Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Síða 28
Þ að hefur vakið mótsagna­ kenndar tilfinningar að fylgjast með uppreisnunum sem farið hafa sem eldur í sinu um Arabalöndin síðustu mán­ uðina. Að flestu leyti eru tíðindin sem berast frá þessum löndum afar já­ kvæð og góð. Því uppreisnirnar eru allar gerðar undir gunnfánum um aukin mann­ réttindi, en á þau hefur töluvert skort í flestöllum Arabaríkjunum, þótt ástand mála hafi vissulega verið mjög mismunandi eftir ríkjum. Og auðvitað fagnar maður því af heilum hug þegar fólk rís upp og krefst óheftra mannréttinda. Þá ekki síst þegar það gerist í löndum þar sem kyrrstaða hefur ríkt á þessu sviði og jafnvel kúgun, og maður hefur ekki búist við að neitt sérstakt myndi breytast á næstunni. Þungbrýndir sovéskir komm- únistar Þessar uppreisnir í Arabalöndunum eru reyndar eins og staðfesting þess, sem maður upplifði við fall Sovétríkj­ anna kringum 1990. Sem sagt að það er sama hvernig maður er kúgaður, neisti frelsisins brýst alltaf fram þegar minnst varir. Ég veit ekki hvort þeir sem voru kornungir og kannski varla fæddir þegar Sovétríkin og leppríki þeirra hrundu gera sér almennilega grein fyrir því hve óvæntur sá atburður var. Eftir á lítur sagan yfirleitt út eins og hún hefði aldrei getað endað öðru­ vísi en hún gerði, og kannski var hrun Sovétríkjanna algjörlega óhjá­ kvæmilegt einmitt á þeim tíma­ punkti þegar það gerðist, en ég get fullvissað unga lesendur um að hafi svo verið, þá gerði alla vega enginn sér grein fyrir því, fyrr en í fyrsta lagi er langt var liðið á 9. áratuginn. Ég las svolítið af vísindaskáld­ sögum á tímabili á ofanverðum 9. áratugnum, og það var alveg ljóst hversu langt inní framtíðinni þær áttu að gerast – ef á annað borð var lýst aðstæðum á jörðinni, þá voru Sovétríkin alltaf til staðar. Og í ýms­ um bókanna höfðu þau augljóslega orðið undir í valdabaráttu jarðarbúa. Þungbrýndir sovéskir kommúnistar komu hvarvetna við sögu þegar bregðast þurfti við árás geimvera á jörðina, eða einhverju víðlíka í þeim dúr. Homo sovieticus Höfundar vísindaskáldsagna eiga að heita að vera einstaklega hugmynda­ ríkir menn og frjóir hugsuðir en eng­ inn þeirra virtist láta sér detta í hug að Sovétríkin gætu hrunið. Hvað þá á svo skömmum tíma sem raun bar svo vitni. Nei, þvert á móti, þá held ég að við höfum verið búin að telja okkur trú um að kúgunin í Sovétríkjunum væri svo algjör og hefði ríkt svo lengi og haft svo djúp áhrif á íbúana þar, að þeir væru orðnir ófærir um að berjast fyrir frelsi sínu. Nokkurn tíma. Forystumenn kommúnista kváð­ ust sjálfir vonast til þess, eftir valda­ rán sitt 1917, að þeir gætu skapað hinn „nýja sovéska mann“ sem átti að vera uppfullur af þeim eiginleik­ um sem þegn í alræðisríki öreiganna þurfti að hafa til að bera. Hann átti að vera ósérhlífinn, dugmikill, útlærður í marxískum fræðum, hlýðinn yfirvöldum og ákaf­ ur í að breiða út byltinguna. Þessi „manntegund“ varð aldrei til. En hins vegar voru margir farnir að trúa því að í staðinn hefðu Sovét­ menn í ógáti barið saman aðra „teg­ und“ sem kölluð var í gamni og al­ vöru „homo sovieticus“. Sérhlífin lúpa? Hann var sérhlífin lúpa, áhugalaus um umhverfi sitt enda með það á hreinu að hann myndi aldrei geta haft nein áhrif á neitt, döngunarlaus og eftirgefanlegur – hann muldraði kannski eitthvað í barm sér og reyndi örlítið að svína á kerfinu, sjálfum sér til gróða, en þegar á reyndi myndi hann alltaf lyppast niður andspænis yfirvöldunum. Ég skal fúslega viðurkenna