Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Blaðsíða 14
14 | Fréttir 20.–22. maí 2011 Helgarblað
Einörð afstaða Samtaka iðnaðarins
með aðild að Evrópusambandinu
hefur dofnað. Ástæðan er andstaða
fyrirtækja í mjólkur- og kjötiðnaði,
en þau stofnuðu regnhlífarsamtök
síðastliðið haust innan SI sem kall-
ast Samtök mjólkur- og kjötvinnslu-
fyrirtækja (SMK). Formaður SMK
er Guðni Ágústsson, fyrrverandi
ráðherra, en hann er einarður and-
stæðingur aðildar að ESB. Guðni sit-
ur sem formaður í krafti Samtaka af-
urðarstöðva í mjólkuriðnaði.
„Okkur í mjólkur- og kjötiðnaði,
sem veitir þúsundum manns vinnu,
ofbuðu áherslur Samtaka iðnaðar-
ins á aðild að ESB og upptöku evr-
unnar og vissum að í mjólkur- og
kjötiðnaði voru menn afar ósáttir,“
segir Guðni í samtali við DV.
„Við gengum frá stofnun SMK
síðastliðið haust vegna þess að við
vildum að rödd okkar heyrðist skýrt
innan SI. Margar framleiðslugreinar
hafa þann háttinn á að stofna svona
hagsmunabandalög. Nefna má bak-
ara og áliðnað.“
Á allra síðustu misserum var
óánægjan orðin slík, að ýmis fyrir-
tæki í kjöt- og mjólkuriðnaði hótuðu
að segja sig úr Samtökum iðnaðar-
ins.
Aðstoðarmaður Davíðs tekur við
Þessi ágreiningsmál innan SI réðu
einhverju um brotthvarf Jóns Stein-
dórs Valdimarssonar úr stóli fram-
kvæmdastjóra SI í fyrra, en líkt og
Sveinn Hannesson, forveri hans,
var hann einarður talsmaður að-
ildar að ESB og upptöku evrunnar.
Við Jóni Steindóri tók Orri Hauks-
son, en hann var meðal annars að-
stoðarmaður Davíðs Oddssonar í
forsætisráðuneytinu árin 1997 til
2000. Í viðtali við Viðskiptablaðið 16.
september í fyrra tók hann enga af-
dráttarlausa afstöðu þegar hann var
spurður um persónulega afstöðu
til ESB og evrunnar. „Í Evrópumál-
um og öllum öðrum alþjóðamálum
er mikið rými fyrir lausnamiðun og
pragmatisma á þessu landi,“ sagði
hann í viðtalinu og taldi komu sína til
SI ekki breyta miklu um stefnu sam-
takanna.
Ýmsir uggandi
Þess má geta að Samtök iðnaðarins
hafa í raun ekki breytt stefnu sinni til
ESB og evrunnar á pappírunum, en
augljós merki þykjast menn sjá um að
sú stefna hafi í reynd verið tónuð mjög
niður með nýjum framkvæmdastjóra.
Evrópumálin voru meginefni Iðnþings
árið 2008 og þar var upptaka evru hér á
landi talið brýnt hagsmunamál.
Helgi Magnússon, formaður Sam-
taka iðnaðarins, ítrekar í samtali við
DV að stefna SI í Evrópumálum hafi
ekki breyst. „Við höfum ekki verið beitt
þrýsting af hálfu kjöt- og mjólkurvöru-
framleiðenda en við könnumst vel við
áherslur þeirra.“
Á iðnþingi í mars síðastliðnum
sagði Helgi meðal annars í ræðu
sinni: „Ljóst er að ýmsir innan Sam-
taka iðnaðarins eru uggandi. Það á
ekki síst við félaga okkar í mjólkur- og
kjötiðnaði. Það eiga fáir meira undir
en þeir að samningar verði okkur Ís-
lendingum hagfelldir. Fyrir því verður
að berjast til síðustu stundar og ég hef
ekki trú á því að landsmenn samþykki
aðild að ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu
nema samningarnir verði okkur hag-
stæðir.“
Afnám iðnaðarmálagjalds breytti
stöðunni
En Helgi sagði jafnframt í ræðu sinni í
mars síðastliðnum: „Til þess að losna
við gjaldeyrishöftin að fullu munum
við væntanlega þurfa annan gjald-
miðil en íslenska krónu. Það undir-
strikar mikilvægi þess að Íslendingar
freisti þess af fullu afli að ná viðunandi
samningum við ESB. Það dregur senn
til tíðinda í þeim efnum. Umsóknar-
ferli hefur staðið yfir frá sumrinu 2010.
