Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2011, Blaðsíða 34
Þorgeir fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann gekk í Ísaks­skóla, Laugarnesskóla og tók landspróf frá Gagnfræðaskólanum í Vonarstræti, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1961, BS­prófi í flugverkfræði frá MIT í Cambridge í Massachusetts í Banda­ ríkjunum 1966, MS­prófi 1967 og ScD­prófi 1971. Þorgeir vann á sumrin á unglings­ árum við vöruafgreiðslu hjá Eimskip og við raftengingar hjá Rafmagns­ veitu Reykjavíkur. Hann var við rann­ sóknarstörf og aðstoðarkennslu við MIT Measurement Systems Laba­ tory 1967–71, verkfræðingur í reikni­ stofu Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands og stundakennari við sama skóla 1971–72, verkfræðingur hjá The Analytic Sciences Corporation Read­ ing í Massachusetts frá 1973, dósent í kerfisverkfræði við verkfræði­ og raunvísindadeild Háskóla Íslands frá 1976, stofnaði kerfisverkfræðistofu Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands, sem m.a. vann að þróunarverkefnum á sviði flugstjórnar fyrir Flugmála­ stjórn Íslands og var forstöðumaður hennar frá upphafi 1983. Hann varð prófessor við Háskóla Íslands 1986 og flugmálastjóri 1992–97. Þegar Flugmálastjórn var skipt upp árið 2007 lét Þorgeir af starfi flugmálastjóra en tók við stöðu for­ stjóra Flugstoða og gegndi því starfi til 2010. Þá tók hann við stöðu prófess­ ors í flugleiðsögutækni við tækni­ og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. Hann varð þá jafnframt starfsmaður Flug­Kef ohf., hins nýja sameinaða fyrirtækis, sem tekur við starfsemi Flugstoða og Keflavíkurflugvallar. Þar sinnir hann rannsóknarstörfum og ráðgjöf fyrir hið nýja sameinaða fyrir­ tæki. Þorgeir sinnti ráðgjafarstörfum fyrir Northrop Corporation 1970, Loftleiðir hf. 1971, Flugleiðir hf. 1979 og Landhelgisgæsluna og Flugmála­ stjórn frá 1976. Hann sat í flugmála­ nefnd, sem lauk störfum 1986, en nefndin vann að áætlun um upp­ byggingu flugvalla á Íslandi og í Flugráði 1984–87. Þorgeir sat í rat­ sjárnefnd utanríkisráðuneytisins frá stofnun hennar 1984 og gegndi for­ mennsku í nefndinni. Hann keppti á Íslandsmótinu í svifflugi 1963 en rétt­ indi til svifflugs öðlaðist hann 16 ára. Þorgeir var um tíma í stjórn Svifflug­ félags Íslands. Hann er félagi í Rot­ ary­klúbbi Seltjarnarness og hefur setið í fjölda opinberra nefnda og í ráðum og nefndum á vegum Háskóla Íslands. Þorgeir hefur ritað fjölmargar greinar í blöð og tímarit, einkum um tæknileg efni. Fjölskylda Þorgeir kvæntist 12.6. 1964 Önnu Snjólaugu Haraldsdóttur, f. 20.9. 1942, deildarstjóra hjá Ferðaskrif­ stofu Íslands. Foreldrar hennar voru Haraldur Sigurðsson, f. 12.10. 1913, d. 7.1. 2000, aðalféhirðir Pósts og síma, og k.h., Brynhildur Sigþórs­ dóttir, f. 26.2. 1917, d. 3.10. 1992, hús­ freyja, þau voru búsett í Reykjavík. Dætur Þorgeirs og Önnu Snjólaug­ ar: Sigrún Þorgeirsdóttir, f. 28.9. 1964, söngkona og efnafræðingur en maður hennar er Þór Ásgeirsson, f. 6.4. 1964, kennari og er dóttir þeirra Ragnheið­ ur Anna, f. 16.4. 1989; Brynhildur, f. 23.3. 1970, viðskiptafræðingur á Sel­ tjarnarnesi en maður hennar er Dav­ íð Benedikt Gíslason, f. 30.12. 1969, lögfræðingur og eru börn þeirra Eva Björk, f. 30.6. 