Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2011, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2011, Side 46
Á gamla Íslandi tíðkaðist löngum að gera hreint fyrir jól og á vorin en þá var allt heimilið hreinsað hátt og lágt, frá lofti niður í gólflista og ekkert undan skilið. Margrét Gústavsdóttir kom að máli við skólastjóra Hússtjórnarskólans í Reykjavík, Margréti Dórótheu Sigfúsdóttur, og fékk hjá henni góð ráð fyrir vorhreingerninguna miklu en Margrét er hafsjór af fróðleik og þekkingu þegar kemur að heimilishaldi og þrifum: „Í gamla daga áttu íslenskar húsmæður alltaf þrjú sett af gardínum; jólagardínur og vetrar- og sumargardínur sem voru hengdar upp eftir vorhreingerninguna. Vetrargardín- urnar voru oft þykkar en þá var yfirleitt ein- falt gler í húsum. Ég man einmitt hvað manni fannst alltaf gaman að horfa á frostrósirnar sem mynduðust í kuldanum,“ segir Margrét og útskýrir að þessar sérlegu vetrargardínur hafi jafnframt verið notaðar til að einangra hitann inni í húsunum. „Jólagardínurnar voru spari- gardínur, hengdar upp eftir jólahreingerningu og sumargardínur voru léttar og bjartar og hengdar upp í lok apríl eða í byrjun maí.“ Sérfræðingar í þrifum segja mars og apríl afar hentuga mánuði til hreingerninga á hí- býlum en þá er orðið nægilega hlýtt til að hægt sé að opna allt upp á gátt án þess að fá skor- dýrin inn og vorvindarnir blása í burtu ryki og óhreinindum. Margrét segir það til siðs að viðra sæng- ur þegar skipt er á rúmum en hún segir fólk gera minna af þessu í dag en áður og þykir það miður. „Það er svo lítið mál að viðra sængurnar. Bara henda þeim út á svalir þegar verið er að skipta á rúmum og leyfa loftinu að leika um þær. Þetta er bæði gott á sumrin og veturna. Sérstaklega fínt á veturna þegar frost er úti. Þá er hægt að vera viss um að allt kvikt drepst ef það er eitthvað líf í sænginni á annað borð. Svo er líka gott að láta sólina skína á sængina. Það var allt hreinsað og dustað hér áður en nú er það hending að fólk viðri sængurnar sínar,“ segir Margrét og bætir við henni finnist hún ekki hafa skipt á rúminu ef sængurnar séu ekki viðraðar í leiðinni. Í vorhreingerningu er allt heimilið þrifið, bæði fastur og laus húsbúnaður, veggir, hólf og gólf. Gólflistar eru hreinsaðir og gólfin bónuð ef það eru ekki teppi út í horn. Margrét segir að ryksugur í gamla daga hafi ekki verið eins öfl- ugar og í dag en því betri urðu þrifin stundum. „Það var skúrað með tusku, sápuvatni og hreinu vatni. Tuskan undin og skoluð á milli lota og svo var farið aftur yfir gólfið og skúr- að út í horn. Í dag er þessu oft ábótavant því moppurnar ná ekki í hornin. Hér áður voru heldur ekki til þessi hreinsiefni sem við höf- um í dag og í staðinn var notuð stangarsápa, grænsápa eða blautsápa, sem er það sama. Það er náttúruleg fita í þessum sápum og því eyðir hún ekki upp málningu eins og gjarna vill verða með nýju efnin sem stundum eru hreinlega of sterk. Það er alveg nóg að nota grænsápu á veggina (einn desilítri á móti tíu lítrum) og íbúðin verður eins og nýmáluð á eftir. Í eldhúsi og baðherbergjum er samt í lagi að hafa sápulöginn nokkuð sterkari og muna að skola vel af með hreinu vatni. Moppa er góð í svona veggþrif en sjálfri finnst mér líka gott að nota gömul handklæði og vefja utan um skúringakúst eða skrúbb af gömlu gerð- inni. Það á aldrei að henda gömlum hand- klæðum, þau eru svo einstaklega góð í þrif,“ segir guðmóðir íslenskra húsmæðra að lok- um. margret@dv.is allsherjarhreingerningu Vorinu tekið fagnandi með 46 | Lífsstíll 8.