Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2011, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2011, Qupperneq 34
34 | Viðtal 8.–10. apríl 2011 Helgarblað Þetta eru staðreyndir sem eru komnar fram í dagsljós- ið. Kreppan er hér eins og á Íslandi. Í skóla mið-dótt- ur minnar eru til dæmis 90% nemenda með matarmiða.“ Hann segir kostina þó fleiri. Eftir að þau fluttust út hafi fjölskyldulífið blómstr- að. Þau verji meiri gæðatíma saman, menningin í Kali- forníu ýti undir það og vel sé fylgst með öryggi og velferð barna. „Hér er mikið eftirlit með börnum í skólum og ekki síður foreldrum og heimilis- aðstæðum. Ef þú ert of seinn með barnið í skólann færðu símtal klukkan korter yfir átta þar sem þú ert beðinn um að útskýra ástæður þess. Þetta er rétt afstaða. Börn eiga ekki að líða fyrir vanrækslu foreldra.“ Ekki sá auðveldasti að búa með Stefán Karl og Steinunn Ólína eiga fimm ára brúðkaups- afmæli á þessu ári. Þau eru að sögn vina og vandamanna afar náin og samheldin. Bæði þykja þau vera orkumikl- ir hugmyndasmiðir. Þegar þau kynntust voru þau fljót að bindast tryggðarböndum og stofna fjölskyldu. „Það var bara ekkert verið að tvínóna við þetta,“ segir Stefán Karl. „Og engin ástæða til. Við erum mjög samheldin og mjög góð- ir vinir. Við erum liðsfélag- ar og vinnum vel saman. Við göngum í gegnum súrt og sætt eins og aðrir. Maður er allt- af að heyra af fólki sem skil- ur þegar það á í erfiðleikum og mér þykir það alltaf jafn miður. Fólk verður að átta sig á því að hjónabandið er gert fyrir góðar stundir jafnt sem slæmar. Það er ekkert betra en að eiga góðan maka eins og Steinu. Ég er heldur ekki sá auðveldasti að búa með, það er full ástæða til þess að þakka henni fyrir á fimm ára brúð- kaupsafmælinu!“ Getur ekki lifað án Steinu Beðinn um að lýsa því hvern- ig hann sé ómögulegur í sam- búð segist hann helst skrifa það á það hversu mikla óbeisl- aða orku hann hafi. Hann geti hreinlega reynt á taugar þeirra sem næst standa. „Ég er bæði orkumikill og hugmyndaríkur en það er Steina líka. Okkur er best lýst þannig að við förum á flug oft á dag og ætlum að sigra allan heiminn en liggja á ströndinni á morgun,“ út- skýrir hann. „Ég bara veit ekk- ert skemmtilegra en að vera með Steinu og get ekkert lifað án hennar. Ég myndi bara vera „dysfunctional“ án hennar.“ Ekki á leið í Angelinu- og Brad-pakkann Það stendur ekki til að fjölga frekar á heimilinu og Stefán Karl segist ekki halda að þau Steinunn Ólína séu á leið í Angelinu- og Brad-pakkann. „Þetta er eins og einn vinur okkar benti okkur á: Ef þið eignist eitt barn í viðbót getið þið sótt um löggildingu sem leikskóli.“ Það fer þeim hjónum vel að eiga mörg börn og for- eldrahlutverkið er þeim hug- leikið. Stefán Karl hefur í mörg ár unnið að velferð barna og mörgum er hugstætt þegar hann skar upp herör gegn ein- elti á Íslandi. Regnbogabörn eru enn starfrækt og í virkri baráttu gegn einelti en samtökin stofnaði Stefán Karl fyrir eigið fé og að eigin frumkvæði. „Við verðum 10 ára á næsta ári og Valgeir Skagfjörð sinnir for- mennsku. Hann er stöðugt á fartinni út um allt og við erum að fara í ýmisleg skemmtileg og gagnleg verkefni á þessu ári og afmælisárinu 2012. Fræðsl- an má aldrei hætta, hún verð- ur að vera lifandi, regluleg og markviss því samfélag barna getur verið miskunnarlaust og börn viðkvæm.“ Auddi og Sveppi ekkert endilega vondir Hann fylgist með umræðunni og segist hafa tekið eftir um- fjöllun DV um einelti síð- ustu vikur og málefni barna í grunnskólum landsins. Hann tók líka eftir því þegar þeir Sveppi og Auddi gengu langt yfir öll mörk í skemmtiþætti sínum þegar þeir réðust að Einari Bárðarsyni. „Svona gerum við ekki. Svo einfalt er það. Mér finnst reyndar gott að þetta kom upp. Auddi og Sveppi eru ekkert endilega vondir og smekklausir asnar, þeir eru einfaldlega á laun- um við það að vera fyndnir en tekst það ekki alltaf, það er eðlilegt. Það skiptir miklu máli hvernig samfélagið bregst við þegar svona kemur upp. Hvort það er skrifað um einelti, haldnir fyrirlestrar og atvik eins og þetta hjá Sveppa og Audda eru gagnrýnd.