Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Síða 32
32 | Viðtal 20.–22. maí 2011 Helgarblað reyndist ekki áhugi hjá erlendum aðilum að kaupa í bönkunum, að minnsta kosti ekki á því verði sem hægt var að sætta sig við. Við sótt- umst eftir erlendri þekkingu og fjár- magni til að kaupa banka en vegna þess að enginn sýndi nægilega mik- inn áhuga vorum við eiginlega hætt við,“ seg- ir Valgerður og heldur áfram. „Svo gerðist það sumarið 2002 að ég var í Noregi þegar hringt var í mig úr ráðuneytinu. Þá voru komin skilaboð úr forsætisráðuneytinu [Davíðs Oddssonar, innsk. blm.] sem var yfir einkavæðingunni. Skilaboðin voru um að það væri kominn aðili sem vildi kaupa þennan helming sem hafði ver- ið til sölu í Landsbank- anum. Það reyndist vera Samson. Davíð vildi láta gera þetta einn, tveir og þrír. Mér leist ekkert á þetta og fór strax heim til Íslands.“ Hún segir að þeir Davíð og Halldór Ásgrímsson hafi rætt um þetta í fjarveru henn- ar. Þau Halldór hafi svo rætt saman um að ferlið yrði að opna. Auglýsa yrði eftir áhugasömum kaupendum þannig að öllum yrði ljóst að málið væri opið. „Þetta varð ekkert vinsælt í forsætisráðuneytinu, eins og kom fram í rannsóknarskýrslunni. En þetta varð samt niðurstaðan.“ Brugðið við lestur rannsóknarskýrslu Alþingis Hún segir að fimm aðilar hafi gefið sig fram sem áhugasamir aðilar um kaup á hlut í bönkunum. Þrír þeirra hafi talist hæfir; Samson, S-hópur- inn og Kaldbakur. Úr því að stjórnvöld höfðu ekki mikla reynslu af því að selja banka var ákveðið að fá erlenda, að sögn Valgerðar. Risafyr- irtækið HSBC var fengið til verksins. „Mér fannst það mikilvægt því ég treysti því að þeir myndu ráðleggja okkur faglega, jafnvel þó það myndi kosta mikla peninga. Ég trúði því að þetta væri nauðsynlegt.“ Það runnu hins vegar tvær grímur á Valgerði þegar hún las rannsókn- arskýrslu Alþingis, sem kom út í fyrra. Hún hafði fram að því alltaf trú- að því að ráðgjöf HSBC hefði verið heiðarleg og fagleg. „Miðað við tölvu- póst sem fannst í forsæt- isráðuneytinu og var birtur í skýrsl- unni má skilja það sem svo að HSBC hafi fyrst og fremst verið fengið til þess að ráðleggja um það hvernig Samson gæti fengið Landsbankann. Það varð mér mikið áfall,“ segir hún alvarleg í bragði og bætir við að það hafi hana aldrei grunað. Henni hafi því brugðið verulega við að lesa skýrsluna. Samson keypti helmingshlut í Landsbankanum rétt fyrir áramótin 2002 og 2003 en Búnaðarbankinn var seldur skömmu eftir þessi sömu ára- mót. Valgerður segir aðspurð að fram- kvæmdanefnd um einkavæðingu hafi farið með framkvæmdina á sölunni og hún hafi heyrt undir forsætisráðu- neytið. „Það sem mér fannst skrýtið og gerði athugasemdir við var hvers vegna einkavæðingarnefndin heyrði ekki undir mig. Svarið sem ég fékk var að forsætisráðherra sæti aldrei í nefnd nema vera sjálfur formaður. Í ráðherranefndinni voru Davíð, Hall- dór og Geir Haarde og ég.“ Hún vill lítið tala um hvort Davíð hafi verið jafn ráðríkur og af er látið. „Já, það má svo sem ýmislegt segja um hann en ég veit ekki hverju ég er bættari með því.