Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2011, Page 14
14 | Fréttir 8.–10. apríl 2011 Helgarblað
n Þrjú endurskoðunarfyrirtæki og liðlega 20 endurskoðendur á vegum þeirra vottuðu heilbrigði ársreikninga bankanna og
stærstu hluthafanna síðustu árin fyrir bankahrun n Krafist er harðara eftirlits yfir endurskoðunarfyrirtækjunum í nýrri skýrslu
n Endurskoðunarfyrirtækin hlutu að vita um ofmat á eigin fé bankanna n Eiga yfir höfði sér málaferli og skaðabótakröfur
20 MANNS VOTTUÐU
HEILBRIGÐI BANKANNA
Herða þarf eftirlit með endurskoð-
endum, segir í tillögum nefndar sem
skilað hefur efnahags- og viðskipta-
ráðherra skýrslu um stöðu þeirra,
meðal annars í tengslum við banka-
hrunið. Nefndinni var falið að kynna
sér lagaumhverfi endurskoðenda
í nágrannaríkjum, umræðu á Evr-
ópuvettvangi og líklega þróun fram
undan. Áréttað var í skipunarbréfi
að í starfi sínu skyldi nefndin hafa til
hliðsjónar þau atriði sem betur hefðu
mátt fara í aðdraganda bankahruns-
ins, en í skýrslu rannsóknarnefnd-
ar Alþingis eru gerðar fjölmargar at-
hugasemdir við störf endurskoðenda
bankanna.
Skýrslan er samin af Sigurði Þórð-
arsyni, fyrrverandi ríkisendurskoð-
anda, Bjarnveigu Eiríksdóttur, for-
manni endurskoðendaráðs, Einari
Guðbjartssyni, dósent við Háskóla
Íslands og Lárusi Finnbogasyni end-
urskoðanda.
Vill herða að endurskoðendum
Nefndin leggur til að stofnað verði
fagráð sem verði efnahags- og við-
skiptaráðuneyti til halds og trausts
um þróun og nýjungar á sviði end-
urskoðunar. Lagt er til að samein-
uð verði verkefni sem tengjast öflun
upplýsinga og skráningu en þar má
nefna fyrirtækjaskrá, ársreikninga-
skrá og skráningu sem tengist end-
urskoðun. Nefndin vill að kannað
verði af hálfu ráðuneytisins hvort
innleiðing endurskoðunarstaðla sé
með fullnægjandi hætti og að í alla
staði verði fylgst betur með störfum
þeirra.
Stóru endurskoðunarfyrirtækin
PwC, KPMG, Deloitte og fleiri hafa
legið undir ámæli eftir bankahrunið
fyrir meinta vanrækslu. Gerð hefur
verið húsleit hjá tveimur þeirra og
þjónusta þeirra við bankana rann-
sökuð meðal annars af erlendum
sérfræðingum.
Málarekstur gegn endurskoð-
unarfyrirtækjum
Skilanefnd og slitastjórn Lands-
bankans lýstu því í tengslum við
kröfuhafafund 1. desember síðast-
liðinn að þær hygðust höfða skaða-
bótamál gegn PwC ( Pricewater-
house Coopers), endurskoðendum
Landsbankans. Tilkynnt var um ætl-
aða bótaskyldu vegna vanrækslu
við endurskoðun á reikningsskilum
bankans vegna ársins 2007 og vegna
áritunar árshlutareikninga 2008.
„Tekið skal fram að bréfum hefur
verið beint til þeirra sem skilanefnd
og slitastjórn telja að beri skaðabóta-
ábyrgð á tjóni sem orðið hefur vegna
framangreindra atvika þar sem byggt
er á upplýsingum sem liggja fyrir og
hafa m.a. komið út úr framangreindri
rannsókn,“ sagði í yfirlýsingu skila-
nefndar og slitatjórnar Landsbank-
ans. Samkvæmt heimildum DV er
skaðabótamál enn í undirbúningi.
Sömuleiðis er ekki loku fyrir það
skotið að sérstakur saksóknari höfði
mál á hendur endurskoðunarfyrir-
tækjum bankanna vegna vanrækslu.
Talsmenn PwC svöruðu fyrir sig í
desember síðastliðnum og sögðu að
uppgjör Landsbankans, hvort heldur
ársreikningur eða árshlutareikning-
ur, væri alfarið á ábyrgð bankaráðs
og stjórnenda bankans. Svo vill til að
PwC endurskoðaði einnig Glitni og
mótmæltu talsmenn endurskoðun-
arfyrirtækisins yfirleitt öllum ásök-
unum, frá sérstökum saksóknara,
skilanefndum og sérfræðingum sem
tjáðu sig um málið.
Snörp gagnrýni
Fyrir liggur þó að rannsóknarnefnd
Alþingis beindi mjög alvarlegri og
margvíslegri gagnrýni að endur-
skoðendum bankanna. Þeir hefðu
ekki sinnt skyldum sínum við end-
urskoðun reikningsskila bankanna
árið 2007 og á fyrri árshelmingi 2008
varðandi mat á virði útlána og fyrir-
greiðslu þeirra til kaupa á hlutabréf-
um í sjálfum sér. „Þannig hafi í reikn-
ingsskilum fyrirtækjanna eignir verið
ofmetnar og þar kunni að hafa skeik-
að hundruðum milljarða króna. Þá
taldi nefndin að skýrslugerð endur-
skoðenda hefði ekki verið í samræmi
við fyrirmæli í reglum fjármálaeftir-
litsins,“ eins og segir í nýju skýrslunni
til efnahags- og viðskiptaráðherra.
