Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Síða 24
24 | Fréttir 18.–20. mars 2011 Helgarblað
Á Sogn fara þeir sem brotið hafa al-
varlega af sér en eru úrskurðaðir ósak-
hæfir af dómstólum. Það er ekki tek-
ið út með sældinni að fara á Sogn og
þurfa margir að sitja talsvert lengur
á bak við læstar dyr á Sogni en þeir
hefðu þurft hefðu þeir verið dæmdir í
venjulegt lokað fangelsi. Til eru dæmi
um að menn losni aldrei þaðan.
„Það er ekkert happ að lenda á
Sogni,“ segir Sigurður Páll Pálsson, yf-
irlæknir á Sogni. Sogn er rekið und-
ir geðsviði Landspítala Íslands og er
skilgreint sem sjúkrahús. Breyting-
ar urðu í kringum aldamótin síðustu
þegar Sogn var fært frá dómsmála-
ráðuneytinu og yfir til heilbrigðisráðu-
neytisins.
„Í eðli sínu er starfsemin á Sogni
svipuð og á endurhæfingardeildum
innan geðsviða sjúkrahússins nema
að þessir einstaklingar eru dæmd-
ir þarna inn,“ segir hann og bendir
á deild 15 á Kleppi til samanburðar
þar sem menn eru sviptir sjálfræði,
án þess að hafa hlotið ákæru og verið
dæmdir af dómstólum.
Endurhæfing en ekki refsivist
„Sogn er í raun og veru ekkert annað
en endurhæfingarstofnun fyrir fólk
sem hefur verið metið alvarlega geð-
veikt, sem hefur verið kært fyrir alvar-
lega glæpi en dæmt ósakhæft og mun
þar af leiðandi ekki vera dæmt í fang-
elsi, því það er sýknað ef það er ósak-
hæft,“ segir Sigurður Páll um Sogn. „Ef
einhver er ósakhæfur á dómurinn að
íhuga hvaða úrræði á að beita og þá
á alltaf að beita vægasta úrræðinu.“
Hann segir að dómnum sé ætlað að
finna viðeigandi úrræði og þjónustu
við þá sem dæmdir eru sakhæfir.
Þó að menn séu dæmdir ósakhæf-
ir í mismunandi málum er lausnin
ekki alltaf að senda fólk á Sogn. „Það
er hins vegar þannig að þegar verið er
að ræða um yngra fólk sem er með al-
varlegar geðraskanir og um er að ræða
mjög alvarleg morðmál eða mjög al-
varlegar líkamsárásir fer viðkomandi
yfirleitt á Sogn.“ Þangað fara nær ein-
göngu karlmenn og flestir eru þeir vel
innan við þrítugt. Meðalaldur þeirra
sem fara inn á Sogn, samkvæmt Sig-
urði, er í kringum 25 ár. Pláss er fyrir
sjö einstaklinga á Sogni.
Ekkert grín að vera á Sogni
„Það er ekkert grín að vera dæmdur í
öryggisgæslu, því hún er ótímabund-
in. Það gæti þýtt að þú yrðir þarna
miklu lengur en sem nemur refsingu
í sumum tilfellum og það hefur gerst
í mörgum tilfellum að einstaklingur
hefði fengið miklu vægari dóm hefði
hann farið í gegnum réttarkerfið,“ seg-
ir Sigurður Páll.
„Svo snýst þetta við þegar þú tal-
ar um þá sem gera alvarlegan hlut og
mannskaði verður, bæði á Íslandi og
í sambærilegum löndum. Þá verður
kannski tíminn sem menn eru í heild-
ina inni á Sogni þó nokkru styttri en
sem nemur þyngstu refsingu.“ Sigurð-
ur Páll segir þetta vera eðlilegt því að
afbrotið eigi ekki að skipta máli þegar
kemur að bataferli vistmannsins.
„Það er gegnumgangandi í ís-
lenskum lögum að maður á aldrei að
beita harðara úrræði en ástæða er til,“
bendir hann á. „Þetta hefur ekkert
með refsingu að gera í raun og veru.
Þetta snýst um bata og meðferð.“
Rammgerð sjúkradeild
Sjúklingarnir á Sogni njóta ekki mik-
ils frelsis. Allar dyr eru á öllum stund-
um læstar. Útivistartími er takmarkað-
ur, þó að göngutúrar um svæðið hafi
verið leyfðir yfir björtustu mánuðina.
Enginn vistmaður á réttargeðdeild-
inni fer þó einn út fyrir veggi sjúkra-
deildarinnar. Að minnsta kosti tveir
til þrír gæslumenn fylgja sjúklingum
hvert fótmál fari þeir út af spítalanum.
Heimsóknir fjölskyldu og vina eru
undir eftirliti og aðeins leyfðar um
helgar. Bakgrunnur og tengsl þeirra
sem heimsækja staðinn eru þó kann-
aður áður en viðkomandi fær leyfi til
að koma og er það gert í þeim tilgangi
að raska ekki meðferð sjúklinganna.
Netaðgangur sjúklinga er takmarkað-
ur og fá þeir ekki að fara á netið nema
undir eftirliti. „Það eru í raun reglur
um allt,“ segir Sigurður Páll.
Fæstir þeirra sem dæmdir eru til
vistunar á Sogni brjóta alvarlega af sér
aftur og getur hann aðeins nefnt eitt
dæmi um að vistmaður á Sogni hafi
gerst sekur um alvarlegan glæp, lík-
amsárás eða morð, eftir að hafa losn-
að af réttargeðdeildinni.
Dæmdir eitt ár í senn
„Það fer enginn inn á Sogn og út aft-
ur innan einhverra x daga eða vikna.
