Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2011, Qupperneq 18
18 | Fréttir 8.–10. apríl 2011 Helgarblað
Tölvuleikjaframleiðandinn CCP er
að stærstum hluta í eigu eignarhalds-
félaga sem skráð eru í Lúxemborg,
á Caymaneyjum eða í Road Town
á Tortóla sem tilheyrir Bresku Jóm-
frúaeyjum. Segja má að um 430 millj-
ónir króna af nærri 800 milljóna króna
hagnaði CCP árið 2009 hafi farið til
félaga í skattaparadísum. Ekki liggur
ljóst fyrir hvernig afkoma CCP var á
árinu 2010.
Fjárfestirinn Björgólfur Thor Björg-
ólfsson er stærsti hluthafinn í CCP í
gegnum eignarhaldsfélagið NP sem
fer með 30,5 prósenta hlut í félaginu.
Fjárfestingarfélagið Novator fer síðan
með 55 prósenta hlut í NP og félagið
Novator Telecom Poland á 45 prósent í
NP. Fjárfestingarfélagið Novator er síð-
an alfarið í eigu móðurfélagsins Bee-
TeeBee Ltd. sem skráð er í Road Town
á Tortóla sem tilheyrir Bresku Jóm-
frúaeyjum. Novator Telecom Poland
er skráð í Lúxemborg og er alfarið í
eigu Novator One-sjóðsins sem skráð-
ur er á Caymaneyjum.
Hóf að fjárfesta í CCP árið 2006
Í byrjun árs 2006 keypti fjárfest-
ingarfélagið Novator 38 prósenta
eignarhlut fjárfestingarbankans
Straums-Burðaráss (Straums) í CCP.
Átti Straumur hlutinn í gegnum
dóttur félag sitt sem heitir Brú Ven-
ture Capital. Er talið að kaupverð-
ið hafi numið 565 milljónum króna.
Samkvæmt heimildum DV var það
Sigurður Ólafsson, náinn vinur
Björgólfs Thors og núverandi stjórn-
armaður í CCP, sem kveikti áhuga
hans á félaginu. Sigurður var á sínum
tíma markaðsstjóri CCP og einn af
lykilstarfsmönnum félagsins. Auk
þess að sitja nú í stjórn CCP er Sig-
urður stjórnarformaður eignarhalds-
félagsins NP sem fer með stærstan
hlut í CCP.
Skömmu eftir að eignarhalds-
félagið NP hafði keypt 38 prósenta
hlut Straums í CCP keypti Novator
One LP sjóðurinn, sem skráður er
á Caymaneyjum, hlutinn. Sjóðnum
var stýrt af Novator Partners, félagi
í eigu Björgólfs Thors, þrátt fyrir að
sjóðurinn væri alfarið í eigu Straums.
Þar að auki þáði félag Björgólfs Thors
árlega tveggja prósenta umsýslu-
þóknun úr sjóðnum auk þess að taka
20 prósent af hagnaði hans.
Vilhjálmur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka fjárfesta
gagnrýndi þetta samkomulag í við-
tali við Morgunblaðið árið 2009:
„Þetta er bara enn eitt dæmið um
hvernig tengdir aðilar skara eld að
sinni köku og reyna að ná sér í aðeins
meira en þeim ber.“
Þess skal auk þess getið að Nova-
tor Partners, félag Björgólfs Thors,
fær enn greitt fyrir að reka Nova-
tor One LP sjóðinn sem nú er í eigu
skilanefndar Straums. Fullyrti frétta-
stofa Stöðvar 2 í október síðastliðn-
um að Björgólfur Thor fengi enn
hundruð milljóna króna árlega fyrir
að reka eignir Straums.
Óskiljanleg flétta fyrir Straum
Ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna
Straumur samþykkti þessa viðskipta-
fléttu. Á þeim tíma sem bankinn
seldi hlut sinn var rekstur CCP far-
inn að ganga mjög vel og hefur dafn-
að enn frekar frá þeim tíma. Hag-
stæðara hefði verið fyrir bankann að
halda áfram utan um hlut sinn í CCP,
í stað þess að selja hann fyrst til eign-
arhaldsfélagsins NP og síðar að sam-
þykkja að fara með hlutinn inn í sér-
stakan sjóð sem félag Björgólfs Thors
fékk þóknun úr.
