Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Page 46
46 | Lífsstíll 18.–20. mars 2011 Helgarblað
GEFA
n Gömul leikföng: Það eru alltaf einhvers
staðar litlar hendur einhvers sem bíður þess
að ættleiða bangsa eða dúkku sem hefur
lokið hlutverki sínu hjá stálpuðu barni.
Athugaðu bara að hafa leikföngin hrein og í
góðu ástandi þegar þú gefur þau.
n Raftæki og tölvur: Ekki vera með stafla
af gömlum tölvum, snúrum, hleðslu- og
raftækjum sem aldrei eru notuð heima hjá
þér. Sjáðu til þess að hlutirnir séu í lagi og
gefðu svo til endurnotkunar.
n Fatnaður: Gefðu allan fatnað sem þú
hefur ekki klæðst undanfarna 18 mánuði.
n Bækur sem búið er að lesa: Þá sérstaklega
kiljur. Gefðu líka tímarit eða uppflettibækur
sem innihalda of gamlar upplýsingar eða
annað sem hægt er að nálgast á netinu.
Íhugaðu að gefa listaverkabækur eða
sams konar bækur í góðu ástandi á næsta
bókasafn.
n Lítið notuð eldhústæki: Það er alltaf ein-
hver sem getur notað þau í meira mæli en
þú gerir. Ávaxtaþurrktækið sem þú keyptir
í Sjónvarpsmarkaðnum safnar bara ryki og
tekur frá þér pláss.
n Gleraugu: Árlega hendir fólk fjölda gler-
augna sem gætu komið að virkilega góðum
notum annars staðar.
n Eldhúsáhöld: Margir eiga þrjá ostaskera,
fimm sleifar, fjóra steikarspaða og svo fram-
vegis. Samt þurfum við flest bara eitt stykki
af hverju. Flokkaðu innihald skúffunnar.
HENDA
n 01/12/97: Hentu öllu sem er komið yfir
dagsetningu. Þetta á við um alla matvöru,
lyf og snyrtivörur. Snyrtivörur hafa einkar
stuttan líftíma, flestar duga aðeins vel í 12
mánuði og annað í 3–6 mánuði. Matvara
ætti ekki að vera lengur í frysti en í 3-6
mánuði í mesta lagi. Ef þú ert ekki viss hve
lengi maturinn hefur verið í frystinum skaltu
henda honum í ruslið.
n Málning og sambærileg vara sem hefur
ekki verið notuð í ár eða meira: Slíkar vörur
eru einkar eldfimar og því hættulegt að láta
dósirnar standa lengi eftir að þær hafa verið
opnaðar.
n Jóla- og afmæliskort: Þú þarft þetta í
raun ekki en það er ágætt að skrifa niður
hverjir sendu þér kort og senda þeim kort
ári liðnu.
GEYMA
n Fallegur klassískur fatnaður úr vönduðum
og góðum efnum: Hvít skyrta, flottar
og klæðilegar gallabuxur, góð úlpa eða
kasmírullarkápa í flottu sniði. Þetta er til-
valið að eiga og halda upp á.
n Ljósmyndir: Geymdu ljósmyndir í góðum
kassa á dimmum stað. Láttu reglulega
prenta út stafrænar myndir. Annars er hætt
við að þær gleymist á harða disknum.
n Sorpa, Rauði krossinn og Hjálpræðis-
herinn eru meðal þeirra sem taka við
nytjavörum. Gámar Rauða krossins eru á
endurvinnslusvæðum Sorpu en Hertex,
nytjamarkaður Hjálpræðishersins, er meðal
annars á Akureyri, Reyðarfirði og í Reykjavík.
Þ
að er ekki öllum gefið að vera fullkomn-
ir uppalendur. Flest erum við með örlítið
samviskubit þegar kemur að blessuðu for-
eldrahlutverkinu þó við reynum ávallt að
gera okkar besta. Þá getur verið gott að leita ráða
hjá fagmönnum en hér eru nokkur heilræði upp-
eldisfræðinga um hvernig við getum agað börnin
okkar á jákvæðan hátt.