Fram hefur farið yfirgripsmikil, vönd-
uð og fagleg vinna embættismanna
og samninganefndar Íslands undir
öruggri forystu Össurar Skarphéðins-
sonar utanríkisráðherra.“
Fleira getur skýrt vaxandi ítök
og áhrif Samtaka mjólkur- og kjöt-
vinnslufyrirtækja innan Samtaka
iðnaðarins. Svo háttar til að á síðasta
ári var svonefnt iðnaðarmálagjald
fellt niður með lögum. Það hafði um
langt skeið tryggt SI hundruð millj-
óna króna tekjur. Árið 2009 nam álagt
iðnaðarmálagjald nærri 500 milljón-
um króna, en það kom ekki allt í hlut
SI. Tilefni endurskoðunar laganna
og afnáms iðnaðarmálagjaldsins var
dómur Mannréttindadómstóls Evr-
ópu í apríl í fyrra. „Í honum er komist
að þeirri niðurstöðu að í framkvæmd
laga um iðnaðarmálagjald felist brot
á 11. grein mannréttindasáttmála
Evrópu um rétt til að standa utan fé-
laga,“ eins og sagði í frumvarpnu sem
varð að lögum síðastliðið haust. Af
dómnum var ekki ráðið að gjaldtak-
an væri með öllu óheimil en ljóst að
breyta þurfti því fyrirkomulagi sem í
gildi hafði verið um ráðstöfun gjalds-
ins og eftirlit með því. Úr varð að SI
beindu sjálf þeim tilmælum til iðn-
aðarráðherra að gjaldtökunni yrði
hætt.
Verða áhrifin víðtækari?
Þetta gat veikt stöðu SI; gjaldið hafði
verið lagt á um 10 þúsund fyrir-
tæki og einstaklinga óháð aðild að
samtökunum og þau nutu vitan-
lega góðs af því. Samkvæmt upp-
lýsingum DV stóð gjaldið undir um
helmingi tekna SI undir það síðasta.
Samtök iðnðarins eru hins vegar tal-
in fjárhagslega sterk en það á rætur
að rekja til þess að samtökin áttu
hluti í gamla Iðnaðarbankanum og
síðar í Íslandsbanka og Glitni. Þess-
ir hlutir voru seldir löngu fyrir hrun
og hafa haldið verðgildi eftir því sem
næst verður komist. Engu að síð-
ur blasir við nokkur óvissa um fjár-
hag SI. Afnámi iðnaðarmálagjalds-
ins hefur verið mætt með hækkun
félagsgjalda en það skýrist á tveim-
ur til þremur árum hverjar tekjurnar
verða á endanum að því er ætlað er.
Skúli Helgason, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, ræddi áhrif afnáms
iðnaðarmálagjaldsins á vefmiðli
Pressunar í september í fyrra og
sagði meðal annars: „Rétt er að geta
þess að dómurinn og afgreiðsla Al-
þingis gæti haft víðtækari afleiðing-
ar með því að kalla á endurskoðun
annarrar gjaldtöku á vegum ríkisins
sem ráðstafað hefur verið til hags-
munasamtaka. Þar kemur helst til
álita búnaðarmálagjald sem runnið
hefur til Bændasamtakanna og svo-
kallað aflagjald sem byggir á lögum
um skiptaverðmæti en það hefur
runnið til hagsmunasamtaka í sjáv-
arútvegi. Nú stendur yfir athugun á
vegum forsætisráðuneytis og sjávar-
útvegs og landbúnaðarráðuneytis á
því hvort endurskoða beri þá gjald-
töku sömuleiðis í ljósi dómsins.
