Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Síða 40
Jón fæddist á Ísafirði. Hann braut-skráðist frá Héraðsskólanum Núpi 1940 og lauk verslunar-
skólaprófi frá Verzlunarskóla Íslands
1944.
Á námsárunum hafði Jón fram-
færi sitt aðallega af því að fara til
sjós á sumrin. Hann stofnaði einnig
heildsölu, J. Ásgeirsson og Jónsson,
með skólabróður sínum í Verzló og
vini, Guðmundi heitnum Jónssyni.
Að loknu námi vann Jón skrif-
stofustörf á Akureyri 1944 og í
Reykjavík 1944–49, m.a. hjá Slipp-
félaginu í Reykjavík og Vélsmiðjunni
Kletti. Hann starfrækti félagsheimili
verslunarmanna í Reykjavík 1949–50
og stúdentagarða í Reykjavík sum-
arið 1950, og var um tíma meðeig-
andi verslunarinnar Kjöt & Fiskur í
Reykjavík, ásamt vini sínum Einari
Bergmann Arasyni, heitnum.
Jón og fjölskylda hans fluttu til
Keflavíkur 1951 þar sem hann hóf
störf sem bókari og gjaldkeri hjá
Hraðfrystihúsi Keflavíkur. Hann var
ráðinn fyrsti sveitarstjóri Njarðvík-
ur 1955 og gegndi því starfi í tæp 20
ár eða til 1974. Hann starfaði sjálf-
stætt við bókhald og skattauppgjör
fyrir einstaklinga og fyrirtæki á árun-
um 1974–90. Á því tímabili var hann
um hríð umboðsmaður Sjóvár-Al-
mennra trygginga, umboðsmaður
skattstjóra, og sá um tíma um sjúkra-
samlagið fyrir Njarðvíkurbæ.
Ásgeir, sonur Jóns, stofnaði lög-
fræðistofuna Lögbók árið 1990 og
starfaði Jón með honum, fyrst í
Njarðvík og síðan í Keflavík, allt til
ársloka 2004. Þá settist Jón í helgan
stein, áttatíu og þriggja ára að aldri.
Hann fluttist á Hjúkrunarheimilið
Hlévang í Keflavík í september sl.
Jón var einn af stofnendum
Lionsklúbbsins í Njarðvík 1958 og
var virkur félagi í klúbbnum nánast
fram á andlátsdag. Hann vann ýmis
störf fyrir hreyfinguna, var formað-
ur Lionsklúbbs Njarðvíkur um hríð,
Melvin Jones-félagi og einn af heið-
ursfélögum klúbbsins. Hann var rit-
ari og gjaldkeri Lionshreyfingarinnar
á Íslandi 1961–62 og umdæmisstjóri
hennar 1968–69. Árgangur 1944 úr
Verzlunarskólnum hittist reglulega
mörg undanfarin ár Jóni til mikill-
ar ánægju. Jón hafði yndi af stang-
veiði og undi sér löngum við fallegar
ár ásamt góðum vinum og vanda-
mönnum.
Fjölskylda
Jón kvæntist 22.6. 1950 Sigrúnu
Helgadóttur, f. í Reykjavík 22. 6. 1925,
d. 20.11. 1992, húsmóður. Sigrún var
dóttir hjónanna Friðsemdar Stein-
unnar Guðmundsdóttur, f. 1904, d.
1971, húsmóður, og Helga Sigurðs-
sonar, f. 1900, d. 1974, húgagnabólstr-
ara í Reykjavík.
Börn Sigrúnar og Jóns eru Stein-
unn Helga, f. 1950, maki Hallgrímur
Gunnarsson, f. 1949, rafmagnsverk-
fræðingur en börn þeirra eru Ingileif
Bryndís, f. 1975, doktor í stærðfræði,
maki Lior Samuel Pachter, doktor í
stærðfræði og prófessor við Berkeley
háskóla og eiga þau tvær dætur, Stein-
unni Hildu, f. 2007, og Ruth Sigrúnu,
f. 2009; Sigrún, f. 1981, læknir, sam-
býlismaður hennar er Ingi Freyr Vil-
hjálmsson, f. 1980, heimspekingur og
blaðamaður, og eiga þau soninn Hall-
grím, f. 2011; Áslaug, f. 1984, nemi.