1. Reyndu að skilja hvers vegna barnið
þitt hegðar sér eins og það gerir
Barnið þitt er ekki „óþekkt“ að ástæðulausu.
Reyndu að skilja hvers vegna það slær systkini sitt,
sparkar í þig eða hlustar ekki. Hlutverk foreldra er
að skilja hvers vegna barnið hegðar sér eins og það
gerir. Um leið og komist er að rót hegðunarvand-
ans er auðvelt að fjarlægja orsökina eða lækna
særðar tilfinningar og þá mun barnið ekki finna hjá
sér tilhneigingu til að halda uppteknum hætti.
Líttu í eigin barm: Yfirleitt liggur ástæðan hjá for-
eldrum.
Við erum ýmist of lengi í símanum, hlustum ekki
á barnið eða leiðum það hjá okkur í önnum hvers-
dagsins. Hvaða hegðun hjá sjálfri eða sjálfum þér
getur þú breytt til að koma betur til móts við þarfir
barnsins? Oft gera foreldrar óréttmætar kröfur til
barna sinna en gleyma sjálfsskoðun.
2. Leggðu áherslu á að stjórna sjálfri/sjálfum
þér í stað þess að reyna
að stjórna barninu.
Það getur verið erfitt að hafa stjórn á skapinu í hita
leiksins en foreldrar eiga að reyna að sýna þá hegð-
un sem þeir vilja að börnin taki sér til fyrirmynd-
ar. Ef þú vilt eiga yfirvegað barn sem æsir sig ekki
eða missir stjórn á sér þá skaltu hafa stjórn á eigin
skapsmunum. Það er frumskilyrði.
Við eigum aldrei að gera neitt fyrir framan börnin
okkar sem við viljum ekki að þau taki upp sjálf.
Þetta þýðir að þú sem foreldri þarft kannski að
telja upp að tíu, ganga afsíðis eða draga djúpt inn
andann þar til þú nærð tökum á skapinu. Reiði og
skapofsi kallar á neikvæða hegðun barnsins. Haltu
stillingu þinni til að fá stillt barn.
3. Hafðu samræmi í væntingum –
ekki gefa þær upp á bátinn.
Foreldrar eiga það til að leiða neikvæða hegðun
barna hjá sér í von um að þau hætti þessu fyrr en
síðar. Vandinn er sá að börnin breyta oftast ekki
um hegðun nema gripið sé til ráða. Ef dóttir þín
bítur önnur börn áttu að grípa í handlegg hennar
og segja henni að slík hegðun sé ekki ásættanleg.
Ef hún heldur uppteknum hætti er réttast að koma
henni úr aðstæðunum.
Stundum reyna börn á þolmörkin með því að rífast
um reglurnar.
Þegar þetta gerist á alls ekki að láta á rifrildið reyna
heldur er best að bregðast við með því að segja
einfaldlega „Ég elska þig of mikið til að rífast við
þig.“
4. Sýndu barninu athygli þegar það gerir
eitthvað sem þér líkar – ekki þegar það gerir
eitthvað sem þér mislíkar.
Börn gera sitthvað til að ná athygli foreldra sinna.
Þannig geta þau líka tekið upp á því að reyna að ná
sér í neikvæða athygli. Þegar barnið byrjar að garga
og góla skaltu einfaldlega láta sem þú heyrir ekki.
Barnið mun fljótlega skilja að það eru til heppilegri
samskiptamátar.
5. Leiðbeindu, leiðbeindu, leiðbeindu.
Ef barnið þitt heyrir orðin „nei“ og „ekki“ mjög
oft er líklegt að það þrói með sér ákveðið ónæmi
fyrir þessum orðum. Prófaðu heldur að leiðbeina
barninu. Til dæmis er gott að fá börnum verkefni. Í
matvöruverslun sendirðu barnið eftir vörum og það
leggur kapp sitt á að aðstoða þig í stað þess að suða
um að fá hitt eða þetta eða vera með ónot. Að sama
skapi er gott að fá krakka sem hleypur um sleipan
sundlaugarbakka til að þykjast „kremja kókosboll-
ur“ með fótunum og svo framvegis.