1994, Þorgeir Bjarki, f. 12.12. 1996, Anna Lára, f. 30.8. 2000, og Benedikt Arnar, f. 14.7. 2003; Elísa­ bet, f. 23.3. 1970, nemi í lyfjafræði, unnusti hennar er Hörður Gauti Gunnarsson, f. 21.3. 1970, verkfræð­ ingur og eru börn þeirra Gunnar Atli, f. 29.7. 1999, og Emelía, f. 21.8. 2001. Systir Þorgeirs er Hekla Pálsdóttir, f. 2.5. 1945, húsmóðir á Seltjarnar­ nesi en maður hennar er Björgvin Schram, f. 6.6. 1945, viðskiptafræð­ ingur og framkvæmdastjóri. Foreldrar Þorgeirs eru Páll Þor­ geirsson, f. 27.7. 1914, d. 20.3. 1999, stórkaupmaður sem starfrækti timbur verslun í áratugi, síðast í Ár­ múla 27, og k.h., Elísabet Sigurðar­ dóttir, f. 24.10. 1912, d. 18.2. 1999, húsfreyja. Ætt Páll er sonur Þorgeirs, forstjóra í Reykjavík Pálssonar, útvegsb. í Leyni á Reykjanesi Ísleifssonar. Móðir Páls var Aldís, dóttir Sig­ urðar Jónssonar, sjómanns í Móakoti í Reykjavík og Guðrúnar Jóhannes­ dóttur, húsfreyju. Fyrri kona Þorgeirs Pálssonar forstjóra var Kristín Eiríks­ dóttir og eignuðust þau tvö börn, Magnús, kaupmann í Reykjavík, og Emilíu, húsfreyju í Reykjavík. Elísabet var dóttir Sigurðar, vél­ stjóra Árnasonar, útvegsbónda í Hænuvík Jónssonar b. Guðmunds­ sonar. Móðir Sigurðar Árnasonar var Ingibjörg, dóttir Sigurðar Sigurðsson­ ar b. og Ingibjargar Ólafsdóttur en hún var áður gift Jóni Jónssyni, presti í Otradal. Móðir Elísabetar var Þuríður Pét­ ursdóttir, b. á Brúsastöðum í Þing­ vallasveit Jónssonar. 34 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 20.–22. maí 2011 Helgarblað Hermann fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúd­entsprófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð 1971, BS­prófi í líffræði frá Háskóla Íslands 1976, M.Sc.­prófi í umhverfisvísindum frá Miami Uni­ versity í Oxford í Ohio 1978 og dokt­ orsprófi í umhverfis­ og auðlindahag­ fræði frá Johns Hopkins University í Baltimore í Bandaríkjunum 1983. Hermann starfaði hjá National Wildlife Federation í Washington 1977–78, var sérfræðingur hjá Land­ græðslu ríkisins 1978–79 og hjá Wa­ ter Resources Center í Washington DC 1980 auk þess sem hann starfaði tímabundið á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keld­ um, Landmælinga Íslands, Raun­ vísindastofnunar Háskóla Íslands, Rannsóknarstofnunar landbúnaðar­ ins og Skógræktarfélags Reykjavíkur. Hermann var deildarstjóri í iðn­ aðarráðuneytinu 1983–87, aðstoðar­ maður sjávarútvegsráðherra 1987–91, ráðgjafi, ásamt öðrum með eigið fyrir­ tæki, Nýsi hf, 1991–92, framkvæmda­ stjóri Hollustuverndar ríkisins 1992–98, forstjóri þeirrar stofnunar 1998–2000 og starfsmaður umhverfis­ ráðuneytisins í Brussel frá 2000–2004. Hermann hefur haldið fjölda fyr­ irlestra um orku­ og auðlindamál við Háskóla Íslands og við Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna í Reykjavík. Hann var formaður umhverfismála­ nefndar ríkisstjórnarinnar 1983–84, ráðgjafi Alexanders Stefánssonar félagsmálaráðherra um umhverfis­ mál 1983–87, sat í Norrænu embætt­ ismannanefndinni um umhverfismál 1984–87, sat í stjórn Norræna iðnað­ arsjóðsins 1985–87, var ritari stóriðju­ nefndar ríkisstjórnarinnar 1983–87, var stjórnarformaður Hollustuvernd­ ar ríkisins 1988–92, formaður aflanýt­ ingarnefndar sjávarútvegsráðuneytis­ ins frá 1989–91, sat í Rannsóknarráði ríkisins 1987–91 og sat í skipulags­ og umhverfisnefnd varnarsvæða 1996–2000. Hermann sat í Norrænu embættismannanefndinni um Mat­ vælaöryggi 1997–2000, og er fulltrúi Íslands í stjórn Umhverfisstofnunar Evrópu frá 2007. Hann er meðlimur í alþjóðafélagi umhverfis­ og auðlinda­ hagfræðinga (AERE) og í Félagi við­ skipta­ og hagfræðinga, Hins íslenska náttúrufræðifélags, Gróðurs fyrir fólk og Skógræktarfélags Reykjavíkur. Fjölskylda Hermann kvæntist 28.7. 1979 Sól­ veigu Láru Guðmundsdóttur, f. 13.11. 1956, sóknarpresti á Möðruvöllum, en hún er dóttir Guðmundar Bene­ diktssonar sem er látinn, ráðuneytis­ stjóra í forsætisráðuneytinu, og k.h., Kristínar Claessen, læknaritara og húsmóður. Hermann og Sólveig Lára skildu 1994. Börn Hermanns og Sólveigar Láru eru Benedikt Hermann, f. 31.1. 1980; Kristín Anna, f. 7.7. 1988; Vigdís María, f. 13.7. 1990. Systkini Hermanns eru Vigdís Magnea Sveinbjörnsdóttir, f. 11.1. 1955, kennari, gift Gunnari Jónssyni, bónda á Egilsstöðum í Fljótsdal; Lóa Kristín Sveinbjörnsdóttir, f. 1.11. 1961, viðskiptafræðingur, gift Karli Konráð Andersen lækni; Dagfinnur Svein­ björnsson, f. 22.3. 1973, stjórnmála­ fræðingur. Foreldrar Hermanns eru Svein­ björn Dagfinnsson, f. 16.7. 1927, fyrrv. ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðu­ neytinu, og k.h., Pálína Hermanns­ dóttir, f. 12.9. 1929, húsmóðir. Ætt Sveinbjörn er sonur Dagfinns, dag­ skrárfulltrúa Sveinbjörnssonar, b. á Grímsstöðum í Landeyjum Guð­ mundssonar, b. þar Sveinbjörnsson­ ar. Móðir Dagfinns var Anna, systir Ingibjargar, móður Ingvars Vilhjálms­ sonar útgerðarmanns. Anna var dótt­ ir Ólafs, b. á Bakka í Þykkvabæ Árna­ sonar, bróður Guðbjargar, langömmu Rúnars Guðjónssonar sýslumanns. Móðir Sveinbjörns var Magnea Ósk Halldórsdóttir, b. í Árbæ í Ölf­ usi Jónssonar, hreppstjóra í Þor­ lákshöfn Árnasonar, hreppstjóra á Stóra–Ármóti, bróður Magnúsar á Hrauni, langafa Aldísar, móður Ellerts Schram, fyrrv. alþm., ritstjóra og for­ seta ÍSÍ, og Bryndísar, leikkonu og fyrrv. dagskrárgerðamanns. Magnús var einnig langafi Magnúsar, föður Magnúsar, bæjarstjóra í Vestmanna­ eyjum og ráðherra, föður Páls, út­ varpsstjóra RÚV. Magnús var sonur Magnúsar, hreppstjóra í Þorlákshöfn Beinteinssonar, lrm. á Breiðabólstað Ingimundarsonar á Hólum Bergs­ sonar, ættföður Bergsættar Sturlaugs­ sonar. Móðir Árna var Hólmfríður Árnadóttir, systir Valgerðar, formóður Briemættar, en móðir Jóns var Helga Jónsdóttir, lögsagnara á Stóra­Ármóti Johnsen, bróður Valgerðar, formóður Finsenættar. Móðir Magneu var Þur­ íður Magnúsdóttir, hreppstjóra í Vatnsdal í Fljótshlíð, bróður Jóns, í Þorlákshöfn. Bróðir Pálínu var Steingrímur for­ sætisráðherra, faðir Guðmundar alþm. Pálína er dóttir Hermanns, forsætisráðherra Jónassonar, b. og smiðs í Syðri­Brekkum í Akrahreppi Jónssonar. Móðir Hermanns var Pál­ ína ljósmóðir, systir Önnu, ömmu Sigurðar Björnssonar bæjarverk­ fræðings. Pálína var dóttir Björns, b. á Hofsstöðum Péturssonar, og Mar­ grétar, systur Þorkels, föður Þorkels veðurstofustjóra og afa Sigurjóns Rist vatnamælingamanns, föður Rann­ veigar Rist forstjóra. Margrét var dótt­ ir Páls Þórðarsonar, b. í