“ Hitti börn með dauðaósk Sjálfur hélt Stefán Karl mörg hundruð fyrirlestra um ein- elti og félagsmál barna og unglinga í skólum landsins og sótti í eigin reynslu. Hann segist á þessum tíma oft hafa orðið vitni að því hvaða áhrif einelti getur haft og oft verið kvaddur til og beðinn um að hjálpa börnum og unglingum í neyð. „Það sem mér fannst hræðilegast að upplifa var að hitta börn sem voru haldin dauðaósk. Börn sem sáu ekki fram úr vandanum vegna van- líðanar og vildu bara deyja. Enn hræðilegra var að horfa upp á fullorðið fólk í kringum þessi börn standa hjá og gera ekkert. Hvort sem um var að ræða foreldra gerenda eða barnanna sjálfra eða fullorð- ið fólk í ábyrgðarstöðum sem varða velferð barna. Ég hef oft verið kallaður til vegna barna sem vilja deyja vegna einelt- is og ástandið er hryllilegt að mínu mati.“ Færð ekki greiðslufrest hjá börnunum „Ef einelti er sjúkdómur, þá mætti segja að það sé eng- in lækning til. Einelti verður alltaf til staðar en það sem við getum breytt er okkar við- horf, viðbrögð og samfélags- leg sýn. Hvernig við styrkjum einstaklinginn. Við vinnum líka of mikið og eyðum ekki nægjanlegum tíma í börnin. Svo þegar kemur kreppa þá skerum við fyrst niður í starfi með börnum. Við skuldum unga fólkinu mjög mikla at- hygli. Við höfum safnað upp skuldum gagnvart börnun- um okkar. Þú færð ekki sama greiðslufrest hjá þeim og bönkunum.“ Það er von En Stefán Karl sá ekki eingöngu dökkar hliðar samfélagsins þegar hann sinnti þessum málaflokki. Hann fékk líka að kynnast starfi skólastjórn enda og foreldra sem vakti með honum von. „Mér finnst eftir- minnilegast að kynnast því góða starfi sem unnið var í Ár- túnsskóla þegar Ellert Borgar var þar skólastjóri. Þegar ég kom þar inn hugsaði ég í fyrsta skipti: Þetta er hægt. Það er von. Og það er alveg rétt, það er alltaf von og þess vegna er tilgangur með starfi samtaka eins og Regnbogabarna.“ Lenti í einelti og lagði í einelti Stefán Karl lenti í einelti og lagði í einelti sjálfur. „Mér var strítt með því að ég væri með stór eyru, eins fór mikið fyr- ir mér og það fór í taugarnar á vissum hópi. Ég forðaðist þann hóp sem átti það til að taka í lurginn á mér. Ég brást svo við eineltinu með því að taka það út á öðrum og nýdd- ist óspart á mér minnimáttar. Einelti er svo hrikalegt og börn og unglingar verða að skilja að slæmar gjörðir hafa slæmar afleiðingar, afleiðing- ar sem geta fylgt manni allt fram í andlátið ef ekkert er að gert. Einhver segir: Sigga, þú ert með svo lítil brjóst. Það er skelfilegt að heyra þegar maður er 12–13 ára og þær hafa mikil áhrif á sálarlífið, líkamlegar og andlegar að- finnslur, þegar við erum að taka út mikilvægan þroska. Svo verður þetta eitthvert grín sem fleiri og fleiri taka þátt í. Á endanum vill hún ekki mæta í skóla, einangrast og svo finnum við hana úti í bílskúr í snörunni.“ Gerði of miklar kröfur til barna Stefán segist meðvitaður um eigin reynslu af einelti í upp- eldi barna sinna. Þegar hann hélt fyrirlestra um einelti átti hann ekki börn. Hann segist sjá það núna að ýmislegt sem hann gerði kröfur um í fari barna hafi verið óraunsætt. „Nú á ég fjögur börn og sé hvað ég sagði rangt og hvað ég sagði rétt. Það er ýmislegt sem börn geta ekki uppfyllt sem ég gerði kröfur um. Ég er ekk- ert öðruvísi en aðrir foreldrar og vil alltaf gera betur. Ég er að mörgu leyti skilningsríkari í dag vegna þess að ég er for- eldri. Foreldrar verða að vita að það eru engin vandamál, það eru bara lausnir.“ Hálfgerðir sígaunar Aðspurður hvort eða hvenær hann sjái fyrir sér að fjölskyld- an snúi heim á ný segist hann ekki sjá það fyrir sér í nánustu framtíð. „Við erum náttúrulega hálfgerðir sígaunar en okkur líður vel hér þegar vel geng- ur. Við þurfum aldrei að setja í axlirnar og skafa framrúðuna í kulda og snjóbyl. Við get- um farið í náttfötunum út í bíl að keyra börnin í skólann og þurfum meira að segja að setja kuldann á. Það tek- ur okkur tvær klukkustund- ir að ferðast til að fara á skíði og 30 mínútur að fara niður á strönd. Það er algerlega ynd- islegt. Við eyðum mjög mikl- um tíma saman, fjölskyldan. Það er ómetanlegt og eitt af því sem breyttist við að flytja út og við kunnum öll að meta. En vissulega söknum við margs heima og þá sérstak- lega vina og fjölskyldu sem þó eru mun duglegri við að heimsækja okkur en við þau.“ kristjana@dv.is „Ég bara veit ekkert skemmtilegra en að vera með Steinu og get ekkert lifað án hennar. „Það sem mér fannst hræðilegast að upplifa var að hitta börn sem voru haldin dauðaósk. Getur ekki án Steinu verið – þakkar henni fyrir að þola sig Þeim Stefáni Karli og Steinunni, eða Steinu eins og Stefán Karl kallar hana, líður vel í Kaliforníu. Hann segist ekki geta verið án hennar og þakkar henni fyrir að þola hann á fimm ára brúðkaupsafmæli þeirra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.