–10. apríl 2011 Helgarblað SVEFNHERBERGIÐ Byrjið á að þrífa loftið með blöndu af grænsápu og heitu vatni og hreinu vatni á eftir svo eru veggirnir þrifnir með sama hætti. Því næst eru fataskáparnir tæmdir. Það sem hangir uppi er hengt á herðatrjám út á snúru og svo eru skáparnir þrifnir að innan með sápuvatni. Gott er að nota tækifærið og flokka fötin í leiðinni. Pakka niður þykkum peysum og yfirhöfnum og setja í geymslu til haustsins. Það veitir ekkert af skápaplássinu á flestum heimilum. Glerin í gluggunum eru þrifin með blöndu af borð- ediki og vatni (einn á móti tuttugu) og glerið er þrifið með fíberklút. Borðedikið er ódýrt, vistvænt og mjög árangursríkt í þrifum. Rúðan verður eins og ný. Svefnherbergisþrifin enda með því að gólfið er þrifið og hurðirnar eru hreinsaðar í leiðinni. Gætið að því að láta tuskuna ekki slást í gólflistana. Við parketþrif er best að nota örlítið af uppþvottalegi eða grænsápu í volgt vatn og óþarfi er að hreinsa á eftir með hreinu vatni. Leikföng barnanna verða oft mjög skítug en mikið af þeim er hægt að setja í þvottavél og þurrkarann á eftir. Plastleikföng og kubba er oft hægt að setja í sérlegum þvottapoka (úr neti) í uppþvottavélina eða þvo í vaskafati eða sturtubotni. Passa bara að ekkert vatn verði eftir inni í leikföngunum því þvottaefnið sem notað er í uppþvottavélar er mjög skaðlegt. Árstíðabundnar hrein- gerningar hafa verið til siðs hjá mörgum þjóðum og oft eru trúarlegar ástæður sem liggja að baki. Gyðingar meðal annarra hafa til að mynda þrifið allt hátt og lágt fyrir páska en yfir sjálfa hátíðina er lífinu tekið með stakri ró. STOFAN Loft, veggir og gólf stofunnar eru þrifin með sama hætti og svefnherbergið. Kristall, postulín og aðrir skrautmunir eru þrifnir með mildu sápuvatni, þurrkað af myndarömmum, bókahillur eru ryksugaðar og aðrir skrautmunir fara í uppþvottavélina ef þeir þola það. Á húsgögnin er gott að bera mublubón en athugið að tekkolía má aldrei fara á póleraðan við. Mublubón er með sérstöku bývaxi sem er ætlað að verja viðinn. Á óvarinn við er gott að nota línolíu eða matarolíu. Óvarinn við má hreinsa með því að hella á hann olíu og nudda svo með stálull númer 00. Hún fæst í byggingavöruverslunum. Eftir að óhreinindin hafa verið hreinsuð upp er borðið þurrkað með rökum klút og svo er matar- eða línolían borin á aftur og það sem ekki gengur inn í viðinn er þurrkað með hreinum klút. Svona verður viðurinn alltaf fallegur og fínn. Viðrið gluggatjöld og hreinsið ljós og ljósakrónur. BAÐHERBERGIÐ Það er langbest að hafa málaða fleti á baðherbergi lakkaða eða í háglansmálningu. Svoleiðis verður auðveldara að þrífa þá, það munar svakalega miklu. Þá er hægt að nota sterkt sápuvatn og allt verður eins og nýtt á eftir. Sturtuklefa á alltaf að hreinsa jafnóðum svo að ekki safnist á þá kísill og kalk en til að ná þessu af er gott að nota ræstiduft á grófum svampi. Sérstök efni til að þrífa kísil og kalk á baðherbergjum geta líka verið góð en þau fást í mörgum verslunum. Þá er efninu úðað tvisvar eða þrisvar á klefann og látið liggja þar til óhreinindin eru hreinsuð burt með grófum svampi og svo skolað burt með köldu vatni. Annars á að skikka allt heimilisfólk til að skola sturtuklefann með köldu vatni eftir hverja notkun til að fjarlægja kalkið og það á alltaf að nota sköfu. Klósettið má meðal annars þrífa með kóka kóla en það leysir upp hlandsteininn líkt og glerunginn. Þá er kókinu bara hellt í klósettskálina og látið liggja yfir nótt. Baðvaskur- inn er svo þrifinn á tveggja daga fresti með grófum svampi og ræstikremi þannig að hann sleppur við allsherjarþrifin. ELDHÚSIÐ Eldhúsið tekur lengstan tíma að þrífa enda þarf að tæma alla skápa, flokka og hreinsa, tæma skúffur, þrífa loft, veggi og innréttingar. Gott er að raða aftur í eldhússkáp- ana út frá því hvað sé mest eða minnst notað og einnig er mikilvægt að hafa réttu matarílátin undir t.d. hveiti, sykur og annað. Munið að draga fram ísskápinn og þrífa á bak við hann og ryksuga hann að aftan. ANNAÐ Þvottavél og þurrkara á að hreinsa reglulega. Þrífa hólfin og gúmmíið og fjarlægja ryk og óhreinindi. Annars verður þvotturinn bæði illa lyktandi og undarlegur á litinn. Það þarf líka að muna að sjóða handklæði, viskustykki og þess háttar reglulega í vélunum því annars myndast í þeim sveppir og fýla. Fólk er oft ekki að þvo neitt nema á 30–40 gráðum og mest 60. Það þarf að sjóða reglulega í þvottavélinni bæði til að halda vélinni hreinni og fötunum. Heilræði Margrétar Dórótheu um hvernig best sé að bera sig að við vorhreingerninguna miklu: Margrét Sigfúsdóttir Kennir lesendum öll helstu trixin þegar kemur að vorhreingerningunni. Mynd Sigtryggur ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.