Rebekka Dagbjört, f. 1956, versl-
unarmaður, maki Björgvin Halldórs-
son, f. 1948, húsasmíðameistari og
eru börn þeirra Halldór Jón, f, 1977,
landfræðingur, maki Valgerður Ósk
Guðmundsdóttir, f. 1982, ferðamála-
fræðingur og er dóttir þeirra Ingunn
Rebekka, f. 2008; Sigrún Helga, f.
1984, nemi, sambýlismaður hennar
er Ragnar Már Ragnarsson, f. 1976,
flugmaður.
Ásgeir, f. 1959, hæstaréttarlög-
maður, maki Hrafnhildur H. Ólafs-
dóttir, f. 1960, þjónustustjóri, en
dóttir Ásgeirs er Sigrún Halla, f. 1979,
nemi en móðir hennar er Rósa Krist-
ín Marinósdóttir og á Sigrún Halla
synina Ívar Björgvin Davíðsson, f.
2003, og Victor Bjarka Davíðsson, f.
2006, en börn Ásgeirs og Hrafnhild-
ar eru Ingibjörg Írís, f. 1992, nemi;
Bryndís Þóra, f. 1994, nemi; Jón, f.
1998.
Systkini Jóns voru Guðlaugur, f.
1904, d. 1940, sjómaður; Guðríð-
ur, f. 1907, d. 1988, húsmóðir; Ás-
geir, f. 1910, d. 1990, verkamaður;
Rannveig, f. 1913, d. 1994, húsmóð-
ir; Þóra, f. 1917, d. 1970, hannyrða-
kennari; Kristján, f. 1919 d. 1976,
bryti.
Foreldrar Jóns voru Rebekka Dag-
björt Hjaltadóttir, f. 1880, d. 1929,
húsmóðir, og Ásgeir Jónsson, f. 1876,
d. 1958, vélstjóri, á Ísafirði og síðar á
Suðureyri.
Seinni kona Ásgeirs var Sigríður
Jónsdóttir, f. 1889, d. 1970, ljósmóðir.
Útför Jóns fór fram frá Ytri-Njarð-
víkurkirkju þann 11.3. sl.
40 | Minning Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kgk@dv.is 18.–20. mars 2011 Helgarblað
Ingimar Ingimarsson
fyrrv. prófastur – f. 24.8. 1929, d. 28.2. 2011
Ingimar fæddist á Þórshöfn og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri
1949 og embættisprófi í guðfræði frá
HÍ 1953. Þá sótti hann námskeið fyr-
ir æskulýðsleiðtoga í Bandaríkjunum
1967 og í sálusorgun í Svíþjóð 1980.
Hann fór auk þess í kynnisferðir varð-
andi félagsþjónustu við aldraða til
Danmerkur, Finnlands og Álandseyja.
Ingimar var sóknarprestur í Raufar-
hafnarprestakalli 1952–55, í Sauðanes-
prestakalli 1955–65, í Víkurprestakalli í
Mýrdal 1965–81 og í Sauðanespresta-
kalli 1981–99. Hann var jafnframt pró-
fastur í Þingeyjarprófastsdæmi 1997–
99.
Ingimar var stundakennari við
Barna- og unglingaskólann á Raufar-
höfn 1953–55, við Barna- og unglinga-
skóla Þórshafnar 1956–59, kennari við
farskóla Sauðnesskólahverfis 1960–64,
stundakennari við Grunnskólann í Vík
í Mýrdal 1964–71 og stundakennari við
Grunnskóla Þórshafnar 1981–99.
