Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Side 15
Andrej Hunko, þingmaður þýska
stjórnmálaflokksins Die Linke, segir
í samtali við DV að allt útlit sé fyrir
að íslensk lögregluyfirvöld hafi vitað
af veru breska undirróðursmannsins
og njósnarans Marks Kennedy hér á
landi og starfi hans við að afla gagna
á meðal mótmælenda. Bendir hann
meðal annars á ný sönnunargögn
í málinu, eins og mynd af manni í
fylgd íslenskra lögreglumanna, sem
er nauðalíkur Kennedy.
Lögreglan á Seyðisfirði hefur neit-
að því að maðurinn á myndinni sé
Kennedy en fjölmargir halda öðru
fram, þar á meðal Birgitta Jónsdóttir,
þingmaður Hreyfingarinnar, sem
er eins og þeir sem urðu vitni að
atvikinu, sannfærð um að þar fari
Kennedy.
Í skýrslu ríkislögreglustjóra sem
birt var á þriðjudag kemur með-
al annars fram að lögregluyfirvöld-
um sé ekki kleift, út frá þeim gögn-
um sem séu til staðar, að skera úr
um hvort njósnarinn hafi verið hér
á landi í samvinnu eða með vit-
und íslensku lögreglunnar. Þá segir
að lögreglunni sé heimilt að notast
við flugumenn í rannsóknum saka-
mála. Ljóst er að Kennedy var ekki að
störfum á Íslandi við slíka rannsókn,
heldur til þess að safna gögnum um
mótmælendur – rétt eins og hann
hafði gert í öðrum Evrópulöndum
– sem héldu til í búðum umhverfis-
verndarsinna við Kárahnjúkavirkjun.
Innanríkisráðherra segir lagabreyt-
ingar nauðsynlegar.
Njósnir leyfilegar
Kennedy sigldi síðasta áratuginn
undir fölsku flaggi á meðal umhverf-
issinna á Íslandi sem og í ýmsum
löndum Evrópu og kallaði sig Mark
Stone. Hann starfaði meðal annars
með umhverfisverndarhreyfingunni
Saving Iceland og tók þátt í aðgerð-
um við Kárahnjúka. Í nýútkominni
skýrslu lögreglunnar um málið er
lögð áhersla á þann trúnað sem þarf
að ríkja á milli innlendra og erlendra
lögregluyfirvalda til að viðhalda
góðu samstarfi. Þau gætu vart, ef þau
vissu um starfsemi breska njósnar-
ans, greint frá því án þess að rjúfa
trúnað.
Úr skýrslunni fæst vart annað
séð en að njósnarinn breski hafi haft
heimild til að njósna um mótmæl-
endur hér á landi sökum þess sam-
starfs sem íslensk og bresk lögreglu-
yfirvöld áttu í tengslum við mótmæli
Saving Iceland hér á landi. Líklegt
er því að upplýsingar þær sem ís-
lenska lögreglan fékk frá breskum
yfirvöldum um mótmælendur við
Kárahnjúka hafi sumar verið beint
frá Kennedy komnar. Hins vegar
verður að teljast ólíklegt að sá sem
safnaði gögnunum fyrir bresku lög-
regluna og mögulega til handa þeirri
íslensku, hafi haft heimildir til þess
að fremja lögbrot, en Kennedy varð
uppvís að slíku við störf sín, meðal
annars í Þýskalandi.
Kveikti elda
Þingmaðurinn Andrej Hunko hef-
ur sent bréf til innanríkisráðherra
þar sem hann biðlar til stjórn-
valda um að komast til botns í máli
Kennedys. Í bréfi hans kemur fram
að Kennedy hafi á mótmælum í
Þýskalandi kveikt eld í ruslatunnu,
og brotið þannig lög sem og gegn
skýrum þýskum lögreglusamþykkt-
um sem kveða á um að lögreglu-
menn megi ekki fremja lögbrot.
Lögreglan í Berlín var í kjölfarið
blekkt og nafnið Mark Stone gefið
upp við skýrslutökur. Málinu var
síðar vísað frá dómi þar sem glæp-
urinn var talinn „lítilvægur“.
Hunko segir í samtali við blaða-
mann DV að hann telji mál Kenne-
dys vera tákn um þá ógn sem stafi
að frjálsu félagastarfi í Evrópu.
