Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Qupperneq 18
Þorvaldur Breiðfjörð Berglindarson
fær nú heimakennslu í Hveragerði.
Hann hitti kennarann í fyrsta skipti
á mánudag og formleg kennsla hófst
svo á miðvikudag. Móðir hans Berg-
lind Þorvaldsdóttir er mjög ánægð
með þetta fyrirkomulag en drengur-
inn var hættur að mæta í Grunnskól-
ann í Hveragerði þar sem hann sætti
einelti. Þegar DV ræddi við Berglindi
þann 7. mars greindi hún frá því að
drengurinn hefði ekki mætt í skólann
í mánuð.
Fundað með nemendum og
kennurum
„Nú er allt komið á fullt í skólanum,“
segir Berglind en skólinn vinnur
markvisst að því að fá drenginn aftur
í skólann. Þar til það gerist er honum
boðið upp á heimakennslu sem for-
stöðumaður félagsmiðstöðvarinnar
sinnir en hann er jafnframt kennari
við Grunnskólann í Hveragerði og
hefur sinnt afleysingakennslu þar.
Frá því að málið kom upp hafa
kennarar fundað með nemendum
auk þess sem foreldrar í öllum ár-
göngum voru kallaðir á fundi. Á
þessum fundum var farið yfir verk-
reglur og vinnulag í eineltismálum.
Fundina sátu kennarar, deildarstjór-
ar og námsráðgjafi sem er jafnframt
umsjónarmaður Olweus-eineltis-
áætlunarinnar.
Guðjón Sigurðsson, skólastjóri í
Grunnskólanum í Hveragerði, seg-
ir að slíkir fundir hafi verið haldn-
ir áður, þar sem skólinn hafi unnið
samkvæmt Olweus-eineltisáætlun-
inni frá árinu 2004. „Í ljósi umræð-
unnar ákváðum við að ítreka fyrir for-
eldrum hvernig verkferli og vinnulag
okkar í eineltismálum er og skerpa
á því í öllum bekkjum skólans. Það
sorglega í þessu er að ég hugsa að
fáir skólar vinni eins vel eftir þess-
ari áætlun og við en við höldum því
bara áfram. Auðvitað er einelti eitt-
hvað sem við þurfum stöðugt að vera
vakandi fyrir. Einelti getur verið falið
en nú er þessi vakning í samfélaginu
sem gerir krökkum kleift að segja
frá einelti. Umræðan er opin og það
þykir sjálfsagt mál að ræða einelti.
Því vonumst við til þess að slík mál
geti ekki átt sér stað í skólanum án
þess að þau uppgötvist, svo hægt sé
að taka á þeim. Þessari vinnu er þó
ekki lokið þar sem við höfum ekki
getað haldið nema einn fund á dag
en hvern fund sitja foreldrar í hverj-
um árgangi.“
Hittir kennara á bókasafninu
Berglind lýsti því yfir í fjölmiðlum að
hún vildi ekki senda drenginn aftur
í skólann og sagðist vilja fá heima-
kennslu þar til hún væri flutt úr
bæjarfélaginu, en það stendur til í
haust þar sem hún ætlar sér að setja
barnið í annan skóla. Skólinn skil-
aði greinargerð til menntamálaráðu-
neytisins í síðustu viku og þá ræddi
fræðslunefnd á vegum bæjarfélags-
ins um málið. Eftir það var ákveðið
að drengurinn fengi heimakennslu.
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í
Hveragerði, segir að þetta sé í fyrsta
sinn sem barn fái heimakennslu í
Hveragerði.
Nú hittir drengurinn kennara dag-
lega á bókasafninu á milli klukkan tvö
og fjögur. Guðjón segir að takmark-
ið sé að fá drenginn aftur í skólann.
„Við stefnum að því að hann stundi
nám með sínum bekkjarfélögum.
Ég tel það vænlegast til árangurs. En
það algjört lykilatriði að drengurinn
mæti í skólann svo við getum unnið
með málið. Þessi kennari sem sinnir
heimakennslunni vinnur einnig með
krakkana í frítíma þeirra og ég vona
að hann nái til hans. Hann ætlaði
að finna tíma í samvinnu við móður
drengsins og heimili. Ég veit að það er
farið af stað og að um það ríkir sátt,“
segir Guðjón.