Ingimar var formaður skólanefnd-
ar Sauðanesskólahverfis 1955–65, sat í
hreppsnefnd Sauðneshrepps 1958–65,
í fræðsluráði Norður-Þingeyjarsýslu
1957–65, var formaður skólanefndar
Víkurskóla 1966–74, oddviti Hvamms-
hrepps í Vestur-Skaftafellssýslu 1970–
80, sat í stjórn Sambands sunnlenskra
sveitarfélaga 1971–80, í fræðsluráði
Suðurlandskjördæmis 1974–80 og í
stjórn Kaupfélags Skaftfellinga 1972–
80.
Fjölskylda
Ingimar kvæntist 6.4. 1952 Sigríði
Kristjönu Sigurgísladóttur, f. 6.6.
1929, d. 18.3. 1997, húsfreyju og
sjúkraliða. Foreldrar hennar voru
Sigurgísli Jónsson, f. 3.12. 1892, d.
1.12. 1930, skósmiður og síðar sjó-
maður í Reykjavík, og k.h., Hólmfríð-
ur Jónsdóttir, f. 8.11. 1888, d. 26.10.
1958, húsfreyja.
Börn Ingimars og Sigríðar eru
Ingimar Ingimarsson, f. 7.8. 1952,
master í heimspeki, búsettur í
Reykjavík, kvæntur Hólmfríði S.
Svavarsdóttur og eru börn þeirra
Ingimar, kvæntur Ástu Andrésdóttur;
Brynhildur sem á dótturina Aless-
öndru Ástu; Róbert.
Þorkell Ingimarsson, f. 5.11. 1953,
skólastjóri Húnavallaskóla, kvæntur
Gunnþóru H. Önundardóttur og eru
börn þeirra María Heba, gift Kristófer
Dignus framleiðanda og eru börn
þeirra Ari Dignus, Katrín Dignus, f.
2006, d. 2006 og Högni Dignus; Þor-
kell en sambýliskona hans er Erna
Ó. Brynjólfsdóttir og er sonur þeirra
Viktor Breki; Sigríður Kristjana.
Björn Ingimarsson, f. 30.12. 1954,
bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, kvænt-
ur Sigrúnu J. Óskarsdóttur og eru
börn þeirra Bjarni; Karen Ósk en
dóttir Sigrúnar er Auður og dóttir
Björns og Elínar D. Baldvinsdóttur
er Kristjana Rán, en börn Björns með
fyrrv. sambýliskonu hans, Helgu S.
Rolfsdóttur, eru Hrafnhildur og Ingi-
mar Rolf.
Sigurgísli Ingimarsson, f. 10.6.
1956, tannlæknir í Garðabæ, kvænt-
ur Kristínu Guðjónsdóttur og eru
dætur þeirra Sigríður; Anna Gyða;
Freyja.
Hrafnhildur Ingimarsdóttir, f.
28.6. 1957, leikskólakennari, gift
Bjarna Óskarssyni og eru synir þeirra
Sæmundur, f. 1979, d. 1996; Sigur-
gísli, kvæntur Söndru Hauksdótt-
ur; Óskar Björn en unnusta hans er
Kristín F. Tómasdóttir.
Góð vinkona Ingimars síðustu
árin var Jóhanna Elíasdóttir.
Systkini Ingimars: Soffía Arn-
þrúður Ingimarsdóttir, f. 26.8. 1912,
d. 1.11. 1978; Hólmfríður Þórdís Ingi-
marsdóttir, f. 26.6. 1913, d. 1998, hús-
móðir í Reykjavík; Helga Aðalbjörg
Ingimarsdóttir, f. 26.1. 1915, d. 26.6.
1945, húsmóðir á Þórshöfn; Stein-
unn Birna Ingimarsdóttir, f. 9.10.
1916, d. 11.12. 1991; Arnþrúður Ingi-
marsdóttir, f. 12.7. 1918, d. 22.4. 1993;
Halldóra Ingimarsdóttir, f. 19.6. 1920,
húsmóðir á Akureyri; Oddný Frið-
rikka, f. 1.6. 1922, d. 26.5. 2005, fyrrv.
kaupkona í Reykjavík; Jóna Ingi-
marsdóttir, f. 23.11. 1923, d. 11.11.
