Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2011, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2011, Blaðsíða 42
42 | Nærmynd 8.–10. apríl 2011 Helgarblað Sveinn Andri Sveinsson lögfræð­ ingur hefur varið marga hættuleg­ ustu menn landsins fyrir dómi og tel­ ur marga þeirra til vina sinna. Hann reyndi fyrir sér í stjórnmálum á sín­ um tíma en með afar lélegum árangri. Á skammvinnum stjórnmálaferli var hann ósköp venjulegur fjölskyldufað­ ir í þykkari kantinum. Löngu seinna skildi hann við eiginkonuna, fór í rækt­ ina, og fékk viðurnefnið stjörnulög­ fræðingur. Hann gekk inn í nýtt hlut­ verk kyntáknsins. Sveinn Andri hefur ævinlega verið umdeildur og gjarn­ an vakið upp hörð viðbrögð með um­ mælum sínum. Í vikunni kom hann svo flestum í opna skjöldu þegar hann upplýsti að hann ætti í ástarsambandi við 21 árs fyrirsætu. Þar með eignað­ ist hann tengdaföður sem er þremur árum yngri en hann. Ræðismaður sem talar hollensku Sveinn Andri gekk í Menntaskólann í Reykjavík áður en hann lauk lög­ fræðiprófi frá lagadeild Háskóla Ís­ lands. Hann lauk svo einnig prófi í hollensku fyrir útlendinga frá hol­ lenska háskólanum Universiteit te Leiden. Samhliða háskólanámi var hann blaðamaður á Morgunblaðinu í ritstjórnartíð Matthíasar Johannes­ sen og Styrmis Gunnarssonar. Hann er í dag meðeigandi Lögfræðistofu Reykjavíkur en hann hefur tekið að sér ýmis verkefni sem hafa vakið mikla at­ hygli fjölmiðla og almennings. Sveinn Andri hefur komið víða við en hann hefur tekið upp málstað ým­ issa einstaklinga – og þjóða. Hann er til að mynda ræðismaður Indónesíu hér á landi og segist hann vinna að því að örva viðskipti landsins við Ísland. „Hef ég verið í því að koma saman ís­ lenskum og indónesískum viðskipta­ mönnum; bæði á sviði jarðvarma og sjávarútvegs og kom ég mikið að und­ irbúningi tveggja ráðherra úr indó­ nesísku ríkisstjórninni; orkumálaráð­ herrans og sjávarútvegsráðherrans,“ sagði hann í samtali við DV í fyrra um hlutverk sitt sem ræðismaður. Hann er þar í hópi fólks á borð við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur, þingfréttaritara RÚV og ræðismanns Sviss, og Stef­ án Sigurð Guðjónsson, forstjóra John Lindsay og ræðismanns Bangladess. Þegar Sveinn Andri var skipaður ræð­ ismaður var ástæðan sögð að hann hefði þekkingu og reynslu af lagaum­ hverfi í Asíu. Endasleppur stjórnmálaferill Strax á háskólaárunum beitti Sveinn Andri sér í stjórnmálum en hann tók meðal annars þátt í starfi Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúdenta við há­ skólann, og gegndi fyrir félagið ýms­ um trúnaðarstörfum. Þá tók hann einnig þátt í starfi Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem og í starfi Sambands ungra sjálf­ stæðismanna. Sveinn Andri gekk svo skrefinu lengra þegar hann fór í framboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn fyrir borgarstjórnarkosningar árið 1990 þegar Davíð Oddsson, fyrrver­ andi borgarstjóri, forsætisráðherra og seðlabankastjóri, vann stórsigur með flokknum í borginni. Sveinn Andri settist eftir kosning­ arnar í sæti stjórnarformanns Strætis­ vagna Reykjavíkur. Sem