Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2011, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2011, Blaðsíða 40
Móðir og Morðingi 40 | Sakamál Umsjón: Kolbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is 8.–10. apríl 2011 Helgarblað M arybeth Roe fæddist árið 1942 í Duanesburg í New York-ríki. Bernska hennar var viðburðasnauð, hún og yngri bróðir hennar voru dæmi- gerðir framhaldsskólanemendur og faðir þeirra vann hjá General Elect- ric. Í stuttu máli var ekkert sem gaf til kynna að Marybeth myndi í framtíð- inni vinna börnum sínum mein. Að skólagöngu lokinni vann Marybeth ýmis láglaunastörf en varð að lokum gangastúlka á Ellis-sjúkra- húsinu í Schenectady. Árið 1963 hitti hún Joe Tinning á óvissustefnumóti og gengu þau í það heilaga vorið 1965. Fyrstu árin virtist sem allt væri með felldu og innan fimm ára höfðu þau eignast tvö börn, Barböru og Jósef, og í desember 1971 ól Mary- beth þriðja barn hjónanna, Jennifer. Jennifer var veik við fæðingu, yfirgaf aldrei spítalann og dó nokkrum vik- um eftir fæðingu vegna alvarlegrar sýkingar. Tvö börn deyja Þann 20. janúar 1972 birtist Mary- beth með Jósef, þá tveggja ára, í örm- unum á neyðarmóttöku Ellis-sjúkra- hússins og sagði starfsfólki þar að drengurinn hefði fengið einhvers konar flog. Drengurinn var rannsak- aður í þaula en ekkert fannst sem gefið gat skýringu á meintu flogi og var hún eftir nokkra klukkutíma send heim með hann. Nokkrum stundum síðar birtist hún aftur með drenginn, þá liðið lík. Hún gaf þá skýringu að hún hefði lagt hann í rúmið sitt og komið að honum síðar þar sem hann lá blár í framan og flæktur í sængurfatnað- inn. Innan við einum og hálfum mán- uði síðar kom Marybeth aftur á sjúkrahúsið, nú með Barböru, fjög- urra ára, og sagði hana hafa fengið krampakast. Læknarnir vildu halda Barböru á sjúkrahúsinu yfir nótt en við það var ekki komandi því að Marybeth vildi fara með dóttur sína heim. Örfáum stundum síðar kom hún aftur með Barböru meðvitund- arlausa og dó hún skömmu síðar. Var úrskurðað að banamein hennar hefði verið Reye‘s-heilkenni. Á tiltölulega skömmum tíma höfðu öll þrjú börn Marybeth dáið, en hún varð ólétt að sínu fjórða barni árið 1973. Þrjár fæðingar, ættleiðing og dauði Í nóvember 1973 ól Marybeth sitt fjórða barn, Timothy, og þremur vikum eftir fæðingu hans kom hún á sjúkrahúsið með nýfæddan son sinn andaðan. Sagðist hún hafa komið að honum dánum í vöggunni og var úrskurðað að um vöggudauða hefði verið að ræða. Tveimur árum síðar, í mars 1975, fæddist Tinning-hjónunum fimmta barnið, Natan. Sex mánuðum síðar kom hún með hann dáinn á Ellis- sjúkrahúsið og sagði að hann hefði einfaldlega hætt að anda. Engin skýring fannst á dauða Natans. Árið 1978 ákváðu Tinning-hjón- in að ættleiða barn en sama ár varð Marybeth þunguð enn og aftur. Þau hættu þó ekki við ættleiðinguna en ákváðu að halda báðum börnunum. Í ágúst 1978 fengu þau í hendurn- ar Mikael frá ættleiðingarstofnun- inni og tveimur mánuðum síðar, 29. október, fæddist Mary Frances og voru þá börn hjónanna, lífs og liðin, orðin sjö. En Mary Frances varð ekki langr- ar ævi auðið því í janúar 1979 kom Marybeth með dóttur sína á neyðar- móttökuna og sagði hana hafa feng- ið flog. Hjúkrunarfólkinu tókst að bjarga stúlkunni en það var skamm- góður vermir því í febrúar endur- tók leikurinn sig, en þá var Mary Frances orðin heiladauð; útskýring Marybeth var sú að hún hefði komið að stúlkunni meðvitundarlausri. Jónatan fæðist og deyr Vart var búið að jarðsetja Mary Frances þegar Marybeth varð þung- uð. Þann 19. nóvember fæddist Jóna tan. Í mars 1980 birtist hún á St. Clare-sjúkrahúsinu með Jónatan meðvitundarlausan. Læknum tókst að koma honum til meðvitundar og í ljósi sögu Tinning-fjölskyldunn- ar var ákveðið að senda drenginn á sjúkrahús í Boston þar sem hann yrði rannsakaður gaumgæfilega. Læknar fundu ekkert athugavert og var Jónatan sendur heim. Jónatan dó 24. mars 1980, eftir að Marybeth hafði komið með hann öðru sinni á Clare-sjúkrahúsið, þá heiladauðan. Innan við ári síðar var röðin komin að Mikael, ættleiddum syni Tinning-hjónanna. Þann 2. mars 1981 kom Marybeth með Mikael, tveggja og hálfs árs, til barnalækn- is. Var Mikael vafinn í teppi og með- vitundarlaus. Mikael komst ekki til meðvitundar og dó þá og þar. En þar sem Mikael hafði verið ætt- leiddur var kastað fyrir róða þeirri kenningu sem hafði verið við lýði í langan tíma; að um væri að ræða arfgengan sjúkdóm innan fjölskyld- unnar. Grunsemdir vakna – loksins Þann 22. ágúst 1985 ól Marybeth Tami Lynne. Nágranni Marybeth, hjúkrunarkonan Cynthia Walter, fór með Marybeth í verslunarleið- angur í desember og kíkti við hjá henni eftir á. Það væri ekki í frásög- ur færandi nema vegna þess að um kvöldið hringdi Marybeth viti sínu fjær í Cynthiu og bað hana að koma hið snarasta. Þegar Cynthia kom til Marybeth var Tami Lynne með- vitundarlaus á skiptiborðinu og var hvorki að merkja andardrátt né púls. Tami var síðar úrskurðuð látin á bráðadeild. En nú voru farnar að renna tvær grímur á þá sem til þekktu og þrátt fyrir að hvergi hefði verið að sjá nokkuð tortryggilegt við dauða allra barna Tinning-hjónanna vakti það grunsemdir að Marybeth hafði ávallt verið ein með börnum sínum í aðdraganda dauða þeirra, eða við andlát þeirra. Við yfirheyrslur játaði Marybeth að hafa kæft til dauða þrjú barna sinna; Tami Lynne, Natan og Timo- thy. Hún neitaði að hafa skaðað hin börnin. Reyndar dró hún játningu sína síðar til baka, en var að lokum sakfelld fyrir eitt morð og dæmd til tvöfalds lífstíðarfangelsis. Talið er að hún hafi með gjörðum sínum ætlað að fá samúð annarra. Hún hefur ítrekað sótt um reynslulausn en ekki haft erindi sem erfiði. Næsta tækifæri sem hún fær til slíks verður árið 2013. n Marybeth Tinning afplánar 20 ára dóm fyrir morð á einu barna sinna n Innan við níutíu dagar liðu á milli dauða þriggja barna hennar n Átta dauðsföll, sakfelling fyrir eitt morð„Læknarnir vildu halda Barböru á sjúkrahúsinu yfir nótt en við það var ekki komandi því að Marybeth vildi fara með dóttur sína heim. Marybeth Tinning Myrti átta barna sinna en var dæmd fyrir eitt morð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.