Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2011, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2011, Blaðsíða 6
6 | Fréttir 8.–10. apríl 2011 Helgarblað L A U G A V E G I 1 7 8 Sími: 568 9955 - www.tk. is Opið: mánud-föstud.12-18 - laugard.12-16 - sunnud. LOKAÐ Einnig mikið úrval af fermingargjöfum Erum flutt að Laugavegi 178 (næsta húsi við frægustu bensínstöð landsins) BRÚÐKAUPSGJAFIR 20 teg. Söfnunarstell 20 teg. Söfnunarhnífapör 20 teg. Söfnunarglös iittala vörur - hitaföt o.fl. SKARTGRIPIR Fallegt úrval af hinum heimsþekktu skartgripum Flott fermingar, útskriftar eða morgungjöf NÝ SENDING n Ragnhildur Sverrisdóttir segir ekkert athugavert við viðskipti Hersis n Ríkisskattstjóri undrandi á viðskiptunum n Sala Hersis á bréfunum í Samson ekki tilkynnt n Hersir átti að borga fyrir bréfin 15. janúar 2005 en kaupsamningurinn var frá 30. desember sama ár Sala eignarhaldsfélagsins Hersis á eins prósents hlut í móðurfélagi Landsbankans, Samson, var ekki til­ kynnt opinberlega með neinum hætti í árslok 2006. Þetta kemur fram í svari Ragnhildar Sverrisdóttur, talskonu Björgólfs Thors Björgólfssonar fjár­ festis, við fyrirspurn DV. Kaup félags­ ins ári áður, í árslok 2005, voru hins vegar tilkynnt til Kauphallar Íslands. Hersir var í eigu nánustu samstarfs­ manna Björgólfs Thors, meðal annars Andra Sveinssonar. Með kaupunum árið 2005 fór Björgólfur Thor niður fyrir 20 pró­ senta óbeinan eignarhlut í Lands­ bankanum – átti 19,88 prósent – og þurftu lánveitingar til hans því ekki að fara fyrir stjórn Landsbankans þar sem hann var ekki skilgreindur sem tengdur aðili innan bankans. Kaup Hersis í Samson þjónuðu því hags­ munum Björgólfs Thors. Ragnhildur segir hins vegar að ekkert óeðlilegt hafi verið við viðskipti Hersis með hlutabréfin í Samson: „Umrædd viðskipti voru fullkomlega eðlileg og snérust um kaup starfs­ manna á hlutum í viðkomandi félagi líkt og tíðkast í langflestum stærri fé­ lögum hér á landi og erlendis.“ Ríkisskattstjóri gagnrýninn Líkt og DV greindi frá á miðviku­ daginn yfirtók Björgólfur Thor Hersi í fyrra sökum þess að hann átti 70 milljóna króna kröfu á félagið og ákvað hann í kjölfarið að slíta fé­ laginu í stað þess að gefa það upp til gjaldþrotaskipta. Starfsmaður hjá embætti ríkis­ skattstjóra, Skúli Jónsson, samþykkti þó aðeins með miklum semingi að löggilda skilanefnd yfir Hersi í sept­ ember í fyrra – skilanefndarmennirn­ ir höfðu verið valdir á hluthafafundi Hersis mánuði áður. „Ég verð enn að segja að ég skil ekki hvaða leikur er þarna í gangi,“ sagði Skúli, sem er forstöðumaður hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra, um slitin á félaginu í tölvupósti til annars skilnanefndar­ mannanna. Skilanefndarmaðurinn heitir Jónas Rafn Jónsson og er lög­ fræðingur hjá endurskoðendafyrir­ tækinu KPMG. Afskipti Björgólfs Thors af Hersi vöktu því athygli og furðu þessa starfsmanns ríkisskattstjóra enda virðast þau ekki standast mikla skoð­ un. Heimildir DV herma að málefni Hersis hafi verið rædd hjá embætti sérstaks saksóknara í tengslum við rannsókn embættisins á málefnum bankans. Neitar að svara um fjármögnun og uppgjör lánsins Ragnhildur neitar að svara því hvern­ ig kaup Hersis á hlutabréfunum í Samson í árslok 2005 voru fjármögn­ uð og einnig því hvernig lánið var að lokum gert upp. „Ég ætla ekki að fjöl­ yrða frekar um þessi kaup lítils félags starfsmanna í Samson og hvort einkaaðilar lánuðu þessum starfs­ mönnum af sínu fé og hvernig það lán var að lokum gert upp.