Samkvæmt lögunum er tilsjónarmað-
ur skipaður fyrir þann sem er dæmdur
inn á viðeigandi stofnun og hann get-
ur hreyft við málinu og beint því aftur
inn í réttarkerfið. En ekki fyrr en eftir
ár,“ segir Sigurður Páll. Þetta þýðir að
hver og einn einstaklingur er í raun
dæmdur til eins árs vistar á Sogni í
senn sem er svo stöðugt endurmetið.
„Það getur verið að einstaklingur sé
dæmdur inn á Sogn sem gerði í sjálfu
sér alvarlegan hlut en olli ekki miklum
skaða. Svo ef hann fær mjög hraðan
bata þegar hann fær viðeigandi með-
ferð þá er það svolítið skrýtið að slíkur
maður sé lengur inni á Sogni en hann
þarf að vera ef hægt er að veita honum
jafn góða þjónustu annars staðar.“
Vistmaður á Sogni getur þó beðið
um að mál verði tekið fyrir áður en ár
er liðið. „Það er hægt að biðja um und-
anþágu frá því sem stendur í lögun-
um, en það er yfirleitt bara ekki gert.“
Dómur hefur alltaf úrslitavaldið
Þegar grunur leikur á að þeir sem
brjóta alvarlega af sér séu geðveik-
ir eru þeir metnir af geðlæknum sem
leggja svo skýrslu fyrir dómara. „Það er
alltaf dómurinn sem hefur úrslitavald-
ið um hvað hann gerir og hann er mjög
skýr í því hvort einstaklingur sé ósak-
hæfur,“ segir hann. Þegar dómurinn
hefur svo komist að niðurstöðu um að
einstaklingur sé ósakhæfur færist lög-
saga hans yfir til starfsmanna á Sogni
og sérstaks réttargæslumanns.
Eftirlit með vistmönnum á Sogni er
mismunandi eftir því hvernig fólk axl-
ar ábyrgð og eftir líðan þess. Þegar vist-
menn koma fyrst á Sogn fá þeir venju-
legt herbergi og eru undir ströngu
eftirliti. „Við höfum atferlismótandi
kerfi sem felst í því að við látum fólk
hafa meiri réttindi og ábyrgð eftir því
sem líðan einstaklingsins leyfir,“ segir
Sigurður Páll. „Endurhæfing er sam-
vinna með sjúklingi.“ Hver einstak-
lingur fær rétt og ábyrgð í samræmi við
hvernig meðferð hans gengur.
Vistmenn stöðugt endurmetnir
„Meðferðin á Sogni er í raun og veru
lögð upp eins og önnur meðferð í góð-
um geðlækningum. Þó að gögn liggi
fyrir um fólkið er það alveg frá fyrsta
degi sem fólk leggst inn á Sogn að það
er byrjað að meta fólkið, ræða við það,
horfa á fólk og sjá hver getan er,“ segir
Sigurður Páll um hvernig meðferðin
fyrir ósakhæfa einstaklinga er.
„Í hverju og einu tilfelli er mjög
mismunandi meðferðaráætlun strax
frá fyrsta degi því vandamálin geta
verið alveg frá því að fólk getur verið
svo sýnilega sturlað að hver leikmaður
getur séð það til þess að vandamálin
séu ekki svo sýnileg almenningi.“
Þegar einstaklingar koma á Sogn eru
þeir því í stöðugu endurmati og staða
þeirra í bataferlinu er stöðugt metin.
Sigurður Páll segir að meðferðin
byggist á virðingu og trausti og traust
og virðing fylgist að við geðhag við-
komandi. Lyf séu þó gefin ef þörf þykir
til en ef samtalsmeðferð dugi sé sú leið
farin, staðreyndin hafi þó reynst sú að
flestir þeir sem komi á Sogn þurfi á
einhverjum lyfjum að halda.
Aðstæðurnar sem eðlilegastar
„Geðrannsóknir eru þannig að þær
verði bestar og öruggastar eftir því
sem þú færð lengri tíma til að skoða
viðkomandi,“ segir Sigurður Páll. „Það
eru engin geðeinkenni sem eru algjör-
lega þannig að ákveðið einkenni passi
við ákveðinn sjúkdóm. Geðsjúkdómar
eru flóknir hvað það varðar að flestir
meiri háttar geðsjúkdómar hafa sam-
skörun við einkenni, þannig að ein-
kennin mynda saman einhverja heild-
stæðu sem við köllum heilkenni.“
Hann segir að tíminn sé einna
mikilvægastur þegar kemur að með-
ferð við geðsjúkdómum. „Það þarf að
kynnast fólkinu og gefa sér góðan tíma
við sem eðlilegastar aðstæður þó að
alls öryggis sé gætt. Eftir því sem tím-
inn líður safnast saman upplýsing-
ar um fólk. Endurhæfingin verður að
byggja á því sem í raun og veru er að.
Þó að það sé búið að gera geðrann-
sókn erum við að gera endurmat um
leið, við skoðum þróunina hjá einstak-
lingunum,“ segir hann.
n Geðsjúkir afbrotamenn dæmdir á Sogn í eitt ár í senn n Ótímabundinn
dómur sem tekur ekki alltaf enda n Fyllsta öryggis gætt, segir yfirlæknir
n „Þetta hefur ekkert með refsingu að gera í raun og veru“
„Ekkert grín að
vera dæmdur í
öryggisgæslu“
Sigurður Páll Pálsson Yfirlæknir á
Sogni og Kleppi.
„Það eru í raun
reglur um allt.
Réttargeðdeildin Sogn Geðsjúklingar sem
brjóta alvarlega af sér og eru dæmdir ósakhæfir
eru vistaðir á Sogni. MYND GUNNAR V. ANDRÉSSON
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is