Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Page 8
8 | Fréttir 20.–22. maí 2011 Helgarblað
Lítill raki í lofti, þurrar götur og töluverður vindur skapa svifryksmengun:
Mesta svifrykið í Reykjavík
Svifryksmengun var yfir heilsuvernd-
armörkum á fimmtudag en ástæða
þess var uppþyrlun ryks, úr umhverfi
og af umferðargötum. „Það gætu ver-
ið sömu skilyrði í dag [föstudag] en
það er erfitt að fullyrða um það. Þetta
er svo fljótt að breytast en fólk getur
fylgst með vefmæli á heimasíðu borg-
arinnar,“ segir Kristín Lóa Ólafsdóttir,
heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseft-
irliti Reykjavíkur. Hún segir eftirlitið
vera í sambandi við Veðurstofuna
þegar svona standi á og samkvæmt
henni er búist við svipuðu veðri og
vindhraða í dag og því geti skapast
svipaðar aðstæður hvað varðar svif-
ryk.
„Þetta kemur líklega ekki frá sönd-
unum fyrir austan okkur og þetta er
ekki aska heldur úr umhverfinu okk-
ar hér í borginni. Það er töluvert af
óhreinindum á götunum ennþá þrátt
fyrir að það sé búið að sópa í sumum
hverfum.
Við höfum ekki stórvægilegar
áhyggjur af þessu eins og er en erum
náttúrulega fyrst og fremst að hugsa
um fólk sem er veikt fyrir,“ segir hún en
bætir við að margir ferðist um á hjól-
um þessa dagana þar sem átakið Hjól-
að í vinnuna stendur yfir.
Í gærmorgun klukkan 11.30 sýndu
mælar að styrkur svifryks var 878
míkró grömm á rúmmetra við Grens-
ásveg en heilsuverndarmörkin eru 50
fyrir sólarhringinn. Það mældist þó
mun minna bæði í Kópavogi og Hafn-
arfirði og því um staðbundna mengun
að ræða.
gunnhildur@dv.is
Á myndum sem teknar voru af gler-
hjúp Hörpu mánudaginn 16. maí
síðastliðinn, sést glögglega hvar
glerplötur, sem festar hafa verið á stál-
sexstrendingana á suðurhlið hússins,
virðast vera að losna frá burðarvirk-
inu. Á nokkrum stöðum má einnig
sjá hvar búið er að festa glerplöturnar
saman með límbandi á samskeytum.
Það virðist þó ekki virka sem skyldi því
á milli glersins og stálgrindarinnar er
gapandi bil á sumum stöðum þrátt fyr-
ir límbandið.
Glerið „teipað“ fast
Myndir sem teknar voru um miðjan
apríl, þegar verkið var ekki alveg jafn
langt á veg komið, sýna einnig hvar
límband var á samskeytum glerplatn-
anna á fjölmörgum stöðum. Örnólfur
Hall arkitekt, sem mikið hefur skrif-
að um Hörpu á vef Arkitektafélags Ís-
lands, gerði límbandið meðal annars
að umtalsefni í einni af greinum sínum
á vefnum. Hann benti á að gluggarn-
ir hefðu verið „teipaðir“ í páskahret-
inu og þótti honum það furðu sæta.
Fréttamiðillinn Eyjan fjallaði stuttlega
um málið í vikunni og Ríkharður Krist-
jánsson, hönnunarstjóri Hörpu, svar-
aði fyrir það í kommentakerfinu und-
ir fréttinni. „Silikonborðar sem glerið
sest á eru heillímdir á stálið. Það þarf
að halda þeim þar á meðan límið nær
styrk,“ skrifaði Ríkharður meðal ann-
ars í kommentakerfið. Hann tók jafn-
framt fram að honum þætti frásögnin
skemmtileg. Af skrifum Ríkharðs má
ætla að límbandinu hafi eingöngu ver-
ið ætlað það hlutverk að halda við sílí-
konborðana.
Á myndunum sést þó hvernig lím-
bandið var bæði notað á burðarvirk-
ið áður en glerið var sett á og eftir að
það var sett á. Því virðist sem límband-
ið hafi verið notað til að styðja við sílí-
konborðana og glerið sjálft, með mis-
jöfnum árangri. Augljóslega má sjá að
glerið er þéttara upp við stálgrindina á
eldri myndunum.
Hreinsun erfið á Hafnarbakkanum
DV hefur fjallað töluvert um þau ýmsu
vandkvæði sem komið hafa upp við
uppsetningu glerhjúps Hörpu og síð-
ast í lok apríl var fjallað um ryð í burð-
arvirkinu sem var tekið að myndast
áður en glerplöturnar voru festar á
það. Af því tilefni hafði DV samband
við verkfræðing, sem vel þekkir til í
byggingariðnaðinum. Hann sagði að
til að festa gler á málmflöt, til að það
væri þétt og vel fast, þyrfti að hreinsa
öll óhreinindi af fletinum, þar með
talið ryð, fitu, mengun frá bílaum-
ferð og sót. Verkfræðingurinn benti á
að aðstæðurnar á Hafnarbakkanum
gerðu slíka hreinsun mjög erfiða. Tæk-
ist hins vegar að hreinsa stálvirkið al-
mennilega áður en glerið væri sett á
ætti þetta að vera í lagi, að hans mati.