“ Heimildir DV herma hins vegar að í árslok 2006 hafi Hers­ ir selt bréfin í Samson aftur til eignarhalds­ félagsins Samsonar. Í tengslum við þessi viðskipti eignaðist Hersir kröfu á Sam­ son – Hersir hef­ ur því væntanlega lánað Samson fyrir bréfunum – og var sú krafa greidd upp í febrúar 2007, samkvæmt heimildum DV. Samson skuldaði Hersi því ekkert eftir þetta. Hugsanlegt er að skuldin hafi verið nettuð út með skuldajöfnun vegna upphaflegra kaupa Hersis á bréfun­ um í Samson í árslok 2005. Um svipað leyti og þetta gerðist, í ársbyrjun 2007, eignuðust nokkr­ ir starfsmenn fjár­ festingarfélags Björgólfs Thors, Novator, í kring­ um fimm prósenta hlut í eignarhalds­ félaginu Given­ shire, sem hélt utan um eignarhlut Björgólfs Thors í Samson. Með því að halda utan um þennan eignar­ hlut í Givenshire fór óbeinn eignar­ hlutur Björgólfs Thors í Landsbank­ anum niður fyrir 20 prósent. Tilgangur Hersis og eignar­ halds starfsmanna Björgólfs Thors í Givenshire virðist því hafa verið svip­ aður. „Kaupverðið skal greitt í reiðufé þann 15. janúar 2005“ Athygli vekur að í kaupsamningnum á milli Samsonar og Hersis, sem DV hefur undir höndum, kemur fram að kaupverðið á bréfunum í Samson hafi verið nærri 930 milljónir króna og að kaupverðið hafi átt að greið­ ast þann 15. janúar 2005 – tæpu ári áður en samningurinn var undir­ ritaður. Um var að ræða 10 milljón hluti í Samson. Í kaupsamningn­ um segir: „Kaupverð Hins selda er 928.300, m.v. gengið 92,83 á hverjum hlut í félaginu. Kaupverðið skal greitt í reiðufé þann 15. janúar 2005. Selj­ andi skal afhenda Hið selda þann 30. desember 2005.“ Samningurinn var undirritaður af starfsmanni Samson­ ar og hluthafa í Hersi þann 30. des­ ember 2005, tæpu ári eftir að Hersir hefði átt að greiða fyrir bréfin sam­ kvæmt samningnum. Ekkert í ársreikningnum bend­ ir til að Hersir hafi haft fjárhagslegt bolmagn til að greiða fyrir hlutabréf­ in í Samson með því hætti sem kveð­ ið var á um í kaupsamningi auk þess kaupsamningurinn var ekki skuld­ bindandi þar sem greiðsludagur bréfanna var í fortíðinni. Spurningar DV 1. Af hverju lánaði Björgólfur Thor Hersi fjármuni og hvenær gerðist það? Til hvers voru þeir fjármunir notaðir? 2. Af hverju léstu þess ekki getið í síðustu svörum þínum til mín að Hersir hefði keypt hlut í Samson í árslok 2005? 3. Hvernig voru kaup Hersis í Samson fjármögnuð? Heimildir mínar herma að Samson hafi veitt Hersi lán til kaupanna. 4. Af hverju keypti Hersir þennan hlut í Samson? 5. Af hverju veitti Hersir Samson lán í árslok 2006? Lánið var endurgreitt í febrúar 2007 – um það leyti sem starfsmenn Novator keyptu í Givenshire. 6. Heimildir mínar herma að lánið í spurningu 6 hafi verið veitt til að fjármagna kaup Sam- sonar á hlut Hersis í Samson. Er þetta rétt? 7. Hvernig var lánið endurgreitt? Með skuldajöfnun? 8. Af hverju finnast engar opinberar upplýsingar um sölu Hersis í Samson í árslok 2006, aðeins upplýsingar um kaup félagsins í Samson? 9. Samkvæmt þeirri mynd sem ég hef af þessu máli var hlutverk Hersis eftirfarandi: Félagið kaupir 1 prósent í Samson í árslok 2005 með láni frá Samson. Ári síðar selur Hersir hlutinn í Samson aftur til Samsonar. Hersir lánar fyrir kaupunum. Nokkrum mánuðum síðar eignast starfsmenn Novator hlut í Samson í gegnum Givenshire. Hlutverk eignar- halds Hersis í Samson var það sama og hlutverk eignarhalds starfsmanna Novator í Givenshire: Að koma í veg fyrir að Björgólfur Thor ætti óbeinan eignarhlut í Landsbank- anum sem væri 20 prósent eða meira. Svör Ragnhildar „Ég var ekki að leyna neinu með því að taka ekki sérstaklega fram í síðustu svörum til þín að Hersir hefði keypt í Samson í árslok 2005. Ég gekk satt best að segja út frá því að þú værir með þá opinberu staðreynd á hreinu í úttekt þinni og bendi á að kaupin komu skýrt fram í frétt frá Kauphöll 30. desember 2005. Ályktanir þínar eru fjarri lagi. Umrædd viðskipti voru fullkomlega eðlileg og snerust um kaup starfsmanna á hlutum í viðkomandi félagi líkt og tíðkast í langflestum stærri félögum hér á landi og erlendis. Slík kaup þykja almennt til hagsbóta fyrir alla aðila. Við- skiptin voru gerð fyrir opnum tjöldum. Salan var jafnframt tilkynnt FME og regluverði Landsbankans, en rétt er að benda á að í árslok 2006 voru þau viðskipti ekki tilkynninga- skyld til Kauphallar. Samson var þá í fjölbreyttri fjárfestingastarfsemi og 1% eignarhluti í félaginu jafngilti ekki eignarhluta í Landsbankanum sjálfum. Reyndar hefur þetta allt komið fram áður, sem og eignarhlutur Givenshire, þannig að það vekur undrun mína að þú kjósir að endurvinna þessa frétt núna. Ég ætla ekki að fjölyrða frekar um þessi kaup lítils félags starfsmanna í Samson og hvort einkaaðilar lánuðu þessum starfsmönnum af sínu fé og hvernig það lán var að lokum gert upp.“ Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is EINN ÞEIRRA ER BESTUR F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð Neytendur 16 Fréttir 2–3 Sport 25 ReyniR að hylja slóð sína: 6.–7. apríl 2011 41. tbl. 101. árg. leiðb. verð 395 kr. máNUdAgUR og ÞRIðjUdAgUR n Reiði hjá ríkisskattstjóra n Vafasöm viðskipti Björgólfs Thors n „Ótraustvekjandi, svo ekki sé meira sagt“ n „Ég skil ekki hvaða leikur er þarna í gangi“ n Sleit leynifélagi sem átti í Samson BJÖRGÓLFUR HELDUR ÁFRAM! Fréttir 12–13 ÞETTA SEgjA SÉRfRæðINgAR Um IcESAVE Grunaður um að misnota sjö ára son sinn: AFBRotAMAðUR MEtinn HæFUR AF BARnAvERnD n Hvort er það já eða nei? Stefán Einar: sEnDi FÖðUR FRAMBJÓðAnDA tÖLvUpÓst Fréttir 10 Svona geturðu tekið upp hollt mataræði Dæmdur fyrir líkamsárás: SENdI HANdRUKKARAá SÍNA fYRRVERANdIn Ofbeldismaðurinn hótaði að nauðga henni Bæjarstjóri ísafjarðar: HRæDDUR við JEREMy iRons Fólk 26 Fréttir 4 n langur sakaferill allt frá Breiðavík n Beitti barnsmóður ofbeldi Fréttir 14–15 SALA HERSIS Á BRÉFUM SAMSONAR EKKI TILKYNNT Aftur í tímann Samkvæmt kaup- samningi á milli Hersis og Samsonar átti Hersir að greiða nærri milljarð króna fyrir bréfin í Samson tæpu ári áður en kaup- samningurinn var undirritaður. Björg- ólfur Thor Björgólfsson hefur eignast Hersi og slitið félaginu en kaup félagsins í Samson voru til hagsbóta fyrir hann. 6. apríl 2011 Snorri Páll Jónsson og Sunneva Ása Weisshappel voru sýknuð í Héraðs­ dómi Reykjavíkur á fimmtudag af ákæru ríkissaksóknara um brot gegn almennum hegningarlögum í maí 2009. Snorri Páll er sem kunnugt er einn af níumenningunum sem sakaðir voru um árás á Alþingi í búsáhaldabylting­ unni. Snorri lýsti því yfir í samtali við DV á dögunum að ákæran, sem lögð var fram sama dag og verið var að klára vitnaleiðslur í máli níumenn­ inganna, lyktaði af pólitískum ofsókn­ um á hendur sér. Lögmaður Snorra og Sunnevu furðaði sig einnig á málinu á sínum tíma enda hafði það dregist að ákæra þau í 20 mánuði í þessu tiltölu­ lega einfalda máli sem engin rannsókn hafði farið fram í. Sagði lögmaðurinn málið afar „dularfullt“. Málið á rætur sína að rekja aftur til 21. maí 2009. Lögreglan mun hafa haft afskipti af Snorra og vinkonu hans þar sem þau voru að ganga heim til sín. Ástæða afskiptanna var sögð sú að hann hefði hrækt í áttina að lögreglu­ bíl. Í kjölfarið hafi þau verið hand­ tekin fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu og fyrir að vera ölvuð á al­ mannafæri. Voru þau látin gista fanga­ geymslur en heyrðu síðan ekkert frek­ ar af málinu fyrr en 20 mánuðum síðar. Tuttugu mánaða töf: Sýknuð í „dularfullu“ máli Bretar eignast hlut í MP Banka Breski auðmaðurinn Joe Lewis, annar aðaleigandi enska knatt­ spyrnuliðsins Tottenham Hotspur, er í nýjum hluthafahópi MP Banka. Breska Rowland­fjölskyldan er sömuleiðis sögð í hluthafahópnum, samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins á fimmtudag. Sú fjölskylda keypti sem kunnugt er rekstur Kaupþings í Lúxemborg og breytti nafninu í Banque Havilland. Viðskiptablað­ ið hefur heimildir fyrir því að þriðji erlendi fjárfestirinn muni vera í nýjum hluthafahópi bankans en ekki hefur fengist staðfest hver það er. Viðskiptablaðið upplýsir að er­ lendu auðkýfingarnir muni eiga allt að 20 prósenta hlut í MP banka, þar af mun Rowland­fjölskyldan eign­ ast 10 prósent.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.