stjórnarfor­ maður Strætó stýrði hann fyrirtækinu í gegnum mjög umdeildar breyting­ ar sem urðu að helsta deiluefni kjör­ tímabilsins. Það brambolt aflaði hon­ um lítilla vinsælda. Ekki er þó hægt að slá því föstu þó að líklegt þyki að vand­ ræðin hjá Strætó hafi komið í veg fyrir að hann næði brautargengi í prófkjöri sjálfstæðismanna fyrir næstu kosning­ ar á eftir, árið 1994. Í þeim kosningum vann Reykjavíkurlistinn, sameiginlegt framboð miðju­ og vinstriflokkanna í borginni, sigur og komst í hreinan meirihluta. Þetta markaði endalok stjórnmálaferils hans. Sveinn Andri hefur þó ekki yfirgef­ ið Sjálfstæðisflokkinn og er hann enn þann dag í dag yfirlýstur stuðnings­ maður flokksins. Hann hefur þó geng­ ið þvert á skoðanir Davíðs Oddssonar, sem leiddi flokkinn í borgarstjórnartíð Sveins, í ýmsum veigamiklum málum eins og málefnum sem tengjast Evr­ ópusambandinu og Icesave. Hann er einn öflugasti stuðningsmað­ ur Guðlaugs Þórs Þórðarsonar al­ þingismanns og hefur lýst sjálf­ um sér sem „fótgönguliða“ hans. Andstæðingar Guðlaugs innan flokks og utan hafa jafnframt orðið fjendur Sveins. Þeirra á meðal eru Bjarni Benediktsson formaður og Illugi Gunnarsson alþingismað­ ur sem bar sigurorð af Guðlaugi í hatrammri prófkjörsbaráttu um efsta sætið í Reykjavík. Metnaðarfullur knattspyrnu- félagsformaður Sveinn Andri er mikill knatt­ spyrnuaðdáandi og stuðnings­ maður enska úrvalsdeildarknatt­ spyrnuliðsins Manchester United. Hann hefur beitt sér í íslenskri knatt­ spyrnu en hann tók sæti í stjórn Knatt­ spyrnufélagsins Fram árið 1991 og varð formaður félagsins á tímabilinu 1994 til 2000 en hann er gallharð­ ur stuðningsmaður félagsins og hef­ ur kallað það „Safamýrarstórveldið“. Á formannstíma sínum í Fram gerði hann nokkrar breytingar en meðal þeirra var stofnun einkahlutafélags í kringum meistaraflokk liðsins í knatt­ spyrnu karla. Hlutafélagið var stofnað með góðri eiginfjárstöðu en það var komið í miklar skuldir á afskaplega skömmum tíma. Þá setti hann líka til hliðar hugmyndir fyrirrennara síns í formannsstóli félagsins um að færa starfsemi félagsins úr Safamýrinni austar í borgina. Meðal þeirra hug­ mynda sem Sveinn Andri hafði um svæði félagsins í Safamýrinni var að selja hluta lóðarinnar undir verslun­ armiðstöð þar sem hægt væri að hafa knattspyrnuleikvang á þakinu. Versl­ unarmiðstöðin Kringlan stendur á móti svæði Fram í Safamýrinni. Ekki vinsæll alls staðar Þó að Sveinn Andri eigi sér fjölda aðdáenda, eins og Facebook­síða hans sýnir glöggt, er hann umdeild­ ur. Hann hefur til að mynda nokkr­ um sinnum verið dæmdur brotlegur gagnvart siðareglum lögmanna. „Ég gerði þau mistök að fá Svein Andra Sveinsson til að verja mig. Maður­ inn er ekki beint sá liprasti í sam­ skiptum, erfitt að ná í hann og hann er sjaldnast tilbúinn eða með hlutina á hreinu,“ segir óánægður skjólstæð­ ingur á bloggsíðu sem sett var upp í þeim tilgangi að segja „sannleikann“ um Svein Andra sem lögmann. Á síð­ unni hefur verið tekin saman athyglis­ verð tölfræði sem sýnir glöggt að mál sem Sveinn Andri hefur farið með fyr­ ir dóm hafa í stærstum hluta tilvika