“ Helmingaskipti bankanna Helmingaskiptaregla er hugtak sem oft hefur borið á góma í íslenskri um- ræðu. Með því er vísað til þess að öfl hliðholl Framsóknarflokknum annars vegar og Sjálfstæðisflokkn- um hins vegar hafi myndað með sér samkomulag um skiptingu lykil- eigna í samfélaginu. Innan S-hóps- ins svokallaða, sem keypti Búnað- arbankann, voru menn sem höfðu sterk tengsl inn í Framsóknarflokkinn og Samvinnuhreyfinguna á meðan Björgólfur Guðmundsson og félagar í Samson, sem keyptu Landsbankann, þóttu hallir undir Sjálfstæðisflokkinn og einkaframtakið. Er eitthvað til í því að bönkunum hafi verið skipt á milli flokkanna? „Ég spurði Halldór hvort þeir hefðu gert einhvers konar samkomu- lag fyrir fram en þeir töluðu aldrei um að skipta ætti bönkunum á milli flokka. Aldrei,“ segir hún ákveðin. Hún segir hins vegar að það sé ekk- ert óskiljanlegt að þessir tveir hópar hafi keypt bankana. Samvinnuhreyf- ingin, sem var nátengd Framsóknar- flokknum, hafi alltaf átt í samkeppni við einkaframtakið; Morgunblaðið og sjálfstæðismenn. „Að því leytinu til, þegar maður horfir á hvernig við- skiptalífið var og staðan í þjóðfélag- inu, er þetta kannski skiljanlegt. Það voru þessar tvær fylkingar sem drifu áfram samfélagið á þessum tíma. Þannig er það í mínum huga.“ Eftir smá þögn segir hún, svolítið upp úr þurru: „En þvílík vonbrigði að þetta hafi farið svona, þetta með bank- ana. Auðvitað má segja að stjórnvöld hafi verið blind á að svona lagað gæti gerst en þjóðfélagið dansaði líka með. Hvað var til dæmis ríkisútvarpið okk- ar að gera? Var það ekki búið að gera samning við Björgólf Guðmundsson, sem spreðaði peningum út um allt? Það er auðvelt að vera vitur eftir á en mér var nóg boðið þegar ég uppgötv- aði að þeir ætluðu að ná Glitni líka; að til stæði að sameina Íslandsbanka og Landsbankann.“ Fyrningarleiðin út í hött Þegar þetta viðtal var tekið lá frum- varp um breytingar á fiskveiðistjórn- unarkerfinu ekki fyrir. Valgerður segir þó að hún sé hörð á því að fiskveiði- stjórnunarkerfinu megi ekki koll- varpa. Fyrningarleiðin sé út í hött. Ekki gangi að taka endalaust af fyrir- tækjunum kvótann og láta þau kaupa hann til baka eða að hann fari í potta sem sé úthlutað samkvæmt pólitískri stefnu hverju sinni. Fyrirkomulagið um byggðakvóta sé gallað og hún sé efins um ágæti strand- veiða. „Þessi fiskur fer á markaði en þetta er miklu lélegra hráefni. Það er nú eitt af því sem ekki má tala um.“ Hún segir ódýran áróður að kenna kvóta- kerfinu einu og sér um fólksfækkun á lands- byggðinni. Það sé ekki rétt nema þá að litlu leyti. „Sjáum til dæm- is Húsavík. Halda menn að bátar hafi ekki farið frá Húsavík og suður áður en núverandi fiskveiði- stjórnunarkerfi var komið á? Jú, þeir gerðu það,“ segir hún en tekur fram að hún vilji hafa byggð um allt land. Sorglegt sé að bæjar- og sveitarstjórn- ir hafi oft á tíðum tekið ákvörðun um að selja kvótann úr byggðunum. Það séu löglega kjörnir sveitastjórnar- menn þannig að ekki dugi að benda bara á útgerðina. Á Grenivík, svo dæmi sé tekið, hafi kvóti hins vegar verið keyptur. Spurð hvaða augum hún líti það sem gerðist á Flateyri, þar sem einn maður seldi kvótann burt úr byggðarlaginu, segir hún að það setji vissulega ljótan svip á kerfið. „Þetta hefur verið að gerast en, jú, það er samþjöppun í sjávarútvegi en þetta mál snýst um hvort við ætlum að reka sjávarútveginn þannig að hann skili samfélaginu hvað mestu eða ætlum við að nota sjávarútveginn til að halda uppi félagslegu kerfi sem er þá ekki að skila samfélaginu eins miklu? Hvern- ig getum við mælt með einhverju fyrirkomulagi sem gengur ekki upp rekstrarlega? Það er ekki hægt.