Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2011, Qupperneq 54
54 | Sport 8.–10. apríl 2011 Helgarblað
Mót númer tvö á keppnistímabilinu
í Formúlu 1 fer fram á sunnudaginn
en þá verður ekið af stað á Sepang-
brautinni í Malasíu. Flestir spekingar
búast við öruggum sigri Sebastians
Vettel því brautin í Malasíu er sögð
sýna raungetu bílanna. Bæði er hit-
inn svo mikill og brautin þannig gerð,
með tveimur löngum köflum og erf-
iðum beygjum, að það kemur í ljós
hver er með besta gripið og niður-
togið. Einnig hjálpar hitinn mikið til
við að sýna hvaða bíll er bestur því í
miklum hita slitna dekkin fyrr og er
það þá undir hönnun bílsins komið
hvernig þau slitna. Red Bull-bíllinn
er sá langbesti í Formúlu 1 alveg eins
og í fyrra og gæti heimsmeistarinn Se-
bastian Vettel undirstrikað yfirburði
sína og þessa magnaða bíls með sigri
á sunnudaginn.
Berja af sér stóru fyrirsagnirnar
Red Bull er ríkjandi heimsmeistari
bílasmiða og Sebastian Vettel ríkjandi
heimsmeistari. Allir spekingar segja
liðið vera með langbesta bílinn sem
sannaðist í fyrstu keppni ársins þar
sem Vettel var algjörlega ósnertan-
legur. Er Formúlumótið í ár nú þeg-
ar orðið eltingaleikur við Þjóðverj-
ann unga. Í herbúðum Red Bull eru
menn þó mjög hræddir við stríðsfyr-
irsagnir stóru blaðanna og þær full-
yrðingar að titillinn sé þeirra að tapa.
„Það eru fimm fyrrverandi heims-
meistarar á ráslínunni í hverri
keppni. Ég hef engan rétt á því að af-
skrifa þá þótt mér hafi gengið vel að
undanförnu,“ segir heimsmeistarinn
Sebastian Vettel. „Ég held að fleiri
bílar en okkar muni sanna gildi sitt í
Malasíu sem er svo sannarlega fyrsta
alvörubrautin. Ástralía er fín en það
er svona hálfgerð götubraut og þar
rignir oft. Sepang-brautin býður upp
á allt það sem góð braut á að hafa.
Í fjórtándu beygju þarf að bremsa
þegar ennþá er verið að taka beygj-
una inn í hornið. Það er ótrúlega erf-
itt. Þetta verður frábær keppni. Ég
ætla mér auðvitað að vinna og hef
trú á því að ég geti það. En mér dett-
ur ekki til hugar að taka þátt í þessum
leik sem verið er að búa til,“ segir Se-
bastian Vettel.
Vettel stingur ekki af
Breska formúlugoðsögnin Damon
Hill sem varð heimsmeistari árið
1996 tekur ekki undir þau orð að
Sebastian Vettel muni stinga alla af
í stigakeppninni. Hann hefur mikla
trú á að mótið verði spennandi, alveg
eins og í fyrra þar sem úrslitin réðust
ekki fyrr en í lokakeppninni. Þvert á
móti öllum fallegu orðunum um Red
Bull telur heimsmeistarinn fyrrver-
andi að Ferrari og McLaren hafi mun
meira svigrúm til að bæta bíla sína og
gera þá hraðskreiðari, frekar en Red
Bull. Honum fannst byrjun Ferrari
þó ekki góð.
„Ég hélt að Ferrari myndi veita
meiri keppni í Ástralíu. En aftur
á móti kom mér virkilega á óvart
hversu vel McLaren gerði miðað
við hversu skelfilegt undirbúnings-
tímabilið var þar. McLaren-bíllinn er
bara í fínu standi virðist vera og ekki
langt á eftir Red Bull. Þeir eiga eftir
að vinna á eftir því sem á líður,“ segir
Damon Hill sem er ekki á því að Vet-
tel muni rúlla yfir keppinautana.
„Ég sé ekki fram á neitt annað
en þetta verði spennandi ár. Vet-
tel á ekki eftir að rústa þessu. Fysta
keppnin setur bara eitthvað ákveð-
ið mark sem aðrir þurfa að miða sig
við og ná. Það er erfitt fyrir Red Bull
að vera með svona góðan bíl þó það
hljómi kannski kjánalega. Þeir þurfa
að passa sig að verða ekki værukærir
því það eru öll liðin að reyna bæta sig
til að ná þeim.“
Hvað gera Perez og Kobayashi?
Það er kannski fullsnemmt að fara
að útnefna spútniklið tímabilsins eft-
ir eina keppni. Það lið sem kom þó
mest á óvart í Ástralíu var Sauber en
ökumenn þess, nýliðinn Sergio Perez
og Kamui Kobayashi, fóru hreinlega á
kostum og náðu sjöunda og áttunda
sæti. Það er að segja þar til dómar-
arnir hirtu af þeim stigin vegna van-
stillingar á væng aftan á bílnum. Það
var þó ekki þeim að kenna og held-
ur tæknistjóri liðsins því staðfastlega
fram að vængurinn hafi ekki hjálpað
Perez og Kobayashi neitt í keppn-
inni sjálfri. Þeir hafi einfaldlega unn-
ið fyrir sínum sætum. Sauber-bíllinn
sýndi í Ástralíu að hann fer virkilega
vel með dekkin en Perez keyrði þrjá-
tíu og fimm hringi á mjúku dekkjun-
um sem hjálpaði honum ekkert lítið
upp í sjöunda sætið.
„Ég er mjög einbeittur fyrir
keppnina í Malasíu og er farinn að
hlakka til,“ segir Sergio Perez. „Ég
held að við séum með góðan bíl í
höndunum. Hann er nægilega fljót-
ur þannig að við getum stefnt á stiga-
sæti í hverri keppni. Eftir keppnina í
Ástralíu veit ég hvaða takmark ég á
að setja mér í tímatökum og í keppn-
unum sjálfum. Svo þess utan þekki
ég Sepang-brautina vel því ég keppti
á henni í GP2-mótaröðinni. Brautin
reynir virkilega á líkamann og það er
erfitt að ná góðum hring,“ segir Ser-
gio Perez.
Allir eltA Vettel
n Annað mót ársins í Formúlu 1 fer fram í Malasíu á sunnudaginn n Búist við að Red
Bull drottni n Brautin sýnir raungetu bílanna n Hitinn gæti hentað spútnikliði Sauber
Efstu menn
1. Sebastian Vettel - Red Bull
2. Mark Webber - Red Bull
3. Nico Rosberg - Mercedes
4. Robert Kubica - Renault
5. Adrian Sutil - Force India
6. Lewis Hamilton - McLaren
7. Felipe Massa - Ferrari
8. Jenson Button - McLaren
Ráspóll
n Mark Webber, Red Bull - 1:39:327
Fljótastur í einstökum hring
n Mark Webber, Red Bull -1:37:054
Brautarmet
n Juan Pablo Montoya, McLaren - 1:34:223
Fyrri sigurvegarar
2010: Sebastian Vette - Red Bull
2009: Jenson Button - Brawn
2008: Kimi Raikkonen - Ferrari
2007: Fernando Alonso - McLaren
Malasía 2010Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Komu á óvart Strákarnir hjá Sauber verða í sviðsljósinu í Malasíu eftir gott gengi í Ástralíu.
Ósigrandi? Sebastian
Vettel er á langbesta bílnum.