar: „Strax við fyrstu skoðun kom í ljós að búið var að eyða öllu út af hörðum diskum og keyra inn á þá grunnuppsetningu stýrikerfis. Með þessum aðgerðum var búið að eyði- leggja þá uppsetningu og þau gögn sem á vélunum höfðu verið. Við þurftum því að taka hörðu diskana úr hverri vél fyrir sig, tengja þá við ákveðinn búnað sem veitir okkur að- gang að þeim í gegnum USB-tengi annarrar tölvu. Með því móti gátum við notað sérhæfðan hugbúnað til að skanna í gegnum diskana og leita uppi gögn sem búið var að eyða.“ Endurskoðendurnir gátu því skoðað sum þeirra gagna sem hafði verið eytt en alls ekki öll, líkt og kem- ur fram í skýrslu þeirra: „Gæði þeirra gagna sem náðust til baka með þess- ari aðferð voru mismunandi. Í sum- um tilfellum fundust heilar skrár en í öðrum komu einungis fram nöfn á skrám sem ekki var hægt að lesa.“ Gagnaeyðingin hefur því borið ár- angur að hluta. Gögn um Viðarsúlu Í yfirliti endurskoðendanna um hvaða gögn fundust á hverri tölvu fyrir sig kemur fram að í öllum til- fellum var gögnunum eytt eftir gjald- þrot Sigurplasts í lok september í fyrra. Gagnaeyðingin átti sér yfirleitt stað í nóvember. Um fyrstu tölvuna segja endurskoðendurnir: „Við skoð- un á hörðum disk kom í ljós að búið var að eyða út og yfirskrifa innihald hans, bæði uppsetningu stýrikerfis og gögn. Aðgerðin var framkvæmd þann 11.11. 2010.“ Við skoðun á þeim fáu gögnum sem fundust í umræddri tölvu komu í ljós skrár sem tengdust rekstri Við- arsúlu. Þetta rennir stoðum undir þá niðurstöðu sem lesa má út úr skýrslu Ernst og Young að óeðlileg skörun hafi átt sér stað í rekstri Sigurplasts og Viðarsúlu. „Hluti þessara skráa hefur heiti sem vísar til Viðarsúlu ehf. og því er líklegt að þessi tölva hafi að einhverju leyti verið notuð vegna reksturs Viðarsúlu ehf. þó hún hafi verið eign Sigurplasts ehf.“ Svipaða sögu er að segja af tveim- ur öðrum af vélunum fimm: Í þeim fundust líka gögn um starfsemi Við- arsúlu þrátt fyrir að tölvurnar hafi verið eign Sigurplasts. Í tveimur af tölvunum fundust hins vegar gögn sem benda til að tölvurnar hafi ekki verið notaðar í starfsemi Sigurplasts. Allar tölvurnar fimm voru því notað- ar að hluta í aðra starfsemi en vinnu fyrir Sigurplast. Heimildir DV herma að rannsókn lögreglu á málefnum Sigurplasts hafi tafist vegna rannsóknarinnar á meintum samkeppnislagabrotum Byko og Húsasmiðjunnar. n Ernst og Young bendir á að gögnum hafi verið eytt í Sigurplasti n Gagnaeyð- ingin átti sér stað eftir að félagið var tekið til gjaldþrotaskipta n Tölvur Sigur- plasts notaðar í rekstur Viðarsúlu n Lögreglan rannsakar Sigurplast GöGnum um SiGurplaSt eytt eftir Gjaldþrotið Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is 4. hluti Stjórnarformaðurinn Jón Snorri Snorra- son var stjórnarformaður Sigurplasts þegar viðskiptin sem til skoðunar eru áttu sér stað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.