Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Síða 20
Fjárfestingarfélag Landsbankans,
Horn, hefur reynt að selja erlendum
aðilum hluta af nærri 14 prósenta
hlut sínum í hátæknifyrirtækinu
Marel. Horn er næststærsti hlut-
hafinn í Marel á eftir fjárfestingar-
félagi Þórðar Magnússonar og Árna
Odds Þórðarsonar, Eyri Invest. Þeir
erlendu aðilar sem hafa sýnt hluta-
bréfum Horns í Marel áhuga eru hins
vegar ekki metnir sem líklegir kaup-
endur af forsvarsmönnum félags-
ins. Þetta er meðal þess kemur fram í
fundargerð Horns frá því í lok febrú-
ar síðastliðins sem DV hefur undir
höndum.
Í Viðskiptablaðinu á fimmtudag-
inn kom fram að Horn hefði átt í við-
ræðum við lífeyrissjóði um möguleg
kaup á 3,6 prósenta hlut í félaginu.
Fundargerð félagsins bendir til að
rætt hafi verið við fleiri aðila um
þetta efni. Horn seldi 7 prósenta hlut
í Marel í lok síðasta árs. Greint var
frá því á þriðjudaginn að Marel væri
orðið verðmætasta fyrirtæki Kaup-
hallarinnar en félagið er verðmetið á
91,5 milljarða króna. Til samanburð-
ar er stoðtækjafyrirtækið Össur, sem
hingað til hefur verið verðmætasta
fyrirtækið í Kauphöllinni, metið á
88,5 milljarða.
Reifa hugmyndir um
skráningu erlendis
Í fundargerð Horns kemur jafnframt
fram að forsvarsmenn félagsins telji
litlar líkur á því að hægt verði að selja
bréf í Marel til innlendra aðila svo
skömmu eftir síðustu sölu. Í fundar-
gerðinni segir: „Þeir erlendu aðilar
sem hafa sýnt félaginu áhuga virðast
ekki vera kaupendur eins og er. Tel
litlar líkur á að ná að selja bréf á inn-
lendum markaði svo stuttu eftir að
við seldum síðast.“
Einnig kemur fram að Horn hafi
uppfært verðmatið á bréfum sín-
um í Marel í kjölfar endurfjármögn-
unar félagsins og betri afkomu. „Við
höfum uppfært verðmat okkar á fé-
laginu í kjölfar endurfjármögnun-
ar og betri afkomu. Við metum virði
Marel á 150 kr. á hlut.“
Í fundargerðinni eru jafnframt
reifaðar hugmyndir um skráningu
Marel á erlendan markað. Talið er að
það verði hins vegar ekki fyrr en eft-
ir tvö ár í fyrsta lagi þar sem stjórn-
endur fyrirtækisins sjá ekki hag í
því strax. „Talsvert ólíklegt að Marel
verði skráð á erlendan markað fyrr
en eftir tvö ár í fyrsta lagi.“
Samkvæmt þessu stendur til, með
tíð og tíma, að Marel verði flutt úr
Kauphöll Íslands og til annars lands.
Marel mun því að öllum líkindum
ekki verða áfram í Kauphöll Íslands
nema í nokkur ár til viðbótar.
Íhuga 10 milljarða arðgreiðslu
Í fundargerð Horns er einnig að finna
umræðu um arðgreiðslu til hluthafa
félagsins, Landsbanka Íslands, vegna
síðasta rekstrarárs. Meðal þess sem
er til skoðunar hjá Horni er að greiða
eignarhlut Horns í Marel út sem arð
til Landsbanka Íslands. Gert er ráð
fyrir að arðgreiðslan verði um 10
milljarðar króna en eigið fé Horns
var jákvætt um rúmlega 33 millj-
arða um síðustu áramót. „Þurfum
að skoða hvort við greiðum ekki út
eignarhluta Horns í Marel sem arð
til NBI. Gerum ráð fyrir að greiða um
10 ma.kr í arð. Eigið fé Horns er um
33,3 ma.kr. og þar af óráðstafað eigið
fé rúmlega 12 ma.kr.“
Horn er því ansi burðugt félag og
má ætla að hagur þess vænkist enn
frekar við söluna á bréfunum í Mar-
el. Líkt og DV greindi frá á mánu-
daginn er Horn sömuleiðis að velta
því fyrir sér að kaupa um 13 pró-
senta hlut Landsbankans í Stoðum,
móðurfélagi Tryggingamiðstöðv-
arinnar og Refresco, sem og um 20
prósenta hlut í sjávarútvegsfyrir-
tækinu Icelandic Group. Þá íhuga
stjórnendur Horns að selja 25 pró-
sent hlutabréfa í félaginu í Kauphöll
Íslands. Mikil hlutabréfaviðskipti
munu því væntanlega eiga sér stað
í gegnum Horn á næstunni, bæði
með hlutabréf sem félagið kaupir
eða selur, og jafnframt hugsanlega
með bréf í félaginu sjálfu verði það
skráð á markað.
20 | Fréttir 18.–20. mars 2011 Helgarblað
n Horn reynir að selja innlendum og erlendum aðilum bréf í Marel n Rætt hefur
verið við lífeyrissjóði um kaup á bréfunum n Rætt er um að taka Marel úr Kaup-
höll Íslands og skrá það erlendis n Horn hyggst greiða um 10 milljarða í arð„Við metum virði
Marel á 150 kr. á
hlut.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
HORN ÍHUGAR AÐ GREIÐA
ARÐ UPP Á 10 MILLJARÐA
Horn selur í Marel Fjárfestingarfélag Lands-
bankans, Horn, leitar nú að innlendum eða
erlendum aðilum til að kaupa nærri 4 prósenta
hlut í hátæknifyrirtækinu Marel.
Stjórnarformaðurinn Steinþór Pálsson,
bankastjóri Landsbankans, er stjórnarfor-
maður Horns. Samkvæmt fundargerðinni ætlar
Horn að greiða eiganda sínum, Landsbank-
anum, tíu milljarða króna vegna ársins 2010.