“ Smábátarnir voru alltaf í forgangi Hún bendir á að Íslendingar séu eina þjóðin sem hún viti um sem ekki styrki sjávarútveg. Sjávarútvegurinn standi undir samfélaginu meira og minna. Það þurfi að vera þannig áfram. „Ég sagði einu sinni í þinginu að sjávarútvegurinn væri okkur of mikilvægur til þess að við ættum að vera að föndra með hann. Ég meinti þetta og meina það enn.“ Hún segir að það hafi löngum ver- ið lenska í þinginu að standa með litla manninum. „Þegar ég var á þingi var miklu meira gert í þágu smábátaút- gerðarinnar en stóru útgerðarinn- ar. Það snerist alltaf um að smábát- arnir þyrftu að geta rekið sig en oft á kostnað stóru útgerðanna. Það urðu ekkert fleiri fiskar í sjónum til við að auka möguleika smábáta. Raunsæi, raunsæi, raunsæi. Það er mitt mottó,“ segir hún og bankar í borðið til að leggja áherslu á mál sitt áður en hún stendur upp og sækir meira kaffi. Þegar hún kemur aftur er ákveðið að taka hlé á viðtalinu til þess að huga að kindunum. Hún á dagvaktina í fjár- húsunum en það Þórarinn Pétursson sem rekur sauðfjárbúið á Lómatjörn. Valgerður segist bara vera að hjálpa til sér til skemmtunar. Langsóttur málflutningur Eftir að hafa tekið á móti lambi í fjár- húsunum komum við okkur aftur fyr- ir í stofunni á Lómatjörn. Talið berst að samvinnuhugsjóninni. Hún er Val- gerði hugleikin og því er hún frek- ar hlynnt Evrópusambandinu, ESB, og telur óeðlilegt að slá málið út af borðinu áður en samningur liggi fyrir. Eðlilegt sé að Ísland vinni með öðrum Evrópuþjóðum. Hún var raunar for- maður Framsóknarflokksins á þarsíð- asta flokksþingi þar sem samþykkt var að sækja ætti um aðild með ákveðn- um skilyrðum. Nú er búið að snúa þeirri ákvörðun við og álykta að hags- munum Íslands sé betur borgið utan ESB. Henni finnst allt of snemmt að segja til um það. Þegar hún er spurð hvort hún sé þá ósátt við málflutning Sigmundar Dav- íðs formanns, sem hefur talað mjög eindregið gegn ESB, forðast hún að svara því beint. „Er fólk almennt búið að kynna sér þessi mál? Er ekki betra að bíða þangað til við fáum samn- inginn í hendurnar? Þetta er svaka- lega stórt mál fyrir Ísland.“ Í gegn skín að hún er ekki alls kostar sátt við þá stefnu sem flokkurinn hefur markað sér í þessum málum. Hún er enn fremur á þeirri skoðun að íslenska krónan þjóni ekki hags- munum Íslands. Grín hafi verið gert að þeirri skoðun hennar á meðan krónan var sterk, þrátt fyrir að það hafi reynst útflutningsgreinum erf- itt. „En er ekki fólk búið að fá nóg af óstöðugleika á Íslandi? Það er þetta óöryggi og þessi óstöð- ugleiki sem ég hef fyrst og fremst í huga þegar rætt er um ESB. Ég hef þá tilfinningu að vegna sér- stöðu Íslands, til dæmis í landbúnaði, munum við ná góðum samningi.“ Hún virðist sannfærð. „Bændasam- tökin setja fram að mjólkurframleiðsla muni minnka um helming við inn- göngu í ESB. Aðeins íslensk nýmjólk verði á markaði og öll unnin vara komi frá Evrópu. Mér finnst svona málflutn- ingur ansi langsóttur.