Ætlar ekki aftur í skólann
Berglind tekur undir það. „Við erum
ekki flutt enn þannig að hann verð-
ur að klára skólaárið þarna. Ég veit
til þess að það er verið að vinna með
eineltismál í skólanum. Þar á allt að
breytast og takmarkið er að fá Þor-
vald aftur í skólann. En hann ætl-
ar aldrei aftur í þennan skóla. Hann
segir það hiklaust.“
Berglind er ekki í beinu sam-
bandi við skólayfirvöld heldur er
það félagsmálafulltrúi sem gengur á
milli. Í gegnum aðra hefur Þorvaldur
fengið kveðju frá kennaranum sínum
og heyrt að það sé einlægur áhugi á
því að fá hann aftur í skólann. „Hann
fer aldrei aftur þangað,“ ítrekar Berg-
lind og spyr af hverju skólayfirvöld
eða kennarinn hafi ekki haft beint
samband við sig eða drenginn. „Allir
foreldrar sjöttu bekkinga voru boð-
aðir á fund nema ég en ég fékk þau
svör að ég þyrfti ekki að koma þegar
ég spurðist fyrir um það. En mér er
alveg sama, mig langar ekkert að fara
þangað aftur.“
Óvæntur stuðningur
Eftir frétt DV af málinu spunnust
miklar umræður á vefnum og í fjöl-
miðlum um einelti í grunnskólum
landsins og meðal annars í Grunn-
skólanum í Hveragerði. Í kjölfarið
samþykkti bæjarstjórnin í Hvera-
gerði að fela hópi óháðra sérfræð-
inga að fara yfir verklag grunnskólans
varðandi eineltismál. Auk þess ósk-
aði menntamálaráðuneytið eftir
greinargerð um málið. Ráðuneytið
er að fara yfir málið og starfshópur
bæjarstjórnarinnar á að hefja störf á
næstu dögum.
Viðbrögð almennings hafa þó
ekki látið á sér standa og hvorki Berg-
lind né sonur hennar hafa undan við
að samþykkja vinabeiðnir á Facebo-
ok. „Ég er enn að fá rosaleg viðbrögð.
Allir vilja Þorvaldi vel og honum er
boðið hingað og þangað. Útvarps-
stöðin FM957 bauð honum út að
borða og í go-kart. Svo var honum
boðið í lazertag.
Þorvaldur er enn mjög daufur en
létt yfir því að komast aftur í nám.
Kennarinn hans ætlar að reyna að
hjálpa honum. Þorvaldur er samt
hjá sálfræðingi líka. Hann hefur
verið hjá skólasálfræðingnum og
eftir greinina í DV hafði annar sál-
fræðingur samband sem ætlar að
vinna með Þorvaldi í gegnum tón-
list. Hann vinnur mikið með börn
sem hafa lent illa í einelti og ætlar
að setja saman hljómsveit. Við hitt-
um hann einu sinni og það var bara
æðislegt.
Síðan hafa tveir strákar verið dug-
legir að heimsækja hann, þannig að
hann er ekki aleinn. Ég er bara svo
þakklát fyrir það hvað ég hef fengið
mikinn stuðning, bæði frá fólki al-
mennt og eins frá fólkinu í Hvera-
gerði sem hefur upp til hópa sýnt
mér jákvætt viðmót eftir þetta.“
18 | Fréttir 18.–20. mars 2011 Helgarblað
KOMINN MEÐ
HEIMAKENNSLU
„Það er algjört
lykilatriði að
drengurinn mæti í
skólann svo við getum
unnið með málið.
n Hætti að mæta í skólann vegna eineltis n Grunnskólinn reynir að ná til barnsins n Hittir kennara
daglega á bókasafninu n Móðirin þakklát fyrir stuðninginn n Vinna úr eineltinu í gegnum tónlist
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
Þakklát fyrir stuðninginn Drengurinn hefur fengið mikinn stuðning eftir umfjöllun DV.
Móðir hans, Berglind Þorvaldsdóttir, er afar þakklát öllu því fólki sem þar hefur verið að verki.
„Eftir grein í
DV hafði annar
sálfræðingur samband
sem ætlar að vinna
með Þorvaldi.
Eignaðist nýja vini
Auk þess sem tveir
strákar eru farnir að
heimsækja drenginn
reglulega hefur hann
eignast fjölmarga vini á
Facebook.