Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Page 12
12 | Fréttir 20.–22. maí 2011 Helgarblað
til að hafa áhrif á niðurstöður í atkvæðagreiðslunni
er síðasti dagurinn24. maí
FLÓABANDALAGIÐ
sem þú hefur
um kjarasamningana. Sýnum ábyrgð og greiðum atkvæði
Vangoldin skuld íbúa á Selfossi
vegna brunatryggingar fór úr lið-
lega 31 þúsund krónum í 55 þúsund
krónur þrátt fyrir að hann teldi sig
hafa samið um greiðslur. Þriðjungs
innborgun til innheimtufyrirtækis
í þjónustu Sjóvár var að meirihluta
notuð til að greiða áfallinn kostnað
en ekki til að greiða niður höfuðstól.
Selfyssingurinn, sem ekki vill koma
fram undir nafni að svo stöddu, telur
sig órétti beittan og að innheimta eigi
alltaf að vera í nafni þess félags sem
hann skiptir við.
Fram kom í DV í síðustu viku
að innanríkisráðherra hefur borist
kvörtun vegna svokallaðra lögveða.
Fasteignagjöld og brunatryggingar
hafa lögveð en það merkir að van-
skilakröfu má fá greidda með því
að bjóða upp fasteign viðkomandi.
Þannig er á síðustu stigum inn-
heimtu unnt að bjóða upp íbúðir
fyrir smánarpening til greiðslu fast-
eignagjalda eða brunatrygginga.
Fram kom í blaðinu að slíkt fyrir-
komulag tíðkast ekki annars staðar á
Norðurlöndum og er réttur skuldara
þar betur varinn.
70 prósenta hækkur skuldar
Selfyssingurinn, sem hér um ræðir,
hafði samið við Sjóvá um bruna-
tryggingar á fasteign og skuldaði
samkvæmt innheimtuseðli 1. maí
í fyrra 31.169 krónur. Illa stóð á hjá
honum á þeim tíma og nokkru síðar
fékk hann áminningarbréf og fór eftir
það í útibú Sjóvár til að greiða reikn-
inginn. Þar var honum sagt að það
væri ekki hægt og bent á að tala við
innheimtufyrirtækið Momentum,
sem hefði fengið kröfuna til með-
ferðar.
Umræddur viðskiptavinur Sjóvár
telur þetta brot á lögum þar eð hann
sé í viðskiptum við tryggingafélagið
um brunatryggingu og félaginu hefði
borið að taka við greiðslu frá honum.
„Þess í stað vísar Sjóvá mér á annað
fyrirtæki sem ég er ekki í neinu sam-
bandi við. Svo fer ég þangað og þá fæ
ég reikning upp á dráttarvexti, áfall-
inn kostnað og fleira þannig að upp-
hæðin var orðin mun hærri en ég ætl-
aði að greiða og átti ekki fyrir henni.
Hún stóð í 41 þúsund krónum. Ég
vildi þá greiða inn á skuldina og fá
að skipta henni í þrennt, greiða með
öðrum orðum 13.600 krónur þrisvar.
Um það samdist og fyrir þessari inn-
borgun fékk ég kvittun. Svo líður og
bíður og þá fæ ég annað bréf frá öðru
fyrirtæki sem heitir Gjaldheimtan.
Þetta er réttlætt þannig að krafan
sé komin á næsta innheimtustig.
Þar kom fram að ég skuldaði 31.169
krónur, eða upphaflegu upphæðina.
Ofan á hana reiknaði Gjaldheimt-
an dráttarvexti, áminningargjald og
innheimtuþóknun. Þess utan er til-
greind greiðsláskorun og birting
greiðsluáskorunar. Loks kemur fram
að innborgun mín nemi 4.525 krón-
um og þannig voru 9 þúsund krón-
ur horfnar í kostnað innheimtufyrir-
tækjanna.“
Veiðileyfi á skuldara?
Selfyssingurinn segir að við þessar
aðstæður hafi upphaflega upphæð-
in verð komin í 55 þúsund krón-
ur. „Þegar ég þrískipti skuldinni og
greiddi 13.600 krónur taldi ég mig
vera að greiða inn á skuld mína við
Sjóvá. Samkvæmt verslunarlögum
er aldrei hægt að neyða mann í við-
skipti. Ég er ekki í viðskiptum við
Gjaldheimtuna eða Momentum, en
ég er neyddur í viðskipti við þessi
félög. Ég get vel skilið að innheimtu-
þjónusta eins og Momentum eða
Gjaldheimtan séu notuð, en reikn-
ingurinn á að koma frá Sjóvá enda
er ég í viðskiptum við það félag en
ekki hin. Fyrir mér er þetta líkt því
að Sjóvá gefi innheimtufyrirtækinu
veiðileyfi á mig sér að kostnaðar-
lausu. Ég á að geta sagt já eða nei um
þennan innheimtukostnað áður en
þetta ferli fer af stað en það er ekki
boðið upp á neitt slíkt. Menn hafa lit-
ið fram hjá þessu.“
Innheimtudeild Sjóvár vill ekki
tjá sig um þetta einstaka mál án þess
að skoða frumgögn þess en bendir á
Momentum og Gjaldheimtuna.
Lögfræðingur sem DV ræddi við
taldi að tryggingafélagið hvíldi að
líkindum á áskilnaði um venjulega
innheimtu þegar til vanskila kem-
ur en setti spurningarmerki við að-
ferðir innheimtufyrirtækisins eftir að
samist hafði um að greiða 41 þúsund
krónur í þrennu lagi.
n Undrast einhliða innheimtuaðferðir n Brunatrygging hækkaði úr 30 í 55 þúsund krónur
n Innborgun notuð í kostnað og vexti en ekki til að greiða niður höfuðstól kröfunnar
Greiðsla notuð í
innheimtukostnað
„Þegar ég þrískipti
skuldinni og greiddi
13.600 krónur taldi ég mig
vera að greiða inn á skuld
mína við Sjóvá. Sam-
kvæmt verslunarlögum
er aldrei hæg að neyða
mann í viðskipti.
Jóhann Hauksson
blaðamaður skrifar johannh@dv.is
Brunatryggingar í forgangi Trygginga-
félög geta látið bjóða upp fasteignir til greiðslu
brunatrygginga. Slíkar aðferðir eru ekki notaðar
gegn skuldurum annars staðar á Norðurlöndum.
Vill greiða beint til viðskiptafélags
síns Íbúi á Selfossi telur að innheimta trygg-
ingafélags síns eigi að vera í þess nafni en ekki
innheimtufyrirtækja. mynd RóBeRt ReynIsson