Sjálfsagt er að taka alla slíka gjald-
töku til endurmats við þessar að-
stæður.“
Þræðir liggja um Skagafjörð
Ljóst má vera að Samtök iðnaðar-
ins geta nú ekki fjármagnað sig í
skjóli lagasetningar og innheimt ið-
gjald með lögþvingunum og eru því
háð félagsgjöldum þar sem mönn-
um er frjálst að vera innan eða utan
samtakanna. Svo háttaði til að iðn-
aðarmálagjaldið var einnig lagt á
fyrirtæki og einstaklinga utan sam-
takanna. Augljóslega eru þeir fjár-
munir nú farnir út úr bókhaldi SI.
Eins og fram kemur á öðrum stað
í þessari umfjöllun er matvælaiðn-
aður, sem hvílir á landbúnaðinum,
umfangsmikill og félögin sem und-
ir Guðna Ágústsson heyra því fjár-
hagslega mjög mikilvæg fyrir Sam-
tök iðnaðarins. Þessi nýja staða
ræður því einhverju um daufari
áherslur SI varðandi aðild að ESB og
upptöku evru en áður.
Eins og sjá má í upptalning-
unni hér á síðunni ráða stórfyrir-
tæki eins og Mjólkursamsalan (MS)
mjög miklu í umræddri framleiðslu-
grein. Það gerir einnig Kaupfélag
Skagfirðinga sem á nú Mjólku, Kjöt-
vinnslu Skagfirðinga og hlut í slát-
urhúsi KVH svo nokkuð sé nefnt.
Kaupfélagsstjóri er Þórólfur Gísla-
son, en hann er afar valdamikill inn-
an Framsóknarflokksins og í innsta
hring fjármálaumsvifa þeirra sem
stóðu að GIFT og S-hópnum sem á
sínum tíma keypti Búnaðarbank-
ann.
„Okkur í mjólkur-
og kjötiðnaði, sem
veitir þúsundum manns
vinnu, ofbuðu áherslur
Samtaka iðnaðarins á
aðild að ESB og upptöku
evrunnar.
GUÐNI stýrIr
aNdófI
GeGN esB
n Mjólkur- og kjötvöruframleiðendur beita samtakamætti gegn ESB-stefnu Samtaka iðnaðarins
n Guðni Ágústsson fer fyrir þrýstihópnum n Sumir hótuðu úrsögn úr SI n Afnám iðnaðarmálagjalds
styrkti stöðu andstæðinga ESB innan samtakanna n Stefnan óbreytt segir formaður SI
Jóhann Hauksson
blaðamaður skrifar johann@dv.is
Tóna niður ESB-stefnu
Samtaka iðnaðarins
Kjöt- og mjólkuriðnaðinum
hefur undir stjórn Guðna
Ágústssonar tekist að draga
úr sterkum áherslum SI á
ESB-aðild og upptöku evru.
Enginn þrýstingur Helgi Magnússon,
formaður Samtaka iðnaðarins, reyndi að
róa kjöt- og mjólkurvöruframleiðendur
á Iðnþingi í mars og segist ekki beittur
þrýstingi.
Valdamaðurinn Þórólfur Gíslason,
kaupfélagsstjóri KS, er valdamikill meðal
kjöt- og mjólkurvöruframleiðenda og innan
Framsóknarflokksins. Hann gætir einnig
ríkra hagsmuna í stórútgerð KS.
Heimilt að
njósna um
Saving
Iceland
n Esja kjötvinnsla ehf.
n Gæðafæði ehf.
n Kjarnafæði hf.
n Kjötvinnsla Kaupfélags Skagfirðinga
n Krás ehf.
n Norðlenska matborðið ehf.
n SAH Afurðir ehf. (Sölufélag Austur
Húnvetninga og Kjarnafæði)
n Síld og Fiskur ehf. kjötvinnsla
n Sláturfélag Suðurlands svf
n Sláturfélag Vopnfirðinga hf.
n Sláturhús KVH ehf (Að hluta í eigu KS)
n Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði
(Guðni Ágústsson)
- Mjólkursamsalan,
- Mjólkursamlag KS,
- Mjólka (Í eigu KS)
Mjólkur- og kjöt-
vinnsla innan SI