Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Page 37
Viðtal | 37Helgarblað 18.–20. mars 2011
Gunnlaugssyni,“ segir Sara í gríni og
skellir upp úr.
Hlutverk Söru vakti mikla athygli
á sínum tíma og voru ekki allir sáttir
við það að svo ung og óreynd leikkona
hefði fengið lykilhlutverk í myndinni.
„Maður heyrði það utan að sér, sér-
staklega á meðal leikara, að fólk hefði
viljað fá menntaða og reynda leikkonu
í hlutverkið en ekki einhverja óþekkta
og óreynda stelpu.“
Eldskírn hjá Hrafni
En Sara segist hafa þurft að berjast
fyrir hlutverkinu, henni hafi ekki ver-
ið fært það á silfurfati eins og marg-
ir töldu. „Ég þurfti svo sannarlega að
hafa fyrir þessu. Þetta var langt og
strangt prufuferli og lengi vel vorum
við nokkrar sem komum til greina.
Það fóru margir mánuðir í þetta man
ég.“
Á endanum varð Sara fyrir valinu
og var það henni ómetanlegt tæki-
færi. „Mér fannst þetta allt bara algjör-
lega frábært og stórmerkilegur tími.
Ég man að ég dró mig svolítið til baka
og horfði á hlutina gerast í kringum
mig. Maður var svolítið áhorfandi þótt
maður væri auðvitað í þessu miðju og
alltaf að leika.
Þessi reynsla var líka svo mikil.
Myndin var svo dimm og veðrið var
áhrifamikið. Hrafni fannst alltaf best
að taka upp í sem verstu veðri. Þannig
að þetta varð allt svona mikið, stórt og
rosalegt. Margir voru hætt komnir oft
á tíðum og það gerðist margt á meðan
á tökum stóð.
Ég mun alltaf vera ótrúlega þakk-
lát fyrir þetta tækifæri. Það er ákveð-
in eldskírn að byrja ferilinn í mynd
hjá Hrafni en maður býr líka að þeirri
reynslu.“
Akkeri í fluginu
Eftir að hafa leikið í Myrkrahöfðingj-
anum ákvað Sara að fara í inntöku-
prófin frægu í leiklistinni. Þau þykja
ansi strembin enda komast bara átta
nemendur inn í einu. „Ég fór í inn-
tökuprófin en hætti svo við. Þegar ég
var komin í 30 manna úrtakið fannst
mér ég bara ekki vera tilbúin. Ég var
nýkomin úr löngu sambandi og þurfti
að komast aðeins í burtu. Mér fannst
ég heldur ekki hafa frá neinu að segja.
Að ég þyrfti að prófa lífið til að hafa
einhverju að miðla í leiklistinni.“
Sara hélt því aftur út til Frakk-
lands. „Ég var með nokkuð sterkar
taugar þangað og fór að vinna til að
læra frönskuna betur,“ en Sara bjó þá í
höfuðborg Frakklands, París. Eftir um
það bil árs dvöl snéri Sara aftur heim
í kringum aldamótin. Sara fór þá að
vinna sem flugfreyja í innlandsflugi og
gerir enn. Það starf hefur reynst henni
dýrmætt í gegnum árin. „Ég hef verið
í því meðfram leiklistinni með hléum.
Ég hef fengið þar inni ef það er ekki
nóg að gera í leiklistinni sem er al-
veg ómetanlegt. Það er svolítið kald-
hæðnislegt að það er eiginlega flugið
sem heldur manni á jörðinni. Það er
oft mjög gott að komast úr leiklistinni í
svo til venjulegan heim.“
Draumur leiddi hana áfram
Eftir að Sara snéri heim frá Frakklandi
var hún harðákveðin í því að fara aft-
ur utan og í leiklistarnám. „Ég sótti
um í nokkrum skólum úti í London
en ákvað fyrir rælni að sækja líka um
hér heima. Þrátt fyrir það var ég al-
veg ákveðin í því að fara út.“ En Söru
dreymdi svo skýran og eftirminnilegan
draum sem breytti áætlunum hennar.
„Mig dreymdi að ég væri úti í miðri á
sem er í sveitinni minni. Þar skolaði
svo íslenskri orðabók upp á land og
ég tók því sem smá skilaboðum um að
þetta væri rétta leiðin. Að fara í námið
hér heima.
Ég man að það var komið að því í
miðju inntökuprófinu hér heima að
fara í prufurnar úti en ég fann bara á
mér að ég átti að vera hér. Alveg eins
og ég fann það í fyrra skiptið að það
var ekki rétti tíminn fyrir mig.“
Sara kunni vel við sig í skólanum
hér heima sem hafði nýlega orðið
partur af Listaháskóla Íslands. En á
síðasta ári í náminu, þegar Sara var í
nemendaleikhúsinu, varð hún ólétt og
breytti það áformum hennar töluvert.
„Ég var með hin og þessi verkefni sem
ég ætlaði í eftir útskrift en það breytt-
ist allt saman. Ég eignast svo stelpuna
mína í nóvember það ár.
