Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2011, Síða 64
Verður
hún þá
þriðja
gyðjan?
Elísabet fær
ömmubarn
n Rithöfundurinn Elísabet Jökuls-
dóttir á von á barnabarni. Sonur
hennar, Jökull I. Elísabetarson, Ís-
landsmeistari í knattspyrnu með
Breiðabliki, tilkynnti á Facebook-síðu
sínum í gær að eigin-
kona hans, Kristín
Arna Sigurðar-
dóttir, bæri undir
belti þeirra fyrsta
barn. „Til hamingju
elskurnar mínar, nú
skil ég afhverju ég
vaknaði snemma,
til að sjá þessa
undurfögru
mynd, sit hér
skælbrosandi
útað eyrum,
elska ykkur,
ást, friður og
hamingja
og kríli,“
ritar
Elísabet
hamingju-
söm á vegginn
hjá syni sínum.
Einar ætlar að
hjóla hringinn
n Útvarpsstjórinn Einar Bárðarson,
sem nýverið náði ekki að komast á
topp Úlfarsfells eftir að hafa gefist
upp á miðri leið, hefur núna sam-
þykkt áskorun samstarfsmanna sinna
um að hjóla hringinn í kringum
landið. Áskorunin er þó háð því að
20.000 manns „líki“ Facebook-síða
Kanans, útvarpsstöðvar Einars, en
aðeins um 8.000 manns „líkar“ síðan
þegar þetta er skrifað. Þeir sem vilja
að Einar hjóli hringinn í kringum
landið hafa út apríl til
að „líka“ við síðuna.
Á Facebook-síðunni
kom einnig fram að
Logi Geirsson væri
glottandi yfir áskor-
uninni en hann
hefur hjálpað
Einari að
berjast við
auka-
kílóin.
Rannsakar
kanínuna
n Tónlistarmaðurinn Gunnar Lárus
Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr.
Gunni, leitar nú að uppruna lagsins
Hey kanína. Lagið er sagt erlent en
Sálin hans Jóns míns hefur meðal
annars tekið það upp á sína arma en
ísfirska hljómsveitin Ýr flutti það fyrst.
Gunnar segir söngvarann í Ýr, Reyni
Guðmundsson, hafa tekið lagið upp í
gegnum útsendingu Radíó Lúxem-
borg. Gunnar kallar lagið Geirfinn
íslenskrar tónlistarsögu en æðsti
prestur íslenskrar tónlistar, Jakob
Frímann Magnússon,
sá um að taka lagið
upp. Hann segir
það vera blöndu
af tökulagi og
frumsömdu
lagi því spóla Ýr-
manna með laginu
eyðilagðist áður
en þeir náðu að
læra það.
Ástríður Höskuldsdóttir er ein þeirra
sem komst áfram í leit Hollywood-
leikarans Charlies Sheen að aðstoð-
armanni. Ástríður er meðal 4.000
umsækjenda sem komust áfram í
leitinni og fengu að skila eiginlegri
umsókn. Leitin skiptist í nokkur stig
en á fyrsta stigi var öllum gert kleift
að sækja um og þurftu þeir einung-
is að svara því af hverju þeir teldu sig
vera réttu manneskjuna til að vinna
með Sheen. Ástríður svaraði einfald-
lega að hún væri með ísbjarnarblóð
í æðum, en Charlie hefur á undan-
förnum vikum ítrekað sagst vera
með tígursblóð í æðum sínum, sem
útskýri kraftinn sem hann býr yfir.
Nokkrir fleiri Íslendingar komust líka
áfram í keppninni.
Umsóknin sem Ástríður þurfti að
fylla út var þó ekki ýkja flókin. „Það
var spurt um tvo skóla sem maður
hefur farið í og svo líka tvö mikilvæg
störf sem maður hefur unnið sem
gætu nýst í starfinu sem hann er að
auglýsa,“ segir hún um umsóknina.
En af hverju sótti hún um starfið?
„Ég var að horfa á myndband á net-
inu og þar var tengt í þessa umsókn
og ég hélt fyrst að þetta væri eitthvað
grín og ég sótti um í gríni.“ Ástríður
er samt sem áður viss um að hún
myndi reynast Sheen góður starfs-
kraftur. „Þetta snýst um að koma
honum meira á framfæri á netinu og
ég er með 12 ára reynslu í vefsíðu-
gerð,“ segir hún en hún er menntað-
ur grafískur hönnuður.
Mikil umræða hefur verið und-
anfarið um meinta eiturlyfjaneyslu
Sheen en hann var nýverið rekinn úr
sjónvarpsþáttunum Two and a Half
Men. Ástríður hefur ekki áhyggjur af
því og segir að hún myndi ekki ýta á
hann að fara í meðferð. „Það er hans
mál, sem maður á ekkert að vera að
skipta sér af.“ adalsteinn@dv.is
Íslensk stúlka er skrefi nær því að vinna með Charlie Sheen:
Sagðist vera með ísbjarnarblóð
Þú ...
Lítill greiðsluvandi:
Greiðslujöfnun
110% leiðin
5.000 kr. fastar greiðslur
í erlendri mynt
Meðal greiðsluvandi:
Lenging lánstíma
Frysting vaxta og/eða afborgunarhluta
Vanskil lögð við höfuðstól
Mikill greiðsluvandi:
Sértæk skuldaaðlögun
Kynntu þér lausnir fyrir heimilin á byr.is. Með persónulegri
þjónustu reynum við að fi nna lausnina fyrir þig.
... getur leitað lausna
í samstarfi við okkur
Við bjóðum viðskiptavinum okkar sértækar
lausnir á greiðsluvanda heimilsins.
Sími 575 4000 I byr@byr.is I www.byr.is
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HElgaRblaÐ 18.–20. MARS 201133. tbl. 101. árg. leiðb. verð 595 kr.
Vill vinna með Sheen Ástríður segist
hafa sótt um starfið hjá Charlie Sheen í gríni
en hún sé þó vel hæf til að sinna því.