Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 33
Viðtal | 33Helgarblað 18.–20. mars 2011 Óttinn hvarf Hláturinn er samt á yfirborðinu. Honum fannst þetta ekkert fyndið á sínum tíma og hann var lengi að jafna sig eftir þetta. „Ég var marga daga að jafna mig, konan mín og synir mínir líka. Annar þeirra sagði sama kvöld: „Takk fyrir að eyðileggja æsku mína.“ Þetta var sagt bæði í gríni og alvöru. Við misstum öll eitt- hvert sakleysi þarna,“ segir Jón alvar- legur. „Það var klukkutíma akstur heim en ég held að enginn hafi sagt orð alla leiðina. Vinur minn reyndi að hringja í mig en ég svaraði hon- um ekki, ég meikaði ekki að tala við hann. Og það leið langur tími þar til ég kyssti konuna mína aftur. Við þurftum að jafna okkur á þessu. Óvirkir alkóhólistar tala um and- lega vakningu en ég hef aldrei upp- lifað andlega vakningu í gegnum trúariðkun sem kemst í hálfkvisti við þetta,“ segir hann og sturtar úr öðru vatnsglasi í sig. „Þetta er eina and- lega vakningin sem ég hef upplifað í lífinu. Þessi stund hinnar algjöru niðurlægingar. Stundin þar sem þú ert algjörlega sáttur við að vera ekki til framar, óskar þess að deyja.“ Fram að þessu þjáðist hann af kvíðaröskunum, var hræddur við allt og alla. „Þetta er svo skrýtið. Ég var alltaf flughræddur en eftir þetta hef ég aldrei orðið flughræddur. Ekki einu sinni í slæmu flugi. Einu sinni flaug ég með Nylon-stelpun- um til Ísafjarðar í hrikalegu flugi þar sem þær voru öskrandi af ótta. Þá áttaði ég mig á því að mér var alveg sama. Ég öðlaðist frelsi. Allir fyrir- varar, hindranir og tilefnislaus ótti hurfu en ég var stútfullur af þessu, með alls konar fóbíur. Trans-sexual- heimurinn auðgaði líf mitt og hafði afgerandi áhrif á mig,“ hann hlær létt. Eins og landið væri að öskra Í kjölfarið kafaði hann inn í heim kristinnar trúar og gerðist kaþólikki. „Allan tímann sá ég mig samt sem ferðamann en ég tók þetta alla leið, las alla Biblíuna, bæði Gamla og Nýja testamentið og gekk í klaustur. Ég hefði orðið gyðingur ef ég hefði getað það. Síðan var þessi trúarleit mín búin og núna skiptir trú mig engu máli. Ég kláraði þetta.“ Í dag lítur Jón á sig sem taóista. „Ég trúi því að það sé eitthvert nátt- úrulegt afl í heiminum sem leitast alltaf við að koma sjálfu sér í jafn- vægi. Ég trúi því að við sem mann- eskjur séum öll tengd hvert öðru og að við séum tengd dýrum og öllu því sem er lifandi. Og að allt líf sé síðan tengt jörðinni og himninum á hátt sem verður aldrei útskýrður. Þetta er ekki gert til þess að skilja það, þú þarft bara að vita það. Það sem fólk skynjaði í gamla daga og kall- aði álfa, tröll og huldufólk er vitund sem við höfum gleymt, ýtt frá okkur og afgreitt en það er mjög merkileg tenging þarna. Þegar Eyjafjallajökull gaus fannst mér eins og landið okk- ar væri að öskra, minna á sig og öskra af reiði yfir því sem hefur við- gengist hér, hvernig við förum með landið og hvernig við höfum hagað okkur. Ég vona að þetta land þurfi ekki að öskra meira.“ Missti vin og fyrirmynd Við sitjum í setustofunni á skrifstofu borgarstjóra. Gluggarnir veita útsýni yfir snævi lagða Tjörnina og næsta nágrenni en Jóni er alveg sama um útsýnið. Það kveikir ekkert í honum. „Ég hef aldrei verið heillaður af út- sýni. Þó að það væri múrveggur hér fyrir utan skipti það engu máli fyrir mig. Ég horfi meira á fólk en um- hverfið. Það sem hrífur mig er þeg- ar fólk er verulega gott og gerir eitt- hvað óeigingjarnt.“ Í miðri kosningabaráttunni síð- asta sumar missti Jón tengdaföður sinn. Hann var Jóni mikill vinur og fyrirmynd og einn af þessum mönn- um sem lét alltaf gott af sér leiða. „Hann kenndi mér mjög margt. Hann vildi alltaf allt fyrir alla gera og setti aðra alltaf í fyrsta sæti. Hann var með mjög stórt hjarta. Síðan dó hann úr því. Hann var með of stórt hjarta,“ segir hann einlægur. Lady GaGa og hamingjan Hann bætir því við að konan hans sé honum líka fyrirmynd. „Af því að hún er svo spes. Mjög klár og and- lega þenkjandi. Eitt af því sem ég hef lært er að því meira sem þú gef- ur af þér, því meira gefur þú sjálfum þér. Ég hef reynt að hafa það hugfast varðandi hjónabandið. Því meira sem ég geri fyrir konuna mína því ánægðari verður hún og því betur líður okkur saman.“ Hann viður- kennir þó að hann geri ekki nóg. „Ég myndi vilja gefa henni meiri tíma.