tapast. Það gæti þó hugsanlega verið vegna þess hversu mörg opinber mál hann tekur að sér en mörg þeirra eru ekki líkleg til að vinnast fyrir dómstól­ um. Meðal þess sem kvartað hefur ver­ ið undan Sveini Andra af skjólstæð­ ingum hans er hversu erfitt sé að ná í hann og óundirbúinn málflutn­ ingur. „Frávísun. Verð í sambandi,“ sagði hann meðal annars í SMS­skila­ boðum sem fyrrverandi skjólstæðing­ ur hans segist hafa fengið frá honum. Sveinn segist hins vegar ekki hafa haft samband við hann. Eftir réttan hálfan mánuð hafi skjólstæðingurinn ítrek­ að reynt að ná sambandi við Svein og í það eina skipti sem það hafi tekist hafi hann sagst vera að skoða málið. Svo langan tíma hafi tekið fyrir Svein Andra að skoða málið að tveggja vikna kærufrestur á úrskurði héraðsdóms rann út. Sveinn Andri hefur þó sagt í viðtali við DV að hann sé í góðu sambandi við skjólstæðinga sína. Aðspurður um þá þekktu glæpamenn sem hann hefur varið, eins og Jón Trausta Lúth­ ersson, fyrrverandi leiðtoga mótor­ hjólaklúbbsins Fáfnis, sagði hann ein­ faldlega að margir þeirra væru góðir vinir hans. „Margir af þessum „saka­ mönnum“ eru mjög góðir vinir mín­ ir sem ég hitti reglulega. Lykilatriðið er að verjandi líti ekki á sig eins og hann sé hafinn yfir sakborning­ inn. Ég kem fram við fólk af virðingu og það kann að meta það. Ég les ekki yfir mönnum,“ sagði hann í viðtalinu. Grái fiðringurinn? Sveinn Andri er fjögurra barna faðir en hann eign­ aðist öll börnin með fyrr­ verandi eiginkonu sinni Erlu Árnadóttur. Henni var Sveinn Andri kvæntur í 14 ár en þau bjuggu saman í 17 ár. Eftir skilnaðinn grennt­ ist hann mikið. Þybbni fjöl­ skyldumaðurinn breyttist í vöðvastæltan fola. Hann varð meira áberandi í skemmtanalífi borgarinn­ ar og keypti sér hvítan sportbíl. Sveinn varð áberandi í samkvæmislífinu og kvennamál hans voru mikið rædd. Stjörnulögmaðurinn á hvíta sport­ bílnum uppskar í senn aðdáun og samúð þeirra sem fylgdust með um­ breytingunni. Í vikunni tilkynnti hann svo að hann eigi í ástarsambandi við fyrir­ sætuna Kristrúnu Ösp Barkardóttur sem lengi var í tygjum við fótbolta­ kappann Dwight Yorke, en Kristrún Ösp er 27 árum yngri en Sveinn Andri. Mikill áhugi fjölmiðla á sambandi þeirra tveggja hefur komið Sveini Andra í opna skjöldu en á Facebook setti hann inn eftirfarandi færslu: „er hissa á áhuga fjölmiðla á sambandi okkar Kristrúnar Aspar en það hlýt­ ur að vera vera út af henni en ekki mér [hjarta]. Þakka góðar kveðj­ ur í dag.“ Í viðtali við DV sagði Sveinn Andri að hann hefði leitað til læknis FjölskylduFaðirinn sem fékk sér sportbíl n Sveinn Andri Sveinsson skildi við konuna og léttist n Opinberaði samband sitt við fyrirsætuna Kristrúnu Ösp Barkardóttur í vikunni n Fór flatt á fjárfestingum í Decode Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Sexí-spinning Meðal þeirrar hreyfingar sem Sveinn Andri hefur sótt sér er sexí-spinning. MynD SKjáSKOt AF FAcEBOOK Grár fiðringur? Sveinn Andri skildi við eiginkonu sína, fór að hugsa um útlitið og er núna í sam- bandi með 27 árum yngri stúlku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.