Lögregluyfirvöld í Þýskalandi og
fleiri löndum hafi í raun stuðlað
að ólöglegum aðgerðum mótmæl-
enda með því að notast við und-
irróðursmenn eins og Kennedy.
Aðferðir eins og þessar eru þekkt-
ar á meðal undirróðursmanna og
eru til þess gerðar að hafa áhrif á
þróun mótmæla, og ýta undir óróa
á mótmælum til þess að sverta
málstaðinn.
Skýrslan froða
Þingmaðurinn lagði nýlega fram
fyrir spurn um málið á þýska þinginu,
en svör þýsku stjórnarinnar voru á
þá leið að slíkar njósnir um mót-
mælendur væru gerðar í þeim til-
gangi að koma í veg fyrir mögulega
glæpi. Þá mun einn yfirmaður þýsku
lögreglunnar, Jörg Ziercke, hafa sagt
á leynifundi að lögreglan yrði að
beita slíkum aðferðum, „leynilega
og alþjóðlega“ til þess að berjast
gegn svokölluðum „Euró-anarkist-
um“. Ríkisstjórn Írlands hefur einnig
viður kennt að þarlend lögregluyfir-
völd hafi vitað um umsvif njósnarans
í landinu.
Birgitta Jónsdóttir, þingkona
Hreyfingarinnar, er ein þeirra sem
barist hefur fyrir því á Alþingi að ís-
lensk lögregluyfirvöld leysi frá skjóð-
unni. Hún segir ekkert nýtt í skýrslu
ríkislögreglustjóra: „Það er ekkert í
henni, þetta er bara einhver froða,“
segir hún og vill afdráttarlaus svör frá
ríkisstjórnum Írlands og Þýskalands.
Innanríkisráðherra hafi viðurkennt
undir rós að íslenska lögreglan hafi
með aðstoð þeirrar bresku njósnað
um aðgerðarsinna við Kárahnjúka-
virkjun.
Mögulegt utanríkismál
Ögmundur Jónasson segist ekki saka
íslensku lögregluna um njósnir, en
ljóst sé að breyta þurfi lögum á þann
veg að ekki sé hægt að senda njósn-
ara í hópa pólitísks andófsfólks. Með
því að viðurkenna að lagabreytingar
séu nauðsynlegar, er hann þó í raun
að viðurkenna að hingað til hafi ver-
ið til staðar glufa sem heimilaði lög-
reglu að notast við flugumenn og
njósnara í pólitískum hópum. Hann
segist stefna að undirbúningi laga-
breytinga á næstu dögum.
Össur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra hefur á umræðum á Al-
þingi bent á að hafi Kennedy stund-
að slíkar njósnir með vitneskju
yfirvalda, álíti hann slíkt vera lög-
brot þar sem forvirkar rannsóknar-
heimildir hafi ekki verið heimilar
hér á landi. Birgitta Jónsdóttir seg-
ir ljóst að hafi íslensk yfirvöld ekk-
ert vitað um málið þurfi að kalla
sendiherra Breta á fund utanríkis-
ráðherra. Innanríkisráðherra segist
ekki líta svo á málin.
Fréttir | 15Helgarblað 20.–22. maí 2011
AF ÖLLUM
MATAR &
KAFFISTELLUM
HNÍFAPÖRUM
SÖFNUNAR- GLÖSUM
IITTALA VÖRUM
O.FL. O.FL.
L A U G A V E G I 1 7 8
fimmtudag til
mánudags
Sími: 568 9955 - www.tk.is
Opið: mánud-föstud. 12-18
laugard.12-16 sunnud. LOKAÐ
ERUM FLUTT ÚR KRINGLUNNI
Á LAUGAVEG 178 (Horni Bolholts)
m.dv.is
Lestu fréttir DV í farsíman
um þínum!
Heimilt að
njósna um
Saving
Iceland
n Lögreglu „ekki kleift“ að skera úr um hvort breskur
njósnari hafi verið hér með vitund íslensku lögreglunnar
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Mark Kennedy Sam-
kvæmt skýrslunni var Mark
ekki óheimilt að njósna um
mótmælendur á Íslandi.
Telja mynd vera sönnun Þýskur og
íslenskur þingmaður, ásamt fleirum, telja
þessa mynd sanna að lögreglan hafi haft af-
skipti af Mark Kennedy. Lögreglan þvertekur
fyrir að þetta sé hann.