Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Page 27
Erlent | 27Helgarblað 18.–20. mars 2011
Franskir kjarnorkusérfræðingar eru
svartsýnir fyrir hönd japanskra yfir-
valda í viðleitni þeirra við að ná tök-
um á neyðarástandinu í Fukushima
Daiichi-kjarnorkuverinu í norðaust-
urhluta Japans. Geislavarnastofn-
anir um víða veröld hafa nú feng-
ið beinan aðgang að upplýsingum
frá Fukushima-kjarnorkuverinu, til
að meta hættuna á geislun. Þar á
meðal eru Geislavarnir ríkisins á Ís-
landi. Nú er svo komið að í þremur
af sex kjarnakljúfum versins hafa
kælilaugar gufað upp vegna mik-
ils hita frá geislavirkum stöngum.
Alla jafna er stöðugur straumur af
vatni sem kælir stangirnar en gufan
sem myndast af kælingunni býr til
orkuna í kjarnorkuverinu. Eftir jarð-
skjálftann sem skók Japan 11. mars
síðastliðinn, hefur vatnsstraumur-
inn riðlast – sem þýðir að geisla-
virku stangirnar hafa haldið áfram
að hitna. Takist ekki að kæla stang-
irnar með einhverjum hætti munu
þær bræða úr sér með skelfilegum
afleiðingum.
Sólarhringur til stefnu
Sérfræðingarnir sem starfa hjá
Kjarnorkumálastofnun Frakklands
sögðu á fimmtudag að japönsk
stjórnvöld hefðu ekki nema tvo sól-
arhringa til að ná tökum á ástand-
inu, en sá frestur verður liðinn á
laugardag. Thierry Charles, örygg-
isfulltrúi, var ekki bjartsýnn í við-
tali: „Ég er svartsýnn vegna þess að
síðan síðasta sunnudag hefur ekk-
ert þeirra úrræða sem gripið hefur
verið til borið árangur. Öll nótt er þó
ekki úti enn.“
Með hverjum degi verður erfið-
ara fyrir starfsmenn kjarnorkuvers-
ins að nálgast kjarnakljúfana þar
sem geislavirkni hækkar ört. Jap-
önsk stjórnvöld hafa gripið til ör-
þrifaráða og sendu á fimmtudag
slökkviliðsþyrlur, sem margir kann-
ast við þegar skógareldar geisa, til
að sækja sjó og láta hann falla yfir
kjarnorkuverið. Þessar tilraunir
báru lítinn árangur þar sem þyrlurn-
ar þurftu fljótt frá að hverfa vegna
mikillar geislavirkni í andrúmsloft-
inu fyrir ofan kjarnorkuverið.
Kjarnorkumálastofnun Banda-
ríkjanna mat það svo að brátt yrði
geislavirkni í námunda við verið
svo mikil, að hún gæti valdið dauða
þeirra sem koma nálægt verinu á
nokkrum klukkustundum. Í yfirlýs-
ingu frá Bandaríkjunum sagði: „Við
teljum varnarveggi kljúfanna hafa
eyðilagst auk þess sem ekkert vatn
er til kælingar. Við teljum geisla-
virkni mjög háa og gæti það komið
í veg fyrir möguleikann til að bregð-
ast við.“
Hylltir sem hetjur
Japanir söfnuðust saman á fjöl-
mörgum stöðum á fimmtudag til
að hylla þá 180 starfsmenn kjarn-
orkuversins í Fukushima sem hafa
hætt lífi sínu til að reyna að koma í
veg fyrir eitt alvarlegasta kjarnorku-
slys sögunnar. Talið er að nú þegar
hafi starfsmennirnir orðið fyrir tölu-
verðri geislavirkni.
Sérfræðingar telja að starfs-
mennirnir muni gera allt í sínu valdi
til reyna að koma í veg fyrir slys. Þeir
muni jafnvel fórna lífi sínu með því
að fara í hálfgerða sjálfsmorðsað-
gerð. Ef þeir láta ekki lífið munu þeir
að öllum líkindum þjást af alvarleg-
um heilsufarsvandamálum allt sitt
líf vegna geislunar.
Þó að nöfn starfsmannanna hafi
ekki verið gefin upp þá hafa birst
viðtöl við ættingja þeirra í fjölmiðl-
um í Japan. Ung kona sagði í viðtali
að faðir hennar hefði tekið örlög-
um sínum sem dauðadómi. Önnur
kona sagðist vita til þess að eigin-
maður hennar hefði haldið áfram
störfum þrátt fyrir að vita að hann
yrði fyrir mikilli geislun. Hann sendi
henni tölvupóst sem í stóð: „Þið
verðið að gera það fyrir mig að halda
áfram að lifa hamingjusömu lífi, ég
kem ekki heim alveg strax.“ Þá birti
japönsk stúlka færslu á Twitter sem
í stóð: „Pabbi minn fór til vinnu í
kjarnorkuverinu, ég hef aldrei séð
mömmu gráta svona mikið. Fólkið
í kjarnorkuverinu er að berjast og
fórna sér til að vernda ykkur. Gerðu
það pabbi, komdu aftur heim á lífi.“
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
„PABBI,
KOMDU
HEIM Á LÍFI“
n Kælilaugar hafa tæmst í kjarnakljúfum Fukushima Daiichi-kjarnorkuversins
n Hætta á kjarnorkuslysi í líkingu við Tsjernóbyl n Sérfræðingar eru svartsýnir
n Starfsmenn kjarnorkuversins hætta lífi sínu til að ná tökum á ástandinu