Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Side 52
A
pple uppfærði MacBook Pro-
ferðatölvur sínar í síðasta
mánuði og eru þær nú bún-
ar Sandy Bridge i5 eða i7-
örgjörvum frá Intel í stað Nehalem
eða Core 2 Duo. Fimmtán og sautj-
án tomma útfærslurnar eru með
fjögurra kjarna örgjörva en í þrett-
án tommunni er hægt að velja um
tveggja kjarna i5 eða i7-örgjörva.
Fyrir þá sem áhuga hafa er einnig
hægt að keyra Windows-stýrikerfi á
Apple-vélum eða Linux-afbrigði.
Ytra byrði
Fartölvulína Apple hefur í nokkurn
tíma verið byggð á svokölluðu „uni-
body design“ en það þýðir að skel og
grind tölvunnar, sem er úr burstuðu
áli, eru steyptar í einu lagi. Þetta hef-
ur þann kost að engin hætta er á að
grind tölvunnar verpist eða aflagist
vegna hita eða þrýstings.
Á vinstri hlið hinna nýju MacBook
Pro má finna tvær tengiraufar fyr-
ir USB, eina fyrir FireWire 800, eina
Thunderbolt-rauf, XDSD-kortalesara,
inngang og útgang fyrir hljóð, Ether-
net (gigabit) auk Magsafe (rafmagn).
Þrumufleygur
Apple hefur að undanförnu gert
mikið úr Thunderbolt-tækninni en
það er Intel sem hefur þróað þessa
nýju tækni í samstarfi við Apple.
Thunderbolt eða Þrumufleygur
hefur getu til að flytja allt að 10GB
gagnamagn á sekúndu milli tækja.
Til viðmiðunar getur USB2 sem er
hvað algengast í tölvum í dag aðeins
flutt 480MB. USB3 sem farið er að líta
dagsins ljós í nýjum tölvum og tækj-
um er aðeins hálfdrættingur á við
Þrumufleyginn og getur annað 5GB
á sekúndu.
Ótrúlegur hraði
Með Þrumufleyg er einnig hægt
að raðtengja tæki líkt og með USB.
Þannig er hægt að hafa skjá (styður
DVI, dual-link DVI, VGA og HDMI),
utanáliggjandi disk og upptökutæki
fyrir mynd og hljóð, allt á sömu teng-
ingunni.
Hraðinn er ótrúlegur, það tekur
um 30 sekúndur að afrita Blue-Ray-
disk og um mínútu að flytja 64GB af
tónlist á milli tækja. Afritun á einu
stærsta stafræna bókasafni heimsins,
Library of Congress, sem er um 20
Terabæti, tæki aðeins 35 mínútur.
Intel og Apple hafa sagt Þrumu-
fleyginn vera næstu kynslóð í gagna-
flutningstækni en Intel kynnti hana
fyrst árið 2009. Hin nýja tækni verð-
ur einnig kærkomin búbót fyrir ýmsa
þunga grafíska vinnslu (rendering) og
úrvinnslu gagna á fjölmörgum svið-
um vísinda.
Lyklaborð, skjár, minni og
diskur
Lyklaborð Macbook Pro-tölvanna
hafa baklýsingu og fjölsnertiflöt
(multitouch trackpad) eins og áður
og allar tölvurnar eru búnar há-
glansbreiðtjaldsskjá. Í stærri útfærsl-
unum tveimur er möguleiki að fá
mattan háskerpuskjá í stað háglans.
Upplausn í 13 tommum er 1280x800,
í 15 tommum er hún 1440x900 og
í 17 tommunum er hún komin í
1920x1200. Skjákort er hið sama í öll-
um útfærslum; 384MB Intel HD Grap-
hics 3000 deilanlegt með aðalminni. Í
15 tommu útfærslu er síðan að auki
AMD Radeon 6490M 256MB kort og
í 17 tommu útfærslunni AMD Radeon
6750M 1GB. Allar þrjár útfærslur eru
með 4GB DDR3 vinnsluminni sem er
stækkanlegt í 8GB. Hægt er að velja
ýmsar stærðir og útgáfur af hörðum
diski í tölvurnar en þeir dýrustu eru
SSD eða „Solid State Drive“-diskar.