1988, skrifstofumaður í Reykjavík;
Jóhann Ingimarsson, f. 23.7. 1926,
fyrrv. forstjóri á Akureyri; Árni Sigfús
Ingimarsson, f. 1.10. 1932, d. 30.11.
1935.
Foreldrar Ingimars voru Ingimar
Baldvinsson, f. 20.11. 1891, d. 30.1.
1979, útvegsb. og pósts- og símstöðv-
arstjóri á Þórshöfn, og k.h., Oddný
Friðrika Árnadóttir, f. 16.7. 1893, d.
29.9. 1977, húsfreyja.
Ætt
Ingimar var sonur Baldvins, b. á
Fagranesi á Langanesi Metúsalems-
sonar, b. í Hamragerði Sigurðsson-
ar, umboðsmanns á Eyjólfsstöðum
á Völlum Guðmundssonar, bróður
Páls, langafa Móeiðar, ömmu Helga
Skúlasonar leikara. Móðir Baldvins
var Guðrún Skúladóttir, systir Sveins,
langafa Kristjönu, móður Brynjólfs
Bjarnasonar, fyrrv. forstjóra Granda.
Móðir Ingimars Baldvinssonar var
Hólmfríður, systir Ingunnar, ömmu
Gunnlaugs Scheving listmálara og
Gylfa Þ. Gíslasonar ráðherra, föður
Þorsteins heimspekings, Vilmundar
ráðherra og Þorvalds hagfræðipró-
fessors. Hólmfríður var dóttir Stef-
áns, umboðsmanns á Snartarstöð-
um Jónssonar, pr. á Helgastöðum
Stefánssonar. Móðir Jóns var Þuríð-
ur Jónsdóttir, systir Þorgríms lang-
afa Gríms Thomsens. Bróðir Þuríð-
ar var Benedikt langafi Jóns, langafi
Ingva Hrafns Jónssonar, sjónvarps-
stjóra ÍNN.
Oddný var dóttir Árna, pósts
á Vopnafirði Sigbjarnasonar, pr. á
Kálfafellsstað Sigfússonar. Móðir Sig-
bjarnar var Ingveldur Jónsdóttir, pr.
í Þingmúla Hallgrímssonar, bróð-
ur Þorsteins, afa Jónasar Hallgríms-
sonar skálds. Móðir Árna var Oddný
Pálsdóttir Thorarensen, prófasts í
Sandfelli Magnússon, klausturhald-
ara á Munkaþverá Þórarinssonar,
sýslumanns á Grund og ættföður
Thorarensenættar Jónssonar. Móðir
Oddnýar Pálsdóttur var Anna Bene-
diktsdóttir, systir Sveins, afa Einars
Benediktssonar skálds.
Móðir Oddnýjar Árnadóttur var
Þórdís, systir Stefáns, afa Stefáns
Benediktssonar, arkitekts. Systir Þór-
dísar var Guðný amma Einars Braga,
rithöfundar. Þórdís var dóttir Bene-
dikts b. á Brunnum í Suðursveit,
bróður Guðnýar ömmu Þórbergs
Þórðarsonar rithöfundar. Bróðir
Benedikts var Sigurður, afi Gunnars
Benediktssonar rithöfundar. Móðir
Þórdísar var Ragnhildur Þorsteins-
dóttir. Móðir Ragnhildar var Guðný
Einarsdóttir. Móðir Guðnýar var
Ragnhildur Sigurðardóttir. Móðir
Ragnhildar Sigurðardóttur var Sig-
ríður Jónsdóttir, eldprests Stein-
grímssonar.
Útför Ingimars fór fram frá Hall-
grímskirkju í Reykjavík þann 15.11.
Jarðsett var í Lágafellskirkjugarði í
Mosfellsbæ.
Jón Ásgeirsson
fyrrv. sveitarstjóri Njarðvíkur – f. 2.5. 1921, d. 25.2. 2011
Andlát
Andlát