Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Blaðsíða 55
Sport | 55Helgarblað 18.–20. mars 2011 Lín Design Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið Sími 533 2220 www.lindesign.is Mjúka fermingargjöfin Úrval fermingargjafa á tilboði Stöð 2 flutti fréttir af því á miðviku- dagskvöldið að busavígsla nýrra dómara eftir árshátíð þeirra í Út- hlíð hefði farið úr böndunum og að sjö dómarar hefðu verið tekn- ir á teppið og áminntir fyrir busa- vígsluna. Þetta staðfesti Þórir Há- konarson, framkvæmdastjóri KSÍ, við DV í gær. „Við höfum rætt við alla aðila málsins og gerendunum hefur verið veitt áminning,“ segir Þórir en annars vildi hann ekkert tjá sig um málið. Samkvæmt örugg- um heimildum DV snýst málið um rassskellingu þriggja manna sem nýverið voru teknir inn í dómara- stéttina. Á rassskellingin að hafa verið tiltölulega saklaus en slíkar athafnir tíðkast víða hjá íþrótta- félögum, til dæmis hjá bæði karla- og kvennalandsliði Íslands í hand- bolta. Afar erfitt var að fá menn til að tjá sig um málið þegar eftir því var leitað, nánast ómögulegt. DV hafði samband við tvo þeirra sem rassskelltir voru en hvorugur vildi viðurkenna rassskellinguna. Annar sagðist hafa farið að sofa snemma bæði kvöldin og ekkert frétt af mál- inu, hinn var mjög ánægður með ferðina, sagði hana hafa verið gott hópefli og busavígslan meira snúist um að taka diska af borðum. Taka skal þó fram að dómararnir gistu í átta sumarbústuðum og fór athöfn- in fram í aðeins einum þeirra. Svona ummæli dæma sig sjálf Málið fór eins og eldur í sinu um netheima í gær og fóru að berast sögur af því að menn hefðu verið hýddir með beltum og kertastjök- um. Háttsettur dómari sem DV ræddi við í gær sagði málið hafa far- ið inn á borð KSÍ frá aðila sem ekki hafi verið á staðnum. Þannig hafi sögur farið að spinnast. Beltasag- an á að hafa hafist þannig að mað- ur sem tengist ekki dómarastétt- inni en var samt á staðnum gekk inn í busavígsluna, reif af sér belt- ið og sagði: „Jæja, hver er næstur?“ og uppskar við það mikil hlátra- sköll. Mótastjórinn Birkir Sveins- son mætti einnig í veisluna og hafði gaman af, samkvæmt heimildum DV, enda hefur hann séð nokkrar busavígslur um ævina. Fram kom í útvarpsþættin- um Mín skoðun í gær að dómar- ar hefðu viljað að Guðrún Fema Ólafsdóttir, færasti kvendómari Ís- lands, hneppti frá og yrði rassskellt. Sigurður Óli Þorleifsson, FIFA-að- stoðardómari og formaður Félags deildardómara, vildi ekkert ræða um busavígsluna þegar DV leitaði eftir því í gær. Honum blöskraði þó það sem kom fram í Minni skoðun og sagði: „Svoleiðis ummæli dæma sig algjörlega sjálf.“ Samkvæmt heimildum DV tengdist Guðrún Fema busavígsl- unni ekki neitt. Það nafn fór aðeins af stað þegar sögusagnir fóru fyrst að berast um að kvendómari hafi verið í Úthlíð .Þykja verður einnig afar ólíklegt að Guðrún Fema hafi verið beðin um að afklæðast þar sem hún er ekki nýliði og þess utan unnusta Jóhanns Gunnars Guð- mundssonar, FIFA-aðstoðardóm- ara. Þau eiga að hafa fyrir löngu verið farin að sofa þegar vígslan fór fram. Yfirlýsingin sem ekki fór í loftið Dómarastéttin hefur reynt að grafa málið þar sem þeir segja frétt- ir af vígslunni vera storm í vatns- glasi. Gríðarlega erfitt var að fá menn til að tjá sig um málið í gær en DV fékk þó þær fréttir að dóm- arafélagið hefði sett saman yfir- lýsingu þar sem það gat ekki leng- ur setið undir þeim sögusögnum sem í gangi voru. Til dæmis birtist á fimmtudaginn undir liðnum Twit- terfærslur dagsins á fotbolti.net, færsla frá knattspyrnumanninum Kristjáni Óla Sigurðssyni: „Alvöru busavígsla hjá íslenskum dómur- um. Belti og kertastjakar notaðir við flengingu á nýliðunum.“ Þórir Hákonarson, fram- kvæmdastjóri KSÍ, vildi ekki birta yfirlýsinguna frá dómurunum, samkvæmt öruggum heimildum DV. Vildi hann frekar að fjölmiðlar hefðu samband við sig. Þegar DV spurði hann svo út í yfirlýsinguna og hvers vegna hún mætti ekki birt- ast kom Þórir af fjöllum og kannað- ist ekkert við yfirlýsinguna. „Það hefur ekkert meira gerst í þessu máli en það sem kom fram í gær [í fréttum Stöðvar 2 á mið- vikudagskvöldið, innsk. blm]. Málið var afgreitt þar,“ sagði Þórir en hann fékkst ekki heldur til að gefa upp hverjir hinir sjö áminntu væru. dómarar flengdu nýliða n Nýir dómarar rassskelltir í Úthlíð n Sögusagnir fóru upp úr öllu valdi n Yfirlýsing dómara fékk ekki að fara í loftið n Formanni Félags deildardómara blöskraði það sem kom fram í útvarpsþætti um málið Dómarar voru rassskelltir í busavígslu Dómurunum var veitt áminning. mYND pHotoS.com Tómas Þór Þórðarson blaðamaður skrifar tomas@dv.is „Alvöru busavígsla hjá íslenskum dómurum. Belti og kerta- stjakar notaðir við fleng- ingu á nýliðunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.