að ég trúði því lengi vel að svo vel væri búið að berja alla mótspyrnu niður í Sovétríkjunum að „homo soviet­ icus“ væri orðinn að veruleika. Það væri búið að prógrammera fólk svo vel, eftir 70 ára ráðstjórn, að það gæti aldrei framar risið upp. En svo gerðist það bara, nánast fyrirvara­ og fyrirhafnarlaust. Um leið og fyrstu stoðinni var kippt undan Sovétríkjunum þá hrundi bara allt heila draslið! Enginn hafði áhuga á að viðhalda því, og það datt bara um koll. „Enginn“ er auðvitað ofmælt, en þetta var svona nokkurn veginn svona. Lýðræði átti undir högg að sækja í áratugi Auðvitað hefur það samfélag sem byggt hefur verið upp í staðinn fyrir Sovétríkin og leppríki þess ekki reynst vera fullkomið. Langt frá því. En allt er samt skárra en þvílíkt kúgunarapparat sem tróð á frelsi íbúanna eins og Sovétríkin gerðu. En þrátt fyrir þessa reynslu af hruni Sovétríkjanna, sem enginn hafði spáð fyrir um, þá held ég að fáir ef nokkrir hafi spáð fyrir um þær lýðræðisuppreisnir sem nú fara sem eldur í sinu um Arabaríkin. Kúgunin í Arabaríkjunum var ekki eins mikil og í Sovétríkjunum – þótt raunar megi finna lönd þar sem litlu munaði. Við hefðum átt, í ljósi reynslunnar frá Sovétríkjunum, að gera okkur grein fyrir því að frelsisþráin gæti blossað upp hvenær sem væri. En samt held ég að við höfum trú­ að því innst inn að það myndi ekki gerast. Ekki í fyrirsjáanlegri framtíð. Ekki á okkar dögum. Lýðræði og frelsi myndu enn eiga undir högg að sækja í þessum lönd­ um í áratugi – því það væri búið að berja fólkið svo rækilega til hlýðni. En svo reynist það bara vera vit­ leysa. Persónulegir vinir Strax og einhver tók frumkvæðið fylgdu allir hinir með. Því er svo gleðilegt að fylgjast með þessum fréttum. Þegar kúgunin fellur og fólkið fær að ráða, það er ævinlega gleðilegt. En ég verð að segja að mér finnst afar dapurlegt að horfa á fréttir af skriðdrekum og hermönnum með vélbyssur sem ráðast gegn mótmæl­ endum í Sýrlandi. Ég var í Sýrlandi fyrir rétt rúmu ári og þar býr yndis­ legt fólk, sem á svo sannarlega skilið að lifa sínu lífi í friði. Mér finnst það því eins og pers­ ónulegir kunningjar, fólkið sem stormar áfram um stræti og torg í og krefst aukinna mannréttinda og frelsis í Sýrlandi. Hvað kostaði breytingin?“ spurði ókunnugur maður mig upp úr þurru þegar ég dældi eldsneyti á bílinn minn í gær. „Þetta hlýtur að vera allt annað líf?“ bætti hann við áður en ég náði að svara. „Jú, þetta er lífið,“ svaraði ég og fannst ég hnytt­ inn. „Þetta er 55 prósent sparnað­ ur. Það er svolítið annað en tveggja krónu afslátturinn þinn,“ bætti ég við eins kumpánlega og ég gat og benti glottandi á snjáðan dælulykilinn hans. Ég lét í mars breyta bílnum mín­um þannig að hann gengur nú fyrir metangasi, lofttegund sem verður til við rotnun úrgangs. Bensíntankurinn á bílnum er enn á sínum stað og virkar vel en gasið er æði. Gasið kostar meira en helm­ ingi minna en bensínið, ég legg frítt í bílastæði og greiði lítil sem engin bifreiðagjöld. Breytingin kostaði 400 þúsund krónur sem mun, miðað við árlegan akstur minn, borga sig upp á tæplega einu og hálfu ári. Engan gjaldeyri þarf til að kaupa bensín fyr­ ir mig. Maðurinn sem ég hitti við dæl­una í gær var á miðjum aldri og ók um á Hilux sem var nokkuð yngri. Hann stóð mér við hlið og fylgd­ ist með þegar ég fyllti á gaskútinn. Þegar dælingu var lokið og ég setti gas­„byssuna“ í slíðrið og lok­ aði skottinu, þar sem inntakið er, sagði hann hvumsa: „Hva, ertu hætt­ ur?