“ Hún viðurkennir reyndar að erfitt geti reynst að ná góðum samningi um sjávarútvegsmálin. Umræðan sé hins vegar keyrð áfram á tilfinningasemi og það sé slæmt. Skortir á raunsæið Valgerður situr sem fyrrverandi þing- maður í miðstjórn Framsóknarflokks- ins. Hún segist að öðru leyti alfarið hætt í pólitík, þótt hún hafi skoðanir á ýmsu. Hún vill lítið um forystu Fram- sóknarflokksins í dag tala, þrátt fyrir að blaðamaður geri nokkrar tilraun- ir til að fá hana til þess. Eftir nokkra þögn segir hún: „Hann er öflugur, formaðurinn. En ég hef ekki mikið um þetta að segja. Ég vona að þing- flokkurinn sé að vinna með hags- muni þjóðarinnar í huga. Ég hef alltaf verið raunsæispólitíkus og ekki verið í neinu rugli, þannig lagað séð. Ef ég á að segja eitthvað finnst mér svolít- ið hafa skort á raunsæið undanfarið,“ segir hún en augljóst er að hún heldur aftur af sér. Hún segir þó að auðvitað hafi flokkur í stjórnarandstöðu mikið svig- rúm, eins og hún orðar það, en betra sé fyrir sálarlífið að geta haft sömu stefnu hvort sem menn séu í stjórn eða stjórnarandstöðu. Hún treystir sér ekki til að segja til um hvort rétt sé að Framsókn setjist í ríkisstjórn með núverandi ríkisstjórnarflokkum. Hún fylgist ekki nógu vel með til að geta sagt til um það. „Ég horfi mjög sjaldan á útsendingu frá Alþingi,“ segir hún til að leggja áherslu á mál sitt. Nýlega orðin amma En hvað er Valgerður Sverrisdóttir að gera í dag? Þótt hún sé hætt í pólitík hefur hún nóg fyrir stafni. Fyrir utan að vera á fullu í sauðburði hefur hún tekið að sér formennsku í félagi eldri borgara í Grýtubakkahreppi, rétt ríf- lega sextug. Hún er nýgengin aftur í Zonta-hreyfinguna á Akureyri en Zonta er alþjóðlegur félagsskapur sem miðar að því að efla konur. Ut- anríkisráðherra skipaði hana for- mann þróunarsamvinnuráðs og hún er stjórnarformaður tveggja verkefna á Húsavík. Garðarshólmur er annað verkefnið en það miðar að því að setja á stofn þekkingarsetur á Húsavík, þar sem landnám norrænna manna á Ís- landi hófst. Hitt verkefnið á Húsavík er samnorræn strandmenningarhá- tíð sem haldin verður dagana 16. til 23. júlí. Valgerður segir það geysilega stórt og mikið verkefni. Það er því nóg að gera hjá ráðherranum fyrrverandi. Henni áskotnaðist reyndar annað og ekki síður mikilvægt verkefni í fyrra. Þá eignaðist hún ömmubarn, fallega stúlku sem heitir Ylfa. „Það var dásamlegt,“ segir hún af einlægni en allar dæturnar hennar þrjár dvelja að mestu í Reykjavík. Þangað fer hún nokkuð reglulega. Hún sagði fyrr í viðtalinu að hún sæi ekki eftir neinu. „Það er reyndar ekki alveg satt. Þegar ég horfi til baka þá finnst mér að ég hafi ekki sinnt fjöl- skyldunni minni nógu vel. Ég veit að ég hef ekki gert það. Ég var í rosalega krefjandi starfi og vann allar helgar, stjórnmálin heltaka mann algjörlega og það er ekki auðvelt að kúpla sig frá og hugsa um eitthvað annað; hjálpa til við heimanám eða eitthvað slíkt. Ég er dálítið að reyna að bæta fyrir allan þennan tíma,“ segir hún að lokum. „Ég sagði einu sinni í þinginu að sjávarútvegur- inn væri okkur of mikilvægur til þess að við ættum að vera að föndra með hann. Ég meinti þetta og meina það enn. „Ég hef alltaf verið raunsæis- pólitíkus og ekki verið í neinu rugli, þannig lagað séð. Situr yfir ánum Valgerður aðstoðar Þórarin Pétursson stórbónda við sauðburðinn. Hann er með um þúsund fjár. myNd Sigtryggur Ari Hefur sterkar skoðanir Valgerður segir, þegar hún er spurð um skoðun sína á forystu Framsóknarflokksins, að henni finnist raunsæið stundum skorta. myNd Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.