Ég fór því ekki að leika fyrr en
haustið eftir þegar hún var orðin eins
árs. Ég fór reyndar að fljúga þarna um
sumarið og ég sé ennþá eftir því. Það
er eitthvað sem ég endurtek ekki. Að
fara frá barni þegar það er sex mán-
aða. Ég hefði helst viljað vera með
henni til eins árs aldurs. Þetta er svo
ómetanlegur tími sem kemur ekki aft-
ur.“
Ólík Láru
Sara hefur komið víða við í leiklistinni
síðan þá og leikið á sviði, í kvikmynd-
um og sjónvarpi. Sara hefur aldrei ver-
ið fastráðin hjá leikhúsi en hún segir
það hafa bæði kosti og galla. Sara fékk
svo stórt tækifæri þegar hún landaði
aðalhlutverkinu í spennuþáttaröðinni
Pressu eftir Óskar Jónasson og Sigur-
jón Kjartansson. Þættirnir þykja einir
þeir allra bestu sem gerðir hafa verið
hér á landi og á sunnudag verður fyrsti
þáttur í annarri þáttaröð sýndur á Stöð
2.
Í þáttunum leikur Sara rannsókn-
arblaðakonuna Láru sem tekst á við
hin ýmsu mál. Hún segist samsama
sig Láru að vissu leyti þar sem hún
þekki þá togstreitu sem geti myndast á
milli einka- og atvinnulífsins. „Annars
myndi ég nú ekki segja að við séum
líkar persónur þó maður setji alltaf
eitthvað frá sjálfum sér í hlutverkin.“
En hvernig myndi Sara lýsa sér sem
persónu? „Ég er almennt mjög jákvæð
manneskja og líður illa innan um nei-
kvætt fólk. Ég hreinlega get orðið lasin
í kringum það. Ég get verið viðkvæm
ef sá gállinn er á mér en að sama skapi
get ég verið sterk. Maður hefur þetta
allt í sér. Það fer bara svolítið eftir því
í hverju maður er að vinna hverju
sinni og þroskar með sér. Maður reyn-
ir að slípa af sér mestu vankantana og
byggja upp sterkan karakter.“
Inn um glugga í sparikjólnum
Tökur á Pressu voru strembnar og
undir það síðasta var persóna Láru
farin að sitja í Söru. „Þetta voru 35
tökudagar og mikið álag. Þegar þetta
er allt tekið saman þá er þetta eins og
efni í þrjár bíómyndir. Þannig að mað-
ur var kominn töluvert á kaf í þetta.
Þessi sería er líka töluvert dekkri en sú
fyrri þannig að það mæðir enn meira
á Láru.
Sara fann fyrir því á einum tíma-
punkti að Lára var greinilega farin að
fylgja henni af tökustað. „Ég fattaði
það þegar ég var að koma heim af ein-
hverri gleði þegar tökur voru nýbúnar
og ég var komin hálf inn um gluggann
heima í sparikjólnum. Þá voru lykl-
arnir læstir inni og ég ákvað að skríða
inn um gluggann þó svo að svalahurð-
in væri opin. Þá sagði ég stopp og átt-
aði mig á því að Lára var farin að fylgja
mér ansi mikið,“ segir hún og hlær.
Eins og áður kom fram var fyrsta
þáttaröðin af Pressu gríðarlega vinsæl
og beðið er eftir þeirri annarri með
eftirvæntingu. En gæti Sara séð fyrir
sér að leika í fleiri þáttaröðum? „Mað-
ur skyldi aldrei segja aldrei. Það yrði
allavega fróðleg þriðja sería miðað við
hvernig sú númer tvö endar.“
Berar tásur í sveitinni
Sara segir að framtíðin í leiklistinni sé
nokkuð óráðin hjá sér enn sem kom-
ið er. „Það eru svona ákveðin fræ sem
eru ekki ennþá sprottin upp í leiklist-
inni. En það er ekkert ákveðið. Nú fer
ég til dæmis fljótlega að fljúga aftur en
ég stefni samt á það að leika. Það er
stór ástríða í mínu lífi. En akkúrat í dag
er ég svolítið að ná andanum. Ég væri
líka til í að kíkja frekar á allt þetta kvik-
myndaferli út frá öðrum sjónarhorn-
um. Ég ætla til dæmis að fá að fylgjast
með þegar þeir klippa þættina. Ég hef
lofað að segja ekki neitt þegar þeir fara
að klippa mín atriði.“
En það verkefni sem Sara hlakk-
ar mest til á næstunni er að byggja
upp nýtt heimili með stelpunum sín-
um og manninum í lífi sínu. „Það er
maður og tvær stelpur. Stelpan mín
og svo á ég eina á ská,“ segir Sara
sem vill ekki fara of náið út í einka-
líf sitt. „Við höfum vitað af hvort öðru
lengi en erum búin að vera sam-
an núna í rúmt ár,“ segir hún dular-
full. Aðspurð hvort að hún sjái fyrir
sér fleiri börn á nýja heimilinu segir
hún: „Sveitaróman tíkerinn í mér sér
fyrir sér fleiri börn og allir að hlaupa
á berum tásum úti í sveit. En ég veit
ekki hversu lengi ég myndi endast úti
í sveit í dag,“ segir hún að lokum og
brosir.
Grét ballerínudrauminn
„Ég man eftir dögum
þar sem ég hrein-
lega grét því mig langaði
svo að verða ballerína.
Sara Dögg Ásgeirsdóttir „Ég tók engan þátt í félagslífinu og mér lá eitthvað voðalega á
að verða fullorðin. Dró mig inn í skel og var töluvert alvarlegri en ég er í dag.“ MynD RÓBERt REynISSon
Dekkri Pressa
Sara segir Pressu
dekkri að þessu sinni
og því reyni meira á
Láru. MynD SAgAfILM