“ Sá ókunnugi rak upp stór augu og leit með undrunarsvip á skjáinn sem sýndi 1.400 krónur. Á meðan sýndi dælan hans tíu eða fimmtán þúsund krónur. „Ég kemst 150 kíló­ metra á þessu,“ sagði ég og sótti kvitt­ unina, með bros á vör. „1.400 krón­ ur,“ muldraði hann, kvaddi og settist hugsi upp í bílinn sinn. Áður en hann ók í burtu skrúfaði hann niður rúðuna og spurði hvort hægt væri að breyta gömlum bílum. Ég sagði hon­ um að það væri ekkert mál, svo fremi sem bíllinn væri í góðu lagi. Það er frábær tilfinning að aka um á bíl sem vinnur nátt­úrunni gagn. Metangasi þarf að brenna, að öðrum kosti mengar það. Bíllinn virkar því eins og brennslu­ ofn. Saman erum við þjónar náttúr­ unnar. Ég tók lán fyrir breytingunni en spara, þrátt fyrir afborganir, nokk­ ur þúsund krónur á mánuði nú þeg­ ar. Eftir rúmt ár spara ég tugi þúsund í hverjum mánuði, ef fer sem horfir. Ég þarf vissulega að dæla metani á bílinn oftar en ég gerði þegar bensín var aðalorkugjafinn. Nú dæli ég stundum annan hvern dag. Þó fjárhagslegur og umhverfisvænn ávinningur sé aðalástæða þess að mér líður vel með þessa fjárfestingu mína er annað sem hefur komið mér skemmtilega á óvart. Sú breyt­ ing hefur orðið að nú heyrir það til undantekninga ef enginn gefur sig á tal við mig þegar ég dæli eldsneyti. Í fleiri skipti en færri kemur fólk til mín; spjallar og spyr um metanið. Spyr um sparnaðinn, aksturseigin­ leika bílsins, ræðir óþarfa áhyggjur af sprengihættu, veðrið, já og raunar hvað sem er. Flestir vilja fá að kíkja í skottið og nokkrir hafa fengið að skoða vélarrúmið. Við metandæluna eiga sér undantekningarlítið stað vinalegar samræður sem „bensín­ menn“ eiga ekki að venjast. Almennt var það nefnilega þannig að ég var í vondu skapi þegar ég dældi bensíni á bílinn, enda er ömurlegt að borga 240 krónur fyrir einn lítra af bens­ íni. Það er miklu skemmtilegra að dæla jafnmikilli orku fyrir 114 krón­ ur. Það er svipað og maður borgaði fyrir lítrann árið 2004, löngu áður en Geir bað guð að blessa Ísland. Að aka um á metani er eins og að fara aftur í tímann um sjö ár, til þess tíma þegar allt lék í lyndi og krónan var sterk. Það er æðisleg til­ finning sem allir heims­ ins prumpu­ brandarar geta ekki varpað skugga á. Þeir verða smám saman sem notaleg melódía í eyrum metanmannsins. Það eru ekki bara forvitnir bens­ínhákar sem gefa sig á tal við mann við dæluna. Í metan­ heimum er það nefnilega óskrifuð regla að heilsast við dæluna, jafn­ vel þó menn þekkist ekkert. Algert lágmark er að bjóða hraustlega góð­ an dag en algengara er að menn láti dæluna ganga á meðan dælurnar ganga. Metanbílar í umferðinni eru enn sem komið er ekki nema fá­ ein hundruð og því eru metanbíla­ eigendur nokkuð þröngur hópur; eiginlega lítið samfélag. Að eiga metanbíl er svolítið eins og að búa í litlu þorpi á lands­byggðinni. Allir heilsast óháð stað og stund, eins og í þorpum þar sem það þykir ókurteisi að heilsa ekki hverjum þeim sem verður á vegi manns, enda er ekki sjálfgef­ ið að maður hitti einhvern ef mað­ ur fer út. Það þekki ég af eigin raun. Ef menn á metanbílum mætast, og vita af því, þá kinka þeir kolli hvor til annars. Það þýðir: „Sæll, metan­ maður. Mikið er nú gott að aka um á ódýru og umhverfisvænu eldsneyti. Hafðu það gott í dag, þjónn náttúr­ unnar.“ Eða eitthvað álíka kumpán­ legt. 28 | Umræða 20.–22. maí 2011 Helgarblað Trésmiðjan Illugi Jökulsson Ég er þjónn náttúrunnar Helgarpistill Baldur Guðmundsson EKKI Á OKKAR DÖGUM?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.