6. Notaðu „orkuleysis“ aðferðina.
Hún er einföld. Ef systkini eru til dæmis að rífast
skaltu segja, til dæmis ef bíóferð hefur verið ákveð-
in: „Vá, þú verður bara að rífast við bróður þinn
annars staðar af því að ég missi svo niður orkuna við
að hlusta á þetta. Þá gæti farið svo að ég verði allt of
þreytt/ur til að fara með ykku í bíó á eftir.“
7. Ekki múta barninu til að hegða sér vel.
Ekki múta barninu þínu. Það getur verið freist-
andi að bjóða nammi eða súkkulaðikex fyrir góða
hegðun en barnið getur skilið þetta sem svo að það
vilji ekki hegða sér vel og því sé best að borga því
fyrir það sem mætti kalla æskilega hegðun. Það
besta sem börn geta hugsað sér er gæðatími með
foreldrum sínum. Mælt er með því að foreldrar gefi
sér, hvort um sig, 15 mínútur á dag til að tengjast
barninu. Þá er gott að leyfa barninu að ráða hvað er
gert; spilað, litað eða spjallað. Á þessari stundu er
tilvalið að hvísla að barninu þínu hvað þér þyki vænt
um það og hvað það sé frábær manneskja. Fyrir vik-
ið verður það bæði ánægt og „stillt“.
Heimildir: Naomi Aldort, „Raising Our Children, Raising Oursel-
ves“ og Katharine C. Kersey, „The 101s: A Guide to Positive Discipl-
ine“ margret@dv.is
Á vefsíðunni mingmakescupca-
kes.yolasite.com er að finna
skemmtilegar og óvenjulegar
uppskriftir að bollakökum. Þar
á meðal að hveitilausum rauð-
rófu- og súkkulaðibollakökum
með þeyttum rjóma. Rauðrófur
eru einstaklega hollar og hafa
góð áhrif á hjarta- og æðakerfi.
Rauðrófubollakökur:
3 egg rauðan skilin frá hvítunum
1/2 bolli maukaðar rauðrófur.
1/4 bolli sykur
1,5 bolli súkkulaðiflögur
150 gr smjör
Krem:
Rjómi
Sykur
Örlítið af rauðrófusafa
Maukið niðursoðnar rauðrófur í bland-
ara. Bræðið saman smjör og súkkulaði
yfir vatnsbaði. Setjið skálina á borð og
látið kólna í fáeinar mínútur. Hrærið
síðan eggjarauðum og rauðrófumauki
varlega saman við. Þeytið eggjahvítur í
annarri skál, bætið sykri út í þangað til
blandan er stíf og glansandi. Blandið
hvítunum saman við rauðrófu- og
súkkulaðiblönduna. Bakið í 35 mínútur
við 170 gráður. Látið kólna og berið
fram með rauðrófurjóma.
Safnar þú að þér of miklu óþarfa dóti?
Gefa, henda oG Geyma
Mörg höfum við tilhneigingu til að
safna að okkur of miklu óþarfa dóti
sem aldrei er notað og gerir fátt ann-
að en að safnast fyrir eða taka gott
pláss sem annars væri hægt að nota
undir það sem við notum, eða ein-
faldlega ekki neitt.
Hér eru nokkur dæmi um hvað er
sniðugt að gefa, hverju á að henda og
hvað má geyma:
Henda eða gefa? Hvað er sniðugt að gefa, hverju á að henda og hvað mætti geyma?
Blautklútar
Blautklútar þeir sem notaðir eru til
að þrífa barnsrassa eru til fleiri hluta
nytsamlegir. Til dæmis má nota þá
til að þrífa símtæki, sauma á töskum
eða óhreina fingur. Einnig er hægt
að nota blautklútana til að þrífa bað-
vaskinn svo lengi sem vaskurinn er
ekki úr marmara eða graníti.
Óvenjulegar
bollakökur
Sjö góð ráð fyrir foreldra sem vilja stilltari krakka:
Hvernig á ég að
aga barnið mitt?
Ekki öllum gefið að vera góðir foreldrar Það er gott að
leita ráða hjá fagmönnum og þiggja heilræði um uppeldið.