Hugsanlegt er því að óhreinindi séu að
valda því að glerið sé losna frá stálvirk-
inu. Þá má jafnframt ætla að á meðan
gapandi bil er á milli glerplatnanna og
stálvirkisins, komist óhreinindi og raki
þar á milli.
Samskeytin örugg
Ríkharður, hönnunarstjóri Hörpu, var
gestur í þættinum Speglinum, á Rás 2 í
síðustu viku. Þar fullyrti hann að sam-
skeytin væru mjög örugg og að nán-
ast útilokað væri að vatn kæmist þar
á milli. Þá sagði hann einnig að það
ryð sem nú þegar væri í burðarvirk-
inu kæmi ekki til með að aukast, enda
sé húsið hannað þannig að loftræst-
istokkar blási þurru lofti inn á milli
glerjanna og haldi útveggjunum þurr-
um. Því þarf ekki að hafa áhyggjur af
rakamyndun og ryði, að hans sögn.
Ríkharður sagði í samtali við DV
að hann kannaðist ekki neinar laus-
ar glerplötur á Hörpu. „Það er enginn
skandall hjá okkur hérna, ekkert vesen
og engin vandræði.“
n Glerplötur virðast vera farnar að losna af Hörpu
n Límband notað á samskeyti á fjölmörgum stöðum
n Verkfræðingur segir að hreinsa hafi þurft stálvirkið
mjög vel áður en glerið var sett á
Harpa
„teipuð“
saman
„Það þarf að halda
þeim þar á meðan
límið nær styrk.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Rúður losna Svo virðist sem rúður séu farnar að losna frá stálvirkinu í suðurvegg Hörpu.
Gapandi bil er á milli glersins og stálvirkisins. Myndin er tekin þann 16. maí síðastliðinn.
Límbandið styður við Hönnunarstjóri
Hörpu segir límbandið hafa verið notað til
styðja við sílíkonborða á meðan límið var að
styrkjast. Myndin er tekin um miðjan apríl.
Þétt og fínt Á þessari
mynd virðast sam-
skeytin vera nokkuð
þétt og límbandið
heldur vel við. Myndin er
tekin um miðjan apríl.
myndiR ÖRnóLfuR HaLL
mengun í borginni Svifryk mældist yfir heilsu-
verndarmörkum í Reykjavík á fimmtudag.
dæmdir fyrir
skattsvik
Fasteignasalarnir Eysteinn Sigurðs-
son og Magnús Þormar Hilmarsson
voru á fimmtudag dæmdir í Héraðs-
dómi Reykjavíkur fyrir skattsvik í
starfi sínu fyrir Skeifuna fasteigna-
miðlun. Eysteinn og Magnús áttu
fasteignamiðlunina til helminga
þegar brotin fóru fram. Þeir voru
ákærðir fyrir að vantelja skattskylda
veltu upp á rúmlega 4,6 milljónir
króna, fyrir að oftelja innskatt upp
á rúmar 2,7 milljónir krónar og fyrir
vangoldinn virðisaukaskatt upp á
rúmar 3,9 milljónir króna á árunum
2003 til 2006.
Eysteinn og Magnús voru hvor
um sig dæmdir í 4 mánaða fangelsi
en fullnustu refsingar er frestað í tvö
ár og hún felld niður ef þeir halda
skilorð. Þeir voru einnig dæmdir til
að greiða 5,9 milljónir hvor um sig,
óskipt með fasteignamiðluninni. Ef
sektin er ekki greidd innan fjögurra
vikna þurfa þeir að sæta fangelsi í
þrjá mánuði.
fundu sprengiefni
við golfvöll Kjalar
Talsverðu magni af dýnamíti var eytt
af sprengjusérfræðingum Landhelg-
isgæslunnar á miðvikudag. Efnið
fannst í steinklöppum við golfvöll
golfklúbbsins Kjalar í Mosfellsbæ
og leikur grunur á að það hafi legið
þar í nokkur ár. Dýnamítið, sem var
tengt í víra, var í nokkrum borhol-
um sem virðist hafa staðið til að
sprengja. Ljóst er að talsverð hætta
hefði getað skapast hefði einhver
ekið yfir dýnamítið eða hreyft við
því. Eftir að sprengjusérfræðingar
Landhelgisgæslunnar höfðu fjarlægt
dýnamítið var farið með það út fyrir
bæinn og því fargað. Það var vallar-
stjóri golfvallarins sem fann efnið og
lét lögreglu vita. Rannsókn málsins
beinist meðal annars að því hvaðan
sprengiefnið kom.
UMBROTSMAÐUR
óSkAST!
Óskum eftir að ráða vanan starfsmann í umbrot með
reynslu af blaðaumbroti, myndvinnslu, grafavinnslu og
gerð auglýsinga. Samkeppnishæf laun.
Hæfniskröfur
n Reynsla af Indesign, Photoshop og Illustrator.
n Hraði, skipulag, nákvæmni og sköpunargáfa.
n Kostur að þekkja til vefgerðar og vefumhverfis.
Merkið umsóknina „Umbrot 2011“ og sendið til:
DV ehf
Tryggvagata 11
101 Reykjavík
Umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 24. maí 2011
Framtíðarstarf