Árið 2009 tók Novator Telecom
Poland síðan yfir 45 prósenta hlut
Novator One sjóðanna í eignarhalds-
félaginu NP. „Um endurskipulagn-
ingu innanhúss var að ræða, en eng-
in breyting varð á eignarhaldi,“ segir
Ragnhildur Sverrisdóttir, talsmað-
ur Novator, í svari við fyrirspurn DV
um málið. Novator Telecom Poland
er alfarið í eigu Novator One sjóðs-
ins og fær félag Björgólfs Thors enn
greitt fyrir að halda utan um þennan
hlut eins og áður kom fram.
Hlutur Björgólfs Thors talinn
hafa tólffaldast
Markaðsverðmæti CCP er talið hafa
verið í kringum 1.500 milljónir króna
í upphafi árs 2006 þegar Björgólfur
Thor hóf að fjárfesta í félaginu. Er
það miðað við að Brú Venture Capi-
tal hafi fengið 565 milljónir króna
fyrir 38 prósenta hlut sinn í CCP.
Markaðsverðmæti tölvuleikjafram-
leiðandans er talið hafa tólffaldast
frá árinu 2006. Í dag er CCP metið á
um 18 milljarða króna. Er þá miðað
við nýlegt hlutabréfaútboð þar sem
hver hlutur var seldur á 18 dollara,
eða um 2.300 krónur.
4 milljarða hagnaður
Ef miðað er við að fjárfestingar-
félagið Novator hafi keypt hlut sinn
í CCP á 314 milljónir króna árið
2006 og hann hafi síðan þá tólffald-
ast er verðmæti hans 3,8 milljarð-
ar króna í dag. Hagnaður Novator
af þessum hlut er því um 3,5 millj-
arðar króna á einungis fimm árum.
Auk þess má áætla að Björgólfur
Thor hafi fengið nærri 565 milljón-
ir króna í þóknun frá Novator One
vegna hagnaðar sjóðsins af hlut sín-
um í CCP. Er það miðað við að hlut-
ur sjóðsins sem nú er í eigu Nova-
tor Telecom Poland hafi hækkað
úr 254 milljónum króna árið 2006 í
rúmlega þrjá milljarða króna í dag.
Samkvæmt samkomulagi við sjóð-
inn fékk félag í eigu Björgólfs Thors
fimmtung af hagnaði hans. Því má
áætla að samanlagður hagnaður
Björgólfs Thors af fjárfestingu sinni
í CCP nemi um fjórum milljörðum
króna.
Bandaríski hluthafinn skráður í
Lúxemborg
Næststærsti hluthafinn í CCP er
félagið Teno Investments Sarl.,
sem er í eigu bandaríska fjár-
festingarsjóðsins General Cata-
lyst Partners, en er skráð í Lúx-
Hagnaður CCP 2009: 778 milljónir króna
Félög: Staðsetning Hlutur í CCP Hluti af hagnaði
BeeTeeBee Ltd. Tortóla 16,7% 130 milljónir
Novator One Caymaneyjar 13,7% 107 milljónir
Teno Investment Lúxemborg 23,9% 186 milljónir
Samtals: 54,4% 423 milljónir
Hvert fer hagnaðurinn af CCP?Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
n Helmingur hagnaðar CCP fer til félaga sem skráð eru í Lúxemborg, á Caymaneyjum eða Tortóla n Björg-
ólfur Thor hefur hagnast um 4 milljarða á CCP frá 2006 n Undarleg sala Straums á hlut í CCP árið 2006
gróði ccp til tOrtólA
„Árið 2009 skilaði
félagið nærri 800
milljóna króna hagnaði ef
miðað er við gengi dollars
gagnvart krónunni í lok
árs 2009.
4 milljarða hagnaður af CCP Talið er að Björgólfur
Thor Björgólfsson hafi hagnast um fjóra milljarða króna
á fjárfestingu sinni í CCP. Hefur markaðsverðmæti
hlutar hans í tölvuleikjafyrirtækinu tólffaldast frá því
að hann hóf að fjárfesta í CCP árið 2006.