Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Side 22
Sveitarfélagið Ölfus veitti félagi í eigu Jóns Ólafssonar athafnamanns, Icelandic Water Holdings ehf., 100 milljóna króna kúlulán við kaup á jörðinni Hlíðarenda þar í sveit árið 2006. Jón hefur byggt upp vatns- verksmiðju á Hlíðarenda þar sem hann framleiðir vatn á flöskum und- ir merkjum Icelandic Glacial. Ölfus seldi Jóni jörðina sem sagt án þess að fá neitt greitt fyrir hana við kaup- in heldur keypti Jón jörðina með láni frá sveitarfélaginu. Jörðin Hlíðarendi er rúmlega 1.540 hektarar að stærð og afsalaði sveitarfélagið sér einnig vatnsrétt- indunum á jörðinni við söluna á henni. Jón reisti vatnsverksmiðjuna á jörðinni árið 2008 en hann hafði þá unnið að verkefninu frá árinu 2004, samkvæmt því sem hann sagði í við- tali við DV í fyrra. Ári áður, 2003, hafði Jón selt Jóni Ásgeiri Jóhann- essyni fjölmiðla- og afþreyingarfyr- irtækið Norðurljós, sem Stöð 2 var meðal annars hluti af, með talsverð- um hagnaði. Ljósmyndir birtust af Jóni í fjöl- miðlum þar sem hann sást stíga út úr einkaþotu sem flaug með hann hingað til lands frá London til að ganga frá viðskiptunum. Talað var um að Jón væri að selja norður- ljósin. „Ég flaug út í einkaþotu Jóns Ásgeirs. Hann keypti Norðurljós af mér og flaug með mig út til Tékk- lands þar sem ég var að fara að leika í kvikmyndinni Ísold og Tristan í Prag.“ Eftir þetta spurðist lítið til Jóns Ólafssonar hér á landi enda dvaldi hann mikið til erlendis, aðallega í Lundúnum. Jón dúkkaði svo aftur upp í umræðunni hér á landi þegar fréttist að hann ætlaði sér að fara út í útflutning á íslensku vatni. Lánið til eignarhaldsfélags Jóns frá sveitarfélaginu Ölfusi var vaxta- laust en verðtryggt og á félag Jóns að greiða það á einu bretti þann fyrsta ágúst næstkomandi. Það var þá- verandi bæjarstjóri sveitarfélagsins Ölfuss, Ólafur Áki Ragnarsson, sem var milligöngumaður í þessum við- skiptum bæjarfélagsins við vatns- fyrirtæki Jóns. Lánaviðskipti Ölfuss við Jón þóttu afar umdeild á sínum tíma. Meðal þess sem fram kom í þeirri gagnrýni var að þar sem þessi viðskipti væru vaxtalaus til fimm ára væri í reynd verið að selja Jóni jörðina í Ölfusi á 50 til 60 milljónir króna. Ölfus með bankaábyrgð Líkt og DV greindi frá á miðviku- daginn hefur Landsbanki Íslands stefnt Jóni Ólafssyni vegna 420 millj- óna króna sjálfskuldarábyrgðar sem hann gekkst í vegna láns frá Sparisjóðnum í Keflavík til eignar- haldsfélagsins Jervistone Limited á Bresku Jómfrúaeyjum árið 2006. Stefna bankans gegn Jóni verður þingfest í júní. Jón gæti því þurft að greiða Landsbankanum þessa upp- hæð auk þess sem fyrirtæki hans þarf að standa skil á uppgreiðslu kúlu lánsins sem Ölfus veitti félaginu árið 2006. Sama hvort félag Jóns getur greitt lánið upp eða ekki mun sveitar- félagið Ölfus hins vegar fá jörðina greidda í sumar samkvæmt Ólafi Erni Ólafssyni, núverandi bæjar- stjóra sveitarfélagsins Ölfuss. Ástæðan er sú, segir Ólafur Örn, að sveitarfélagið er með bankaábyrgð frá Íslandsbanka vegna skuldar eignarhaldsfélagsins. „Við erum með bankaábyrgð frá Íslandsbanka á bak við okkur,“ segir Ólafur Örn. „Þetta þýðir það ef Jón borgar okkur ekki þá mun bankinn borga okkur... Við erum tryggðir og með okkar á þurru,“ segir Ólafur Örn sem undir- strikar að hann beri ekki ábyrgð á samningnum við Icelandic Water Holdings. Á veðbandayfirliti Hlíðarenda- jarðarinnar kemur fram að árið 2008 hafi Ölfus framselt Glitni umrætt veðskuldabréf að upphæð 100 millj- ónir króna og að Glitnir „ábyrgist greiðslu að upphæð kr. 100.000.000 til sveitarfélagsins Ölfuss vegna kaupa Icelandic Water Holdings á jörðinni Hlíðarenda.