Rafhlaða
Endingartími rafhlöðu í Macbook
Pro-vélunum var í fyrstu gefinn upp
sem 10 klukkutímar en Apple hefur
dregið það til baka og nú er opinber
endingartími sagður 7 klukkutímar,
miðað við þráðlaust vefráp.
52 | Tækni Umsjón: Páll Svansson palli@dv.is 18.–20. mars 2011 Helgarblað
NóatúNi 17 - Sími 414 1700 GLERÁRGÖtU 30 - Sími 414 1730 miðvaNGi 2-4 - Sími 414 1735 aUStURvEGi 34 - Sími 414 1745HafNaRGÖtU 90 - Sími 414 1740 REykjavíkURvEGi 66 - Sími 414 1750
Reykjavík • akuReyRi • egilsstaðiR • keflavík • selfoss • HafnaRfjöRðuR
BETRA
ALLTAF
VERÐ15,6”
FARTÖLVA
Toshiba Satellite C660-1F5
• 2.53GHz Intel Core i3-380M - Dual core
• 4GB DDR3 1066MHz minni
• 500GB SATA diskur
• 512MB AMD Radeon HD 5470 DirectX 11 skjákort
• DVD og CD-RW skrifari
• 15.6" WXGA LED skjár
• Windows 7 Home Premium 64-BIT
• Vefmyndavél
119.990
Eve Online
safnar fyrir Japan
Í kjölfar hörmunganna sem hafa dunið yfir
Japan undanfarið hefur íslenski leikjafram-
leiðandinn CCP, sem gefur út hinn vinsæla
tölvuleik Eve Online, ákveðið að gefa
þátttakendum í leiknum kost á að styðja við
bakið á Japönum. Þetta er gert með þeim
hætti að breyta svokölluðu Plex í peninga
sem renna síðan til hjálparstarfs í Japan. Plex
stendur fyrir 30 daga spilatíma í leiknum og
er að jafnaði keypt í gegnum vefverslun Eve
Online. Leikurinn hefur einnig sinn eigin gjald-
miðil en hingað til hefur verið bannað að selja
ýmsa sýndarhluti í leiknum milli notenda fyrir
raunverulega peninga. CCP hefur ákveðið
að gera undanþágu í þessu tilviki og geta
því þátttakendur í leiknum nú valið að selja
hvaðeina sem þeir eiga í handraðanum sín á
milli og ágóðinn mun renna til Japans.
Explorer 9
loksins kominn
Microsoft kynnti Internet Explorer
9-netvafrann fyrst árið 2009 en vafrinn kom
loks út í vikunni í endanlegri útgáfu. Markmið
Microsoft hefur frá upphafi verið að þróa
hraðvirkan netvafra sem uppfyllti alla helstu
vefstaðla. Í þessari nýju útgáfu hefur allt
viðmót verið einfaldað og skorið niður þannig
að þær síður sem skoðaðar eru í vafranum fái
mesta hugsanlega pláss. Stöðu-, tækja- og
valslá eða „menu“ er horfin og eftir stendur
aðeins það svæði þar sem vefslóðin er slegin
inn í en flipar eða „tabs“ raðast síðan upp
í sömu línu hægra megin við. Ýmsar aðrar
áhugaverðar nýjungar er að finna í vafranum.
Notendur XP-stýrikerfisins eru þó fjarri góðu
gamni því IE 9 verður aðeins hægt að keyra á
Windows 7 og Vista-stýrikerfunum.
MacBook Pro
og Þrumufleygur
n Hinar nýju MacBook Pro-ferðatölvur frá Apple eru búnar nýrri
tengi- og gagnaflutningstækni frá Intel sem kallast Thunderbolt
eða Þrumufleygur n Nafnið er vel til fundið því hraðinn er ótrúlegur
10
Gbps
5
Gbps
0
Gbps
480
Mbps
800
Mbps
2,5
Gbps
5
Gbps
10
Gbps
USB 2 FireWire 800 Apple Expresskort USB 3 Thunderbolt
Háhraðatengingar
MacBook Pro-línan frá Apple
Vandaðir og öflugir vinnuhestar.
MYNd APPLE INc.