Í rauninni eru endurskoðunarfyrir-
tækin sökuð um að hafa látið und-
ir höfuð leggjast að gera vart við að
eigið fé bankanna var í raun og veru
falsað og líkast til langt undir lögleg-
um mörkum löngu fyrir bankahrun.
Rannsóknarnefnd Alþingis segir
berum orðum að fjárhagsárin 2004
til 2007 hafi ársreikningar bankanna
verið áritaðir án fyrirvara og því hljóti
endurskoðendur þeirra að hafa tal-
ið ársreikningana gefa glögga mynd
af afkomu þeirra. „Það er álit rann-
sóknarnefndarinnar að skort hafi á
að endurskoðendur sinntu nægilega
skyldum sínum við endurskoðun
reikningsskila fjármálafyrirtækjanna
árið 2007 og við hálfsársuppgjör
2008... Í þessu sambandi verður að
árétta að aðstæður höfðu á þessum
tíma þróast með þeim hætti að tilefni
var til þess að gefa þessum atriðum
sérstakan gaum,“ segir í skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis.
Hringdu ekki viðvörunarbjöllum
fyrir FME
Í lögum um fjármálafyrirtæki og í
reglum um endurskoðun fjármála-
fyrirtækja segir meðal annars að fái
endurskoðandi vitneskju um veru-
lega ágalla á rekstri eða atriði er
varða innra eftirlit, greiðslutryggingu
útlána eða önnur atriði sem veikt geti
fjárhagsstöðu viðkomandi banka eigi
hann að upplýsa bæði stjórn bank-
ans og Fjármálaeftirlitið um slíkt.
Við skýrslutöku hjá rannsóknar-
nefnd Alþingis voru endurskoðend-
ur fjármálafyrirtækjanna spurðir
hvort þeir hefðu upplýst Fjármála-
eftirlitið í samræmi við framan-
greind lagaákvæði. „Svör þeirra voru
öll á einn veg, að þeir hefðu aldrei
fram að falli bankanna komið slíkri
ábendingu á framfæri við Fjármála-
eftirlitið.“
Í bókinni Frá bankahruni til
byltingar ber Árni Mathiesen af sér
sakir og segist hafa verið blekktur.
„Eftirlitsaðilarnir gáfu okkur ranga
mynd af stöðunni, ekki vegna þess
að þeir væru að reyna að blekkja
okkur, heldur vegna þess væntan-
lega að þeir höfðu ekki heldur réttu
upplýsingarnar. Þá er ekki um ann-
að að ræða en að álykta sem svo að
bankarnir hafi blekkt. – Fyrir okkur
var ekki annað mögulegt en að taka
þessa mynd trúanlega sem dregin
var upp fyrir okkur.“ (bls. 180.)
Hið merkilega er að forsvars-
menn PwC báru af sér sakir með
svipuðum hætti þegar fram komu
upplýsingar um möguleg van-
rækslubrot fyrirtækisins og undir-
búning skaðabótamála gegn því af
hálfu slitastjórnar Landsbankans.
„Uppgjör Landsbankans hvort sem
er ársreikningur eða árshlutareikn-
ingur, eru alfarið á ábyrgð banka-
ráðs og stjórnenda bankans. Sú
ábyrgð er lögum samkvæmt.“
Með krosseignatengsl fyrir
augunum
Útilokað er að halda því fram að
endurskoðendum hafi ekki ver-
ið kunnugt um krosseignatengsl
og gríðarlegar lánveitingar, til að
mynda til Baugs, í öllum bönkunum.
Ljóst er að ýmsir fjármálagjörning-
ar, sem tengjast Exista, Gift, Gnúpi,
Al-Thani, Þætti International, höfðu
ýmist það markmið að falsa hluta-
bréfaverðið í bönkunum sjálfum
eða voru til þess fallnir að auka stór-
lega áhættu bankanna sjálfra. DV
hefur meðal annars sagt frá liðlega
4 milljarða króna láni Kaupþings
til Giftar án nokkurra veða, en lán-
ið var hluti af meira en 20 milljarða
króna láni sem varið var til kaupa á
hlutabréfum í Kaupþingi.
Jóhann Hauksson
blaðamaður skrifar johann@dv.is
Hversu óháðir viðskipta-
vinum sínum? KPMG endur-
skoðaði og vottaði trúverðugleika
ársreikninga Kaupþings, Icebank,
SPRON, Straums, Byrs, Stoða,
Baugs, Eimskips, Milestone og
Sjóvár svo nokkur þekkt nöfn
hrunsins séu nefnd.
Úr skýrslu nefndar um
málefni endurskoðenda:
„Meginmarkmið með endurskoðun ársreikninga
og setningu laga um endurskoðendur er að tryggja
áreiðanleika ársreikninga, efla traust milli þeirra sem
leggja fram ársreikning og lesenda þeirra. Hluthafar,
kröfuhafar og viðskiptavinir félaga hafa ríka hagsmuni
af því að ársreikningar sem áritaðir eru af endurskoð-
endum séu trúverðugir og réttir. Hinu opinbera er
mikilvægt að geta treyst að upplýsingar séu réttar við
að gæta almannahagsmuna.“