“ Fráfarandi bæjarstjóri í Ölfusi, Ólafur Áki Ragnarsson, sem sá um samninga við Jón vegna kaupanna á jörðinni, segir að bærinn hafi far- ið fram á það árið 2008 að fá banka- ábyrgð fyrir kaupverði Hlíðarenda- jarðarinnar. Glitnir hafi síðar veitt þessa ábyrgð. „Við bara vildum hafa það þannig að bankinn myndi tryggja þessa greiðslu. Jón náði svo bara samkomulagi við bankann; það voru samningar þeirra á milli... Það er til yfirlýsing um það frá Ís- landsbanka að ábyrgðin hafi færst yfir í bankann frá Glitni eftir banka- hrunið 2008.“ Ölfus átti að eiga 1. veðrétt Á veðbandayfirlitinu um Hlíðarenda kemur fram að jörðin er yfir veðsett hjá nokkrum fjármálafyrirtækjum og lífeyrissjóðum. Sveitarfélagið Ölfus á meðal annars veð í jörðinni – elsta veðið – upp á 100 milljónir króna. Um er að ræða veð vegna kúlulánsins sem Icelandic Water Holdings fékk frá sveitar félaginu þegar jörðin var keypt árið 2006. Veðskuldabréfið vegna lánsins er hins vegar á þriðja veðrétti. Þetta þýðir að í samningunum á milli Ölfuss og Icelandic Water Holdings á sínum tíma hefur ekki verið lagt skýrt bann við frekari veðsetningu á jörðinni og að veðskuldabréf Ice- landic Water Holdings færðist neðar í veðhafaröðinni. Í kaupsamningnum á milli Ice- landic Water Holdings og Ölfuss kemur reyndar fram að lánið frá sveitarfélaginu skuli tryggt í „1. veð- rétti“. Um þetta segir í kaupsamn- ingnum, sem er undirritaður af þá- verandi bæjarstjóra Ölfuss, Ólafi Áka Ragnarssyni: „Til tryggingar réttum efndum skv. kaupsamningi þessum, skal kaupandi gefa út vísitölutryggt veðskuldabréf sem nemur fjárhæð kaupverðsins og tryggt er með 1. veðrétti í hinu selda.“ Þrátt fyrir þetta hefur Ölfus færst neðar í veðhafa- röðinni á jörðinni. Nærri 1.100 milljóna veðsetning Hlíðarendajörðin er veðsett fyrir nærri 1.100 milljónir króna. Á henni hvíla sjö veðskuldabréf í íslenskum krónum og dollurum. Fimm af veð- skuldabréfunum sjö eru á fyrsta veð- rétti í eigninni, á undan láninu frá Ölfusi. Lífeyrissjóðurinn Festa á tvö af þessum veðum fyrir samtals 325 milljónir króna, Lífeyrissjóður Vest- mannaeyja á 75 milljóna króna veð, og Sparisjóður Reykjavíkur og ná- grennis og Sparisjóðurinn í Keflavík eiga hvor um sig 135 milljóna króna veð í jörðinni. Allir þessir eiga því veð í jörðinni á undan sveitarfélaginu Ölfusi, jafnvel þó að tekið sé fram í kaupsamningnum að sveitarfélagið hafi átt að eiga fyrsta veðréttinn. Byggðastofnun á 300 milljóna veð Athygli vekur að næst á undan sveitarfélaginu Ölfusi í veðhafa- röðinni er Byggðastofnun, opinber stofnun sem hefur það að hlutverk að „vinna að eflingu byggðar og at- vinnulífs á landsbyggðinni“, eins og segir á heimasíðu stofnunarinnar, með því að veita lán til verkefna og fjárfestinga sem talið er að þjóni þessum tilgangi. Byggðastofnun tapaði 2,6 milljörðum króna í fyrra en helsta ástæðan fyrir því voru lán sem þurfti að afskrifa sem veitt höfðu verið til nokkurra sparisjóða. Umrætt veðskuldabréf Byggða- stofnunar til Icelandic Water Hold- ings upp á 300 milljónir króna var 22 | Fréttir 20.–22. maí 2011 Helgarblað Vatnsfyrirtæki Jóns yfirVeðsett n Sveitarfélagið Ölfus veitti vatnsfyrirtæki Jóns Ólafssonar kúlulán fyrir jörð í sveitinni n Kúlulánið er á gjalddaga í ágúst n Ölfus veitti Jóni leyfi til að veðsetja jörðina n 1.100 milljóna króna skuldabréf hvíla á henni n Vatnsfyrirtæki Jóns á í erfiðleikum Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Nærmynd „Það eru hræ- gammar þarna úti sem eru að tala illa um okkur. Öfundin hefur aldrei setið á sér hér á Íslandi. Á að greiða fyrir jörðina í ár Jón Ólafs- son á að greiða Ölfusi upp 100 milljóna kúlulán fyrir Hlíðarendajörðina í ágúst á þessu ári. Á jörðinni hvíla skuldabréf upp á tæplega 1.100 milljónir króna en sveitarfélagið veitti Jóni leyfi til veðsetja jörðina eftir að Glitnir gekkst í ábyrgð fyrir lánið 2008. MyNd Sigtryggur Ari M y N d V er A p Á lS d Ó t ti r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.