Viðvík, bróður Jóns á Hnjúki, langafa Jóns á Hofi, föð­ ur Gísla menntaskólakennara. Bróð­ ir Páls var Jón á Ytrahvarfi, langafi Guðjóns B. Ólafssonar, forstjóra SÍS, og Hallgríms, föður Hafliða selló­ leikara og Jóhanns, föður Þórunn­ ar Ash kenazy. Móðir Páls var Sigríð­ ur Guðmundsdóttir, systir Jóhönnu, langömmu þeirra bræðra, Hallgríms, fyrsta forstjóra SÍS, Sigurðar, forstjóra SÍS, og Aðalsteins Kristinssonar, for­ stjóra hjá SÍS. Móðir Margrétar var Guðný Björnsdóttir, systir Guðrún­ ar, ömmu Páls Zóphóníassonar bún­ aðarmálastjóra, föður Hjalta, fram­ kvæmdastjóra hjá SÍS. Móðir Pálínu var Vigdís Oddný, dóttir Steingríms, byggingameist­ ara í Reykjavík Guðmundssonar, b. á Svalbarða á Álftanesi Runólfsson­ ar. Móðir Vigdísar var Margrét, syst­ ir Ingibjargar, ömmu Sigurðar Giz­ urarsonar sýslumanns. Margrét var dóttir Þorláks, útvegsb. í Þórukoti á Álftanesi, bróður Sæmundar, lang­ afa Tómasar, fyrrv. formanns SÍF, og Guðlaugs, fyrrv. ríkissáttasemjara Þorvaldssona og Ellerts Eiríkssonar, fyrrv. bæjarstjóra. Þorlákur var son­ ur Jóns, ættföður Húsatóftarættar Sæmundssonar. Hermann Sveinbjörnsson Sérfræðingur í umhverfisráðuneytinu Þorgeir Pálsson Prófessor við Háskólann í Reykjavík 60 ára á þriðjudag 70 ára sl. fimmtudag Andrea Ósk Ragnarsdóttir Heilbrigðisritari við Landspítalann Birgitta Ýr Ragnarsdóttir Húsmóðir í Reykjavík Andrea fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Breiðholtinu. Hún var í Fellaskóla, stundaði nám við förðunarskólann Face og útskrifaðist þaðan, stundaði nám í bókhaldi við Tölvu­ og viðskiptaskólann og síðan nám í rekstrarfræði við Háskólann á Bifröst. Andrea hefur sinnt verslunar­ og þjónustustörfum undanfarin ár. Hún sinnir nú heimilistörfum og sækir námskeið af ýmsum toga. Fjölskylda Sonur Andreu er Daníel Erik Aðal­ steinsson, f. 26.8. 2001. Systkini Andreu eru Lilja Ragn­ arsdóttir, f. 5.10. 1963, hárgreiðslu­ meistari, búsett í Kópavogi; Jóhann Anton Ragnarsson, f. 19.7. 1970, út­ gerðarmaður á Hellissandi; Birgitta Ýr Ragnarsdóttir, f. 21.5. 1981, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Andreu eru Ragnar Guð­ jónsson, f. 6.4. 1945, útgerðarmaður í Garðabæ, og Sigrún Margrét Sigurðar­ dóttir, f. 25.6. 1957, húsmóðir. Eiginkona Ragnars er María Ant­ onsdóttir, f. 24.8. 1947, húsmóðir. B irgitta fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Breiðholtinu. Hún var í Fellaskóla og útskrifaðist frá förðunarskólanum Face. Birgitta hefur sinnt þjónustu­ og umönnunarstörfum en er nú hús­ móðir. Fjölskylda Maður Birgittu er Valur Jóhannes Valsson, f. 30.6. 1980, dúklagningar­ meistari. Dóttir Birgittu og Vals er Margrét Lilja Valsdóttir, f. 25.1. 2008. Systkini Birgittu eru Lilja Ragn­ arsdóttir, f. 5.10. 1963, hárgreiðslu­ meistari, búsett í Kópavogi; Jóhann Anton Ragnarsson, f. 19.7. 1970, út­ gerðarmaður á Hellissandi; Andrea Ósk Ragnarsdóttir, f. 21.5. 1981, nemi í Reykjavík. Foreldrar Birgittu eru Ragnar Guð­ jónsson, f. 6.4. 1945, útgerðarmaður í Garðabæ, og Sigrún Margrét Sigurðar­ dóttir, f. 25.6. 1957, húsmóðir. Eiginkona Ragnars er María Ant­ onsdóttir, f. 24.8. 1947, húsmóðir. 30 ára á laugardag 30 ára á laugardag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.