“ Tíminn er af skornum skammti þessa dagana. Þegar hann á lausa stund ver hann henni yfirleitt heima í faðmi fjölskyldunnar. Yngsti son- urinn er fimm ára og Jón reynir að vera sem mest með honum. Síðan les hann ljóð, horfir á South Park, sem hann segir að sé fullkomið grín fyrir gáfað fólk, eða fræðsluþætti og hlustar á Lady GaGa. Það er þetta sem gerir hann hamingjusaman og hann hefur aldrei verið hamingju- samari en í dag. „Lady GaGa gerir hverfastöðvar og þar mun stjórnendum fækka. Einnig í stjórnunarstöðum hjá Reykjavíkurborg en við erum að fara að sameina skrifstofur og deildir í Ráðhúsinu og á Höfðatorgi. Það eru því sameiningar víða í borgarkerfinu. 10. Var nægilega vel staðið að þessum sameiningaráformum að þínu mati? Ef ekki, hvað hefðir þú viljað gera betur? Öll þessi vinna er góð og fagleg. Við erum að reyna að vinna úr öllum óvissuþáttum sem fylgja svona hugmyndum. Þetta eru þær tillögur sem er verið að skoða, þeim hefur fækkað úr 99 í 23. Í starfshópnum var samankomið fólk með yfir eitt hundrað ára reynslu af skóla- og frístunda- málum. Þarna voru líka mannauðssérfræðingar og svo auðvitað borgar- fulltrúar sem þekkja málin mjög vel. 11. Kæmi til greina að falla frá einhverjum af þessum hugmyndum? Ég get ekki sagt til um það núna hvort einhverjar tillögur verða endur- skoðaðar. 12. Er hagnaðurinn nægilega mikill til þess að réttlæta svo afdrifaríka aðgerð? Við bíðum eftir að fara formlega yfir umsagnir, svo verður tekin ákvörðun. 13. „Við viljum skapa besta samfélag sem til er þar sem öllum líður vel og eru glaðir og tala saman um Besta flokkinn og hvað sé best fyrir alla og hvað sé gaman að vera í Besta flokknum. Við ætlum að skipuleggja óvissuferðir fyrir gamalmenni.“ Hefur þú lagt drög að því að hrinda þessu stefnumáli í framkvæmd? Hópurinn sem starfar í Besta flokknum er ánægður og við höfum það markmið að búa til betra samfélag. Það að horfast í augu við fjármálin er einmitt mikilvægur hluti af því. 14. Tala menn um það hvað sé gaman að vera í Besta flokknum? Það eru allir að tala um Besta flokkinn, sérstaklega fólk sem er í öðrum flokkum og hefur áhuga á stjórnmálum. 15. „Bæta kjör þeirra sem minna mega sín: Við viljum allt það besta fyrir svoleiðis lið og bjóðum því ókeypis í strætó og sund þannig að maður geti ferðast um Reykjavík og verið hreinn þótt maður sé fátækur eða eitthvað að manni.“ Hvað hefur verið gert til að efna þetta loforð? Við buðum ókeypis í sund fyrir börn í sumar, ekki gleyma því! 16. Hvað hefur verið gert til þess að bæta kjör fátækra? En heimilis- lausra? Við höfum hækkað fjárhagsaðstoðina verulega og erum að vinna að úrbótum í húsnæðismálum og viljum vinna með ríkinu og stéttarfélögum að því. 17. „Fella niður allar skuldir: Við hlustum á þjóðina og gerum eins og hún vill því þjóðin veit best hvað er sér fyrir bestu.“ Hvernig hafðir þú hugsað þér að efna þetta loforð; fella niður allar skuldir? Ég var ekkert búinn að hugsa það. Tók þetta upp eftir stjórnmálamönnum úr öðrum flokkum. Þetta er svokölluð kaldhæðni. Við getum líka kallað þetta gamlan og góðan popúlisma. 18. „Stöðva spillingu. Við lofum að stöðva spillingu. Við munum gera það með því að stunda hana fyrir opnum tjöldum.“ Hafið þið afhjúpað spill- ingu í borgarkerfinu og stöðvað hana? Við höfum allavega ekki stundað spillingu. Við erum frekar heiðarlegt fólk. 19. Hafið þið gert nóg til þess að skera niður í yfirbyggingunni, væri hægt að skera meira niður þar? Við erum að skera yfirbyggingu niður. Við erum að meta hvað er hægt að ganga langt í því án þess að það skaði starfsemi borgarinnar. Ég veit ekki hvort fólk gerir sér grein fyrir að það er búið að spara gríðarlega í svokallaðri miðlægri stjórnsýslu og við höldum því verki áfram, þar er stærsta hagræðingarkrafan þetta árið. 4,5% og auk þess 300 milljónir sem gera um 10% hagræðingu. En það eru engir hagsmunahópar sem mótmæla þegar skrifstofufólki er sagt upp. 20. „Hlusta meira á konur og gamalt fólk. Það er alltof lítið hlustað á þetta lið. Það er eins og öllum finnist það bara vera eitthvað að röfla. Við ætlum að breyta því.“ Er sem sagt lítið hlustað á gamlar konur? Hvað hefur þú gert til að breyta því? Eða til að styrkja stöðu kvenna og aldraðra í borginni? Ég er umkringdur konum sem ég tek mikið mark á, frá morgni til kvölds. Ég hlusta mikið á Lady GaGa. Svo hlusta ég mikið á gömul viðtöl við Þórberg Þórðarson sem voru tekin þegar hann var gamall. Sýnist ég vera í mjög góðum málum hér. 21. Hvað ert þú sjálfur með í mánaðarlaun samtals? Ég er samtals með 1.107.636 kr. sem borgarstjóri og stjórnarformaður í Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. johann@dv.is/ingibjorg@dv.is Svívirtur af klæðskiptingi„Ég vil ekki liggja á dánarbeðinum og horfa yfir farinn veg ósáttur við brostna drauma, eins og pabbi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.